Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Side 23
DV Umræða FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 23 ÚTGÁFUFÉLAG: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Hreinn Loftsson FRAMKVÆMDASTJÓRI: Elln Ragnarsdóttir RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson og ReynirTraustason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Janus Sigurjónsson FRÉTTASTJÓRI: Brynjólfur Þór Guðmundsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Ásmundur Helgason Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. AÐALNÚMER 512 7000, RITSTJÓRN 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI 512 7080, AUGLÝSINGAR 512 70 40. SANDKORN ■ Birkir Jón Jónsson alþing- ismaður hefur svo sannar- lega komið á dagskrá hvers kyns spila- mennsku eftir að upp- lýst var um pókerspila- mennsku hans. Nú hefur Sjálf- stæðis- flokkurinn ákveðið að bregðast við og tolla í tískunni með því að bjóða upp á spil þar sem verðmæti eru í húfi. Guðfinna Bjarnadóttir alþingismaður verður heiðurs- gestur á spilakvöldi í Valhöll á sunnudagskvöldið þar sem spilað verður upp á utanlands- ferðir, bækur, matarkörfur og fleira. Búast má við að Fram- sókn bregðist við með spila- kvöldi þar sem Birkir Jón verði við stjórnina. ■ Sjálfstæðismenn eru óðum að ná áttum eftir nýjustu vend- ingar í máli Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar sem ákvað að sitja áfram til að fýrirbyggja form- legan klofning. Athygli vakti að alþingismennirnir Bjarni Bene- diktsson og Ulugi Gunnars- son hafa snúið saman bökum í baráttunni og skrifuðu því til staðfesting- ar grein þar sem forysta ríkisstjórn- arinnar er áminnt um það rækilega að bregð- ast við áður en bankarnir lenda í slæmri kreppu. Báðir eru þingmenn- irnir að margra mati formanns- efni í flokknum og víst er að Bjarni muni innan tíðar sækja að Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur varaformanni á leið sinni tíl æðsm metorða. ■ Það eru fleiri sem eiga sér þann draum að komast í æðsm forysm Sjálfstæðisflokksins. Kristján Þór Júlíusson alþingis- maður hefur enn áhuga á vara- formannsstóli Þorgerðar eftir að hafa tapað fyrir henni með tíltölulega litlum mun á sein- asta landsfundi. Sömuleiðis er hermt að Guðlaugur Þór Þórð- arsson heilbrigðisráðherra telji sig ágætíega til þess fall- inn að leiða flokkinn. Vandinn kann hins vegar að vera sá að innan flokks hefurhann marga á móti sér eftir atgang- inn í kringum REI. ■ Þaðermisjafnthvernigfjöl- miðlar fjalla um fólk í frétt- um. 24 stundir fjölluðu eins og flestir um þvagleggsmálið sem upp kom í umdæmi Ólafs Helga Kjartanssonar þar sem kona var nauðug svipt þvagi sínu. Málið fór í dóm þar sem konan tapaði. Ólafur Stephen- sen ritstjóri er ábyrgur fýrir því að í fríblaði hans er hún upp- nefnd „þvagleggskonan" sem var sama uppnefni og visir.is gafhenni. Að flýj a ísland LEIÐARI J0N TRAUSTIREYNISSON RITSTJORISKRIFAR. Danske bank og Nordea í Danmörku ráðleggja fólki að selja eigur sínar á íslandi. Þetta eru ráðleggingar, sem allt eins gæti verið beint til íslend- inga, því sá sem á 20 miiljóna króna íbúð og skuldar 15 milljónir í henni tapar samkvæmt spám tveimur milljónum króna í ár, ef íbúða- verð stendur í stað. En það gæti líka lækkað. Þetta þýðir tæplega 170 þúsund króna tap á mánuði fyrir þann einstakling. í þessu sam- hengi er það því rétt hjá Dönunum, að skyn- samlegt sé að flýja landið. Fimmtán milljóna króna húsnæðislán hækk- uðu um 225 þúsund krónur í febrúar vegna verðbólgu. Það nálgast að á einum mánuði hafi húsnæðislán manns sem er með 400 þús- und krónur í laun hækkað um j afnmikið og út- borguð laun hans. Verðbólgan er nú 6,8% á 12 mánaða tímabili og hefúr líklega ekki náð hæstu hæðum. Vext- ir á húsnæðislánum eru 6,35% á ári þannig að gera má ráð fyrir að verðtryggð húsnæðislán fólks hækki um 13,15% á þessu ári. Þannig hækkar 15 milljóna króna húsnæðislán um tvær millj- ónir króna á þessu ári. Þetta væri þolanlegt, ef íbúðaverð héldi Þcttu þýdir tœplega 170 þiísuiul króna tap á ntánuái. áfram að hækka líkt og það hefúr gert undan- farin ár. En nú hefúr það staðið í stað frá því í | október og því er spáð að það lækki. Lausafjárkreppan í Bandaríkjunum á rót í því að fátækustu lántakendurnir gátu ekki borg- að af lánum sínum. Á sama tíma lækkaði hús- næðisverð. Hér á íslandi er staða þeirra tekju- lægstu ekki vænleg í dag og þeir gætu lent í því að skulda meira í íbúð sinni en þeir eiga. Verðbólgan hækkar húsnæðislánin sjálfkrafa, vextir eru himinháir og stöðnun orðin á fast- eignamarkaði. Til að bæta gráu ofan á svart eru hendur Seðlabankans bundnar. Ef hann lækkar vexti mun krónan hríðfalla, verð- bólga hækka og þar með lánin hækka. Ef hann lækkar ekki vexti heldur kólnunin á fasteigna- markaði áfram með áhrifum til lækkunar á húsnæðisverði. Það lilýtur að vera forgangsmál hjá yfirvöldmn að koma í veg fyrir að undirstaða íslenska hagkerfisins, almenningur, fari for- görðum. Lykilatriði í því er að koma í veg fyrir sjálfkrafa hækkun lána með verðbólgunni og leysa þar með þjóðina undan áþján verðtryggingar. 0FAN í SKURÐI í eina tíð var kaup almennings ævinlega lækkað með einni stjórn- valdsákvörðun í miðstýrðu forsjár- kerfi íslenskra stjórnmála. Gengi krónunnar var lækkað með einu pennastriki, yfirleitt í þágu sjávarút- vegsins. Þar með gátu útvegsmenn og fiskverkendur keypt fleiri krónur fyrir tekjur sínar í dollurum og pund- um til að borga innlendan kostnað. Eftir gengisfellingu þurfti almenn- ingur að sama skapi að borga fleiri krónur fýrir innfluttan varning og þjónustu. Launin höfðu rýrnað. Árið 2008 er kerfið ögn flóknara einkum vegna þess að Seðlabank- inn var fyrir sjö árum skyldaður til að miða gjörðir sínar við að halda verð- bólgu innan 2,5 prósenta marka. Tvær áttir ofan í skurði f vikunni komu tveir ungir þing- menn Sjálfstæðisflokksins fram á rit- völlinn í langri vöm fyrir fjármála- fyrirtækin og skrifa þungan hlemm í miðopnu Morgunblaðsins. Illugi Gunnarsson og Bjami Benedikts- son skynja að hér er hætta á ferðum. Og hvað gera þeir? Þeir viðukenna að peningamálastefria Davíðs Odds- sonar seðlabankastjóra sé komin út í skurð (verðbólgumarkmið Seðla- bankans vom samþykkt í forsætis- ráðherratíð Davíðs árið 2001 þegar Illugi var pólitískur aðstoðarmaður hans). Seðlabankinn verði að víka frá verðbólgumarkmiðum sínum í þágu einkavæddra bankanna sem hafa far- ið með himinskautum á undanföm- um árum í umsvifum sínum. Gengis- fall krónunnar og verðbólga sé illskárri kostur í lánsfjárkreppu en kyrkingaról ofurhárra stýrivaxta Seðlabankans. „Evrópusinnar horfa glott- andi en þó ögn áhyggju- fullir á menn eins og llluga engjast undan vaxandi Evr- ópuþrýstingi þeirra afla sem hann tók þátt í að sleppa lausum I hagkerfinu.“ JÓHANN HAUKSSON utvarpsmcidur skrifar Guðmundur Ólafsson hagfræð- ingur orðar þetta eins pent og hann getur. Illugi og Bjarni leggi til að best sé að halda ofan eftir skurðinum. Guðmundur hlýðir svo forviða á við- brögð Seðlabankans og dregur þá ályktun að gagnstætt Illuga og Bjarna vilji fr æðimenn bankans frekar halda upp eftir skurðinum, móti straumn- um. Ofurvextina áfram um eilífð. Hvorki þeim né Illuga og Bjarna hug- kvæmist að best sé að koma sér upp úr skurðinum. Þá klofnar flokkurinn Á viðskiptaþingi nýverið virtíst sú skoðun vera orðin útbreidd að íslendingum væri hollast að kasta krónunni og taka upp evm. Tekin voru af öll tvímæli um að slíkt væri ekki hægt án aðildar að Evrópusam- bandinu. Undir þetta tók Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, í gær. Ekki þarf að koma á óvart að 111- ugi og Bjarni telji augljóst að inn- ganga í ESB geti ekki leyst að- steðjandi vanda fjármálakerfisins. Innganga í Evrópusambandið taki nokkur ár, óvíst sé hvernig þjóðar- atkvæðagreiðsla fari um aðild og nokkur ár taki að komast inn í mynt- samstarfið eftirinngöngu. „Umræða um ESB og evru er því einungis flóttí frá því verkefni sem við stöndum nú frammi fyrir," segir í grein þeirra. Ef Illugi og Bjarni, Davíð og hans menn í Seðlabankanum eru þeirrar skoðunar að best sé að vera áfram ofan í skurðinum og ráfa ýmist niður eftir honum eða upp eftír er víst að eitt gerist: Förin eftir þá dýpka þar til þeir komast ekki upp úr af eigin rammleik. Þá er eins víst að Evrópu- sambandið af sinni alkunnu gæsku komi með sinn breiða faðm og kippi þeim upp úr skurðinum jafnvel löngu áður en þeir verða mjög slæpt- ir og kalt á fótunum. Mestu átökin um ESB-aðild ís- lands eru innan Sjálfstæðisflokks- ins og milli flokksins og helstu fyrir- tækja landsins. Evrópusinnar horfa glottandi en þó ögn áhyggjufullir á menn eins og Illuga engjast undan vaxandi Evrópuþrýstingi þeirra afla sem hann tókþátt í að sleppa lausum í hagkerfinu. Björn Bjarnason dóms- málaráðherra, vinur Illuga og frændi Bjarna Benediktssonar hins unga, hefur sagt að Sjálfstæðisflokkurinn klofni þann dag sem íslendingar óski eftir inngöngu í ESB. Enn um hríð verður þjóðin í gísl- ingu átakanna innan Sjálfstæðis- flokksins. DOMSTOLL GÖTUIVIVAR HEFUR IHJ ÁHYGGJURAF IA í AD ÍSLEXSKU BAXKARMR STEFXI í GJALDÞROT? „Ég hef miklar áhyggjur af þvi að bankarnir verði gjaldþrota því þá tapa ég fullt af peningum." Alex Ross Aðalsteinsson, 18 ára sölumaður „Já, pínu. Ég hef bara áhyggjur af þessari verðbólgu." Ingibjörg Steinarsdóttir, 22 ára afgreiðsludama „Ég kýs að hafa engar áhyggjur af þessu." Agúst Ágústsson, 26 ára markaðsstjóri „Auðvitað hef ég áhyggjur en ekki svo miklar." María Una Guðbjartsdóttir, 21 árs afgreiðslukona

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.