Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Page 11
etta hefur alltaf verið draumurinn,"
segir Haukur Svavarsson kennari
um Mustanginn sem hann eignaðist
nýverið. Haukur segir bílaáhugann
hafa byrjað fyrir um þrjátíu árum. „Ég var á
milli fermingaraldurs og bílprófsaldurs þegar
kvartmíluklúbburinn svokallaði var stofnað-
ur, fyrir mér hefur draumabfllinn alltaf verið
Mustang.
Bílinn fann Haukur á vefsíðu eBay og fóru
viðskiptin þar fram. „Maður hefur nú heyrt
ýmsar sögur um það hversu áhættusamt það
getur verið að versla á netinu en ég hafði mér
til aðstoðar mjög vana menn."
Það tók Hauk tvo mánuði að fá bíiinn til
landsins eftir að gengið var frá greiðslum.
Haukur segist hafa átt þó nokkuð marga bíla
í gegnum tíðina, þó mismerkilega. „Must-
anginn er án efa fallegasti bílinn sem ég hef
eignast."
Þar sem Hauk hefur dreymt um að eignast
Mustang frá unga aldri hlýtur að vera skrítin
tilfinning að horfa loks á bílinn inni í bílskúr.
„Tilfinningin er alveg frábær," segir Haukur
stoltur. „Bíllinn, sem er frá árinu 1967, er ein-
staklega vel með farinn enda var hann gerður
upp fyrir nokkrum árum." Þegar blaðamaður
forvitnast um verð á svona grip segir Hauk-
ur það vera nokkuð svipað og á nýjum Must-
ang, meira gefur hann ekki upp. Mustang er
nú ekki beint hentugur bfll fyrir íslenskar að-
stæður og gerir Haukur sér fyllilega grein fyrir
því. „Ég ætía að keyra hann þrjá sunnudaga
á ári þegar sólin skín og klappa honum þess
á milli," segir Haukur í gamansömum tón að
Iokum um draumabfliim.