Nesfréttir - 01.01.2009, Page 11
NES FRÉTTIR 11
Jólagleði í Való
Mikil gleði ríkti í Valhúsaskóla
dagana fyrir jól. Mánuðurinn byrj-
aði að vísu með jólaprófum í 8., 9.
og 10. bekk en 11. des. skreyttu
nemendur skólann sinn. Dari dari
dancecompany heimsótti skólann
11. desember og þann sama dag
færðu 10. bekkingar Mæðrastyrks-
nefnd 200.000 kr. sem höfðu m.a.
safnast með styrktarsýningu nem-
enda á söngleiknum Grease.
Kennsla var brotin upp dagana
17. og 18. desember og tókust
þessir dagar mjög vel. Nemendur
kunnu tilbreytingunni vel og voru
í alla staði til fyrirmyndar. Farið
var með alla nemendur skólans í
Háskólabíó þar sem sýnd var mynd-
in Four Christmases. Auk þess fóru
umsjónarkennarar með nemendur
sína niður í íþróttahús þar sem far-
ið var í ýmsa leiki, haldin var söng-
lagakeppni í Miðgarði sem Örn Arn-
arson, íþróttakennari stjórnaði með
miklum ágætum og 18. des. enduðu
nemendur daginn í Seltjarnarnes-
kirkju þar sem sr. Sigurður talaði
við nemendur og allir sungu sam-
an. Í kirkjunni steig nýr skólakór
unglingadeildar á stokk í fyrsta sinn
og söng nokkur lög undir stjórn
Ingu Bjargar Stefánsdóttur. Kórinn
stóð sig með mikilli prýði. Litlu jól
Valhúsasóla voru svo haldin föstu-
daginn 19. desember. Þá gengu ung-
lingarnir okkar í kringum jólatré
og sungu öll helstu jólalögin. Það
er alltaf frábært að sjá hve margir
eru tilbúnir til að taka þátt í þessari
gleði. Eftir að nemendur höfðu tek-
ið við einkunnum sínum og fengið
dálitla hressingu hjá umsjónarkenn-
urum fóru allir í jólafrí.
8. bekkingar í fallega skreyttri stofu.
Dansað og sungið í keppninni “Það var lagið” sem haldin var í Való 18. des.
Nemendur í 10. bekk afhenda Mæðrastyrksnefnd 200.000 kr.