Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Side 2
Fréttir DV 2 MIÐVIKUDAGUR 16. APRfL 2008 FRÉTTIR Skilorð fyrir glannaskap Hafsteinn Viðar Ásgeirsson var í gær dæmdur í tveggja mán- aða skilorðsbundið fangelsi fyri að valda alvarlegu umferðarslysi með gáleysislegum akstri. Með glannaskapnum lenti Hafsteinn í árekstri og stórslasaði rúmlega tvítuga konu. Hann ók palibíl en hún Toyotu Yaris. Við slysið lærbrotnaði hún, rifbeinsbrotn- aði, mjaðmarbrotnaði, hnéskelj- arbrotnaði, handleggsbrotnaði báðum megin og hlaut marg- vísleg fleiri brot og brákanir auk hruflsára um allan líkamann. Læknir sem vitnaði fyrir dómi segir að alls kostar óvíst sé um starfsorku stúlkunnar í framtíð- inni. Hafsteinn missir einnig bíl- prófið í eitt ár. Rannsókní fullum gangi Að sögn írisar Bjarkar Hreinsdóttur, upplýsingafull- trúa Fjármálaeftirlitsins, er rannsókn stofnunarinnar á því hvort aðilar hafl á skipu- legan hátt dreift neikvæðum orðrómi um íslenska fjár- málakerfið eða íslensku bank- ana, í því skyni að hagnast á því, í fullum gangi. Seðla- bankinn gaf til kynna fyrir nokkru að alþjóðlegir vogun- arsjóðir hefðu gert atlögu að krónunni. Fjármálaeftirlitið fer nú yfir og metur þau gögn sem hafa borist í málinu. „Mat á þeim gögnum verður að leiða í ljós hvort ástæða sé til þess að kalla eftir ffekari gögnum og hver næstu skref verða," segir íris. Ekki velkominn Emanuelis Kukanauskas var í gær dæmdur í nítján mánaða fangelsi fyrir brot á útlend- ingalögum. Kukanauskas fékk dóm fyrir fíkniefnasmygl til landsins fyrir þremur árum en var veitt reynslu- lausn í desem- ber. Útlendingastofnun vísaði honum þá úr landi án þess að hann myndi nokkurn tímann eiga afturkvæmt hingað. Kuka- nauskas sneri þó aftur til íslands frá Litháen í apríl og Var þá handtekinn. Hann játaði brotið og sagðist hafa heyrt því fleygt að ekkert væri að marka brott- vísun sem þessa. Fimmtán ára með kannabis Lögreglan í Vestmannaeyj- um hafði afskipti af unglinga- samkvæmi sem fram fór um síðustu helgi. Við leit á einum unglingnum fundust áhöld til fíkniefnaneyslu og viður- kenndi pilturinn sem er á sex- tánda aldursári að hafa neytt kannabisefna. Pilturinn var einnig undir áhrifum áfengis. Þá aðstoðaði lögreglan í Vestmannaeyjum ungan dreng sem kominn var í sjálf- heldu í berginu ofan við versl- unina Skýlið við Friðarhöfn. Lögreglu gekk greiðlega að ná honum niður og án teljandi vandræða. Hinn tuttugu og fimm ára Sara Miller flakkar á milli Noröurlanda og selur aðgang að líkama sínum. Núna er hún stödd á íslandi en í viðtali við blaðamann sagði hún kven- kynsdólg hafa hótað sér likamsmeiðingum hér á landi. Hún segist ekki óttast hótan- irnar. Sjálf hvetur hún íslendinga til þess að vera opnari varðandi vændi. Ekki onáða Þegar blaðamaður bankaði upp á hjá Söru mátti sjá kurteislega beiðni um að ónáða liana ekki enda mikið að gera þessa dagana. Sara Miller Sara er fönguleg grískættuð stúlka á þrítugsaldri en hún dvelur hér á landi reglulega og selur líkama sinn. VAR HOTAÐ AF KVENDOLGI VALUR GRETTISSON „Mér hefur einu sinni verið hót- að hér á landi, það var af íslenskri konu sem var melludólgur," segir hin grískættaða Sara Miller en hún starfar sem vændiskona í Dan- mörku og hefur komið reglulega til íslands undanfarið til þess að fal- bjóða líkama sinn. Blaðamaður DV fór á hótelið Room with a View og hitti hana og sættist hún á að veita honum viðtal. Hún var þó á móti myndatökum og vildi ekki þekkj- ast af myndum. Sjálf á hún vini á fslandi. Sara segir kúnna sína vera karlmenn frá átján ára upp í sex- tugt. Hún segir íslenska karlmenn verulega feimna, en fyrst og ffemst kurteisa. Norrænir kurteisari „Ég er upprunalega ffá Grikk- landi en er alin upp í Danmörku," segir hin tuttugu og fímm ára Sara Miller sem selur lfkama sinn í Dan- mörku. Hún segist ferðast á milli Norðurlandanna og hefur gert í all- nokkur ár. Hún segist ekki fara út fyr- irNorðurlöndin, aðallegavegnaþess að karlmenn í þessum hluta heims- ins eru hreinlega kurteisari en aðrir að hennar mati. „Mér líkar við fólkið héma, og ég fæ ekki betur séð en að hér búi gott fólk," segir Sara Miller sem virðist líka vel við land og þjóð. Hún segist hafa komið hingað þrisvar sinnum áður. f öll slöptin seldi hún líkama sinn. Vinnur sem strippari „Ég sef ekki hjá karlmönnum undir átján ára aldri. Ég bið unga menn um persónuskilríki ef ég er í vafa," segir Sara sem hefur sínar vinnureglur. Hún bætir við að hún leyfi aldrei „tvöfalda innsetningu", það er að segja, að tveir menn sofi hjá henni á sama tíma. Hún segir að henni líki við starfið en hún hefur stundað það í nokkur ár auk þess að vinna sem strippari í Danmörku. Aðspurð hvort lög- reglan hafi haft afskipti af henni hér á landi eða í Danmörku segir hún: „Ég sefekki hjá karl- mönnum undirátján ára aldri. Ég bið unga menn um persónuskil- ríki efég er í vafa" „Ekki hérna. Stundum úti í Dan- mörku en þá er það bara til þess að athuga hvort ég borgi ekki skatt af vændinu, sem ég geri." Var hótað af kvendólgi Hin samviskusama Sara segir líf- ið þó ekki vera einungis dans á rós- um. Hún þekkir til íslenskra vænd- iskvenna en segir veröld þeirra ekki vera mjög harða. Hún bendir á að hér á landi séu ekki klíkur eða mellu- dólgar sem selji stúlkumar í kynlífs- þrældóm. Hún hafi að minnsta kosti ekki orðið vör við það. Sjálf er Sara einyrki. Hún segir samkeppnina hins vegar grjótharða. Til að mynda hafi íslensk kona, sem starfar sem melludólgur, hótað henni. Þá hót- aði hún líkamsmeiðingum færi hún ekld af landi brott eða borgaði henni hluta af ágóðanum. Sjálf segist Sara hafa virt hótunina að vettugi, hún hafi ekkert að óttast. Glaðlynd að eðlisfari „Ég er hamingjusöm kona," seg- ir Sara og brosir líflega og bætir við: „Ég er glaðfynd að eðlisfari og er ekkert að dvelja við neikvæðu stundirnar." Enn sem komið er hef- ur Sara ekki lent í óprúttnum aðil- um sem hafa beitt hana ofbeldi. Hún segist hringja á lögreglima fari illa en hingað til ekki þurft þess. Hún segir vændi vera staðreynd á íslandi. Það sé ekkert óeðlilegt við það. í raun myndi það bæði hjálpa kúnnum sem og vændiskon- um heilmikið væri umræðan opnari um vændið: „fslendingar mega vera opnari varðandi kynlífsiðnaðinn, það er ekkert til þess að skammast sín fyrir," segir Sara að lokum. Þess má geta að vændi er ekki ólöglegt. Aftur á móti er það ólöglegt að hafa tekjur af vændi sem þriðji aðili. Lögreglan metur hvort skólastúlkan í Kópavoginum selur klám: Gæti farið í fangelsi vegna klámsölu ÁTJÁN ÁRA STÚLKA LEITAR LAUSNA Á FJÁRHAGSVANDA: SKULDUGM SKÓLASTULKA ínetvæMH „Klám er ekki skilgreint sem slílrt í lögunum en bæði dómstól- ar og lögregla notast við ákveðin viðmið sem hafa þróast. Hér gæti verið um að ræða efni sem myndi flokkast sem klám," segir Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðis- brotadeildar lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu, um netsýningar ís- lenskrar stúlku á kynferðislegu efni. f DV í gær var rætt við átján ára skólastúlku sem fækkar fötum og leikur sér með kynlífsleikföng fyr- ir framan upptökuvél. Hægt er að horfa á hana á netinu gegn greiðslu. Þegar hún hóf störf fyrir um mánuði var hún óviss um lögmæti starfsem- innar. Lögreglunni höfðu ekki bor- ist neinar ábendingar um síðuna þegar DV hafði samband. Björgvin segir að í framhaldinu muni mál- ið vera rannsakað frekar til að meta hvort um klámefni sé að ræða en dreifing og sala kláms stangast á við íslensk lög. Við slíku athæfi liggja fjársektir og jafnvel allt að sex ára fangelsi. Ef lögreglan kemst að þeirri niðurstöðu að um klám sé að ræða getur hún hafíð rann- sókn án þess að þriðji aðili leggi fram kæru. Björgvin tekur ennfremur fram að það sé metið til refsi- þyngingar ef klámi er dreift til yngri en átján ára. Aðspurð segist stúlkan sem heldur úti netsýningun- um fylgjast vel með því að við- skiptavinir hennar hafi náð þeim aldri. Hún segist oft hafa bak- fært greiðslur ef kennitala greiðanda sýnir að hann er undir átján ára. Til- koma netsins gerir lögreglu erfið- ara fyrir að henda reiður á klám- efni. Engu að síður virðist hún eiga jafnerfitt með að bregðast við þegar um er að ræða prent- að efni. Auður Magndís Leiknisdóttir kynjafræðingur lagði fram kæru hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu fyrir um fjórum árum á grundvelli þessara sömu laga. Auður keypti klámblöð í bóka- búð og lagði þau fram sem sönn- unargögn ásamt kvittunum. Jafnvel þótt hún ræki á eftir mál- inu heyrði hún aldrei aftur frá lögreglunni. Björgvin rámar ekki í málið en bendir á að greinarmun verði að gera á netinu og innsigluð- um tímaritum. Þó játar hann því að ef efni blaðanna yrði í raun skil- greint sem klám væri sala þeirra refsiverð. erlatsidv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.