Akureyri - 13.05.2015, Side 6

Akureyri - 13.05.2015, Side 6
6 5. árgangur 18. tölublað 13. maí 2015 VILTU SEGJA SKOÐUN ÞÍNA? Akureyri vikublað óskar eftir að komast í samband við bæjarbúa sem sjaldan eða aldrei hafa veitt viðtöl en væru til í að segja skoðun sína í blaðinu eða veita stutt viðtöl. Vinsamlegast sendið okkur tölvu- póst á bjornthorlaksson@gmail.com eða hringið í síma 862 0856. LOF OG LAST VIKUNNAR LOF fær Jón Birgir Gunnlaugsson, for- stöðumaður umhverfismála hjá Akureyrar- bæ, sem lýsti því opinberlega yfir á dögun- um að hann óskaði þess að bæjarstjórnin á Akureyri tæki sömu ákvörðun og borgar- yfirvöld í Reykjavík hvað varðar Laugaveg- inn og lokaði göngugötunni í Hafnarstræti þótt ekki væri nema í 3 mánuði yfir sumar- tímann. Lofið sendi glöggur lesandi sem rak augun í færslu Jóns Birgis á facebook þar sem hann tengir við frétt Ríkisútvarpsins þar sem segir að borgarráð hafi ákveðið að sumarlokun Laugavegar skyldi standa yfir frá 15. maí til 15. september. Lesandinn sem hafði samband við blaðið bendir á að skiptar skoðanir hafi verið meðal bæjar- búa á Akureyri um að hve miklu leyti skuli takmarka bílaumferð í hinni svokölluðu norðlensku „göngugötu“ í Hafnarstrætinu. Ekki síst séu foreldrar ungra barna þreyttir á að geta aldrei sleppt af þeim hendinni í Hafnarstrætinu vegna hættu á að börnin verði fyrir bíl. Mengun vegna útblásturs sé einnig vandi... „Mig langar að LASTA að ekki séu leng- ur ruslagámar við Kaupvang eins og var. Ég veit að fjöldi fólks vill fá gámastöð aftur á þetta svæði og tel brýnt að úr verði bætt,“ segir kona á Akureyri sem hafði samband við blaðið. Samkvæmt upplýsingum blaðsins má einkum kenna því um að ekki náðist samkomulag við eigendur bílastæðanna á svæðinu um að hafa grenndarstöðina áfram opna, en víst er að margir sakna hennar... LOF fær Bjarni E. Guðleifsson fyrir „æðru- leysispistil“ um veðrið, segir kona á Húsavík sem hafði samband við blaðið til að þakka fyrir grein Bjarna í síðasta tölublaði Akureyr- ar vikublaðs. „Það er nú málið að við erum oft of kvartgjörn og kunnum ekki til fulls að meta þau lífsgæði sem við okkur blasa á hverjum degi. Þetta var góð hugvekja hjá Bjarna,“ segir húsvíska konan... LAST fær Vigdís Hauksdóttir þingmaður fyrir að tala niður þau mannréttindi laun- þega að beita verkfallsvopninu. Þetta segir karl í Þorpinu sem segist hafa fylgst með málflutningi Vigdísar um síðustu helgi. „Mér er nóg boðið. Það er óþolandi að búa við stjórnvöld sem tala upp hagsmuni yfirstéttarinnar en hlamma sér ofan á almenning af fullum þunga. Þetta gengur ekki lengur,“ segir karlinn í Þorpinu í bréfi til blaðsins... AKUREYRI VIKUBLAÐ 18. TÖLUBLAÐ, 5. ÁRGANGUR 2015 ÚTGEFANDI Fótspor ehf. ÁBYRGÐARMAÐUR Ámundi Ámundason 824 2466, amundi @ fotspor.is. FRAMKVÆMDASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. AUGLÝSINGASTJÓRI Ámundi Steinar Ámundason, as @ fotspor.is. 578-1193. RITSTJÓRI Björn Þorláksson, bjornthorlaksson@gmail.com, 862 0856 MYNDIR Björn Þorláksson, Völundur Jónsson og fleiri. UMBROT Völundur Jónsson PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja - Svansmerkt prentun. DREIFING 14.500 EINTÖK ÓKEYPIS – UM ALLT NORÐURLAND Að gefa öðrum en sjálfum sér Hart er nú tekist á um Ísland og auðlindirnar. Hægri menn hampa stöðugleika, lágri verðbólgu og betri efnahagsstjórn en í tíð Vinstri stjórnarinnar. Vinstri menn segja aftur á móti að gjá hafi myndast milli hinna eigna- minni og elítunnar í landinu. Verkföllin séu eitt merkið um það. Ástandið sé afrakstur verka hægri sinnaðrar ríkisstjórnar. Svo eru þeir líka til sem segja að hægri stjórnin sé hreint ekkert hægri sinnuð, því hún hugsi fyrst og fremst um að skammta almannagæðunum með sjálftöku eða gjöfum til vildarvina. Allar aðrar leiðir noti stjórnin til útdeilingar gæðanna, ríkisstjórnin noti allar aðrar leiðir en frjálsar og opnar markaðslausnir eins og hið kapítalíska hagkerfi boðar þó að skuli ríkja í öndvegi. Eitt aðgreinir þó sannarlega ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar frá ríkisstjórn Jóhönnu Sig- urðardóttur. Það er aginn. Í Kjarnanum var nýlega birt grein þar sem mátti túlka að Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason (báðir vinstri grænir) hafi staðfest glundroða- kenningu sjálfstæðismanna rækilega í síðustu stjórn. Vinstri öflin leyfi slíku að gerast af því að agi sé bara fyrir hægri menn! Vegna umræðunnar hafa sumir spurt hvort það myndi bjarga nokkru glundroðalega þótt allir vinstri flokkar landsins myndu skipa sér tímabundið á bakvið Katrínu Jakobsdóttur. Margir liðast nú um loftin blá með þann blauta draum í maganum að vinstri öflin sameinist undir stjórn þess stjórnmálaforingja sem þjóð- in treystir best til að skapa alvöru mótvægi við einhverja óvinsælustu ríkisstjórn sögunnar. En dugar sá draumur einn og sér án róttækrar hugarfarsbreytingar? Það var hryggilegt að sjá hvernig persónupólitík bitnaði á aga og langtímamarkmiðum í tíð síðustu ríkis- stjórnar. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur getur engan veginn skellt allri sök á tótal fylgishruni og eigin trúverð- ugleikabresti á erfitt árferði, þ.e. óvinsælar óhjákvæmi- legar stjórnvaldsaðgerðir í kjölfar hruns sem leiddu til hnignandi lífsgæða landsmanna. Fjöldi þingmanna Vinstri stjórnarinnar gerði stjórnarsamsamstarfið og stjórn landsins að sirkus með því að lúffa aldrei fyrir trú hinna sömu á að þeir hefðu sjálfir höndlað sannleikann. Ófriður vinstri aflanna innbyrðis er í raun megin ástæða þess að hægriflokkar og borgaralegir flokkar hafa haldið um stjórnartaumana á þessu skeri, ólíkt t.d. Norðurlöndunum, linnulítið frá lýðveldisstofnun. Það má velta fyrir sér hvað skýri alkunna stífni vinstri manna hér á landi. Ég held að ein skýringin sé að hér á landi eigi hægri menn flestar eignirnar og verji þær með kjafti og klóm. Þeir setja lög sem vernda þeirra eigin efnahag, ráðskast með almannafé til að græða meira sjálfir. Vinstri menn verja aftur á móti skoðanir sínar og hugsjónir með sama kappi og hægri menn verja eigurnar. Það er sumpart auðveldara að skapa samstöðu um eigur en skoðanir. En stundum þarf að lána, stundum selja, stundum gefa. Það á bæði við um fé og andleg eigindi. Annars búum við aldrei við farsælar ríkisstjórnir. Annars verður landinu áfram illa stjórnað og fyrir það munum við borgarar áfram gjalda. Að gefa öðrum gerir manninn frjálsan. Með ritstjórakveðju Björn Þorláksson Þrælavakt í kjölfar verkfalls Dæmi voru um að starfsmenn fyrir- tækja á Akureyri sem alla jafna vinna aðeins dagvinnu væru ræstir út klukk- an 12 á miðnætti aðfararnótt síðasta föstudags eftir tveggja daga verkfall til að bregðast við því ástandi sem hafði skapast á meðan á verkfalli stóð. Sumir voru beðnir um að vinna nán- ast tvöfalda vakt í beit. Akureyri viku- blað hefur rætt við starfsmann sem staðfestir þetta. Rökstuðningurinn var sagður þörf þess að hjól atvinnulífsins snerust á ný af fullum krafti með þarfir þjónustu, framleiðsu og viðskiptavina í huga. „Fyrst gerir maður ekki neitt í tvo daga en svo eru opnaðar þrælabúð- ir. Jújú, formlega er hægt að segja nei en það gæti kostað sitt, yfirvinnan er náttúrlega líka greidd í topp þannig að það muna um hana,“ segir viðmælandi blaðsins sem hvorki vill láta nafns síns sé fyrirtækis getið. Harka er víða vegna verkfallsað- gerðanna og ásakanir um verkfallsbrot hafa komið upp á Norðurlandi sem annars staðar. Deilur eru víða í hnút og telja sumir viðmælenda blaðsins að svo kunni að fara að nánast for- dæmalaust ástand kunni að skapast í samfélaginu á næstu vikum. Framsýn á Húsavík hafði þó um helgina samið við 23 fyrirtæki á félagssvæðinu eða um 30% af starfandi fyrirtækjum á svæð- inu sem greiða kjarasamningsbundin gjöld til Framsýnar. Kjúklingabú án starfsleyfis Úrskurðarnefnd auðlindamála hefur fellt úrskurð þar sem felld er úr gildi sú ákvörðun Heilbrigðisnefndar Norð- urlands eystra (HN) frá september árið 2013 að hafna því að stöðva rekstur alifuglabúsins Grænegg ehf. í Svein- bjarnargerði. Fram kemur í úrskurðin- um að alifuglabúið hafi ekki starfsleyfi. Svalbarðsstrandarhreppur hafði lagt blessun sína yfir starfsemina. Það var Sveitahótelið Svein- bjarnargerði sem gerði þá kröfu að starfsemi alifuglabúsins yrði stöðv- uð. Alifuglarækt hafði verið stunduð á staðnum um áratugaskeið en árið 2012 tók Grænegg við búinu og hóf starfsemi á vistvænum eggj- um. Á sömu bújörð hefur verið rekin ferðaþjónusta í um áratug og þótti aðstandendum Sveitahótelsins sem framleiðsla eggjanna væri þó ekki vistvænni en svo að alifuglaræktin færi illa að umhverfinu og þá ekki síst ferðaþjónustu. Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra taldi það þó ekki frágangssök eftir kæruna að búið skorti starfsleyfi og hafnaði kröfu Sveitahótelsins m.a. með vísan til þess að búið fylgdi leiðbeiningum frá Hollustuvernd. Taldi HN að hvorki væri um starfsleyfisskyldan rekstur að ræða né samræmdist það meðal- hófi að stöðva rekstur alifuglabúsins. Þá niðurstöðu hefur Úrskurðarnefnd auðlindamála nú ómerkt. Þótt nýir eigendur hafi tekið við Sveitahótelinu árið 2014 búa þau sem kærðu alifuglabúið enn á jörðinni. Í málinu var m.a. tekist á um mengun og deiliskipulag auk þess sem að fram- an greinir. Sveitarstjórn Svalbarðs- strandarhrepps hafði lagt blessun sína yfir starfsemi alifuglabúsins en þar munu hafa verið um 4.000 alifuglar undanfarið. Þau sem kærðu og hafa nú haft sig- ur segja að úrskurður HN hafi skapað uppnám og óverjandi sé að kjúklinga- búið hafi fengið nýtt rekstrarleyfi fyrir einu ári án þess að hafa starfsleyfi eins og lög kveða á um. Úrskurðarnefnd auðlindamála er sammála því mati. Óvíst er hvaða þýðingu úrskurðurinn hefur á framtíð alifuglabúsins. -BÞ margt býr í þokunni. Á sjó og landi. Kerstin Gillen

x

Akureyri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.