Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007
Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
KYNDINGARNAR BYRJAÐAR
Það er enn mánuður í El Classico-
leikinn, Barcelona - Real Madrid, en
leikmenn eru þegar byrjaðir að kynda
hverundiröðrum.
Gonzalo Higuain,
framherji Real
Madrid,hefurtrúá
þvíað leikmönn-
um sé um að
kenna, ekki
þjálfaranum Frank
Rijkaard, hvernig
komiðerfyrir
Barcelona.„Ég vil
vinna á Nou Camp, þvl stærra þvl betra.
Sigur þar myndi verða þeim mikið áfall,
andlegt og llkamlegt. Ég held að
Rijkaard sé ekki um að kenna, ég held
að einbeitingunni sé um að kenna'
SÉREKKIEFTIR NEINU
Thierry Henry, leikmaður Barcelona, sér
ekki eftir því að hafa gengið I raðir
félagsinsfrá
Arsenal. Henry
hefurekki spilað
vel fyrir Barca og
verið skugginn af
sjálfumsérí
upphafi móts.„Ég
kom til Barca til að
upplifa eitthvað
nýtt. Nýja
aðdáendur, nýjan
leikstfl og að finna fyrir krafti borgarinn-
ar. Leikurínn hér á Spáni er afslappaðri
en á Englandi. Hérna hafa miðjumenn
nokkra möguleika og það erekki alltaf
auðvelt að velja úr. En mérfinnst ég
mikilvægur hér eins og ég var hjá
Arsenal," sagði Henry sem hefur skorað
fimm mörk I deildinni.
CANNAVARO VAR ÁHYGGJUFULLUR
Fyrirliði ftala, Fabio Cannavaro,
viðurkenndi að Skotar velgdu honum
og liðinu undir
uggum.Eftirað
Skotarjöfnuðu
leikinn 11-1 lá
töluvert á Itölsku
vörninni. James
McFadden fékk
sfðan dauðafæri
áður en Christian
Panucci skoraði
sigurmarkiö og
skaut (tölum áfram.„Eftir að Skotar
jöfnuöu verð ég að viðurkenna aö við
vorum töluvert hræddir. Við settum
hausinn I bringuna og sjálfstraust þeirra
jókst með hverri mínútu. En okkurtókst
að komast í gegnum stemninguna á
Hampden og llkamsstyrk Skotanna."
GLAÐUR PANUCCI
Christian Panucci, leikmaður (tala, var
manna ánægöastur í öllu Skotlandi á
laugardag. Hann
skoraði sigurmark-
ið gegn Skotum
sem kom liðinu á
EM.„Ég er
grfðarlega
ánægður, ég hef
upplifað margt
jákvætt á mfnum
ferli en aldrei neitt
f Ifkingu við þetta.
Ég er svo ánægður fýrir mfna hönd og
þjálfarans. Ég tileinka þetta mark
fjölskyldu minni, mömmu minnl og
bróður. Ég faðmaði Donadoni af því ég
spilaði með honum hjá Mllan og
hugarfar hans snýst um aö sigra."
RONALDO ÓSÁTTUR VIÐ BAULIÐ
Crístiano Ronaldo var ekki sáttur við
áhorfendur (Portúgal þegar liðiö vann
Armena 1-0. Áhorfendur vildu stóran
sigur og létu óánægju sfna f Ijós með
því að baula á leikmann.„Lelkmenn eru
ekki vélar. Stundum fara hlutirnir ekki á
þann veg sem þeir vilja. En það sem
skiptlr máli er að við unnum og náðum f
þrjú stig. Ég hef spilað f Englandl (fimm
ár og aldrei hafa stuöningsmenn mfns
liös baulaö á mig. Það er leiöinlegt að
slfkt gerist þegar við spilum hér (
Portúgal. En við spiluðum illa og unnum
og ég tek það fram yfir heldur en að
spila vel en tapa." Portúgal þarf stig
gegn Finnlandi til að komast á EM.
KR tekur á móti tyrkneska liðinu Banvit í fyrri leik liðanna í 32 liða úrslitum EuroCup
FIBA í kvöld. Mikið er í húfi fyrir þau lið sem samanlagt sigra í 32 liða úrslitum því þau
komast áfram og munu leika í fjórum fjögurra liða riðlum sem fara fram eftir áramót.
Banvit var að semja við Donnell Harvey sem leikið hefur með Qölmörgum NBA-liðum.
BENEDIKT BÓAS HINRIKSSON
bladamadut skrifar:
í kvöld klukkan 19.15 leika íslands-
meistarar KR á móti tyrkneska liðinu
Banvit BC í 32 liða úrslitum EuroC-
up FIBA. Þetta er í fyrsta sinn sem
KR leikur Evrópuleik í körfubolta á
heimavelli, DHL-höllinni. íþróttahús
KR-inga hefur tekið stakkaskiptum
frá því síðasta tímabili lauk, parket er
komið á gólfið í stað græna dúksins
og ljóst að KR-ingar hafa unnið baki
brotnu til að uppfylla öll þau fjöl-
mörgu skilyrði sem FIBA setur félög-
unum í sambandi við þátttöku í Evr-
ópukeppni.
KR-ingar renna frekar blint í sjó-
inn gegn Banvit. Þeir hafa ekki feng-
ið mikið af upplýsingum um liðið
en fundið nokkrar klippur á verald-
arvefnum. „Það hefur ekki ver-
ið gott að fá upplýsingar um þetta
lið. Við höfum verið að fylgjast með
þeim í deildinni og fundið einhverj-
ar klippur á youtube. En við höfum
ekki komist yfir leik með þeim og
náð að skoða liðið almennilega. En
ætli bæði lið renna ekki blint í sjó-
inn í íýrri leiknum," sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari KR. „Við ætl-
um að hafa leikinn á fullum velli og
ætíum að reyna svolítið að keyra á
þá, reyna að hlaupa svolítið. Þeir
eru væntanlega stærri og sterkari ef
maður lítur á leikmannalistann."
Ætlum að selja okkur dýrt
Banvit-liðið á greinilega mikið af
peningum og hefur nýverið samið
við leikmann, Donnel Harvey, sem á
fimm ára reynslu í NBA-deildinni.
„Ég hef ekki farið út í að reikna út
líkurnar að slá þetta lið út en við ætí-
um að gera okkar allra besta og selja
okkur dýrt. Lykillinn liggur í því að ná
góðum úrslitum á heimavelli.
Þeir eru nýbúnir að semja við einn
með einhverja fimm ára reynslu úr
NBA. Við treystum aðeins á vanmat-
ið í fýrri leiknum en þetta er greini-
lega lið sem á nóg af peningu, því
það eru ekki allir sem geta rölt inn í
NBA-deildina og náð sér í leikmann.
Ég væri alveg til í það þótt það væri
ekki nema bara annað slagið," sagði
Benedikt og hló. Aðspurður hvaða
leikmann hann myndi taka stóð ekki
á svari, Lebron James eða Duane
Wade. „Harvey er nú kannski ekki
af þeim styrkleika en hann er einn
af bestu leikmönnum heims. Það
er ekkert hægt að fara í NBA-deild-
ina og skora einhver 8 stig að með-
altali nema að geta eitthvað. Þetta er
greinilega ekki einhver sem er búinn
að húka á bekknum allan tímann."
Fannar Ólafsson hefur glímt við
smá meiðsli en Benedikt segir að all-
ir leikmenn verði heilir þegar leikur-
inn hefst. „Það ætíar enginn að vera
á sjúkralista þegar svona verkefni
eru. Þó svo að menn myndu missa
aðra löppina færum við bara í öss-
ur og græjuðum það. Það er enginn
sem ætíar að missa af þessu."
Miðjan í aðalhlutverki
Miðjan, harðkjarnastuðnings-
menn KR, heldur uppi miklu fjöri á
leikjum KR. Þeir syngja allan tímann
og hvetja liðið í blíðu sem og stríðu.
Benedikt segir að þeir gegni lykil-
hlutverki í að KR nái góðum úrslitum
á heimavelli.
„Við ætlum ekki bara að standa
okkur inni á vellinum heldur á pöll-
unum líka. Við ætíum að reyna að
búa til alvörustemningu. Við eig-
um vonandi eftir að upplifa svipaða
stemmingu og var hjá okkur í úrslita-
rimmunni í vor. Þar var þetta eins og
á leikjum erlendis. Ég held að miðjan
sé búin að búa til einhverja söngva
um Tyrkina og ætíi að reyna að fara
inn í kollinn á þeim eins og þeir ná
nú oft hér heima."
KR varð íslandsmeistari eftir frá-
bæra viðureign við Njarðvík síðasta
vor. Liðið er í þriðja sæti Iceland Ex-
Bestur í stórleikjunum Brynjar Þór
Björnsson stendur sig yfirleitt vel þegar
stórleikir eru annars vegar.
press-deildarinnar og hefur tapað
tveimur leikjum. „Við erum á áætí-
un, það er náttúrulega verið að slípa
saman nýtt lið og við erum á svipuð-
um stað og á sama tíma í fýrra. Menn
eru enn að aðlagast liðinu og það tek-
ur bara tíma. Þetta gerist ekki á einni
nóttu. Ef þetta gerist of hratt getur
maður fengið það í bakið seinna. Það
er betra að taka þetta í litíum hægum
skrefum. Við höfum engar áhyggjur
af því að sitja í þriðja sæti, það er fínt
að vera aðeins fýrir aftan og koma
síðan upp á réttum trma."
styðja
vel
við
bakið
mun
Lykilhlutverk Miðjan
á sínu liði.
Renmr blint i sjoinn Benedfkt
Guðmundsson, þjálfari KR, hefur
ekki fundið mikið af upplýsing-
um umTyrkina.
Dregið var í gær í Eimskipsbikarkeppni karla í handknattleik:
Tveir stórleikir fara ffam í 8 liða
úrslitum í Eimskipsbikarkeppni
karla í handknattíeik. Valur tekur á
móti Haukum á Hlíðarenda og Fram
fær Stjörnuna í heimsókn í Safamýri.
f hinum tveimur leikjunum mæta
gömlu kempurnar f Aftureldingu
2 Akureyri í Mosfellsbæ og Þróttur
Vogum fær Vfking í heimsókn.
Bjarki Sigurðsson, þjálfari Aftur-
eldingar og leikmaður í Aftureldingu
2, er bjartsýnn fyrir leikinn gegn Ak-
ureyri. „Þetta verður náttúrlega erf-
itt en við munum koma til með að
leggja okkur fram. Við erum með
ágætis mannskap og ætlum okkur að
stríða Akureyri. Nú er bara að safna
liði og fylla kofann. Við tökum eina
tvær æfingar fýrir leik og svo höfum
við bara gaman af þessu."
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka,
er nokkuð sáttur við dráttinn. „Mér
Afturelding 2 - Akureyri
ÞrótturVogum - Vfkingur
Valur-Haukar
Fram-Stjaman
Leikið verður 2. og 3. desember
líst mjög vel á þetta, þó maður hefði
alveg verið til í að fá heimaleik. Það
eru allavega tveir leikir sem verða
hörkuleikir á milli topp fjögurra lið-
anna. f svona leikjum er þetta oft á
tíðum bara spurning um stöngin inn
eða stöngin út, þannig að þetta verð-
ur spennandi," segir Aron.
Gamla kempan Sigurður Sveins-
son er ánægður með dráttinn. „Þetta
er algjör draumadráttur. Þeir eru
sýnd veiði en ekki gefin. Það er bara
spurning hvort við förum með þetta
alla leið í Höllina. Því miður getum
Fram og Stjarnan maetast Leikur Fram og Stjörnunnar er meðal þeirra viðureigna
sem fram fara í 8 liða úrslitum.
við ekki spilað leikinn okkar í Vog-
unum og við erum að skoða hvert
við getum farið með leikinn. En það
ætla 800 manns að koma á leikinn og
þetta verður stór dagur í lífi Þróttar
í Vogum," segir Sigurður Sveinsson,
þjálfari Þróttar í Vogum.
vldar@dv.is
LEIKIR í 8 LIÐA ÚRSLITUM
TVEIR STÓRLEIKIR í 8 LIÐA ÚRSLITUM