Reykjanes - 17.12.2015, Side 10
Tilgangur uppbyggingarsjóðs Suðurnesja er að styrkja menningar-,
atvinnu- og nýsköpunarverkefni á Suðurnesjum. Uppbyggingarsjóður
er samkeppnissjóður, auglýst er reglulega eftir umsóknum og þær
metnar út frá reglum sjóðsins. Styrkveitingar miðast við árið 2016
og aðeins er um eina úthlutun fyrir árið að ræða.
Hægt er að sækja um styrki í eftirfarandi flokkum:
• Styrkir til atvinnuþróunar og nýsköpunar.
• Styrkir á sviði menningar og lista.
• Stofn- og rekstrarstyrkir á sviði menningarmála.
Öllum umsóknum skal skilað með rafrænum hætti
á netfangið uppbyggingarsjodur@sss.is
Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2016.
Allar nánari upplýsingar er að finna á vef Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum sss.is en þar er hægt að nálgast umsóknareyðublað,
kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins og Sóknaráætlun Suðurnesja.
Einnig er hægt að hafa samband við Björk Guðjónsdóttur,
verkefnastjóra á netfangið bjork@sss.is eða í síma 420 3288.
UPPBYGGINGARSJÓÐUR
SUÐURNESJA
AUGLÝSIR EFTIR
STYRKUMSÓKNUM
SÓKNARÁÆTLUN
SUÐURNESJA
10 17. Desember 2015
Vogar:
Bætt rafræn þjónusta
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum segir frá því í viku-legum psitli sínum Vogahrað-
ferð að bætt rafræn þjónusta sé nú í
boði á heimasíðu sveitarfélagsins.
Á síðunni er ábendimngarhnappur
þar sem hægt er að koma með
ábendingar til Umhversisdeildar
sveitarfélagsins. Um nokkra valkosti er
að ræða, bilaður ljósastaur, skemmdar
gangstéttir, malbiokunarskemmdir,
rusl og vatnsskemmdir auk almennra
athugasemda.
Athugasemdir og ábendingar eru
teknar til úrvinnslu og komið í réttan
farveg segir Ásgeir bæjarstjóri í sínum
pistli.
6,25 milljón farþegar
um Keflavíkurflug-
völl árið 2016
Á fjölmennum fundi Isavia á Natura Hotel var farið yfir farþegaspá Keflavíkurflug-
vallar fyrir árið 2016. Um 28,4% fleiri
farþegar munu fara um Keflavíkur-
flugvöll á næsta ári en þessu, sem þýðir
að heildarfarþegafjöldi verður um 6,25
milljónir á árinu 2016. Þetta kemur
fram í nýrri farþegaspá Isavia. Útlit
er fyrir að alls fari um 4,9 milljónir
farþega um völlinn á þessu ári, sem
er aukning um 25,8% frá árinu 2014.
Yfir 200 manns úr ferðaþjónustunni
sóttu fund Isavia.
Aukin tíðni, fleiri flugfé-
lög, aukin samkeppni
Flest flugfélög sem fyrir eru munu
auka tíðni sína á næsta ári, eða bæta
við áfangastöðum. Auk þess hefja
nokkur ný flugfélög flug á árinu 2016.
Sumarið 2016 munu því 25 flugfélög
fljúga til 80 áfangastaða frá Keflavíkur-
flugvelli.
Íslendingar ferðast meira
Í farþegaspánni er gert ráð fyrir um
10% fleiri íslenskum ferðamönnum
en árið 2015. Gangi þessi spá eftir
munu Íslendingar vera um 24,3% af
heildarfjöldanum. Erlendum ferða-
mönnum hefur það sem af er þessu
ári fjölgað um tæp 30% en í spánni
fyrir árið 2016 er gert ráð fyrir 22,2%
fjölgun þeirra. Erlendir ferðamenn
verða því samkvæmt spánni um 1.540
þúsund eða um 75,7% af farþegum
Keflavíkurflugvallar á næsta ári. Til
samanburðar var þetta hlutfall 64,4%
árið 2012.
Skiptifarþegum fjölgar
Skiptifarþegum sem millilenda á
Keflavíkurflugvelli á leið sinni á milli
Evrópu og Norður-Ameríku fjölgar
hratt og gert er ráð fyrir að þeir verði
um 35% allra farþega árið 2016. Árið
2015 lítur út fyrir að hlutfall skiptifar-
þega verði 30,7%.
Aukin afkastageta
flugstöðvarinnar
Nú vinnur starfsfólk Isavia að því að
tryggja sem best þjónustustig yfir há-
annatíma á Keflavíkurflugvelli næsta
sumar. Þær aðgerðir snúast um að klára
yfirstandandi stækkanir flugstöðvar-
innar, auka afköst til þess að nýta þá
fermetra sem fyrir eru betur, auka sjálf-
virkni á öllum stigum ferðalagsins um
flugstöðina og tryggja að mönnun í
öryggisleit og öðrum þjónustustörfum
sé nægilega mikil. Næsta sumar verður
flugstöðvarbyggingin um 16% stærri
en hún var í byrjun þessa árs, eða um
65.000 fermetrar. Að auki verða opnuð
þrjú ný flugvélastæði.
Um farþegaspána
Farþegaspá Isavia er unnin út frá
gögnum flugfélaga um sætaframboð og
áætluð er ákveðin sætanýting. Þannig
fæst nokkuð góð áætlun miðað við
þær forsendur sem uppi eru hverju
sinni. Spáin er samtala komufarþega,
brottfararfarþega og skiptifarþega um
flugvöllinn. Hún telur því erlenda og
innlenda ferðamenn bæði við komu og
brottför auk þeirra sem einungis stoppa
á flugvellinum til þess að ferðast áfram
til annars lands.
Forsetinn
eða Jón
Gnarr ?
Menn bíða nú spenntir eftir áramótaávarpi Ólafs Ragnars
Griímssonar, forseta. MUn hann til-
kynna um fara enn einu sinni fram eða
hættir hann. Ef við værum England
væru veðbankar á fullu.
Jón Gnarr hefur nú dregið í land
að hann ætli ekki fram. Fari þeir
báðir fram getur það orðið verulega
spennandi keppni. Ólafur Ragnar
mun reiða sig á fylgi Sjálfstæðismanna
ásamt Framsóknarmönnum. Kannski
hógværir Samfylkingarmenn myndu
einnig styðja Ólaf Ragnar.
Jón Gnarr fær auðvitað stuðning
frá fyrrum samherjum Ólafs Ragnars
Vinstri grænum, Pírötum, Samfylkingu
og fleiri vinmstri mönnum.
Já spennandi að sjá hvað gerist á
nýársdag.
Snjó kall inn skrif ar: Heilsugæslan
flutt
Heilsugæslan í Vogum er flutt úr Iðndal í nýja aðstöðu í Álfagerði.
Húsnæðið í Iðndal verður notað sem
fundarsalur bæjarstjórnarn ásamt
aðstöðu fyrir starfsemi féllagsþjón-
ustunnar.
Íslandsmót fatlaðra
á Suðurnesjum
Bæjarstjórn Garðs tók fyrir erindi frá Nes, íþróttafélagi fatlaðra en Nes mun halda
Íslandsmót fatlaðra 11. -13.03.2016
á Suðurnesjum. Í erindinu er m.a.
óskað eftir því að þátttakendum verði
boðið frítt í sund og söfn mótsdag-
ana, jafnframt því að óskað er eftir
því að fulltrúi sveitarfélagsins komi
að verðlaunaafhendingu á mótinu
og verði heiðursgestur. Bæjarráð
samþykkir samhljóða að verða við
erindinu. Bæjarstjóra falið að svara
erindi Nes.
D-vítamín
fyrir geðheilsu
Ný íslensk rannsókn, sem birt var í Journal of Nutritional Sci-
ence í vikunni, styður þá kenningu
að samband sé milli D-vítamínskorts
og þunglyndis. Rannsóknin er hluti
af risavaxna samevrópska verkefninu
MooDFOOD.