Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 Fréttir DV Björn hvetur til málsókna „Nú ætti einhver að láta reyna á ábyrgð þeirra, sem halda úti vefsíðum, þar sem nafnleysingj- ar vega að samborgurum sínum með dónaskap og óhróðri," segir Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra. Dómsmálaráðherra gerir að umtali á vefsíðu sinni nýfallinn dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Ómars R. Valdimarssonar gegn bloggaranum Gauki Úfars- wni. Þar var Gauki gert að greiða Omari 300 þúsund krónur í bæt- ur vegna ummæla sem Gaukur hafði um Ómar. Björn segir að dómurinn sé sögulegur en hann segist lengi hafa talið að höfundar væru ekki síður ábyrgir orða sinna í net- heimum en annars staðar. Tvær milljónir króna í styrk MS-félag tslands fékk í gær tvær milljónir króna í styrk frá Kópavogsbæ. Styrkurinn var afhentur við háu'ðlega athöfn í gærmorgun en upphæðinni á að verja til stækkunar á hús- næði fyrir dagvist félagsins. MS-félagið hefur rekið dagvistina í meira en tuttugu ár en hún var stofnuð í þeim tilgangi að veita MS-sjúkling- um umönnun og endurhæf- ingu vegna fötlunar sinnar. Að því er fram kemur í fréttatil- kynningu frá Kópavogsbæ getur dagvistin tekið á móti 40 manns á hverjum degi en í heildina njóta um 70 manns þjónustu hennar. Það var Ómar Stefánsson, formaður bæjarráðs í Kópa- vogi, sem afhenti MS-félaginu styrkinn fyrir hönd bæjaryf- irvalda. Gaukur áfrýjar Dagskrárgerðarmaðurinn Gaukur Úlfarsson staðfesti í sam- tali við DV í gær að hann hygðist áffýja meiðyrðadómi til Hæsta- réttar íslands. Hann var dæmdur fyrir þrenn ummæli sem hann birti á heimasíðu sinni á síðasta ári um Ómar R. Valdimarsson upplýsingafulltrúa. Þar sakaði hann Ómar um að vera rasisti vegna skrifa Ómars um vara- þingmanninn Paul F. Nikolov. Ummælin voru dæmd dauð og ómerk og þarf Gaukur að greiða átta hundruð þúsund krónur alls í miska- og lögfræðikostnað. Leiðrétting 1 viðtali við Ómar R. Valdi- marsson í DV í gær var það ranghermt að hann væri lög- fræðingur. Hann er vitaskuld upplýsingafulltrúi og hefur hingað til ekki stundað lög- fræðistörf. Viðskiptabankarnir eru byrjaðir að grípa til aðhaldsaðgerða í rekstri sínum. Hópupp- sagnir og launalækkanir æðstu stjórnenda eru meðal aðgerða sem tilkynntar hafa verið síðustu daga. Engu að síður segja talsmenn bankanna stöðu þeirra afar trausta. BANKARNIRSPARA TRAUSTI HAFSTEINSSON bladamadur skrifar: traustiwdv.is Viðskiptabankamir íslensku virðast ekki ónæmir fyrir kreppuástandinu sem blasir við á fjármálamörkuðum heimsins. Þessa dagana sjást klár merki þess að bankarnir eru farnir að beita aðhaldsaðgerðum í rekstri sínum. Kaupþing hefur nú þegar sagt upp 40 starfsmönnum og búast má við frekari uppsögnum síðar vegna endurskipulagningar á starfsemi bankans í Bretlandi. Með aðgerðun- um losar Kaupþing nærri 130 millj- arða króna og nær að styrkja eigið fé. Þá hafa stjórnendur Glitnis, forstjóri, stjórnarformaður og stjórnarmenn, samþykkt að lækka laun sín um helming. Þeir segjast með því vilja ganga á undan með góðu fordæmi í því erfiða fjármálaumhverfi sem nú ríkir. Ljóst er að fjárhagsstaða bank- anna getur verið ólík og óvíst hversu mikið þeir koma til með að þurfa að spara á næstunni. Erfiðir tímar Benedikt Sigurðsson, upplýsinga- fulltrúi Kaupþings, segir Kaupþing banka standa mjög sterkt. Hann seg- ir engu að síður eðlilegt að þegar erf- iðir tímar gangi yfir þá fari fyrirtæki almennt varlegar í rekstri sínum. „Bankamir em byrjaðir að skoða sinn gang því eðlilega verða menn að fara varlega í rekstrinum á næst- unni og halda að sér höndum eins og hægt er. Það er alls staðar í viðskipta- lífinu verið að leita leiða til að spara," segir Benedikt. Glimir sagði nýverið upp öllum starfsmönnum sínum í svokallaðri atburðadeild og stjórnarformaður bankans, Þorsteinn Már Baldvins- son, hefúr lýst því yfir að stórfelld- ar aðhaldsaðgerðir séu ffarn undan. Formaðurinn segir ljóst að skorið verði niður þar sem því verður kom- ið við. Már Másson, upplýsinga- fulltrúi Glitnis, segir klárlega erfiða tíma fram undan á fjármálamörkuð- um. Hann segir stöðu Glitnis mjög trausta. „Aðhaldsaðgerðir stjórnend- anna snúast ekki um það að staða bankans sé eitthvað alvarleg. Þetta snýst miklu meira um að sýna gott fordæmi og þetta em skýr skila- boð um samstöðu við þær erfiðu markaðsaðstæður sem nú ríkja," segir Már. Fylla ekki í allar stöður Atli Atlason, framkvæmda- stjóri starfsmannasviðs Ltmdsbankans, telur eng- ar aðhaldsaðgerðir fram undan hjá bankanum. Að- spurður segir hann launa- lækkanir stjórnenda ekki hafa komið til tals. „Við höf- um hvorki fækkað fólki hjá okkur né lokað starfsstöðvum. Eins og stað- an er í dag er slíkt ekki fyrirhugað og við höldum áfram í óbreyttu horfi á meðan ekkert breytist. Hjá okkur hefur ekkert verið rætt um hagræðing- araðgerðir í lík- ingu við það sem ffarn hefur komið undanfar- ið," segir Atli. Aðspurð- ur á Benedikt ekkivonáfrek- 0' uppsögnum. Hann segir þó líkur á því að ekki verði endurráðið í þær stöður sem losna á næstunni. „Það er ekkert meira að sjá á næstunni hjá okkur en það er alltaf einhver starfsmannavelta! Á meðan staðan er svona er ekki er víst að við ráðum endilega aftur í öll störfin. Við end- urráðum að sjálfsögðu í stöður þar sem við þurfum klárlega að hafa mannskap. Reyndar held ég að starfsfólkið haldi frekar í störf- in sín á næstunni, það held ég að hljóti að vera," segir Benedikt. ari Lárus Welding Forstjóri Glitnis tók á sig helmings launalækkun. Stjórnendur bankans liafa boðað stórfelldar aðhaldsaðgerðir á næstunni. Mar Másson Upplýsingafulltrúi Glitnis segir bankann vilja sýna gott fordæmi við erfiðar markaðsaðstæður. Kolbrún Halldórsdóttir leggur fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra: Einhleypar konur í tæknifrjóvgun „Ég vil vita hvernig starfi þessar- ar nefndar miðar og af hverju sjónar- mið ráðherra eru ekki komin í frum- varp," segir Kolbrún Halldórsdóttir, þingmaður vinstri-grænna. Kolbrún lagði á mánudag ffam fyrirspurn til Guðlaugs Þórs Þórðar- sonar heilbrigðisráðherra um hvern- ig undirbúningi þess að heimila ein- hleypum konum að gangast undir tækniffjóvgun líður. Auk þess vill Kolbrún fá svör frá ráðherra hvern- ig störfum nefndar sem skipuð var í október miðar en hún átti að endur- skoða reglugerð um tæknifrjóvganir. „Á mánudag var önnur umræða um frumvarp um tæknifrjóvgan- ir. Þar var verið að fjallað um stofn- frumur og stofnffumurannsóknir. Mér finnst að það hefði átt að koma inn í þetta frumvarp og heimila ein- hleypum konum að fara í tækni- Villsvör Kolbrún vill að einhleypar konur fái heimild til að fara í tæknifrjóvgun hérlendis. frjóvgun." Kolbrún segir að ráðherra hafi hingað til verið jákvæður út í þá hugmynd og vill því að hann svari því hverju það sæti að máhð hafi ekki verið með í frumvarpinu sem lagt hefur verið fram um stofnfrum- urannsóknir. Kolbrún segir að nokkuð stór hópur íslenskra kvenna hafi leitað til nágrannalanda okkar til að fara í tæknifrjóvgun. „Mér finnst að við ættum að búa þannig að þegnum okkar að það sem er á annað borð mögulegt að gera verði gert hérlend- is. Eðli þessara aðgerða er þannig að þær heppnast ekki í öllum tilvikum. f mörgum tilvikum eru þetta konur sem eru komnar á þann aldur að ef þetta dregst á langinn, þá verður það bara orðið of seint," segir Kolbrún og segist vonast til að fá svar í fyrir- spumartíma í dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.