Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2007, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007
Fréttir DV
. -■
Hvolfdi bflnum
BQl valt við Valbjamarvelli
á Vesturlandsvegi klukkan átta
í gærmorgun. Óhappið varð
þegar tveir bQar úr gagnstæðri
átt stefndu hvor á annan. Annar
þeirra keyrði þá út afveginum
með fyrrgreindum afleiðing-
um. Hann lenti á hvolfi. Að sögn
lögreglunnar í Borgarnesi voru
aðstæður ekki góðar, niðamyrkur
og háika. Engin slys urðu á fólki
en bfilinn er töluvert skemmdur.
W 8
f .«
• t
Sextán mánaða
fangelsi
Héraðsdómur Reykjaness
dæmdi í gær karlmann á þrítugs-
aldri í sextán mánaða fangelsi
fyrir að hafa 25,62 grömm af amf-
etamíní í fórum sínum. Hann
hafði verið dæmdur í tveggja
og hálfs árs fangelsi árið 2005
fyrir brot á fíkniefnalöggjöf-
inni, en var veitt reynslulausn í
fyrra og var því um að ræða brot
á skilorði. Var tekið mið af því
við dómsúrskurðinn. Þá gerðist
hann sekur um brot á útlend-
ingalögum.
Ölvaðuráolíubíl
Fulllestaður olíubfll valt
um helgina þar sem verið er
að leggja veg um Arnkötludal
á Vestfjörðum. Lögreglan fékk
tilkynningu seint á laugardags-
kvöld og var ökumaðurinn flutt-
ur á sjúkrahús til aðhlynningar.
Hann reyndist lítið meiddur en
grunur leikur á að hann hafi ver-
ið undir áhrifum áfengis. Starfs-
menn Olíudreifingar losuðu
farm bifreiðarinnar en verktakar
á vinnusvæðinu fjarlægðu bflinn.
Engin olía lak á veginn. Lög-
reglan vinnur enn að rannsókn
málsins.
Lýsa eftir reglum
„fsland er eina landið á
Evrópska efiiahagssvæðinu
sem ekki þarf að merkja sér-
staklega matvörur sem eru að
öllu leyti erfðabreyttar," segir
í tilkynningu frá Neytenda-
samtökunum. Samtökin sendu
Þórunni Sveinbjarnardóttur
umhverfisráðherra bréf
þar sem farið er fram á að
ráðherrann setji reglur um
erfðabreytt matvæli, þegar í
stað. Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtak-
anna, segir að ekki sé vitað hve
mikið af erfðabreyttum mat-
vælum sé flutt hingað til lands.
Kristín Snorradóttir móðir tvítugs fíkils, óskar sér þess i jólagjöf að Foreldrahús fái
nýtt húsnæði en útlit er fyrir að starfsemin lamist um áramótin. Elísa B. Wium,
framkvæmdastjóri Foreldrahúss, neitar að trúa því að starfsemin lendi á götunni.
Díana Ósk Óskarsdóttir, áfengis- og vimuefnaráðgjafi, segir áhyggjur foreldra barna
í neyslu geta borið þá ofurliði.
ÓMETANLEGT
FORELDRUM W
BARNA í N EYSLU
ERLA HLYNSDÓTTIR
bladamaóur ikrifar: erla@dv.ls
„Jólagjöfin sem ég óska mér í ár er
að Foreldrahús fái nýtt húsnæði,"
segir Kristín Snorradóttir, móðir
tvítugs ffldls. „Aðstoðin þar skiptir
oklcur öllu. Það erum ekíd bara ég
og maðurinn minn sem fáum að-
stoð við að byggja okkur upp held-
ur líka yngri bömin. Þau hafa fengið
stuðning við að stíga út úr skömm-
inni og geta nú gengið upprétt og
stolt af sjálfum sér. Þau vita að það
er ekki þeim að kenna að bróðir
þeirra er ffldll," segir hún.
Um áramótin rennur út
leigusamningur Foreldrahúss í
Vonarstræti 4b þar sem öflugu
meðferðar- og forvarnastarfi hefúr
verið sinnt frá 2002. Þrátt fyrir
mikla leit hefur enn ekki fundist
hentugt húsnæði til að flytja í
en sögu Vímulausrar æsku, sem
Foreldrahús heyrir undir, má rekja
tvo áratugi aftur í tímann.
Fjölskyldan myndi bresta
EhsaB.Wium,framkvæmdastjóri
Foreldrahúss, segir hátt leiguverð
ástæðu þess að illa hefur gengið
að finna nýtt húsnæði. „Við eigum
að vera farin út 1. janúar. Ég býst
þó alveg við því að við fáum að
vera einhverja daga umffam það
ef lausn er í sjónmáli," segir Eh'sa
sem er enn bjartsýn þrátt fyrir að
áramótín nálgist óðfluga.
Foreldrahús EKsa 8. Wium, framkvæmdastjóri Foreldrahúss, neitar að trúa því
að starfsemin lendi á götunni og heldur (vonina um að björgin berist brátt.
„Ég hreinlega neita að trúa því
að við endum á götunni. Þetta er
það mikil og góð starfsemi. Björgin
hlýmr að vera á leiðinni," segir Elísa
vongóð. Kristín Snorradóttir komst
fyrst í tæri við Foreldrahús í árs-
byrjun þegar sonur hennar féh eftir
átta mánaða edrúmennsku. „Þegar
hann féU voru þama góðar stúlkur
sem hvöttu mig til að nýta mér þá
aðstoð sem þar er boðið upp á. Ég
get vart ímyndað mér stöðuna á
okkar heimiíi ef við getum ekki leit-
að til Foreldrahúss. Við myndum
hreinlega bresta án þessa stuðn-
ingsnets ef sonur minn verður aft-
ur stjórnlaus. Ég tala nú ekki um ef
hann hreinlega deyr. Ég gæti engan
veginn verið án stuðningsins," segir
Kristín.
Slæmar fréttir frá lögreglunni
Díana Ósk Óskarsdóttir,
áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá
Foreldrahúsi, segir að óttinn við
að starfsemin lamist sé strax farinn
að hafa áhrif á skjólstæðingana.
„Foreldrar sem eiga böm í neyslu
búa við stöðugan kvíða. Þeir verða
orkuhtlir, missa svefri og fyUast
örvæntingu. Þessu má lflcja við
að missa bam. Þeir hafa stöðugar
áhyggjur af því hvort bamið þeirra sé
dáið og eiga aUtaf von á að lögreglan
banki upp á með slæmar fréttir."
Díana bendir á að umræða hafi
verið um að íslendingar séu að ná
betri tökum á fíkniefnavandanum.
„Þeir sem þetta segja hljóta að sjá
að ef forvamavinnan er fyrir bí fer
okkur afturf segir hún.
Kristín Snorradóttir Eftirað sonur
hennar féll eftir 8 mánaða edrúmennsku
leitaði Kristín stuðnings hjá Foreldrahúsi
og segir hann ómissandi.
Elísa segir fjármagn Foreldrahúss
hafa komið bæði frá Reylgavfloirborg
og félagsmálaráðuneyti, samtals 12
mflljónir króna á ári. Auk þess hafa
ýmsir einkaaðUar styrkt starfið í
gegnum tíðina.Samstarfssamningur
við rfld og borg rennur út nú um
áramótin en Elín ítrekar að samstarf
við félagsmálaráðuneytið hafi verið
mjög gott Hrannar Bjöm Amarsson,
aðstoðarmaður félagsmálaráðherra,
segir unnið að því af miklum krafti
og miklum velvilja að semja um
ffamhald samstarfsins en getur ekki
sagt að svo stöddu nákvæmlega
hvemig ráðuneytið ætlar að aðstoða
Foreldrahús við áframhaldandi starf-
semi.
Heilbrigðisráðherra lætur skoða framtíðarskipulag Heilsugæslunnar:
Enginn niðurskurður
íheimahjúkrun
„Við munum ekki taka út þjón-
ustuþætti eins og heimahjúkrun,
það er alveg á hreinu," segir Guð-
laugur Þór Þórðarson spurður um
þær breytingar sem em yfirvofandi
hjá Heiisugæslu höfuðborgarsvæð-
isins. Niðurskurðurinn sem stjóm-
endur Heilsugæslunnar boða hljóð-
ar upp á 550 milljónir og nær til þátta
eins og skólaheilsugæslu, miðstöðvar
heilsuverndar bama, mæðravemdar,
heimahjúkmnar og miðstöðvar sótt-
vama.
Guðlaugur segir að það sem
Heilsugæslan standi frammi fyrir í
dag sé uppsafhaður vandi og ekki
eini vandinn í heilbrigðisgeiranum.
„Við emm að setja saman nefnd, ekki
ósvipaða oghjá Landspítala - háskóla-
sjúkrahúsi, sem mun fara með málið
og skoða það. Sú nefnd verður undir
stjóm Guðjóns Magnússonar og mun
í samstarfi við stjórnendur Heilsu-
gæslunnar skoða framtíðarskipulag
sem og það sem snýr að rekstrinum.
Þetta er stórt verkefhi og við emm
ekki búin að setja tímamörk en von-
umst tíl þess að geta byrjað í vikunni,"
segir Guðlaugur Þór.
í síðustu viku kom ffam að Heilsu-
gæslan skuldaði milljarða og sagði
Guðmundur Einarsson, forstjóri
Heilsugæslunnar, á fréttavef RÚV í
síðustu viku að skera þyrfti niður í
ákveðnum þáttum. Þá fóm miklar
umræður í gang og fóm vinstri græn-
ir meðal annars ffam á fjárveitingu
sem var hafnað. Þeir hafa farið fram á
aðra fjárveitingu sem verður rædd við
þriðiu umferð fjárlaga.
Asta Möller, formaður heilbrigð-
isnefndar Alþingis, hefur meðal ann-
ars sagt að Heilsugæslan hafi far-
ið vemlega fram úr fjárveitingum án
nokkurrar skýringar og sé nauðsyn-
legt að sldpta um stefnu. Frekar ætti
að endurskipuleggja starfið og auka
sjálfstæði einstakra starfsstöðva. Ekki
náðist í Guðmund Einarsson, for-
stjóra Heilsugæslunnar, en í fréttum
Rfldsútvarpsins í gær kom ffam að
hann sjái ekki fært að gera annað í
stöðunni en að skera niður þjónustu,
þeir fái lítið upp úr því að hagræða í
yfirstjóminni.
Fyrrverandi heilbrigðisráðherra
segir fykt af einkavæðingu af málinu.
asdisbJorg@dv.is