Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2007, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2007, Blaðsíða 32
 ft -4' ■4 «• blaðamaður skrifar: sigtryggur&dv.is Stolið úr kassanum Hluta úr dagsuppgjöri var stolið úr læstum peningaskáp úr Olísversl- un á Akranesi í síðustu viku. Að sögn Sigurjóns Bjarnason- ar, rekstrarstjóra Olís á Islandi, var um óverulegar upphæðir að ræða. Hann segir málið vera í rannsókn hjá lögreglunni á Akranesi í góðri samvinnu við starfsmenn Olís. „Sem betur fer var ekki um stórar upp- hæðir að ræða en það verður að fara yfir hvernig þetta getur gerst. Pen- ingarnir eru alltaf losaðir reglulega," segir Sigurjón. Mæðgurfengu að hittast Vera Páls- dóttir ljós- myndari fékk að hitta Sóleyju dóttur sína um helgina í París í Frakk- landi. Franskur barnsfaðirVeru hefur neitað að skila Sóleyju til móður hennar eftir að umsömdum umgengnis- tíma lauk í lok nóvember. „Nú bíðum við bara eftir morgundeginum. Þá hittum við dómara í þeirri von að fá málum okkar flýtt. Ég óttast að það verði reynt að tefja fyrir málflutningn- um, en vona það besta," segir Vera. Hún segir þær mæðgur hafa átt yndislega helgi saman. Áreksturá Suðurlandsvegi ökumenn tveggja bíla sluppu að mestu án meiðsla í hörðum árekstri á Suðurlandsvegi í Flóa í gærmorg- un. Bílar þeirra urðu öllu verr úti. Annar bíllinn er mikið skemmdur og hinn er gjörónýtur. Bílarnir lentu saman við Bolla- stað. Ökumaður pallbíls hafði stöðv- að til að beygja inn áafleggjara þeg- ar fólksbíll kom á töluverðri ferð og lenti aftan á pallbílnum. Mikil hálka var á veginum. Ökumennirnir voru fluttir á heilsugæsluna á Selfossi til athugunar og reyndust meiðsli þeirra lítil miðað hvað áreksturinn var harður. Nú er þaðsvart hjá verktakanum! FRÉTTASKOT DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðirtil frétta. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fýrir besta fréttaskot hvers mánaðar. DAGBLAÐIÐ VfSIR STOFNAÐ 1910 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007 Dæmdur í þriðja sinn fyrir skattalagabrot en ber við vankunnáttu í bókhaldi: VERKLAGINN EINYRKI BOKHALDSVANDA Sigurhans V. Hlynsson, einyrki á Sel- fossi, var fyrir helgina dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skatta- og bókahaldsbrot. Sigurhans, sem hefur tvisvar áður verið dæmdur fyrir sams konar brot, þarf að auki að greiða 2,8 milljónir króna í ríkissjóð. Það er tvöföld sú upphæð sem hann hafði ekki staðið skil á og er hefðbundin refsing við viðlíka brotum. Lögmaður Sigurhans, Sigurður Sigurjónsson, segir að hér sé á ferðinni eitt af fjölmörgum mál- um þar sem einyrkjar lenda í vand- ræðum fyrir að vera ekki miklir bókhaldssérfræðingar. Miklar skyldur á einyrkjum Sigurður lögmaður bendir á að ekki sé algilt að allir kunni að fara með bókhaldið og varla sé hægt að gera kröfu um slíkt. „Þetta eru býsna miklar skyldur sem lagðar eru á herðar þeirra sem vinna sem einyrkjar og verktakar," segir hann og bendir á að fólk í þessari stöðu ætti að leita til fagmanna með bókhald sitt. Sigurhans, semsjálfurerorðlagður fyrir verklagni, hefur tvisvar áður verið dæmdur fyrir bókhalds- og skattabrot. Arið 1998 þurfti hann að greiða fimm milljónir króna í sekt til ríkissjóðs vegna skattsvika og árið 2001 hlaut hann tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm og 3,5 milljóna sekt fyrir sams konar brot. sér Skipulögð skattsvik aukast „Langsamlega flestir láta segjast eftir að hafa einu sinni lent í vandræðum," segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri. Þeir séu fáir sem séu sísvíkjandi undan skatti með því að standa ekki skil á bókhaldinu. Þetta kemur heim og saman við skýrslu sem starfshópur um umfang skattsvika á fslandi gerði fyrir Alþingi árið 2004. Þar kemur fram að skattsvik vegna vanframtalinna tekna hafi minnkað mikið og skil á virðisaukaskatti hafi batnað. Hins vegar hafi skipulögð skattsvik aukist og nýjar svikaleiðir hafi orðið til með auknum viðskiptum erlendis. Verktakar í vanda Fjöldi einyrkja á í vanda með bókhaldsmálin. Myndin tengist ekki efni greinarinnar. Þungur dómur f þetta skiptið var Sigurhans ákærð- ur fyrir stófelld bókhaldsbrot og telst hann þar með hafa brotið ákvæði hegningarlaga. Dómavenja hefur þó verið sú að ekki sé um brot á hegning- arlögum að ræða nema svikin nemi um þremur milljónum króna eða þaðan af hærri upphæðum. Sigurður Sigurjónsson segir að þetta kunni að stafa af fyrri brotum Sigurhans. Úlfaldi úr mýflugu Greinargerð Rikisendurskoðunar um yfirtöku Landsvirkjunar á vatnsréttindum ríkisins í neðri hluta Þjórsár er samfelldur áfellisdómur yfir ráðherrunum þremur sem að samkomulaginu stóðu. Þetta sagði Álfheiður Ingadóttir, þingmaður vinstri grænna, á Alþingi í gær. Þingmenn annarra flokka voru á öndverðri skoðun og gerðu lítið úr málinu. Einn sagði vinstri græn gera úlfalda úr mýflugu og annar sagði að gagnrýni vinstri grænna væri stormur (vatnsglasi. dv-myndstefán Tíu ný lög Tíu frumvörp urðu að lögum frá Alþingi í gær. Elest frumvörpin vörðuðu breytingar á þeim lögum sem fyrir eru. Þar má nefna hækkun gjalda í Framkvæmdasjóð aldr- aðra og breytingu á starfsleyfum fyrirtækja í lögum um fjármála- fyrirtæki. Ein lagasetoingin í gær skar sig þó frá hinum. Það er afnám laga um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkra. Þau lög eru frá 1949 og kváðu á um að nafn manns sem væri tvívegis handtekinn vegna ölvunar skyldi tilkynnt til áfengisvarnaráðu- nauts eða áfengisvamanefndar. Gert er ráð fyrir að þingið fari í jólafrí á fimmtudag. BT og Max í verðstríði og nú fylgir bjór með dælunum frá þeim fyrrnefndu: Segjast stórtapa á bjórdælunum Einar Speight, framkvæmdastjóri raftækjaverslunarinnar Max, segir verslunina BT halda úti óheiðarleg- um vinnubrögðum í sölu á bjórdæl- um. Hann segir það jaðra við lög að gefa áfengi. Hann segist hafa fengið fjölda reiðra kúnna yfir til sín sem hafi ekki getað orðið sér úti um vör- una í BT. Max reið á vaðið í sölu á bjórdælum fyrir jólin og kostaði þá hver um sig um 19 þúsund krónur. Síðan hóf BT innreið sína á mark- aðinn og eftir það hafa dælurnar hríðfallið í verði. Býður BT nú upp á pakka sem inniheldur bjórdælu með glösum og inneign fyrir fimm lítra bjórkút fyrir átta þúsund krónur. Hjá BT fengust þær upplýsingar að þriðja sendingin af vömnni væri nú Berjast um bjórdælur Verðið hefur hríðlækkað eftir að samkeppnin hófst. uppseld, en von sé á annarri í þess- ina og að þetta sé þeirra leið til að ari viku. Max býður upp á svipaðan pakka, nema að þeir bjóða ekki upp á inneign fyrir bjór. Einar segir ekkert launungarmál að Max hafi stórtapað á sölu vör- unnar. Hann segir BT nú vera fyrst að vakna til lífsins fyrir jólaverslun- lokka að viðskiptavini. Hann segir þetta slæma viðskipta- hætti hjá þeim og efast um að þeir bjóði upp á vöruna í miklu upplagi. „í þessum viðskiptum era alltaf margar vörar sem er tap á. Ef varan / / fer í þúsund krónur hjá BT förum við í þúsund krónur," segir Einar. Neytendastofu barst kvörtun um málið á sínum tíma og var í kjölfarið haft samband við lög- regluna á höfuð- borgarsvæðinu vegna grans um brot á áfengis- lögum. Ekki feng- ust upplýsingar við vinnslu fréttarinnar um stöðu málsins hjá lögreglunni. Ekki náð- ist í forsvarsmenn BT í gær þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir. roberthb@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.