Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2008, Side 32
Baðferðin varð að brunaútkalli Honum brá heldur betur í brún manninum sem ætlaði að fara í bað á Egilsstöðum í síðustu viku. Hann hafði ákveðið að fara í rjúkandi heitt bað og skildi gluggann eftir opinn vegna gufunnar sem mynd- aðist. Vegfarandi sem átti leið hjá hafði áhyggjur af gufunni sem streymdi út um gluggann og kaus að hringja á slökkviliðið þar sem hann taldi að kviknað væri í húsinu. Slökkvi- liðið brást skjótt við og var komið á örskotsstundu heim til manns- ins sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið þegar slökkviliðsmenn í full- um skrúða bönkuðu upp á. Tólf þingmenn % fjarverandi Alls voru tólf þingmenn skráðir í fjarvistarleyfi á Alþingi í gær, þetta er næstum því fimmti hver þingmaður. Þann milda fjölda má að miklu leyti skýra með kvennaráðstefnu Samein- uðu þjóðanna sem nú fer fram í New York í Bandaríkjunum. Helgi Bern- ódusson, skrifstofustjóri Alþingis, segir að alls hafi fimm þingmenn lagt leið sína á ráðstefnuna. Þá nefn- ir hann að Geir Haarde forsætisráð- herra sé nú í opinberri heimsókn erlendis. Alls voru sjö af tólf ráðherr- um á fjarvistaskrá í gær. Kjóstu á dv.is Almenningur velur lista- verk eða listamann ársins 2007 í Menning- arverðlaun- um DV. Hægt er að kjósa á milli allra 34 tilnefn- inga einstakra dómnefnda í netkosningu á dv.is. Hver og einn netverji getur valið einn listamann, verk eða viðburð úr hverjum flokki tilnefninganna. Það verk, listamaður eða viðburður sem verður fyrir valinu fær sérstaka viðurkenningu við verðlauna- afhendinguna þar sem Menn- ingarverðlaun DV 2007 verða afhent. Þrjátíu ár eru síðan Menn- ingarverðlaunum DV var kom- ið á fót. Þann 5. mars verða þau afhent í 29. sinn en afhending þeirra féll niður á síðasta ári í kjölfar eigendaskipta á DV skömmu fyrir þarsíðustu ára- mót. Sveitarstjóri hættir Einar Örn Thorlacius, sveitar- stjóri í Hvalfjarðarsveit, hefur ákveð- ið að segja starfi sínu lausu. Þá hefur Rannveig Þórisdóttir, aðal- bókari hreppsins, einnig skilað inn uppsagnarbréfi, en hún mun hætta næsta sumar. Hallfreður Vilhjálms- son, oddviti Hvalfjarðarsveitar, segir Einar hafa hætt af persónulegum ástæðum en vill ekki tilgreina frekar hverjar þær eru. Þá hyggst Rannveig skipta um svarfsvettvang. Hallfreð- ur býst við því að starf sveitarstjóra verði auglýst til umsóknar á næst- unm. 4 4 4 4 4 4 Sjö hafa kært „Við óskuðum eftir því að hann væri hnepptur í gæsluvarðhald en það fékkst ekki," segir Eyjólfur Kristjánsson, fulltrúi lögreglustjór- ans á Suðurnesjum, um mál manns sem grunaður er um að hafa áreitt ellefu og tólf ára stúlkur kynferðis- lega í Sundmiðstöð Reykjanesbæjar. '** Maðurinn hefur verið úrskurðaður í farbann og hafa foreldrar sjö stúlkna kært hann. Maðurinn, sem er á fimmtugs- aldri, var handtekinn síðdegis í gær þegar hann ætlaði að flýja land en árvökulir lögreglumenn komu í veg fyrir að hann kæmist af landi brott. Slökktu þeiríbaðinu? Japönsk ekkja Bobbys Fischer stendur föst á sínu: Fischer átti ekki dóttur „Ég er ákaflega hissa á því að haldbær gögn hafi ekki enn verið lögð fram því til stuðnings að þetta sé dóttir hans. Okkar afstaða er ósköp skýr, við teljum stúlkuna ekki vera erfingja þar sem hún sé ekki dóttir Fischers," segir Árni Vilhjálmsson, lögmaður Miyoko Watai, japanskrar ekkju skákmeistarans Bobbys Fis- cher heitins. Árni hefur sótt um svokölluð einkaskipti dánarbús Fischers sem þýðir að hann fær búið afhent til sín og þannig verður búinu ráðstafað til Miyoko í kjölfarið. Umsóknin var lögð fram skömmu eftir að japanska ekkjan fékk að lokum staðfestingu á hjúskap þeirra Fischers og hefur hún í höndum hjúskaparvottorð útgefið af japanska sendiráðinu hér á landi. Árni bíður ennþá eftir samþykki um einkaskiptin frá sýslumanni. Filippseyskur lögfræðingur, Samuel Estimo, vinnur að því að fá viðurkennt faðerni 7 ára þarlendr- ar stúlku, Jinky Young, sem fullyrt er að sé dóttir Fischers. Aðspurður segist Árni hafa tilfinningu fýrir þvi að filippseyskur starfsbróðir hans hafi fátt bitastætt í höndunum. „Ef lögfræðingurinn getur sýnt fram á faðernið virðum við það auðvitað en hann verður að fara að tala með óyggjandi gögnum. Ef hægt verður að sýna fram á þetta verður minn umbjóðandi fýrstur til að viður- kenna það. Það er ekkert leynd- armál að Fischer þekkti þetta fólk og það var vinir hans. Hann hef- ur hjálpað þeim í gegnum tíðina en stúlkan er ekki dótt- ir hans," segir Árni. -*r> m-K Straumsvíkingar í Gróttu Þessir fyrrverandi starfsmenn álversins (Straumsvík halda hópinn þrátt fyrir starfslokin. Félagsskap- inn kalla þeir Straumsvíkingana og fara reglulega í gönguferðir. I gær gengu þeir út í Gróttu. DV-myndSigurður Litlur samlokur 399 kr. + lítið gosglas 100 kr. = 499 kr. FRÉTTASKOT 51 2 70 70 DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðist 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðist allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónurfyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 2008 ■ DAGBLAÐIÐ VlSIR STOFNAÐ 1910 Karlmaður á fertugsaldri dæmdur fyrir að brjóta gegn fjórtán ára stúlku: FULLUR HELGARPABBI NAUÐGAÐIBARNAPÍU BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON fréttastjóri skrifar: brynjolfunu'dv.is Langri nótt við barnapössun lauk með því að 36 ára karlmaður beitti fjórtán ára barnapíu sona sinna grófu kynferðislegu ofbeldi. Hann þreif hana úr fötunum og sleikti brjóst hennar og kynfæri þar sem hún sat stjörf af ótta auk þess sem hann stakk fingri sínum í leggöng hennar og endaþarm. Það var ekki fýrr en maðurinn klæddi sig úr buxunum sem stúlkan losnaði úr stjarfanum og gat forðað sér. Maðurinn var í gær dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun og til að greiða stúlkunni 750 þúsund krónur í bætur. Hann neitaði sök en framburður stúlkunnar þótti áreið- anlegri en hans. Auk þess stönguð- ust lífsýni af brjóstum stúlkunnar á við framburð mannsins sem sagðist ekkert hafa gert stúlkunni annað en að halda utan um hana eftir að hún hafði brostið í grát. Barnapía á pabbahelgum Stúlkan hafði nokkrum sinnum passað syni mannsins, þriggja og ellefu ára, þegar hann hafði þá hjá sér á pabbahelgum. Stúlkan kom ásamt vinkonu sinni í íbúðina í fj ölbýlishúsi í Breið- holti til að passa drengina þegar maðurinn fór út að skemmta sér. Seinna bættust vinir stúlknanna við og höfðu sumir áfengi um hönd. Allir voru þó á bak og burt þegar maðurinn kom heim klukkan sex að morgni. Þá var hann mjög ölv- aður. Stúlkan sagði svo frá að þegar maðurinn kom inn hefði hún beð- ið um greiðslu fyrir pössunina en hann sagt henni að setjast í sófann og boðið áfengi. Því næst hafi hann byrjað að ldæða hana úr fötunum. Við það segist stúlkan hafa frosið. Maðurinn hafi sleikt brjóst henn- ar og kynfæri og rekið fingur inn í leggöng hennar og endaþarm. Haf- andi gert það tók hann út getnað- arliminn og gerði sig líklegan til að nauðga stúlkunni. Það var þá sem stúlkan losnaði úr stjarfanum og öðlaðist kraft til að ýta manninum í burtu. Fagna sakfellingu Auður Björg Jónsdóttir, réttar- gæslukona stúlkunnar, segist ánægð með að maðurinn hafi verið sak- felldur, en hún hafi þrátt fyrir það viljað að refsiramminn í þessum málaflokki væri nýttur frekar. Lögum samkvæmt er hægt að dæma menn til allt að sextán ára fangelsisvistar fyrir nauðgun. Auður segir að niðurstaðan hafi jafnframt verið mikið gleðiefni fýr- ir stúlkuna. Hún segir að málið hafi skiljanlega tekið á unga stúlku og að stelpunni hafi á tímabili liðið mjög illa vegna atviksins. Atli Gíslason, þingmaður vinstri- grænna, segir ljóst að enn sé stór gjá á milli kynferðisbrota og fíkni- efnamála. Þrátt fyrir það segir Adi áberandi stefnubreytingu hafa orð- ið í málaflokknum og að réttarkerf- ið virðist vera að opna augun fýrir al- varleika þessara brota.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.