Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.2007, Blaðsíða 9
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 9 fundust undir sólpallinum séu af dóttur hans. „Ég er orðinn gamall maður og á ekki langt eftir sýnist mér. Það er mjög mikilvægt að fá úr þessu öllu skorið hið fyrsta því ég vil geta jarðsungið Dinah áður en ég fell sjálfur frá," segir Ian. ar fréttir eru hræðilegar. Ég hef búið í húsinu síðustu tólf ár og nú hefur fjölskyidulíf mitt farið á hvolf," seg- ir Dowling. Aldraður faðir Dinah McNicol, Ian McNicol, bíður nið- urstöðu réttarlæknis til að staðfesta morðið og að líkamsleifarnar sem leigjandi hússins við Irvine Drive í Margate, Nicola Dowling, er eðli- lega miður sín vegna málsins. Hún hefur verið flutt á hótel ásamt fjöl- skyldu sinni. „Fyrir mig er þetta sí- versnandi martröð. Ég hef aldrei heyrt Peter Tobin nefndan og þess- Óttast hið versta Lögreglan liyggst leita í fjölda húsa á næstunni og hafa nöfn 15 stúlkna komið upp í rannsókninni. Áður höfðu tvö stúlkulik fundist í garðinum. Tveir látnir eftir rafskot Lögreglan í Maryland í Bandaríkj- unum banaði tvítugum heima- manni með rafmagnsbyssu í fyrrinótt. Hún var kölluð til vegna slagsmála og skaut rafskoti á einn slagsmálahundanna. Skotum úr byssunni er ætlað að skyndilama þann sem verður fyrir þeim en í þessu tilviki leið sá látni út af og var úrskurðaður látinn við komu á spítala. Þetta er annar einstakling- urinn á skömmum tíma sem deyr eftir rafskot því Pólverji lést á flug- velli í Kanada eftir að starfsmenn flugvallarins skutu hann með raf- byssum sínum. Mannskaðií grískumflóðum Grísk yfirvöld hafa lýst yfir neyð- arástandi sökum flóða í landinu. Tveir hafa látið lífið í flóðunum og búið að rýma þorp þar sem flætt hefur inn á hundruð heimila. Bú- ist er við áframhaldandi flóðum í norðausturhluta landsins þar sem stíflur á landamærum Grikklands og Búlgaríu eru að fyllast. Enn eru björgunarsveitir að eiga við afleiðingar skógareldanna miklu frá því í sumar og verið er að hreinsa stór svæði á Pelopsskaga. Vonast er þó til að veðrið skáni og stytti upp í landinu þannig að flóð- in réni. Sjölétust ísprengingu Sexlögreglumenn létust í sjálfs- morðsárás fyrir utan stjórnsýslu- byggingu í suðvesturhluta Af- ganistans í gær. Um var að ræða hús fylkisstjóra Zaranj-bæjar og lést sonur fýlkisstjórans í tilræð- inu. Tilræðismaðurinn lést sjálf- ur í sprengingunni en hann bar sprengjuna innanklæða. Fjöldi manns var á leið til vinnu í ná- grenninu og særðust 14 vegfar- endur í sprengingunni. f höfuð- borginni Kabúl tókst að hindra sprengjutilræði eftir að lögregla handtók mann sem ætíaði að sprengja rútu afganska hersins. Óttast bylgju fj öldamor ðstilr auna í skólum: Afstýrðu tveimur árásum í skólum Lögreglan í Askoy í Vestur-Noregi handtók í fyrradag einstakling grun- aðan um árás í gagnfræðaskóla bæj- arins. Ekki hefur komið fram hvort um nemanda skólans sé að ræða en yfirheyrslur fóru fram í gær. Það var kona á Englandi sem rakst á mynd- band á YouTube þar sem hótanir og nafn skólans komu ffam og lét lög- regluna vita. Knut Hanselmann, for- maður bæjarstjórnar í Askoy, segir að í myndbandinu séu auðsjáanlega vísanir í nýleg fjöldamorð í Finnlandi fyrir skömmu þar sem 18 ára piltur myrti átta manns áður en hann réði sjálfum sér bana. Lögreglan í Köln í Þýskalandi kom í veg fýrir fjöldamorð í menntaskóla í borginni um síðusm helgi. Það voru nemendur skólans sem létu lög- regluna vita af tveimur nemendum sem lengi höfðu legið yfir myndum af fjöldamorðunum í Columbine í Bandaríkjunum. Auk þess sem efni um þau fannst á heimasíðu annars þeirra. Þeir voru handteknir og yfir- heyrðir á föstudaginn og í ffamhaldi af því fyrirfór annar sér með því að stökkva fýrir járnbrautalest. Við húsleit hjá nemendunum fundust loftbyssur, lásbogar og listi yfir sautján nemendur og kennara sem taka átti af lífi. Nemandinn sem er á lífi er nú í haldi og í yfirheyrslum hjá lögreglu og hefur komið fram að þeir vildu báðir drepa og særa annað fólk. Svo ætluðu þeir að fremja sjálfs- morð. Árásin átti að fara fram í dag, þriðjudag, en þá er eitt ár liðið ffá því að 18 ára unglingur réðist inn í menntaskóla skammt frá Köln og særði 37 áður en hann svipti sig lífi. asdisbjorg@dv.is Minnistöflur Umboðs- og söluaóiLi Birkiaska ehf. sími: 551 9239 2002 í Finnlandi FOSFOSER MEMORY Vaiið faeðubótarefni ársins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.