Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008
Btlar DV
Líka flottur Mælaborðið er ansl smekklegt og mlnnir svolítið á Saab.
Skoda Roomster kom fyrst fram sem
hugmyndarbíll á bflasýningunni í
Frankfurt árið 2003. Óhætt er að segja
að bíllinn vekti þar athygli meðal bfla-
blaðamanna enda bar hönnun hans
merki hugmyndaauðgi og smekkvísi.
Viðbrögðin hafa trúlega ýtt á eftir Tékk-
um að gera bflinn að veruleika og árið
2006 var framleiðsluútgáfan svo ffurn-
sýnd á Genfarbflasýningunni. Fram-
leiðsluútgáfan var ekki alveg eins sér-
stök og frumgerðin í Frankfurt var og
rennihurðirnar við aftursætið voru
horfnar og komnar hefðbundnar hurð-
ir á hjörum í þeirra stað. En útlitið var
enn að mestu hið sama, bæði djarft og
sérstakt. Og nú er komin önnur kynslóð
þessa fjölskylduvæna bfls og það er svo
sannarlega enginn austantjaldsbragur
á honum.
Hús og flugvél
Við reynsluókum Skoda Roomst-
er seint á síðasta ári meðan enn var
snjólaust og um svipað leyti vorum
við að reynsluaka hinum nýja Skoda
Fabia og hefur dómur okkar þegar
birst hér í DV um hann. Skoda Fabia
er talsvert breyttur frá fyrsm gerð og
hvað innviði og tækni varðar er hann
náskyldur Roomsternum. En þótt svo
sé, er það nokkuð merkilegt að í akstri
eru þeir einfaldlega ekki líkir. Skoda
Roomster, sem er meiri fjölskyldubfll
og fjölnotabfll en systurbfllinn Fabia,
er ekki síðri akstursbíll en Fabían, og
eiginlega skemmtilegri, svei mér þá.
Kannski hefur það alltaf verið mein-
ingin hjá þeim Skoda-mönnum. Alla-
vega sagði tækniþróunarstjóri Skoda,
dr. Harald Ludanek, á blaðamanna-
fundi í Genf árið 2006 eithvað á þá leið
að Skoda Roomster ætti hvað rýmið
varðaði að gefa svipaða tilfinningu og
af því að vera inni í rúmgóðu húsi en
snerpa og aksturseiginleikar ættu að
minna á góða flugvél. Þessi hughrif
ættu einnig að sjást í útliti bflsins.
Fjölskylduvænn
Skoda Roomster er mjög rúmgóð-
ur og praktískur fjölskyldubfll. Hent-
ugri bfl fyrir til dæmisfjögurra til fimm
manna barnafjölskyldu er vandfúnd-
inn. Farangursrýmið er til dæmis það
umfangsmikið og ekki síst djúpt að
þar má auðveldlega stinga inn bama-
vagni. Þá er auðvelt að festa barnastól
eða -stóla í aftursætið, ekki síst fyrir
það hve hátt er undir þak í aftursæt-
inu og afturdymar opnast vel.
Roomster er langur milli hjóla,
nokkm lengri en Fabia og svipaður
hinum stærri Octavia að því leyti. I aft-
ursætinu er því ágætis rými og ágæt-
lega fer um hávaxna og lappalanga
sem sitja auk þess hærra en framsæt-
isfólkið og hafa því ágætt útsýni út úr
bflnum fram á við og til hliðanna.
Reynsluakstursbfllinn var með 1,6
1 105 hestafla bensínvél og við hana
var sex gíra DSG-gírkassinn sjálf-
skipti. Með þessum vélbúnaði verður
Roomster ekki afls vant og er prýði-
lega snar í snúningum en þó hljóðlát-
ur og sparneytinn. En þeir sem þurfa
ekki á öllu þessu afli að halda hafa
aðra valkosti í vélum og gírkössum.
Af bensínvélum í boði em 1,2 lítra
þriggja strokka 64 hestafla og síðan sú
HPI Savage X 4,6
fjarstýrður torfœru trukkur.
Öflugasta útgáfan til þessa.
'úmsTunoRMúm
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
Stefán Ásgrímsson prufukeyrði nýjan fjölskyldubíl, Skoda Roomster,
í snjóleysi fyrir jól. Stefán gefur bílnum toppeinkunn.
Sérstakt utlit Skoda
Roomster er sérstæður í
útliti og auðþekktur.
n MR “ 530
Mðurstaða
sem var í reynsluaksmrsbflnum. Loks
er í boði 1,4 1 þriggja strokka 80 hest-
afla dísilvél. Fimm gíra handskiptur
gírkassi er staðalbúnaður en sex gíra
DSG-gírkassinn fæst með 1,6 lítra
bensínvélinni.
Vönduð vinna
Innréttingar em ansi smekkleg-
ar og sætaáklæði virðast vönduð. I
mælaborðinu er reyndar yfrið nóg af
hörðu plasti en hönnunin á mæla-
borðinu er þó smekkleg og minn-
ir meira að segja svolítið á Saab -
kannski þar sé flugvélatilfinningin
lifandi komin. Hljómtækin em þau
sömu og maður sér í Volkswagen-bíl-
um og hljóðið í þeim er hreint og tært
og öll stjóm á þeim er einföld. Tengi
er fyrir MP3-spilara.
Skoda Roomster er byggður í sömu
verksmiðu og stóri lúxus-Skódinn,
Skoda Superb. Hann er greinilega vel
samanskrúfaður því að í akstri á mis-
jöfnum vegum bar ekki á skrölti eða
tísti í bflnum og þegar kíkt er eftir at-
riðum eins og suðum, lökkun og frá-
gangi á samskeytum er greinilegt að
Tékkamir em ekki að kasta til hönd-
um. Þetta er vel byggður bfll eins og
Skodabflamir hafa almennt verið hin
síðari ár og það hefur skilað sér í lágri
bilanatíðni sem fer stöðugt lækkandi.
Undirstýri
Þótt Skoda Roomster sé skyldast-
ur Fabia-smábflnum virkar hann alls
+ Gott rými, góðir aksturseiginleik-
ar, mikið öryggi
“ Engir sérstakir
Helstu upplýsingar:
■ Skoda Roomster
■ Verð: 2.190 þúsund kr. (reynsluakst-
ursbíll)
■ Lengd/breidd/hæð í cm:
420,5/168,4/160,7
■ Þyngd tilbúinn til aksturs: 1175 kg.
■ Vél: bensínvél, 1598 rúmsm
■ Afl: 105 hö / 5600 sn. mín.
■ Vinnsla: 153 Nm /3800 sn. mín.
■ Gírkassi: 6 hraða DSG sjálfskipting
■ Viðbragð 0-100:10,9 sek.
■ Hámarkshraði: 184 km/klst.
■ Eldsneytiseyðsla: 7,01/100 km í
blönduðum akstri.
■ C02 útblástur: 167 g / km
■ Hámarksþyngd tengivagns: 1000
kg
■ Helstu keppinautar: Renault
Kangoo, Citroen Berlingo og fleiri
Rúmgóður Gott rými er í aftursætinu,
það er að segja í aðalsætunum. Sætið á
millli er nokkurs konar aukasæti sem
breyta má (borð. Fimm punkta
öryggisbelti er þó við sætið.
Mikið pláss Farangursrýmið er stórt og
þarna má auðveldlega skjóta inn
barnavagni.
ekki lítill í akstri, heldur stór og rúm-
góður með fi'nu útsýni. Hæðarstilling
er á ökumannssætinu. Þau, lflct og
önnur sæti í bflnum, eru fremur stinn
en styðja vel við líkamann og þreyta
lítið þótt lengi sé setið.
Öll stjómtæki og takkar em sömu-
leiðis lflc því sem þekkist í Volkswag-
en. Allt virkar af nákvæmni eins og
vera ber. Þótt bfllinn sé fremur há-
byggður leggst hann lítið undan
beygjum og er hæfilega yfirstýrður
(slengir út afturendanum), nóg til að
vera bæði skemmtilegur og viðráðan-
legur í akstri. Stýrið er rafdrifið vökva-
stýri. Það er hraðanæmt sem þýðir að
það dregur úr aflátakinu með aukn-
um hraða þegar þess gerist ekki leng-
ur þörf. í akstri er bfllinn fremur lág-
vær. Vegdynur er minni en ætla mætti
og vindgnauð vart greinanlegt.
öryggi
Skoda Roomster er fimm stjömu
bfll í árekstursprófi EuroNCAP. Hann
hlaut fimm stjörnur af fimm fýrir
vernd fullorðinna í bflnum. Það sem
er ekld síður mikilvægt er að bfllinn
hlaut hæstu einkunn fyrirvemd bama
- fjórar stjörnur af fjómm. En fyrir þá
sem verða fyrir bflnum er hann hins
vegar ekki jafngóður því að fyrir vemd
fótgangandi fékk hann einungis tvær
stjörnur af fjórum.
Loftpúðar em frammi í og til hlið-
anna og loftgardínur em við ffarn- og
aftursæti. Öll fimm öryggisbeltin em
þriggja punkta og hnakkapúðar em
sömuleiðis við hvert sæti. ABS-heml-
ar og rafræn hemlaátaksjöfnun em
staðalbúnaður og sama er að segja
um ESC-stöðugleikabúnað og spól-
vöm. Hvort tveggja er staðalbúnaður.