Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Side 2
Fréttir DV
2 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008
MegaveiðalOO
þúsund tonn
Sjávarútvegsráðherra hefur
gefið út reglugerð sem heimilar
Ioðnuveiðar á ný. Reglugerðin
tekur strax gildi og fellir úr gildi
reglugerð ffá því í síðustu viku
um bann við loðnuveiðum.
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra stöðvaði loðnu-
veiðar að undirlagi Hafrann-
sóknarstofnunar í síðustu viku
og féll sú ákvörðun víða í grýttan
jarðveg, ekki síst hjá sjómönn-
um. Ráðherra hefur nú heimilað
veiðar á ný með skertu aflamarki.
Aflamark íslenskra skipa í loðnu
á yfirstandandi veiðitímabili er
minnkað úr 121.745 tonnum í
100 þúsund tonn. Fiskistofa mun
gefa út nýtt aflamark í loðnu
þegar formleg ákvörðun um nýtt
aflamark berst stofnuninni.
Tugmilljóna
styrkveiting
SPRON-sjóðurinn hefur
veitt Krabbameinsfélagi ts-
lands 42 milljóna króna styrk
til kaupa á úrlestrarstöð sem
röntgenlæknar nota til að lesa
úr stafrænum brjóstmyndum.
Úrlestrarstöðvarnar eru liður
í umfangsmikilli tækjavæð-
ingu á leitarsviði Krabba-
meinsfélagsins þar sem starf-
ræn tækni er notuð við leit á
brjóstakrabbameini.
Jóna Ann Pétursdóttir,
framkvæmdastjóri SPRON-
sjóðsins, afhenti Guðrúnu
Agnarsdóttur, forstjóra
Krabbameinsfélags íslands,
styrktarféð við athöfn í gær.
Handteknir
meðfíkniefni
Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu handtók þrjá menn í
húsi í borginni í fýTrinótt en þeir
voru þar við neyslu fíkniefna.
Lögreglan hafði haft grunsemdir
um athæfi mannanna en lagt var
hald á nokkurt magn fíkniefna.
Þá handtók lögreglan fjóra
ölvaða menn sem grunaðir eru
um að hafa brotið rúðu á tveimur
stöðum í miðborginni. Þeir voru
færðir í fangageymslur.
Nefbrotnaði í
slagsmálum
Lögreglan á Suðurnesj-
um fékk í fýrrakvöld til-
kynningu um slagsmál í
vistarverum hælisleitenda
í Reykjanesbæ. Þegar lög-
regla kom á staðinn var einn
maður slasaður og var hann
fluttur á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja þar sem kom í
ljós að hann var nefbrotinn
og ekki ólíklegt að hann sé
einnig kinnbeinsbrotinn.
Meintur árásaraðili var
handtekinn og færður í
fangageymslu vegna frekari
málsrannsóknar.
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra telur eðlilegt að skýrsla um flótta Annþórs
Karlssonar verði send rikissaksóknara. Ekki.er ljóst hvort það er gert með það fyrir
augum að rannsaka hvort einhver verði ákærður vegna málsins. Björn segir flóttann
álitshnekki fyrir lögregluna.
KLÚÐUR LÖGREGLU TIL
RÍKISSAKSÓKNARANS
VALUR GRETTISSON
blaðamaður skrifar: valur@dy.is
„Ég tel eðlilegt að skýrsla Stefáns
sé kynnt ríkissaksóknara," svarar
Björn Bjarnason fyrirspurn blaða-
manns DV um frumathugun lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu
á flótta Annþórs Karlssonar um
miðjan febrúar. Hann vísar þar til
skýrslu Stefáns Eiríkssonar, lög-
reglustjóra á höfuðborgarsvæðinu,
um flótta Annþórs. Björn tilgreinir
ekki út frá hvaða sjónarhorni rík-
issaksóknari skoðar skýrsluna eða
hvort von sé á því að saksóknari
meti hvort rétt sé að kæra í mál-
inu.
Björn segir að auki að hann sé
sammála Stefáni um að flótti Ann-
þórs sé álitshnekkir fyrir þá sem að
því hafa komið af hálfu lögreglunn-
ar. Hann segist jafnframt treysta
Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra til
þess að vinna að úrbótum á þessu
sviði en ekki er ljóst nákvæmlega í
hverju þær felast. Dómsmálaráð-
herrann segist að auki hafa óskað
eftir því að fýlgjast með framgangi
málsins.
Ævintýralegur flótti
Það var um miðjan febrúar
sem Annþór Karlsson, sem
er grunaður um stórfellt
fíkniefitasmygl, gekk út
úr ólæstum klefa sínum.
Síðan sparkaði hann upp
hurð á geymslu og fann
þar kaðal. Að lokum braut
hann plexígler í glugga á efstu ^
hæð lögreglustöðvarinnar við
Hverfisgötu og lét sig síga nið-
ur í frelsið. Annþór strauk á milli
klukkan fjögur og fimm aðfara-
nótt 15. febrúar. Hann fannst ^
tólf tímum síðar í húsnæði
vinar síns í Mosfellsbæ.
Þar hafði hann falið
sig inni í skáp.
Annþór er
margdæmdur og
meðal annars
fyrir hrottalega
„Ég heffariðyfir
skýrsluna og ersam-
mála Stefáni Eiríks-
syni lögreglustjóra um
að þetta mál er álits-
hnekkir fyrir þá sem
að því hafa komið af
hálfu lögreglunnar“
líkamsárás þar sem hann ásamt
öðrum manni misþyrmdi rúml-
iggjandi einstaklingi með járnröri.
Hann hefur einnig verið dæmdur
fyrir fíkniefnasmygl.
Áiitshnekkir lögregluemb-
ættisins
„Ég hef farið yfir skýrsl-
una og er sammála Stefáni
Eiríkssyni lögreglustjóra
um að þetta mál er álits-
hnekkir fýrir þá sem að því
hafa komið af hálfu lög-
reglunnar," svarar Björn
Bjarnason í tölvupósti
um málið sem er allt hið
vandræða-
legasta fyrir lögregluna. Niður-
stöður úr innanhússrannsókn lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
sem hún framkvæmdi sjálf, voru
sendar til dómsmálaráðherrans í
vikunni.
Sjálfur segist Björn treysta Stef-
áni til að vinna að úrbótum eftir
flótta Annþórs. í viðtali í gær stað-
festi Stefán að engum hefði verið
sagt upp hjá lögregluembættinu
vegna málsins en aðspurður hvort
hann sæi ástæðu til þess að segja
af sér sagðist hann ekki sjá tilefni
til þess.
Fylgist með
í tölvupósti segir Björn að
hann hafi óskað eftir að fylgj-
ast með þeim úrbótum sem lög-
reglustjórinn boðar vegna flótta
Annþórs. I viðtali í gær sagði
Stefán að úrbæturnar
fælust í því að starfs-
menn fylgdu verk-
lagsreglum. í niður-
stöðu rannsóknar
lögreglunnar kom
fram að móttaka og
vistun fangans sem
og eftirlit
Stefán Eiriksson Lögreglustjórinn
á höfuðborgarsvæðinu telur málið
álitshnekki fyrir lögregluna.
Björn Bjarnason Dömsmalaráð
herra er sammála Stefáni lögreglu
stjóra um að flóttamálið se allt hið
versta fyrir lögregluembættið.
með honum var ekki í samræmi
við gildandi verklagsreglur. Aft-
ur á móti kom sérstaklega fram
í tilkynningu lögreglunnar sem
hún sendi frá sér í síðustu viku að
enginn starfsmaður væri grunað-
ur um ólöglegt athæfi í tengslum
við flóttann.
Aðspurður sagðist Stefán bera
ábyrgð á þessu máli, eins og allri
starfsemi sem að lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu snýr.
Flóttinn með ólíkindum
„Það er rétta boðleiðin að
senda þessa rannsókn til ríkis-
saksóknara," segir Jón Magnús-
son, lögfræðingur og þingmaður
Frjálslynda flokksins. Hann bætir
við að það sé með ólíkindum að
Annþór hafi sloppið út eins og það
kemur fyrir hans sjónir. Jóni, sem
þekkir verklag á lögreglustöðvum
í gegnum lögræðistörf, þykir það
undarlegt hvernig maðurinn slapp
út með þessum hætti. Hann segir
það ágætt að menn hafi rumskað
við þetta hjá lögreglunni en nú sé
að bíða niðurstöðu ríkis-
saksóknara
sem ákveð-
ur hvort
fleira veð-
ur aðhafst
í málinu.
Annþór Kristján Karlsson
Flúði úr haldi lögreglunnar á
ævintýralegan hátt. Hann fannst
■2 síðar inni i skáp i Mosfellsbæ.
BEsa ip-y ini't liwwvww
Forstjóri SS segir slagsmál starfsmanna ekki tengjast innanhússátökum:
Blóðug slagsmál íkeilu
„Mórallinn er orðinn svo slæm-
ur að áflog brjótast út þegar við
förum að skemmta okkur saman.
Jafnvel í keilu þar sem einn starfs-
maður nefbrotnaði og annar gisti
fangageymslur. Þetta var eitt það
ógeðslegasta sem ég hef séð," seg-
ir í færslu inni á vefsvæðinu slatur-
felagid.com, vefsvæði sem stofnað
var til höfuðs forstjóra Sláturfélags
Suðurlands, SS. Sá sem ritar færsl-
una spyr sig og lesendur sfðan að
því hvernig árshátíð fýrirtækisins
verði eiginlega í ljósi þess að blóðug
slagsmál brjótist út í saklausri keilu-
ferð starfsmannafélagsins.
Logað hefur í deilum undanfar-
ið hjá SS og hart deilt á forstjóra fyr-
irtækisins, Steinþór Skúlason. Vefs-
væðið var stofnað honum til höfuðs
og þar er hann sakaður um að vera
óhæfur í starfi sínu og með vinnulagi
sínu sé hann langt kominn með að
drepa niður allan vinnuanda. Sjálf-
ur hefur Steinþór vísað því á bug og
fullyrðir að sátt ríki innan fyrirtæks-
ins. Hann segir ljóst að truflaður
fyrrverandi starfsmaður standi fyrir
vefsíðunni og hefur leitað liðsinnis
lögreglu við rannsókn málsins.
Á dögunum fór fjöldi starfs-
manna SS í skemmtiferð í keilu og
er fullyrt að áðurnefndu vefsvæði að
blóðugar deilur hafi orðið. Aðspurð-
ur segir Steinþór áflogin ekkert hafa
að gera með innanhússdeilurnar.
„Þetta er bara hluti af þessari rógs-
herferð sem var í gangi. Ég spurði
nú um þennan atburð og það eina
sem ég heyrði var að gamanið hafi
súrnað hjá einhverjum starfsmönn-
um eftir að keilunni var lokið. Það
var enginn sem lenti í fanga-
klefa og ég hef ekki séð neinn
nefbrotinn," segir Steinþór.
„Þessi áflog koma ekki öðr-
um málum við og þetta get-
ur komið fyrir alls staðar. Ég
var ekki á staðnum en ég hef
spurst fyrir um þetta. Ég hef
engar áhyggjur af þessu enda
eru komnar á fullar sættir á milli
þeirra sem áttu í stimpingunum.
Áflogin tengjast ekkert innanhúss-
deilunum heldur er aðeins verið að
reyna að mála þau saman við þær."
trausti@dv.is
STEINÞÓR SKÚLASON
Forstjóri SS segir slagsmálin ekki
tengjast deilum innan fyrirtækisins.