Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 Fókus DV HVERT ER LAGIÐ? „Taktu þessi sokknu augu og lærðu að sjá.“ THEREWILL BE BLOOD BIODOMUR Stórgóð kvikmynd að mati Erps Eyvlndarsonar. OLÍA ER SKÍTUG Sálgreinir í sófaspjalli Sálgreinir og guðfræðingur eru gestir sýningarstjóra og listamanna, sem standa að sýningunni Þögn, í sófaspjalli á Löngum fimmtudegi í Haftiarhúsinu í kvöld. I tilefni af lengdum sýningartíma Listasafns Reykjavíkur á fimmtu- dögum verður reglulega efnt til svokallaðs sófaspjalls þar sem sýnendur, sýningarstjórar og aðrir sem tengjast sýningum safnsins koma saman og ræða viðfangsefn- ið í fremur óhefðbundnu spjalli. Að þessu sinni eru gestir sófaspjalls- ins dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor, g sálgreinir og ráðgjafi, og dr. Pétur Pétursson, prófessor í kennimann- legri guðfræði og almennum trúar- bragðafræðum við Háskóla íslands. Spallið hefst klukkan 20. Spilar verk píanóvirtúós Pólski píanóleikarinn Ewa Kupi- ec leikur einleik með Sinfón- íuhljómsveitinni í Háskólabíói klukkan 19.30 í kvöld. Um er að ræða hinn magnaða píanókons- ert nr. 2 eftir Franz Liszt, en Liszt var einhver mesti píanóvirtúós sögunnar. Bera tónsmíðar hans þess merki og gera gríðarlegar kröfur til einleikaranna. Kupiec þykir einn fremsti píanóleikari Póllands þó ung sé að árum. Um túlkun hennar á verkinu sagði gagnrýnandi í St. Louis í Banda- ríkjunum nýlega að hún hefði allt til brunns að bera fyrir tónlist Liszts: Aukkonsertsins er á efnis- skránni annað stórvirki rómant- íska tímans, hin mikilfenglega ^þriðja sinfónía Bruckners. Plainview verður olíumaður fýrir tilviljun þar sem hann grefur eftir silfri. Ættleiddi munaðarleysinginn hans, H.W., kemur að góðum not- um þar sem hann tryggir sér rétt til að bora eftir olíu í krafti ímynd- ar sem ábyrgur fjölskyldumaður. Skyndilega fær hann upp í hend- urnar aðgang að olíuríku en ódýru svæði. Þar sem hann sölsar undir sig svæðið á hann í pirrandi við- skiptum við predikarann Eli. Plain- view og Eli eru mjög trúaðir báðir tveir, Eli lítur til himins en Plainvi- ew sér himnaríki sitt í iðrum jarð- ar. En í enda dags eru þeir ekkert svo ólíkir nema annar hefur meiri metnað sem getur hæglega kaffært það sem lífið sjálft snýst um. Týp- urnar eru góðar í öllu sínu ógeði. Predikarinn Eli er alveg stórskrýt- inn og erfitt að átta sig á honum. Hann er prýðilega leikinn þótt erf- itt sé að toppa mótleikarann Dani- el Day Lewis. Plainview er verulega vel leikin og vel sköpuð týpa. Hann er langrækinn, slyngur með haturs- fullan metnað og fljótur að átta sig þegar menn reyna að snúa á hann. Daniel Day Lewis leikur skugga- lega vel, litli strákurinn hans einn- ig og sambandi feðganna eru gerð góð skil. Hvernig hann fýlgir allt- af pabba sínum, lærir og er kennt hvernig á að véia sig áfram í olíu- geiranum. Hápunktssenur í mótun stráksins eru næmar og raunveru- legar þótt sú síðasta sé ekki nógu kraftmikil miðað við hvað fer fram. þá senu harðar. Myndin er mjög heildstæð og hangir svo vel sam- an fyrir tilverkun tónlistarinnar sem ólíkt mörgum myndum leið- ir myndina áfram laglega. Tónlist- in eltir ekki myndefnið heldur öf- ugt sem er allt of sjaldgæft og er til fyrirmyndar hér. Mjög athyglisverð tónlist er notuð á sérstakan hátt á sérstæðum stöðum. Ósköp venju- leg sena um hábjartan dag er gerð kaotísk og óhugguleg með tónlist- inni. Þetta heitir að nota miðilinn til hins ýtrasta og tónlistin ásamt stórleik Daniels Day Lewis er að- all þessarar myndar. Maður fylgir drifkrafti olíumannsins frá iðrum jarðar hátt upp í loft en svarta gull- ið fellur alltaf aftur til jarðar. Það er eldfimt, skítugt og ef menn verða af aurum apar er ekki ólíklegt að margir verði af olíu úrhrök. Erpur Eyvindarson Þetta er ef til vill ekki sanngjarnt að segja, en miðað við hvað allt er vel gert er freistandi að dæma THEREWILLBE BLOOD ★★★★ LEIKSTJÓRN: PaulThomas Anderson AÐALHLUTVERK: Daniel Day-Lewis, Paul Dano, Ciaran Hinds, Kevin J. O'Connor. til hinsýtrasta og tónlistin ásamt stórleik Daniels Day Lewis er aðall þessarar myndar. Algjör draumur á Akranesi Nemendafélag Fjölbrautaskóla Vesturlands á Aiáanesi frumsýnir verkið Algjör draumur eftir Gunn- ar Sturlu Hervarsson annað kvöld. Verkið fjallar um unga, saklausa • stelpu í smábæ sem þráir þáð eitt að öðlast frægð og frama. Hún flytur til stórborgarinnar þar sem hún fær inngöngu í virtan dans- og listahá- 1 skóla. Hugmyndin með Algjörum draumi er að sameina helstu söng- og dansmyndir sem gerðar hafa ver- ið í tímans rás. Höfundurinn, Gunn- ar Sturla, leikstýrir, tónlistarstjóri er Flosi Einarsson og danshöfundur er Þórdís Schram. Tilnefningar til Menningarverðlauna DV 2007 voru kynntar í blaðinu í gær. Lesend- um gefst nú kostur á að velja einn listamann eða verk úr öllum tilnefningunum í net- kosningu á dv.is. Sá listamaður eða það verk sem hlýtur flest atkvæði í netkosningunni fær sérstaka viðurkenningu sem listamað- ur eða verk ársins 2007 að mati almennings. Verðlaunaafhendingin fer ffarn á Hótel Borg næstkomandi miðvikudag, 5. mars. Verðlaun eru veitt í sjö flokkum - bók- menntum, byggingarlist, hönnun, kvik- myndalist, leiklist, myndlist og tónlist - fýrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síð- asta ári. Tilnefningarnar í ár eru þrjátíu og fjórar talsins, fimm í öllum flokkum nema byggingarlist þar sem þær eru einungis þrjár, en fordæmi eru fýrir því að tilnefna færri en svigrúm er fýrir í þeim flokki. í bókmennta- r.m MaNNIÍF Unfcjuleui uutnn \Vtti.If m=anou uía rn*j!5Bl ■ókmtnntlr ■ygglngaliat 0*>|Wa*l WMWbli OtWWkNMMailM Hönnun Netkosning Sá eða sú sem hlýtur flest atkvæði I netkosningunni fær afhent sérstök verðlaun við verðlaunaafhendinguna á Hótel Borg næsta miðvikudag. flokknum var svo gefið svigrúm til að bæta einni tilneftiingu við eftir að dómnefnd ósk- aði náðarsamlegast eftír slíkri undanþágu. Helgast það meðal annars af því að ekki eru veitt verðlaun í fræðaflokknum, sem setmr var á laggirnar síðast þegar verðlaunin voru veitt fýrir tveimur árum, og má segja að sá flokkur sé að nokkru leyti innviklaður í bók- menntaflokkinn. Heiðursverðlaun Menningarverðlauna DV verða auk þess afhent í sjötta sinn á mið- vikudaginn en ekki er tilnefnt í þeim flokki. Eins og greint var frá í sfðasta helgarblaði DV verður nýr verðlaunagripur nú afhentur í fýrsta sinn, hannaður af Hraftthildi Arnar- dóttur. Viðtal við listakonuna verður í blað- inu eftir helgi. Slóðin á netkosninguna er dv.is/menn- ing.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.