Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Page 18
' 18 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 Sport DV ÍÞRÓTTAMOLAR SÁ ELSTI92 ÁRA Alls hafa 264 keppendur skráö slg til leiks á Norðurlandameistaramót öldunga sem fer fram f Laugardalshöll um helgina.Á öldungamótum er keppt f öllum hefð- bundnum innanhúsgreinum en einnig er keppt f 3000m göngu og lóökasti. Mótið fer alfarið fram f Laugardalshöll nema lóðkastið sem verður háð í reiðhöll hestamanna- félagsins Gusts f Kópavogi. fslendingar eiga flesta keppendur á mótinu eða 71 talsins. Finnareiga 69 keppndur, Noregur 66, Svíþjóð 40 og 18 koma frá Danmörku. Yngsti aldursflokkurinn sem keppt er f er 35-39 ára en elsti flokkurinn er karlar á aldrinum 90-94 ára. Elsti keppandinn á mótinu er Islendingurinn Haraldur Þórðarson en hann verður92 ára á þessu ári. Finnar eiga næstelsta þátttakandann sem er nlræður. MOLDE VILL HANNES Norska knattspyrnufélagið Molde staðfesti í gær áhuga sinn á íslenska landsliðsmanninum Hannesi Þ. Sigurðssyni sem leikur með Viking Stavanger. Eftir að litháenski sóknar- maðurinn Andrius Velicka var keyptur frá Hearts í Skotlandi og markahæsti maður Viking f fyrra, Peter Ljeh, hætti , viðaðyfirgefafélagiðertaliðaðHannes eigi eftir að verma tréverkið löngum stundum.„f gegnum umboösmenn höfum við fengið ábendingar um að það komi til greina að hann fari til Molde," sagði stjórnarmaðurViking f gær. LUKA HEIMSÆKIR VÖLSUNG Luka Kostic, þjálfari yngri landsliða fslands, mun í dag fara til Húsavlkur og vera þjálfurum Völsungs innan handar við æfingar. Á föstudaginn _ ferðast hann svo »með þjálfurum Völsungs f Lund og á Raufarhöfn þar sem hann hittir krakka sem hafa æft f vetur.„Það er grfðarlegurfengur að þvf að fá hann hingað norðurog klárt að hann hefur margt fram að færa," segir á heimasíðu Völsungs um heimsóknina. f DAG 15:40 BIRMINGHAM - ARSENAL Útsending frá leik Birmingham og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni. Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildín er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum. Leikmenn heimsóttir, gömlu stjörnurnar leitaðar uppi og svipmyndir af æðinu fyrir enska boltanum um heirn allan. Hápunktarnir úr bestu og eftirminnileg- ustu leikjum úrvalsdeildarinnar. Útsending frá leik Birmingham og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni Allar leiktíðir Úrvalsdeildarínnar gerðar upp í hröðum og skemmtilegum þætti. Þáttur sem er ekkert minna en bylting í umfjöllun um enska boltann á fslandi. Tvieykið, Heimir Karlsson og Guðni Bergsson, stendur vaktina ásamt vel völdum sparkspekingum, og saman skoöa þeir allt sem tengist leikjum dagsms a skemmtilegan og nakvæman liátt. fslensk dagskrárgerð eins og hún gerist best. Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin i leikjum siðustu umferðar i Coca Cola deildinni. Bergur Ingi Pétursson er 22 ára sleggjukastari úr FH. Hann bætti eigið íslandsmet í sleggjukasti á móti í Finnlandi um daginn um tuttugu og tvo sentímetra þegar hann kastaði 70,52 metra. Bergur stefnir á Ólympíuleikana í Peking í sumar en til þess þarf hann að kasta 74 metra fyrir lok júli. „Það var náttúrulega vegna þess að sjálfur Guðmundur Karlsson hand- boltamaður æfði sleggjukast," sagði Bergur Ingi Pétursson, Islandsmet- hafi í sleggjukasti, kátur í bragði þeg- ar DV spurði hann hvernig hann endaði í sleggjukasti alinn upp í þeim mikla boltagreinabæ Hafnar- firði. „Ég byrjaði átta ára í frjálsum íþróttum og æfði hástökk og grinda- hlaup og þótti nokkuð efnilegur. Mér fannst ég síðan ekki vera nægilega stór í þær greinar og ákvað að fara í sleggjuna," segir Bergur. „Eg hef alveg rosalegan áhuga á sleggjukasti. Sá sem er bestur í dag er Úkraínumaður sem heitir Juri Sedik og hann á 86,74 metra best. Hann kastaði það þegar hann var þrjátíu og eins þannig að ég á einhver ár inni," segir Bergur og hlær. Hefði getað kastað lengra Bergur bætti eigið íslandsmet á móti í Finnlandi um síðastliðna helgi við ansi slæmar aðstæður. „Það var fjögurra gráðu frost og vindur þannig það var alveg skítakuldi. Miðað við það bjóst ég nú ekki við alveg svona góðum árangri en ég ætlaði þó allt- af að bæta mig frá síðasta móti þar sem ég kastaði 68,72 metra. Hefðu aðstæður verið betri hefði ég getað kastað lengra. Ég hef keppt á þess- um stað áður og líkar vel þannig það hefði getað boðið upp á lengra kast." Til að komast á ólympíuleikana þarf Bergur að kasta 74 metra en það þýðir að hann þarf að bæta sig um tæplega þrjá og hálfan metra. „Þrír og hálfur metri er svolítið löng vegalengd í sleggjukasti það verður að segjast. Þetta fer samt mikið eft- ir hvernig formi maður er í á keppn- isdegi. Ég gæti náð lágmarkinu á næsta móti eða eftir þrjá mánuði. í Split stefni ég ekki á neina sérstaka vegalengd. Aðallega vil ég bæta mig frá síðasta móti hvort sem það verð- ur einn sentímetri eða einn metri. Ólympíuleikarnir draumurinn Bergur setur stefnuna á ólympíu- leikana sem verða haldnir í Peking í sumar. Hann setur stefnuna á að bæta sig á næsta móti sem verður í Split í Króatíu en býst ekki við að ná lágmarkinu þar. Hann segir ekki þjóna miklum tilgangi að reyna við metið á hverju einasta móti sem hann fer á. „Það mjög raunhæft fyrir mig að komast á ólympíuleikana en það er draumurinn. Til þess þarf ég að kasta meira og lyfta vel með því. Undirbúningurinn í vetur var mjög góður hjá mér. Ég lyfti mikið og var virkilega vel undirbúinn þeg- ar tímabilið hófst. Það sem ég þarf Stór og stæðilegur Berg munarekki um að vippa upp 165 kílóum í bekkpressu. að gera núna er að halda áfram að lyftá vel og þá kemur þetta með tíð og tíma. Málið er að ég má ekki reyna við lágmarkið á hverju móti því þá eru miklu minni líkur á að ég nái því. Þá reynir ég of mikið á mig og stífna upp. Með þessa miklu þyngd er það mjög erfitt og ég verð að ná mikilli slökun á milli móta. Því verður maður að hitta á þennan gullna meðalveg á hverju móti en á mótinu í Split gerist þetta bara ef það gerist. Ég horfi frekar til lágmarksins í sumar. Mótið í Split er mun stærra en það sem ég var á síðast. Þarna verða stærri nöfn og því fylgir meira stress að keppa við alla þessa bestu kappa. Þá er maður nú ekki með alltof mikl- ar væntingar," sagði Bergur við DV að lokum. IR leikur til úrslita í Reykjavíkurmótinu í kvöld: Spilar ekki um bikará hverjum degi „Það er gaman fyrir okkur að spila um Reykjavíkurmeistaratitil- inn og ætli það hafi nokkurn tíma gerst að lið úr annarri deild spilaði um þennan titil?" sagði Guðlaug- ur Baldursson, þjálfari ÍR, glaður í bragði þegar DV talaði við hann í gær. Lið hans, ÍR, sem leikur í ann- arri deildinni mætir í kvöld Lands- bankadeildarliði Fram í úrslitum Reykjavíkurmótsins í Egilshöll. „Við erum stoltir af að vera komnir í úrslitaleikinn og ætlum okkur að reyna að standa okkur þar. Það hefur verið mikill upp- gangur í starfi okkar þannig að við ætlum að gera eins vel og við get- um í kvöld. Það er ama hvaða lið það er, það er ekkert verið að spila um bikar á hverjum degi," segir Guðlaugur en ÍR-ingar unnu góða sigra á Leikni og Fjölni í sínum riðli en bæði liðin leika deild og deild- um ofar en ÍR. „Við vorum mjög ánægðir með spilamennskuna í riðlinum. Fyrstu leikirnir voru erfiðir gegn Val og KR en okkur fannst við standa okkur ágætlega þó við höfum tap- að þeim. Síðan unnum við næstu tvo leiki þar sem við spiluðum hreint ágætlega bæði gegn Leikni sem leikur í 1. deild og svo Fjölni sem leikur í Landsbankadeildinni. Þetta eru allt lið sem eru í deild- um fyrir ofan okkur og þó maður geti ekki tekið alveg 100% mark á Reykjavíkurmóti sýnir það að það er allt mögulegt í þessu." Guðlaugur þjálfaði lið IBV í Landsbankdeildinni 2006 en hætti þar og gegndi starfi yfirþjálfara hjá FH á síðasta ári. Hann tók svo við ÍR í haust. „Þessir fýrstu mánuð- ir mínir hjá ÍR eru búnir að vera mjög fínir. Það er mikið af ung- um og hæfileikaríkum strákum í hópnum svo við erum svona að- eins að reyna að stilla hugarfarið núna. Markmið okkar er eins og við höfum alltaf sagt að fara upp úr annarri deildinni og við erum ekk- ert að leyna því neitt. Hópurinn er stærri en ég hélt þannig að við erum ekkert að leita að leikmönnum nema þeir gætu styrkt okkur verulega. Annars ætl- um við að byggja ofan á það starf sem hefur verið hér í gangi á síð- ustu árum því það er greinilegt að hjá ÍR hefur verið gott starf í gangi," segir Guðlaugur. tomas@dv.is \ GUÐLAUGUR BALDURSSON Er ánægöur með uppganginn í starfi (R.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.