Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008
Fréttir DV
DV
MRÉTTIR
Tyrkiryppta
öxlum
Tyrknesk stjórnvöld
hafa fengið skýr skilaboð frá
Bandaríkjamönnum vegna
hemaðarátakanna gegn
Verkamannaflokki Kúrda í Kúrda-
héruðum í norðurhluta íraks.
Tyrkir hafa ekki verið Banda-
rflcjunum leiðitamir vegna
málsins og eru ekki reiðubúnir
til að segja hvenær þeir muni
kalla hermenn sína heim ffá
Norður-írak. Stjómvöld í írakhafa
fordæmt hemaðaraðgerðir Tyrkja
og hvatt þá til að draga sig til baka.
Tyrkir segjast ekki vera reiðubúnir
til þess fyrr en búið sé að uppræta
bækistöðvar Verkamannaflokks
Kúrda og þá ógn sem Tyrkjum stafi
afhonum.
Skjálfti skók
Bretland
Fjöldi Breta vaknaði við
vondan draum upp úr miðnætti
síðastliðna nótt. Ástæðan var
einn harðasti skjálfti í nærri ald-
arfjórðung. Skjálftinn, sem var
5,3 stig á Richter, stóð yfir í um
tíu sekúndur og varð vart á stór-
um hluta Englands og Wales.
Ekki er vitað um stórfellt eigna-
tjón afvöldum skjálftans, en
skorsteinar skemmdust á nokkr-
um húsum og vitað er um einn
mann sem slasaðist á mjöðm.
Árið 1984 reið snarpur jarð-
skjálfti yfir Norður-Wales, sá
mældist 5,4 stig á Richter.
Leyfi til að skjóta
Augustine Chihuri, lögreglu-
stjóri Simbabve, hefur lýst því yfir
að lögreglu landsins verði heimilt
að beita skotvopnum ef til óeirða
kemur vegna forsetakosning-
anna í lok mars. Hann hvatti leið-
toga stjórnmálaflokka til að forð-
ast átök við lögregluna. „Sveðjur,
axir, bogar og örvar koma engum
í embætti," sagði Chihuri. Fyrr
í mánuðinum var lagt bann við
vopnaburði á almannafæri.
Robert Mugabe, forseti
landsins, og Morgan Tsvangirai,
leiðtogi stjórnarandstöðunnar,
hvöttu stuðningsmenn sína til að
grípa ekki til ofbeldis.
Hægt er að rekja sögu leigumæðra langt aftur í tímann og sennilega er fyrsta dæmið að
finna í Mósebók þegar Hagar, þjónustustúlka Söru konu Abrahams, gengur með barn
fyrir Söru. Hagar var ekki ætlað að ala barnið upp sem hennar eigið, en lét það í hendur
Söru og Abrahams. Hagar hafði sennilega ekki mikið val, en hvað fær leigumæður nútím-
ans til að ganga með barn sem þær vita að þær verða að gefa frá sér að fæðingu lokinni.
HVÍT KONA FÆÐIR
ASÍSKAN DRENG
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamadurskrifar:
Hvít bresk kona fæddi fyrir þremur
mánuðum, sem leigumóðir, asískt
barn fyrir barnlaus hjón. Hinn
þriggja mánaða snáði er með tilliti
til genasamsetningar barn asískrar
móður og föður, því fósturvísirinn var
fenginn með eggi úr henni og sæði úr
honum. Leigumóðirin ræddi í viðtali
við Sunday Times síðastliðna helgi
um hvernig það væri að ganga með
og fæða barn af öðrum kynþætti.
Talið er að hún sé fyrsta leigu-
móðirin í Bretlandi sem tjáir sig
opinberlega um meðgöngu fyrir
foreldra af öðrum kynþætti. Leigu-
móðirin, Karen, sagði að húðlitur hafi
ekki valdið henni neinu hugarangri.
„Hann breytti engu," sagði hún. Karen
upplýsti að hún væri við það að hefja
meðferðtil að geta gengið með annað
barn fyrir asísku hjónin, því móðirin
sé ekki fær um það sjálf.
Indland vinsæll áfangastaður
Það er stöðugur straumur hvítra
para til Indlands, þar sem þau
greiða asískum leigumæðrum fyrir
meðgöngu og fæðingu bama, en það
er afar sjaldgæft að hvítar leigumæður
gangi með börn fyrir asísk hjón.
Eitt algengasta vandamálið sem
snertir leigumeðgöngu er ef leigu-
móðirin neitar að láta barnið af hendi
að fæðingu lokinni. Læknar telja að
það geti komið foreldmm sem leita
þjónustu leigumæðra til góða ef þær
em af öðrum kynþætti, því lflcurnar
á því hún tengist barninu, og neiti
jaftivel að láta það af hendi, verði
minni ef það er af öðrum kynþætti.
„Ólfldegt er að leigumóðirin vilji
halda barni af öðmm kynþætti. Það er
bara mannlegt eðli," sagði Ian Craft,
prófessor og framkvæmdastjóri ftjó-
semismiðstöðvar Lundúna.
Fjórða meðgangan
Karen komst í samband við
asísku hjónin í Lundúnum gegnum
umboðsskrifstofu leigumæðra Cots.
Carole Horlock Átta meðgöngur fyrir ófrjó hjón og þríburar á leiðinni.
Ef Karen lánast að ganga með annað
barn fyrir hjónin mun það verða fjórða
meðganga hennar sem leigumóðir.
Fyrir hefur hún fætt tvær stúlkur fyrir
hvít hjón. Karen fékk fyrst áhuga á
að verða leigumóðir þegar vinafólki
hennar gekk erfiðlega að stofna
fjölskyldu og hún ákvað að hjálpa
öðrum konum.
„Meðan á öllum meðgöngum
stóð leið mér eins og leigumóður. Ég
skírskotaði aldrei til bamanna sem
„minna bama". Ef ég fann bam sparka
eða hreyfa sig minnti ég mig alltaf á að
um væri að ræða annars bam," sagði
Karen.
Önnur þekkt tilfelli þar sem um
var að ræða að hvít leigumóðir myndi
ganga með asískt bam hafa endað
með ósköpum. Árið 1991ætlaði bresk
Indverskar leigumæður Talið
ólíklegra að leigumóðir vilji halda barni
aföðrum kynþætti.
kona að ganga með bam fyrir asísk
hjón, en samningnum var rift eftir að
leigumóðirin gerði áformin opinber í
fjölmiðlum. Á síðasta ári leituðu asísk
hjón til dómstóla til að fá forræði yfir
tvíburum eftir að leigumóðirin ákvað
að halda þeim. Málið var útkljáð utan
dómstóla og tvíburunum komið í
hendur hjónanna.
Kostnaður, ekki laun
Skortur er á leigumæðrum í
Bretlandi og hjón sem ekki geta
eignast bam sjálf geta átt von á að reiða
fram á milli þrettán og átján milljóna
íslenskra króna fyrir þjónustu þeirra.
Þessi þóknun er sögð fyrir kostnaði
á meðan meðgöngu stendur, því
strangt tiltekið er bannað með lögum
að þiggja laun fyrir þessa þjónustu. Ef
hjón leggja land undir fót og ferðast til
Indlands í sömu erindagjörðum geta
þau fundið leigumóður fyrir um fjórar
milljónir, og ef kenning Ians Craít
prófessors stenst, dregið úr lflcunum
á því að leigumóðirin neiti að láta
barnið af hendi.
Yfir fimm hundmð böm hafa
fæðst fyrir tilstilli leigumæðra á Bret-
landi og stofnandi Cots-umboðsskrif-
stofunnar, Kim Cotton, var fyrsta
leigumóðirin þar í landi. Ein afkasta-
mesta leigumóðirin er Carole Horlock,
en hún státar af átta fæðingum fyrir
ófrjó hjón og gengur nú með þríbura.
Minnistöflur
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
FOSFOSER
MEMORY
Valið fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
Breska lögreglan óttast hið versta á Jersey:
Komust í kjallarann í gær
Hautde la
Garenne Lögreglan
komstinn í kjallara
sem búið varað
múra fyrir.
Breska lögreglan sem stendur að
rannsókn í fyrrverandi barnaheimili
á Jersey á Ermarsundi komst í gær
inn í kjallara sem búið var að loka af.
Hún óttast að þar kunni að finnast
fleiri líkamsleifar barna, en enn sem
komið er hafa fundist líkamsleifar
eins barns. Að sögn Lennys Harper,
eins yfirmanna í Jersey-lögreglunni,
sýndi sérþjálfaður hundur mikil
viðbrögð í kjallaranum í Haut de la
Garenne. í gær hafði þó ekkert frekar
fundist, en Harper sagði að kjallarinn
yrði rannsakaður hátt og lágt.
„Við höfum áhyggjur af ástæðum
þess að kjallarinn var falinn," sagði
Harper, en kjallarinn er um tólf fer-
metrar og tæplega tveggja og hálfs
metra lofthæð. Lögregluna grunar að
múrað hafi verið fyrir annað herbergi
af svipaðri stærð.
Lögreglan hefur til athugunar
ásakanir yfir eitt hundrað og sex-
tíu fórnarlamba sem spanna nokkra
áratugi.
Sjötíu símtöl
Yfir sjötíu manns hafa haft sam-
band við lögregluna síðan hauskúpa
fannst á Haut de la Garenne á laugar-
daginn. „Fjöldi fólks hefur rifjað upp
minningar sínar varðandi heimilið
og kjallarann," sagði Harper. Hann
sagði að fyrrverandi lögreglumenn á
eynni myndu einnig verða rannsak-
aðir með tilliti til þess hvernig þeir
brugðust við ásökunum um bama-
misnotkun sem ffarn voru bornar á
árum áður.
Harperýjaði að því að um fjörutíu
manns væru grunaðir vegna málsins
og þar á meðal væru yfirmenn á
barnaheimilum. „Það munu eiga
sér stað handtökur þegar fram í
sækir. Fólk verður yfirheyrt vegna
ásakananna," sagði Lenny Harper, en
hann reiknar með að lögreglan verði
á staðnum í hálfan mánuð í viðbót.