Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2007, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2007
Fókus DV
(iUDNI \l I II I ()(I S.\l.
Siginundui' lirnir Kiinmsson
SAÍJAN UM HIUI Ol.AKSDO'n'UK
Vigilís (irímsdóiiir
ÞUSUND BJARTAK SÖI.IK
Khuled llosscini
IIAHRV l'OII'KKOC DAIIDADIÁSNIN
I.K. Kmvling
UTKAI.h - hVKUJNA STKAX!
Öttar Sveinsson
ASKA
Yrsa Sigurdartióllir
KÖKUliOK IIAGKAUI’A
MATKIilDSUIHÖK HAKNANNA
Kaiharine Ihbs
KAh HilNN OI'UKKIIÖK 0(1 K AMKAK..
I )av I’ilkey
S\ I )NAHIGA RRINSESSUR Al) VHKA
Oaillin Maiihews
Ill lMSMlii'AUIÍK (UIINNIiSS liOOU
Stórtónleilcar
í Laugardalshöll
l'aó v;ir mikiO um tlvróir ,i |irennom
jolaiónleilvinn lijorgx ins I lalldors
sonar oggesta 11 tmgardalslitill um
helgina. I .jósmyntlari I )\ kom \ ió ;i
einum heirra.
Það voru engir nýgræðingar sem tóku
þátt i tónleikunum með Björgviní,
eins og sést a þessari mynd, en þeirra
a meðal voru Sigga Beinteins, Helgi
Björns og Bjarni Ara.
‘s.A,
Dimma-
limm-
verðlaunin
afhent
íslensku myndskreytiverðlaun-
in, sem kennd eru við Dimmal-
imm, voru afhent í sjötta sinn í
Gerðubergi íyrir helgi. Það var
Sigrún Eldjárn, myndlistarkona og
rithöfundur, sem hlaut verðlaunin
að þessu sinni fyrir myndskreyting-
ar sínar í barnaljóðabókinni Gælur,
fælur og þvælur en Þórarinn Eld-
járn, bróðir Sigrúnar, orti kvæðin.
I rökstuðningi dómnefndar segir
meðal annars að það sem sérstak-
lega hafi glatt hana við bókina sé
„...nýr tónn í bókaskreytingum Sig-
rúnar þar sem flæði forma og lita
er útlínuteikningunni yfirsterkari."
Sigrún á að baki langan feril sem
rithöfundur, teiknari og listmálari
og hefur hlotið margar viðurkenn-
ingar en þetta er í fyrsta sinn sem
hún fær Dimmalimm-verðlaun-
in. Þess má geta að í Gerðubergi
stendur yfir sýningin Allt í plati! þar
sem sýndar eru einmitt myndir úr
söguheimi Sigrúnar.
Svala Bjorgvinsdottir, dottir Björgvins,
var stórglæsileg á sviðínu í Laugar-
dalshöll.
Raggi Bjarna var einn fjölmargra sem
lögðu Björgvini liö i söngnum.
Breyttust í börn „Þetta er kannski ekki stórfenglegt skáldverk, en börnin
fylgdust með af áhuga frá upphafi til enda þegar ég sá sýninguna a
laugardaginn. Ég sá heldur ekki betur en margt fullorðna fólkið skemmti sér
einnig agætlega; sumir nánast breyttust i börn í framan ..."
GLÆPASÖGUKVÖLD í SNORRASTOFU
Glæpasögukvöld ferfram í bókasafni Snorrastofu í Reykholti í kvöld. Þrír höfundar lesa þar úr
nýútgefnum bókum sfnum: ÞÓRUNN ERIU-VALDIMARSDÖTTIR les úr Kalt er annars blóð, ÓTTAR M.
NORÐFJÖRÐ les upp úr Hnífi Abrahams og loks les FRITZ MÁR JÖRGENSSON úr sinni bók sem heitir
Grunnar grafir. Upplesturinn hefst klukkan 20.30.
Aðventuvertíðin er komin í fullan gang hjá
leikhúsunum. Jólasveinarnir eru fastagestir í nánast
hverju leikhúsi um þessar mundir og þar að auki
Þjóðminjásafninu þar sem þeir koma meira að segja
fram ókeypis. Ef ég lít yfir hina nýju leikhússíðu
Moggans - sem er mesta þarfaþing og ég nota orðið
mikið - telst mér til að ekki færri en sjö jólaleikir séu nú
í boði á höfuðborgarsvæðinu. Á Akureyri og ísafirði eru
sveinar einnig mættir til leiks. Um daginn voru birtir í
blaði útreikningar á tónleikaveltunni nú á aðventunni,
en það eru greinilega góð uppgrip hjá leikhúsunum
líka. Markaðurinn er enda þakklátur; hvað er betur
tilvalið en að enda verslunarhelgina með ferð í leikhúsið
ásamt börnunum? Og framboðið er sem sagt nóg; hver
fjölskylda gæti sem hægast séð nýja sýningu um hverja
helgi fram að jólum - það er að segja þær sem hafa ráð á
því, en svo heppnir munu því miður víst ekki allir vera.
Mér hefur lengi fundist synd hvað Skemmtihúsið,
sem þau Erlingur og Brynja reistu við hús sitt við
Laufásveg fyrir nokkrum árum, er lítið notað. Á efra
loftinu þar er ekta baðstofustemning sem hefur reynst
kjörin fyrir alls kyns frásagnarleiki og forneskju. Þess
vegna er vel til fundið hjá leikflokki sem nefnir sig
Kraðak að setja þar upp jólasveinaleik í þjóðlegum
anda. Hann snýst um leit tveggja fornlegra jólasveina
að jólaskapinu sem þeir finna að sjálfsögðu eftir ýmsar
raunir. Þetta er kannski ekki stórfenglegt skáldverk, en
börnin fylgdust með af áhuga frá upphafi til enda þegar
ég sá sýninguna á laugardaginn. Ég sá ekki heldur betur
en margt fullorðna fólkið skemmti sér einnig ágætlega;
sumir nánast breyttust í börn í framan og það er alltaf
gaman að fylgjast með þegar það gerist. Eiginlega var
LEIKDÓMUR
Skemmtihúsið:
Lápur, Skrápur og jólaskapið Eftir Snæbjörn Ragnarsson
Leikstjóri: Anna Bergljót Thorarensen 1 «
★★★★★ Jón Viðar Jónsson leiklistargagnrýnandi
þetta ein þeirra leikhúsferða þar sem maður hefur engu
minni ánægju af að fylgjast með viðbrögðum annarra
áhorfenda en því sem fram fer á sviðinu, en það er ekki
erfitt því að áhorfendur skiptast í tvo hópa sem sitja hvor
á móti öðrum, svona rétt eins og í gömlu baðstofunum.
Annars er þó nokkuð lagt í þessa sýningu, í umgerð,
búningum, ljósum og leikhúsbrögðum, auk þess sem
söngur og tónlist lífga heilmikið upp á. Svo er ekki
verra að fá að hitta jólasveinana sjálfa á eftir og fá hjá
þeim smákökur og gos. Ef miðaldra gagnrýnandi ætti
að finna að einhverju gæti hann hugsanlega bent á að
jólasveinarnir tveir, þeir Lápur og Skrápur, hafi verið
fulllíkir hvor öðrum í aulahættinum. Útsmognari
höfundur hefði verið vís til að gera úr þeim meiri
andstæður; það er gömul reynsla úr leikhúsinu að
leikur að andstæðum hjálpar alltaf til. En auðvitað var
góður bónus að fá sjálfa Grýlu inn í lokin, þó að einstaka
ungum áhorfanda yrði svolítið hverft við og þætti gott
að grípa í höndina á eldri fylgdarmanni.
DV mynd Asgeir
NÓG FRAMBOÐ
AFJÓLASKAPII
Metsölulisti
ISYdíil AS0l.l11VliltsuliNIIMIl.\tlk.\lll*AVIKIIN.\2.-Í).DliS. m V
ITAI.SKIK KliTnil I IA( IKAI ll’A
IIAKDSKAEI
Arnaldui' Indriðason
I.ANDSI ÍDSKETTTK UAGKAUþA