Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 Fréttir DV ■A . . . Átakafundur fram undan Hríseyingar búa sig undir að hart verði deilt á íbúafundi sem haldinn verður annað kvöld um málefni fyrirhugaðrar hausa- þurrkunarverksmiðju í eyjunni. Sumarhúsaeigendur í Hrísey eru andvígir verksmiðjunni og segja að dæmin sanni að vandræði hafi skapast vegna óþefs þar sem slíkar verksmiðjur starfi. Fjörutíu sumarhús eru í eyjunni. Bjarni Guðmundsson sumar- húsaeigandi segir vissara að ekk- ert sé haft eftir honum um mál- ið. Næg harka sé hlaupin í málið og varðveita verði ffiðinn í smáu samfélagi. Sækja fé með röngum tölum Fimm skólar í Reykjavík hafa fengið athugasemdir frá menntamálaráðuneytinu fyrir að veita rangar upplýsingar um fjölda ársnemenda sem ljúka skólaári með prófi. Fyrir vildð fá skólarnir aukin fjár- framlög frá ráðuneytinu því greitt er til þeirra samkvæmt nemendafjölda. Skólarnir sem um ræðir eru Iðnskól- inn í Reykjavík, Fjölbrauta- skólinn í Breiðholti, Flens- borgarskólinn í Hafnarfirði, Fjölbrautaskólinn við Armúla og Menntaskólinn í Kópavogi. Þeir hafa svarað ráðuneytinu en þar fást engar frekari upp- lýsingar um gang mála. 16ára ræningjar viðurkenna sök Fjórir sextán ára piltar voru handteknir í gær fyrir að hafa framið vopnað rán í Sunnubúð við Mávahlfð fyrir hádegi í gær. Piltarnir, sem voru vopnaðir kylf- um og öxi, réðust inn í búðina og börðu eiganda hennar. Þeir höfðu á brott með sér 80 þúsund krón- ur auk tóbaks. Við yfirheyrslu lög- reglu játuðu þrír þeirra að hafa framið ránið en sá fjórði beið í bílnum. Búðareigandinn slas- aðist lítillega á hendi. Lögreglan hefur fundið þýfið og telst málið upplýst. Stálu skotfærum úrflugskýli Brotist var inn í flugskýli í Húsafelli um helgina og stolið byssum og skotfærum. Ung- menni í nálægum bústað voru yfirheyrð og kom í ljós að fjórir úr hópnum áttu aðild að ráninu. Þegar ekki gekk að opna byssu- skáp sem skotfærin voru geymd í drógu ungmenninn skápinn út og reyndu að opna hann með traktorsgröfu. Þegar það gekk ekki eftir var hann dreginn inn aftur þar sem tókst að opna hann. Traktornum var hins vegar ekið á hurðir og veggi flugskýl- anna svo tjónið er töiuvert. Málið telst upplýst en megintilgangur ránsins var að ná skotfærum. Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Norvik, segir félagið hafa tapað tólf hundruð millj- ónum króna á rekstri matvöruverslana frá því það keypti Kaupás fyrir fjórum árum. Hann líkir ásökunum um verðsamráð lágvöruverslana við múgseQun sem teygi anga sína inn á Alþingi og tekur hana nærri sér. Jón Helgi vænir Haga um að misnota sér markaðsráðandi stöðu og selja vörur undir kostnaðarverði. Finnur Árnason, forstjóri Haga, vísar því alfarið á bug. TAPAR NÆSTUM HRLA HLYNSDÓTTIR blciðamadiii skiifar: erlatfcdv.is „Ég er erlendis að afla peninga til að borga með íslenskri matvöru," seg- ir Jón Helgi Guðmundsson, forstjóri Norvik, sem staddur er í viðskipta- ferðalagi erlendis um þessar mundir. Norvik keypti Kaupás í nóvember árið 2003 en Kaupás rekur Krónuna meðal annarra verslana. Á þeim fjór- um árum sem eru liðin síðan þá hef- ur Norviktapað tólf hundruð milljón- um, sem samsvarar því að á hverjum verslunardegi sé tapið um 822 þús- und krónur. Dýrt mannorðsmorð Aðspurður hvernig það gangi upp að reka fyrirtæki með slflcu tapi seg- ir hann að öflug starfsemi Norvik er- lendis og arðbærar fjárfestingar skipti þar sköpum. „Við settum okkur það markmið að vera afgerandi þátttak- andi á íslenskum matvörumarkaði og höfum látið þetta ganga yfir okk- ur fram að þessu, jafnvel þó að þessa dagana sé verið að mannorðsmyrða okkur. Þetta er sennilega dýrasta mannorðsmorð sem menn hafa tekið þátt í og ekki nokkur skapaður hlutur á bak við það," segir Jón Helgi og vís- ar til heitrar umræðu síðustu vikna um meint verðsamráð Krónunnar og Bónuss sem hann neitar alfarið. Finnur Ámason, forstjóri Haga, segir tap sitt vegna sölu á matvöru engan veginn í líkingu við tap Nor- vik. Hann sér þó ekki ástæðu til að véfengja þá upphæð sem Jón Helgi nefnir og gerir fastlega ráð fyrir að hún sé kórrétt. Merktar golfkúlur „Ég hef tekið þetta mjög nærri mér," segir Jón Helgi og bendir á lík- indi með Hafskipsmálinu og Geir- finnsmálinu. „Ég sé hvernig múg- sefjunin nær tökum á fólki, inni á Alþingi, í fjölmiðlum og hjá almenn- ingi. Þetta hefur gegnsýrt þjóðfé- lagið. Þessi húsleit Samkeppniseft- irlitsins minnir mig helst á þegar Hafskipsmenn voru dregnir fram úr rúminu klukkan sex að morgni og síðan dæmdir fyrir að setja nöfnin sín á golfkúlur," segir Jón Helgi gátt- aður. Forsvarsmenn Hafskips voru á sínum tíma handteknir á heimilum sínum í viðurvist sjónvarpsfrétta- manna. Það vakti mikla hneykslun almennings þegar fyrirtækið lét setja merkið sitt á golfkúlur. Jóni Helga var síður en svo brugð- ið þegar Samkeppnisefdrlitið hóf hús- leit hjá fyrirtækinu í vikunni. „Við átt- um von á þessu. Það var pólitísk krafa til þess. Álmenningur ætlast líka til svona viðbragða þannig að við látum þetta ganga yfir okkur" segir hann. Jón Helgi tekur rannsóknina sem slíka ekki nærri sér: „Við erum örugg með okkur." íslenskt þjóðfélag eftir á Jón Helgi vonar að rannsóknin verði til þess að mannorð hans verði hreinsað. „Ég held samt að menn vilji ekki fá neitt gott út úr þessari rann- sókn. Hún sýnir að íslenskt þjóðfélag ,Ég sé hvernig múg- sefjunin nær tökum á fólki - inni á Al- þingi, í fjölmiðlum og hjá almenningi. Þetta hefur gegnsýrt þjóðfélagið/ og íslenskt dómskerfi er afar skammt á veg komið." Hann bindur einnig vonir við að rannsóknin leiði í ljós að Hagar misnoti markaðsráðandi stöðu sína og selji vörur undir kostnaðar- verði í Bónus. Finnur Árnason hafhar þeim ásökunum og seg- gé ir Haga leggja metnað sinn í að bjóða lægsta / vöruverð á matvöru á 4 íslandi. „Það loforð J hefur verið efnt frá fyrsta starfsdegi Á ! Bónuss fyiir tæp- um 19 árum ú Tapar milljonum Jón Helgi Guðmundsson greiðir með íslenskri matvöru og liefurtapað 1,2 milljörðum frá því hann keypti Kaupás. og á þvi verður ekki breyting." «5 Flótti grunnskólakennara blasir viö í vor: Borgarstjóri varaður við „Grunnskólakennarar flýja. Við- vörun," er yfirskrift bréfs sem Herdís Kristinsdóttir, þrítugur grunnskóla- kennari, sendi Degi B. Eggertssyni borgarstjóra fyrir hönd íslenskra grunnskólakennara þar sem hún gagnrýnir launakjör þeirra. f kjölfar- ið sendi hún affit til allra kennara. f bréfinu segir meðal annars: „Grunnþarfir einstaklinga eru með- al annars sjálfstæði og sjálfsbjarg- arviðleitni. Við höfum þessar þarfir og þurfum að leita leiða til að svala þeim. Það þýðir að ef ekkert verð- ur gert til að bæta launakjör grunn- skólakennara áður en þessu skóla- ári lýkur og áður en samningar eru lausir, verða margir og sérstaklega þeir ungu í stéttinni, að segja upp sínu ágæta starfi. Neyðarástand mun blasa við í grunnskólum, samfélagið allt mun finna fyrir neyðinni." Fá ekki kennslu? Samkvæmt viðvörun til borgarstjóra blasir neyðarástand við næsta skólavetur ef kjör kennara lagast ekki. Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara, hefur móttekið bréfið og segir ljóst að voðinn sé vís ef samningar nást ekki áður en þeir losna í vor. „Ástandið sem nú ríkir var fyrirséð. Við vorum búin að vara við þessu," segir hann. Foreldrar og aðrir borgarar eru farnir að láta meira til sín í taka í kjarabaráttu kennara en áður, að sögn Ólafs. „Við finnum mikinn meðbyr. Dæmi eru um að börn hafi haft þrjá umsjónarkennara það sem af er vetri. Þetta er auðvitað grafal- varlegt ástand." Herdís brýnir fyrir borgarstjóra að grípa inn í þróunina og bendir á að sambærilegar stéttir búi við betri launakjör. „Viðvörun þessi er því send til þín sem æðsti maður stærsta sveitarfélagsins," segir í bréfinu og telur hún að samfélagslegt réttlætis- mál að laun kennara verði hækkuð. Ólafur tekur í sama streng. „Kenn- arar hafa í gegnum tíðina horft á launin sín rýrna og rýrna. Þessir menn eru að leika sér að eldi," seg- ir hann og vísar til sveitarstjórnar- manna. erla@dv.is Voðinn vís Ólafur Loftsson segir voðann vísan ef samningar nást ekki við kennara áður en þeir losna (vor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.