Reykjanes - 17.12.2015, Qupperneq 6

Reykjanes - 17.12.2015, Qupperneq 6
6 17. Desember 2015 Hvað hafa þeir fiskað? Ekki er nú hægt að segja að des-ember hafi byrjað vel. Miklar brælur hafa verð og sjósókn erfið. Línubátunum eru farnir að fjölga og eru t.d balabátarnir Gull- toppur GK og Kristbjörg HF sem Stakkavík í Grindavík á og gerir út komnir suður til Sandgerðis. Vísir ehf í Grindavík tók á móti nýjum Fjölni GK sem var í miklum breytingum í Póllandi. Var meðal annars lengdur um 9 metra, brúin hækkuð og allt tekið í gegn afturskips. Mun hann koma í staðinn fyrir núver- andi Fjölni GK sem er nokkuð eldri bátur og með nokkuð minni lestar- pláss. Gamli Fjölnir GK tók um 92 tonn í lestina í kör enn sá nýi um 115 tonn í kör. Nýi Fjölnir GK hét lengst af Rifsnes SH og var gerður þá út frá Rifi, Þar sem þetta er síðasti pistillinn á þessu herrans ári 2015 þá mun ég líta aðeins á suðurnesjaflotann og hvað þeir voru búnir að fiska miðað við tímabilið 1.janúar til 1.desember. Byrjun á togurunum þá er Gnúpur GK hæstur með 6552 tn í 13 lönd- unum, Hrafn Sveinbjarnarson GK 5733 tn í 12. Baldvin Njálsson GK 5112 tn í 15, enn þetta eru allt frysti- tog arar. Berglín GK 2811 tn í 45, Vörður EA 3712 tn í 58, Áskell EA 3362 tn í 60. Sóley Sigurjóns GK 2772 tn í 41. Hjá netabátunum þá er Erling KE hæstur með 1164 tní 61, sem allt var landað á vertíðinni, enn báturinn var ekkert gerður út um sumarið né haustið. Grímsnes GK 1012 tn í 118, Maron GK 723 tn í 166. enn hann er búinn að róa langmest af bátunum utan við smábátanna. Askur GK 408 tn í 118, Gunnar Hámundarsson GK 364 tn í 80, Steini Sigvalda GK 277 tn í 53. Reyndar er rétt að hafa í huga að Guðjón Bragason skipstjóri á Steina Sigvalda GK byrjaði árið á Tjaldanes GK, enn sá bátur bilaði í janúar og kláraði þá Guðjón vertíðina á Happa- sæli KE. Ef að aflinn á þessum þremur bátum er lagður saman þá hefur Guð- jón samtals landað 598 tonnum á þessum þremur bátum. Hjá dragnótabátunum þá er Sigur- fari GK hæstur með 1202 tn í 112, Örn GK kemur þar á eftir með 1067 tn í 110 róðrum. Benni Sæm GK 948 tn í 113, Arnþór GK 926 tn í 115, Siggi Bjarna GK 735 tn í 74, og Njáll RE 415 tn í 86. Hjá minnstu smábátunum undir 8 BT þá má nefna t.d að Sella GK er hæstur með 83 tn í 53, Líf GK 61 tn í 67 og Sigrún KE 51 tn í 50. Ef smá- bátarnir upp að 13 BT eru skoðaðir þá er Addi Afi GK hæstur með 394 tn í 96, Guðrún Petrína GK 188 tn í 44, Stella GK 179 tn í 43, enn báðir þessir bátar eru gerðir út af sama útgerðaraðila. Og Birta Dís GK 127 tn í 51. Smábátar að 15 BT þá er Von GK hæstur með 793 tn í 132, enn það má geta þess að Hafþór skipstjóri á Von GK var að þreyta frumraun sína í ár á línubáti sem skipstjóri enn hann var að mestu búinn að vera skipstjóri á netabátunum áður enn hann tók við Von GK. Óhætt er að segja að þessi frumraun Hafþórs hafi gengið ansi vel. Daðey GK 717 tn í 139. Bergur Vig- fús GK 573 tn í 106, Muggur KE 543 tn í 88, Dúddi Gísla GK 542 tn í 106, Pálína Ágústdóttir GK 503 tn í 100. Óli Gísla GK 301 tn í 76. Allar þessar tölur miðast við bolfisk. Ef makríl er bætt við þá fer Daðey GK í 800 tonn, Bergur Vigfús GK í 643 tonn, Pálína Ágústdóttir GK í 600 tonn og Óli Gísla GK í 376 tn. Af stóru línubátunum þá er Sig- hvatur GK hæstur með 3707 tn í 45, Kristín GK 3656 tn í 48, Fjölnir GK 3607 tn í 48, Jóhanna Gísladóttir GK 3560 tn í 39, Páll Jónsson GK 3549 tn í 41, Sturla GK 3179 tn í 46, Tómas Þorvaldsson GK 2576 tn í 48. Bátur- inn Hrafn GK byrjaði árið sem Ágúst GK enn fékk nafnabreytingu og hefur því samanlagt landað tæpum 2600 tonnum, Valdimar GK 1422 tn í 28, enn hann var frá veiðum ansi lengi útaf vélarbilun. Gísli Súrsson GK 1559 tn í 208, Auður Vésteins SU 1537 tn í 210. Óli á Stað GK 1529 tn í 195, Gulltoppur GK 1182 tn í 147. Guðbjörg GK 647 tn í 109, Dóri GK 502 tn í 79, Krist- björg HF 352 tn í 62. Baldur sem er skipstjóri á Kristbjörgu HF var áður með Guðbjörgu GK og hefur því sam- anlagt landað tæpum 1000 tonnum í ár. Andey GK 200 tn í 65 og Katrín GK 320 tn í 78. Fínasta aflaár hjá flotanum á Suðurnesjunum þótt að allavega þrjú skip hafi orðið frá veiðum vegna bil- anna , Páll Jónsson GK og Valdimar GK, og Sóley Sigurjóns GK vegna bruna, Vil svo óska lesendum Reykjanes og lesendum þessara pistla gleði- legra jóla og eigiði farsælt komandi ár framundan. Ár sem byrjar á vetr- arvertíðinni 2016. Gísli R. Aflafréttir Met aðsókn í Grindavík Á fundi Frístunda og menn-ingarnefndar Grindavíkur var lögð fram kýrsla um starfsemi tjaldsvæðisins sumarið 2015 . Met aðsókn var á tjaldsvæð- inu í Grindavík í sumar, frá miðjum maí og til loka september, bæði hvað varðar gesti og gistinætur. Aukningin á gistinóttum á milli ára er um 35% og aukning gesta um 34%. Alls komu 9120 gestir á tjaldsvæðið í sumar frá maí til september en gistinætur voru 10.449. Aukning bara í september var um helming. Jólatrésskemmtun í Garði Kvenfélagið Gefn býður Garð-mönnum nær og fjær á jóla-trésskemmtun sem haldin verður í Miðgarði Gerðaskóla í Garði sunnudaginn 27. des. n.k. frá kl. 15.00 – 17.00. Nú eins og ævinlega ætlum við að dansa í kringum jólatréð við fjöruga tónlist og söng og njóta veitinga í boði kvenfélagskvenna. Að venju kemur jólasveinninn í heimsókn með glaðn- ing í poka handa kátum krökkum. Garðbúar, gestir og gangandi, mætum öll í jólaskapi með börnunum og höfum gaman saman. ATH! Frír aðgangur. Með jólakveðju frá kvenfélaginu Gefn. Algjört áhugaleysi Rafrænni íbúakosningu í Reykjanesbæ lauk í byrjun desember. Í sjálfu sér er þetta merkileg tilraun til að ná fram vilja kjósenda. Það sem vekur athygli er hversu dræm þátttakan var. Aðeins 931 tók þátt í kosningunni eða 8,71% þeirra sem voru á kjörskrá. Það voru 2800 kosningabærir aðilar sem fóru fram á íbúakosningu. Merkilegt að kosningaþátttaka nær aðeins þriðjungi þeirrar tölu. Niðurstaða þessara fáu sem þátt tóku eru það rétt rúm 50% styðja hugmyndir bæjarstjórnar. Reyndar var búið að gefa út að niðurstaða kosninganna breytti engu, það yrði farið í fyrirhugaðar framkvæmdir. Það má vel vera að það hafi haft áhrif á þátttökuleysið. Fram hefur komið að einstaklingar hafi látið gera skoðanakönnun meðal íbúa. þar hafi komið í ljós að rúmlega 64% eru hlynnt uppbyggingaráfromum bæjarstjórnar Reuykjanesbæjar en 23% séu á móti. Í könnun sem MMR gerði í byrjun desember meðal Suðurnesjamanna er niðurstaðan að um 72% eru hlynnt iðnaðaruppbyggingu í Helguvík en um 28% á móti. Vilja sjá yfirlit Bæjarstjórn Garðs samþykkti á fundi sínum 4. nóvember s.l. að fela bæjarstjóra að eiga viðræður við Íbúðalánasjóð og fá frekari uppýsingar um málið, m.a. fá yfirlit yfir þær húseignir í Garði sem um er að ræða. Íbúða- lánasjóður hefur boðið bæjaryfir- völdum í garði að kaupa íbúðir sem sjóðurinn á í sveitarfélaginu. Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbæ | www.siraf.is | Si01@simnet.is | Sími: 421 7104 Jólagjöfina færðu hjá okkur

x

Reykjanes

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.