Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2007, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2007, Blaðsíða 19
18 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 Sport PV ÍÞRÓTTAMOLAR CALZAGHE (ÞRÓTTAMAÐUR ARSINS HJÁ BBC Hnefaleikakappinn Joe Calzaghe hefur verið útnefndur iþróttamaður ársins hjá BBC. Calzaghe er 35 ára og er WBO-, WBC- ogWBA- heimsmeistari í súper-millivlgt. Hann hefurverið heimsmeistari samfellt I tíu ár og erósigraður(44 bardögum.„Ég er steinhissa. Þetta ermikill heiður fyrir mig og rúsínan f pylsuendanum á frábaeru ári hjá mér," sagði Calzaghe skömmu eftir að Lennox Lewis og Ricky Hatton höfðu afhent honum verðiaunin. Annar (kjörinu varð Formúlu 1-ökumaðurinn Lewis Hamilton og Ricky Hatton var í þriðja saeti. Bobby Robson, fyrrverandi landsliðsþjálf- ari enska knattspyrnulandsliðsins, fékk heiðursverðlaun fýrir framlag sitt til íþrótta. Svissneski tennisspilarinn Roger Federer var valinn Iþróttamaður ársins af erlendum vettvangi. NÓG AÐ GERAST (BOXINU Svo gæti farið að Ricky Hatton og Oscar de la Hoya mætist f hringnum á næsta ári. De la Hoya vill berjast við Hatton á eftir 2008. Það er ekki hægt að útiloka neitt, allar dyr standa opnar," segir de la Hoya.„Ef tveir vinsælustu boxarar (heimi berjast gæti það orðið stórkostlegur viðburöur. Ég myndi ekki útiloka þetta," segir Richard Schaefer, stjórnarformaður Golden Boy Promotions, sem er að hluta til í eigu Oscars de la Hoya. Einnig eru viðræður i gangi um að Joe Calzaghe og Bernard Hopkins muni berjast í apríl. „Viðræður eru (gangi og ganga nokkuð vel. Báðir boxarar vllja þennan bardaga og báðir hafa samþykkt að skipta fénu til helminga. Ég vona að Frank Warren (skipuleggjandi Calzaghe) sé einnig sáttur við það,“ segir Schaefer. Golden Boy Promotions er (eigu þriggja aðila, Oscars de la Hoya, Bernards Hopkins og Shanes Mosley. Þvf eiga tveir þessara manna verulegra hagsmuna að gæta ef þessir bardagar verða að veruleika. ÍDAG Enska úrvalsdeildin Útsending frá leik Everton og Fulham sem fór fram laugardaginn 8. desember. Enska úrvalsdeildin Útsending frá leik Aston Villa og Portsmouth sem fór fram laugardaginn 8. desember. 18:00 PREMIER LEAGUE WORLD Heimur úrvalsdeildarinnar Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í leikjum síðustu umferðar i Coca Cola deildinni. Enska úrvalsdeildin Útsending frá leik Middlesbrough og Arsenal sem fór fram sunnudaginn 9. desember. Enska úrvalsdeildin Útsending frá leik Blackburn og West Ham sem fór fram sunnudaginn 9. desember. Ensku mörkin Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik umferðarinnar eru sýnd frá öllum mögulegum sjónarhornum. Enska úrvalsdeildin Útsending frá leik Man.Utd og Derby sem fór fram laugardaginn 8. desember. Wembley og er þegarfarinn að vinna í því að skipuleggja bardagann, en vonirstandatil um að hann fari fram ímaí.„Ef þú hélstað 2007 væri frábært ár, bíddu þá bara Bardagakappinn Gunnar Nelson vann breska sérsveitarmanninn Barry Mairs meö rothöggi í fyrstu lotu. Gunnar hefur því unniö alla fjóra bardaga sína sem atvinnumað- ur í fyrstu lotu en þetta var siðasti bardagi hans um stund. Gunnar hyggst taka sér smá frí en er hvergi nærri hættur. SKSURGANGA GUNNARS HELDURÁFRAM DAGUR SVEINN DAGBJARTSSON bladamadur skrifar: dagur@dv.ls l Bardagamaðurinn Gunnar Nelson vann sinn fjórða sigur í röð í blönd- uðum baradagalistum (MMA) með því að rota Bretann Barry Mairs í fyrstu lotu. Gunnar er enn ósigraður sem atvinnumaður í MMA og hef- ur unnið alla sína bardaga í fyrstu lotu. Gunnar og Mairs börðust í 77 kg flokki en bardaginn fór fram í Weston-Super-Mare í Somerset í Englandi. Mairs erbreskursérsveitar- maður og er, líkt og Gunnar, að stíga sín fyrstu spor sem atvinnumaður í MMA. „Mairs var hrikalega sterkur. Hann var með sterkar hendur og kýldi fast. Það var frekar erfitt að eiga við hann. Ég var með yfirburði allan bardagann en mér fannst hann vera svolítið seigur að eiga við. Hann var tregari en hinir að eiga við þegar ég náði honum niður, hann langaði svo að standa upp," sagði Gunnar á létt- um nótum í samtali við DV í gær. Gunnar slapp þó við þung högg frá Mairs og var með yfirhöndina allan tímann. „Það var bara hann sem fékk höggin. Það sést ekkert á mér. Ég byrjaði á að hreyfa mig og ógnaði honum aðeins, til að sjá við- brögðin hjá honum. Hann var alveg viðbúinn því að ég myndi taka hann niður. Þannig að ég stökk fyrst inn með eina fléttu og náði einu góðu höggi á hann, í andlitið. Síðan tók ég hann niður og end- aði fljótlega ofan á honum. Þar var hann mjög sterkur, það er að segja sterkur í verstu stöðu. Hann fór svo- lítið á taugum og byrjaði að hreyfa sig mjög mikið. En smátt og smátt valdi ég skotin. Það var leyfilegt að nota olnboga í þessum bardaga og ég rotaði hann með olnbogahöggi. Tilfmningin var svakalega góð," sagði Gunnar. Vonum framar Gunnar hefur barist fjóra bar- daga frá því hann gerðist atvinnu- maður í MMA og allir hafa þeir unnist í fyrstu lotu. Hann sagði að tilfmningin eftir sigurinn á Mairs hafi verið ótrúlega góð. „Eftirþennanbardaga var ég mjög glaður. Ég fór í ein- hverja sigurvímu. Ég held að það sé bara af því að þetta gekk vonum framar. Þetta hefði eiginlega ekki getað gengið betur," sagði Gunnar. Gunnar ætlar að koma aftur til íslands fyrir jól og taka því rólega, ef svo má segja, næstu mánuðina. „Þetta var síðasti bardaginn í bili. Nú fer ég heim og þá ætla ég bara að slaka á í nokkra mánuði, vinna og ná mér í smá pening. Ég er nú ekkert að fara að detta úr formi, ég ætla að æfa heima. Enmað- ur verður að róa sig aðeins niður inn á _ milli, svo v maður ' / brenni ekki alveg út," sagði Gunnar, sem fær pening fyrir hvern bar- daga semhann berst. „Maður vill alltaf fá meira og meira borgað og ég er að reyna að fá samning hjá einhverjum stórum aðilum. En það verður örugglega ekkert fyrr en árið 2009. Þá ætla ég að reyna að komst á stóra sviðið," sagði Gunnar. „Þjálfarar mínir, bæði hér í Manchester og á írlandi, hafa ráðlagt mér að það væri sniðugt að nota árið 2008 til að halda áfram að berjast minni bardaga og fara svo upp á stóra sviðið 2009," sagði Gunnar, sem mun æfa í Mjölni hér heima. Ætlartil Hawaii Eftir veru sína hér á landi hyggst Gunnar fara til Hawaii til æfinga og keppni. „Ég ætía að kíkja þangað í nokkra mánuði. Þeir eru rosalega góðir þar. Einn besti bardagamaður í heiminum pund fyrir pund erþar, B.J. Penn." Faðir Gunnars hef- ur stutt dyggilega við bakið á stráknum og Gunnar segir að hann geti ekki hugsað sér betri stuðning en hann fær frá föður sínum. „Hann er al- veg á fullu í þessu. Rosalega duglegur að grafa upp upp- lýsingar og hefrir skuggalegan áhuga á þessu. Honum finnst rosalega gaman að fylgj- ast með og styður svakalega vel við bakið á mér. Hann hefurkom- ið út og horft á mig berjast og æfa. Það er ekki hægt að biðja um betri pabba í þessu sporti," sagði Gunnar að lokum. Ósigraður Gunnar Nelson hefur barist fjóra bardaga sem atvinnumaður og unnið þá alla ífyrstu lotu. Stjarnan og Þróttur Reykjavík áttust við í ótrúlegum leik í blakinu um helgina. Fimm hrinur og 90 mínútur af góðu blaki: FYRSTATAP STJÖRNUNNAR ÍTVÖ ÁR Það var sannkallaður toppslagur í 1. deild karla í blaki síðastíiðið föstu- dagskvöld þegar Stjarnan heimsótti Þrótt Reykjavík í Kennaraháskólann. Stjarnan hafði unnið alla deildarleiki sína síðan í nóvember 2005. Liðin buðu upp á einn besta Ieik sem hefur sést í vetur, fimm hrinu leik sem stóð yfir í rúman einn og hálfan tíma. Þróttur vann fyrstu hrinuna 25-22 en Stjörnumenn áttu gott upphaf í annarri hrinu og unnu hana 25-19. Þriðja hrinan hófst með látum. Stjarnan minnkaði muninn en Þróttarar héldu samt ágætis forskoti og unnu hrinuna 25-20. Fjórða hrinan í leiknum var æsispennandi. Þróttur komst yfir 12-8 en Stjörnumenn jöfnuðu fljótt 14-14. Jafnt var á öllum tölum upp í 20-21, Stjörnunni í vil. Stjarnan vann hrinuna 25-22 með góðum lokakafla og jafnaði þar með leilcinn 2-2 í hrinum. Oddahrinan byrjaði afar vel fýrir Þróttara sem komust í 8-4. Þróttur átti ekki í vandræðum með að klára hrinuna 15-8 og þar með leikinn. Stigahæstí leikmaður Þróttar var Masayuki Takahashi með 29 stig en Wojtek Bachorski var stigahæstur Stjörnumanna með 19 stig. Leikir HK og KA um helgina fóru báðir 3-0, KA í vil. Leikurinn á föstudagskvöldið var einstakur þar sem hinn 51 árs uppspilari Hauk- ur Valtýsson spilaði í stað Filips Szewzcyk sem var í leikbanni. KA- menn áttu ekki í vandræðum með leikinn og unnu hann 3-0. Á laugar- dag mættust liðin að nýju og vann KA þann leik 3-0. Staðan í 1. deild karla er þannig að Stjarnan hefur tryggt sér toppsæt- ið ffarn yfir jól, er með 23 stig. Þrótt- ur Reykjavík hefur 19 stig en á leik til góða og KA hefur 15 stig í þriðja sæti deildarinnar. í 1. deild kvenna mættu íslands- og bikarmeistarar í Þrótti Reykjavík grönnum sínum úr HK í Digranesi. Leikurinn var hnífjafn og spennandi en endaði 3-1 fýrir HK. Heimastúlkur unnu fyrstu hrinuna 25-21 og Þróttur aðra hrinuna 21-25. Þriðja hrinan var æsispennandi en HK vann þá hrinu 26-24. I fjórðu hrinunni virtist sem lið Þróttar hefði játað sig sigrað og HK vann 25-13 og þar með leikinn 3-1. Stigahæstar í leiknum voru Birna Hallsdóttir með 21 stíg fyrir HK og Lilja Jónsdóttir með 14 stig fyrir Þrótt. Sævar Már Guömundsson Skellur á leiðinni Stjarnan og Þróttur Reykjavík buðu upp á frábæra skemmt- un þegar liðin mættust í hörkuleik f Kennaraháskólanum. DV Hæstiréttur Islands ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 19 Framhaldá næstusíðu Gangurinn á annarri hæð Á hægri hönd liggjar dyrnar inn (dómsalina. Við enda gangsins er skrifstofa forseta og þingsalurinn. Á veggjum hanga málaðar myndir af hæstaréttardómurum en þeir hafa ekki verið málaðir í nokkra áratugi. Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri Hæstaréttar Tuttugu starfsmenn starfa í Hæstarétti. N(u dómarar og ellefu aðrir starfsmenn. Skrifstofustjóri leggur meðal annars tillögur um fjölda dómara í málum til forseta réttarins. Hann stýrir enn fremur daglegum rekstri dómstólsins eftir nánari ákvörðun forseta réttarins og (umboði hans. Skjaldarmerki íslands Að baki dómurum er hvftur veggur með skjaldarmerkinu ígröfnu. Þetta á bæði við í stóra og litla dómsalnum, en þeir eru spegilmynd hvor annars. Veggirnir dómaramegin hafa engin horn. Þeir eru bogadregnir þv( lögunum eru engin takmörk sett. Afgreiðsla Hæstaréttar Blasir við þegar komið er inn úr anddyri Hæstaréttar. Þar blasir blákaldur raunveruleikinn við. Formin eru fastmótuð og stílhrein en táknin í húsinu eru mörg. Áberandi er vanmáttartilfinningin gagnvart dómsvaldinu þegar gengið er inn í húsið. Gengið inn í Hæstarétt Þegar gengið er upp tröppurnar fyrir utan Hæstarétt snýr sakborningur sér óhjákvæmilega í 180 gráður og Ktur út í raunveruleikann áður en hann stígur inn (heim dóms- valdsins. Þegar hann kemur inn í forstofuna blasirvið þröngurgangurinn sem liggur upp að dómsölunum. Ganginum hefur verið líkt við Almannagjá en hugmynd arkitektanna var sú að þegar gengið væri upp ganginn fyndi viðkomandi hvernig rýmið þrengdist smátt og smátt. Drekkingarhylur Eftir Stóradóm, sem tekinn var (lög árið 1565, má kalla að dauöarefsingum hafi árlega verið beitt á Alþingi allt til ársins 1734. Fólki var troðið í poka, bundið var fyrir og þvf drekkt (þessum hyl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.