Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Side 20
'20 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008
Bílar DV
Fyrrverandi yfirhönnuöur Volks-
wagen stofnar eigin bílaverksmiöju. KiahömíðurkhEeÍmsfræ9ast'
Murat Giinak heitir einn þekkt-
asti bílahönnuður í Evrópu. Hann
er sá sem hannaði Mercedes SLK-
sportbílinn, Peugeot 207, VW EOS,
VW Scirocco og nú síðast VW Tigu-
an meðan hann enn var yfirhönn-
uður Volkswagen. Murat Giinak er
nú hættur hjá Volkswagen og orðinn
sjálfstæður, hefur stofnað bílasmiðju
í Luzern í Sviss og hannað frumgerð
fjögurra manna rafbíls sem sýnd-
ur verður á bílasýningunni í Genf í
' næsta mánuði.
Framleiðsia hefst á næsta ári
Murat Giinak hefur tekið hönd-
um saman við svissneskan fjármála-
jöfur, Lorenzo R. Schmid að nafni,
sem fjárfest hefur 250 milljón evrur í
lítilli bílaverksmiðju í Luzem í Sviss.
Fyrirtækið heitir , bílaframleiðslan á
að hefjast strax á næsta ári og áætluð
ársframleiðsla er 10 þúsund bílar.
Hefur enn ekki fengið nafn
Nýi rafbíllinn verður með líþ-
íum-jónarafhlöðum sem sjá rafmót-
orunum sem knýja hann áfram fýr-
ir straumi sem aðallega kemur frá
venjulegum heimilistengli. En ef
rafhlöðurnartæm-
ast er í
bílnum tveggja strokka 24 hestafla
ljósamótor sem getur bjargað mál-
unum. Bíllinn endurnýtir auk þess
hemlaorkuna þannig að rafstraum-
ur verður til þegar bremsað er, sem
skilast til baka inn á geymana, svip-
að og þekkt er hjá til dæmis hjá Toy-
ota Prius.
Sólarljósi breytt í rafstraum
Bíllinn er fyrst og fremst hugsað-
ur til daglegra nota í þéttbýli. Hann
kemst rúmlega 100 kflómetra á raf-
hleðslunni en ljósavélin fer þá í gang
og framleiðir straum þannig að með
því mótinu er vinnuhringur hans um
800 kílómetrar. Hann er léttbyggð-
ur, burðarvirld hans er úr áli og ytri
klæðning úr plasti þannig að þyngd
hans tilbúins til aksturs er einungis
um 800 klló. Á þaki hans eru auk þess
fáanlegar sólarsellur sem breyta sólar-
ljósi í rafstraum. Til að fá sem minnsta
núningsmótstöðu frá hjólunum er
bíllinn á mjög stórum, eða 22 tommu,
felgum með mjóum dekkjum. Ekki
er honum
Óskírður Rafbíll Murats
Giinak, sem enn hefurekki
hlotið nafn, er með litla
Ijósavél og sólfangara á
toppnum.
afls vant, því að uppgefið hámarks-
viðbragð hans úr kyrrstöðu í hundr-
aðið er einungis sjö sekúndur.
Hinir frægu, ríku og fallegu
Sá markhópur sem hönnuðurinn
vill ná til er einkum „hinir frægu, ríku
og fallegu" sem ekki eru feimnir við
að sýna lífsstíl sinn. í þeim anda er
bíllinn ekkert líkur algengustu borg-
arbílum heldur algerlega sér á báti.
Hann er ffernur lágbyggður og utan-
áliggjandi afturhjólin eru með nokk-
urs konar mótorhjólabrettum. í inn-
réttingu bílsins ræður naumhyggjan
ríkjum og framsætið er heill bekkur
eins og tíðkaðist í amerísku köggun-
um fram undir níunda áratuginn.
Nýr Skoda Superb
verður frumsýnd-
ur á bílasýn-
ingunni í
^enf:
assv; ■■•ditmt&é,
Skoda í Tékklandi er nú að
leggja síðustu hönd á nýja kynslóð
Skoda Superb. Nýi bíllinn verð-
ur verulega breyttur og stærri en
áður. Að stærð verður hann mitt í
milli „systurbílanna" VW Passat og
Audi A6; aðeins lengri en Passat-
inn og örlítið styttri en Audi-inn.
Auto Motor & Sport greinir frá
því að bíllinn sé nánast tilbúinn
til fjöldaframleiðslu og einmitt
nú fari lokaprófanir fram á hon-
'umí hitasvækjunni í Dauðadaln-
um í Bandaríkjunum. Því næst
verði hann kuldaprófaður norð-
ur í Lapplandi og þeir ágallar sem
þessar prófanir leiða í ljós verði
svo lagfærðir fyrir opnun Genfar-
bílasýningarinnar í mars þar sem
ætlunin sé að frumsýna nýja bíl-
inn. Sala á síðan að hefjast með
vorinu.
Skoda í Tékklandi tilheyrir
Volkswagen/Audi-samstæðunni
en Tékkarnir hafa frjálsar hend-
ur við hönnun bíla sinna. Þannig
mun nýi Superb-bíllinn verða
ólíkur Passat og A6 að því leyti að
hann verður hlaðbakur, með stór-
um afturfleka sem opnast á lömum
uppi undir toppnum. Hann verður
semsé ekki hefðbundinn stallbak-
ur með skottloki eins og systurbíl-
arnir og eins og fyrirrennarinn þó
svo virðist við fyrstu sýn.
Vélar og gírkassar í hinum nýja
Superb verður hið sama og hjá VW
og Audi. Grunnvélin er 1,4 1 TFSI
bensínvél með bæði forþjöppu og
túrbínu. Þá kemur 1,8 1 vél með
sömu tækni og topp-bensínvélin
verður sfðan 3,21, 255 ha. V6.
Grunn-dísilvélin verður hin
velþekkta en nú dálítið gamaldags
Breyttur Skoda Superb Nýr
Skoda Superb er verulega breyttur
og stærri en áður.
1,9 1 vél með olíu-
verki, en ekki sam-
rásarinnsprautun,
sem kemur nokkuð
á óvart. Auk henn-
ar verða í boði tvær
útgáfur af nýjustu
2 lítra dísilvélinni,
önnur er 140 hö en
hin 180 hö.
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
Jeep
DODGE
BÍLJÖFUR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
NISSAN SKAPAR STÖRF
Bílaframleiðslurisinn Niss-
an gaf þá yfirlýsingu út fyrir
skemmstu að fýrirtækið væri
við það að fjölga störfum í
verksmiðju sinni í Bretlandi
um átta hundruð. Þessa miklu
fjölgun starfa þakka menn
Nissan Qashqai. Bílnum hef-
ur verið lýst þannig að hann
sé mitt á milli fjórhjóladrifins
dreka og lítils fólksbíls og hef-
ur hann sópað að sér fjórtán
verðlaunum síðan hann kom á
markað. Þegar er bíllinn fram-
leiddur í tveimur verksmiðjum
og nú er von á að sú þriðja bæt-
ist við.
Bíllinn er svo vinsæll að
framleiðandinn hefur ekki
undan og því þarf að auka
framleiðsluna bílinn allveru-
lega.