Reykjanes - 17.12.2015, Side 12
Það er árleg hefð í sögu Ráarinnar að vera með
skötuhlaðborð í hádeginu á Þorláksmessu
og verður engin undantekning á því þetta árið
eins lengi og birgðir endast.
Verð 3.900 kr. pr. mann.
Skötuhlaðborð
á Ránni
23. desember
Hafnargata 19 • Reykjanesbæ • s: 421 4601 • www.rain.is • rain@rain.is
Borðapantanir í síma: 421 4601 og 893 2082
Bæði sterk og mild skata!!
12 17. Desember 2015
Nýtt upprunamerki fyrir
ferðamenn á íslenskt
lambakjöt og ullarvörur
Umfangsmiklu verkefni til að kynna sjálfbært íslenskt lambakjöt og ull fyrir er-
lendum ferðamönnum var nýlega
var hleypt af stokkunum .
Ráðherra ferðamála, Ragnheiður
Elín Árnadóttir, setti upp nýtt upp-
runamerki Markaðsráðs kindakjöts í
fyrsta skipti á veitingastaðnum VOX
við Suðurlandsbraut.
Þá verða allar peysur, húfur, teppi
og annað úr íslenskri ull merkt sér-
staklega. Merkið þýðir að varan sé
íslensk.
Merkið var sett upp á þremur
öðrum stöðum í dag; Grillinu á Rad-
isson Blu Saga Hótel, Handprjóna-
sambandinu við Skólavörðustíg og
ullar- og ferðamannaversluninni Og
þó við Laugaveg.
Merkið mun á næstum vikum og
mánuðum vara sett upp hjá öðrum
og ullarverslunum sem eru í samstarfi
við Markaðsráð kindakjöts.
Í fáum orðum:
Veitingastaðir sem setja íslenskt
lambakjöt í öndvegi munu frá og
með 3. desember geta gert samning
við Markaðsráð kindakjöts um að
fá að nota nýtt upprunamerki fyrir
íslenskar sauðfjárafurðir. Staðirnir fá
sérstakan skjöld sem komið er fyrir
við inngang, lambakjöt verður sér-
staklega dregið fram á matseðli og
þeir verða hluti af markaðsstarfi sem
miðar að því að kynna erlendum
ferðamönnum lambakjöt og aðrar
sauðfjárafurðir. Fyrstu staðirnir sem
taka þátt eru VOX og Grillið. Fjöl-
margir aðrir staðir fylgja í kjölfarið.
Þá verða íslenskar ullarafurðir eins
og lopapeysur, húfur, vettlingar og
teppi merkt sérstaklega með uppruna-
merkinu. Þær verslanir sem bjóða ein-
göngu upp á íslenskar ullarvörur fá
að auki sérstakan skjöld við inngang
samkvæmt samningi við Markaðsráð
kindakjöts. Takmarkið er að merkja
allar vörur úr íslenskri ull sem eru á
boðstólum fyrir ferðamenn. Byrjað
verður á því að merkja allar vörur hjá
Handprjónasambandinu og ullar- og
ferðamannaversluninni Og þó við
Laugaveg.
Tilgangur merkisins er að draga
fram og benda á sérstöðu, hreinleika
og gæði íslenskra sauðfjárafurða.
Unnið hefur verið að undirbúningi
um nokkurra mánaða skeið í sam-
vinnu við ýmis fyrirtæki og stofnanir,
leiðsögumenn og aðila í ferðaþjónustu
Framundan
mikil listaveisla
Nú er listahátíðin Ferskir vindar í Garði að hefjast. Fjöldi er-lendra listamanna mun taka
þátt í hátíðinni og munu þeir fara að
koma í Garðinn upp úr miðri viku, há-
tíðin mun standa til loka janúar 2016.
Að undanförnu hefur verið mikil vinna
við að undirbúa komu listamannanna.
Listahátíðin Ferskir vindar er í senn
skemmtilegur og athyglisverður at-
burður sem hefur m.a. vakið mikla
athygli víða erlendis. Nánari upplýs-
ingar um hátíðina munu koma fram
á næstu dögum. Framundan er mikil
listaveisla í Garði. (Úr Molapistli Magn-
úsar bæjarstjóra)
Varahluta- og viðgerðarþjónusta
New Holland – O&K – Fiat – Fiat Hitachi
VÉLANAUST ehf
Álhella 4 • Símar: 555 6670 / 892 3996 • www.velanaust.isÁlhella 4 • Símar 55 6670 • 89 6 • w.velanaust.is
VARAHLUTIR
Iveco • Benz • Man • Renault
Varahlutaþjónusta
Álhe la 4 • ímar 55 6 70 • 60 1859 • .vel a t.i
Auglýsingasíminn er
578 1190
Suðurnesin í dauðafæri
Bæjarstjórinn í Garði skrifar m.a. í nýlegan molapistil sinn á heimasíðu Garðsins:
Í gær, fimmtudag boðaði Heklan, Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja til fundar í Hljómahöllinni undir
yfirskriftinn „Hver er staðan? “. Þar
voru flutt nokkur áhugaverð erindi
um stöðu og horfur í atvinnu- og
menntamálum á Suðurnesjum. Skúli
Mogensen forstjóri WOW fór yfir
stöðuna og framtíðarhorfur hjá sínu
fyrirtæki, þar með um fyrirsjáanleg
mjög aukin umsvif í flugstarfsemi og
fjölgun ferðafólks á næstu árum. Þá
má nefna að Kristján Hjálmarsson
hjá HN markaðssamskiptum fór yfir
viðhorfskönnun sem m.a. gefur til
kynna hvernig ímynd Suðurnesja er.
Auk þeirra voru erindi um athyglis-
verða starfsemi Codland í Grindavík,
framboð á starfs-og verkmenntun á
Suðurnesjum, ásamt því að fjallað
var um upplifun gesta og mikilvægi
mannauðs, ekki síst í ferðaþjónustu.
Það er deginum ljósara að ef litið er
til erindis Skúla, þá eru Suðurnesin í
dauðafæri hvað varðar ferðaþjónustu
og aukin umsvif í atvinnustarfsemi.
Helsta áhættan í þeim efnum er að
nýta ekki tækifærin og trompin sem
við höfum á hendi. Lykilatriði í því er
samstaða og samvinna, bæði innan
Suðurnesja og hjá stjórnvöldum.
Erindi Skúla var athyglisvert og í
því fólst áskorun á alla aðila um að
vinna saman að því að spila rétt úr
trompunum. Þá er einnig ljóst af er-
indi Kristjáns að við eigum verk að
vinna við að bæta ímynd Suðurnesja
og kveikja áhuga fólks á því að horfa
til Suðurnesja með atvinnu og búsetu.
Þar virðist helst vanta upp á fræðslu
um ágæti svæðisins og þeirra tæki-
færa sem hér liggja. Það er sannarlega
verk að vinna, við höfum trompin á
hendi og áskorunin felst í að nota
þau rétt.