Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 Fréttir DV Olíugjald endurskoðað „Munt þú beita þér gegn því að olíugjald verði lækkað svo dísilolían verði ódýrari en bens- ín á nýjan leik," spurði Samú- el Örn Erlingsson, þingmaður Framsóknarflokksins, umhverf- isráðherra á Alþingi í gær. Hann benti á að dísilvélar væru um- hverfisvænni en bensínvélar og bætti við að það gengi þvert á fyrri markmið ríkisstjórnarinn- ar að dísilolían væri nú dýrari en bensín. Þórunn Sveinbjarn- ardóttir umhverfisráðherra segir að nefnd sem vinni að heildar- endurskoðun á skatdagningu og gjaldtöku á eldsneyti ljúki störf- um innan nokkurra vikna. Því muni senn draga til tíðinda. Hún tók undir orð Samúels Arnar að þróunin í eldsneytismálum hefði ekki verið eins og menn höfðu vonast eftir. Stjórnin tryggi kaupmátt Framkvæmdastjórn Starfs- greinasambandsins lýsir fullri ábyrgð á hendur ríkisstjóminni bresti forsendur nýgerðra kjara- samninga vegna aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar í efnahags- málum. Starfsgreinasambandið ályktaði um málið í gær. „Geng- ishrun, ofurvextir og verðbólga langt umfram markmið Seðla- bankans kalla nú þegar á sam- ráð aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda til lausnar á þeim vanda sem við blasir. Grípa þarf tafarlaust til aðgerða tíl vernd- ar kaupmætti launafólks," segir í ályktuninni. Lýst eftir lyftara Brotist var inn í fyrirtækið Slægingarþjónustuna í Sandgerði aðfaranótt sunnudags og þaðan stolið Toyota raffnagnslyftara árgerð 1998. Lyftarinn er að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum appelsínugulur að lit með vinnu- vélanúmerið JL-3481. Einnig var stolið hleðslutæki lyftarans. Lögreglan biður þá, sem gætu gefið einhverjar upplýsingar um hvarf lyftarans að láta lögregluna á Suðurnesjum vita í síma 420- 1700. Leiðrétting Bjarni Sv. Guðmundsson var rangnefndur í upphafi fréttar um gamamót við Leir- vogsmngu í Mosfellsbæ í DV í gær. Það leiðréttist hér með. Valitor og íslensk tryggingafélög eru harðlega gagnrýnd fyrir þjónustu við íslenska ferðamenn sem slasast á ferðalögum erlendis. Ásta H. Markúsdóttir er virkilega sár yfir sinnuleysi fyrirtækjanna í sinn garð og fársjúks eiginmanns hennar. Anton Bjarna- son, lektor í íþróttafræðum, segir þjónustu Valitors og tryggingafélaganna bara plat eft- ir að hafa sjálfur kynnst ómannúðlegum vinnubrögðunum. LIFSHÆTTULEG ÞJ0NUSTA TRAUSTI HAFSTEINSSON bloðamaður skrifar: „Þjónustan er engin og svo mikið plat, mér verður flökurt þegar ég sé auglýsingarnar frá þessum fyrirtækjum nán- ast á hverju kvöldi." „Ég tárast bara við tilhugsunina," segir Ásta Hulda Markúsdóttir sem rifjar upp í samtali við DV erfiða tíma í samskiptum við Valitor, umboðsað- ila VISA á íslandi og tryggingafélagið VÍS eftir að eiginmaður hennar fékk í vetur hjartaáfall á Spáni. Hún segir tryggingafélag sitt og Valitor hafa al- gjörlega brugðist skyldu sinni. Maður hennar var í golfferð með félögum sínum þegar ógæfan dundi yfir. Hann hné niður með alvarlegt hjartaáfall og ökklabrotnaði einnig við fallið. Þau hjónin eru handhafar Platinum-kreditkorts frá Valitor og eru tryggð hjá VÍS. Þau töldu sig að fullu tryggð fyrir öllum óhöppum eða slysum sem verða kynnu í útíöndum en Ásta segir allt annað hafa komið á daginn. Hún sakar neyðarhjálpina SOS, í samstarfi við fýrirtækin, um að láta sparnaðarsjónarmið ráða för og þannig skapað eiginmanni hennar verulega hættu, jafnvel lífshættu. í skilmálum VfS um platinum- kort frá VISA segir meðal annars að reyndir starfsmenn SOS-neyð- arhjálparinnar sjái um að tryggja heimflutning miðað við ástand hins slasaða, veita aðstoð vegna með- höndlunar slysa og sjá til þess að hjúkrunarfólk fýlgi sjúklingi ef með þarf. Ásta upplifði ekki þá þjónustu sem boðuð var. Skelfileg lífsreynsla „Það var skelfilegt að lenda í þess- um raunum og hræðilega sárt að rifja þetta upp. Eg hef ekki einu sinni fengið afsökunarbeiðni en auðvit- að ættu fyrirtækin að hundskast til að skammast sín og biðja okkur af- sökunar á framkomunni," segir Ásta. Hún segist hafa upplifað sig sem íbúa í vanþróuðu ríki þar sem hvert fýrirtækið vísaði á annað og enginn hafi í raun verið tilbúinn til að hjálpa henni í þeirri angist og erfiðleikum sem hún stóð í. Eftir 16 daga án við- unandi aðstoðar frá SOS eða VÍS tók við 15 klukkustunda ferðalag með eiginmanninn hjartveikan í hjólastól .„Sparnaður fýrirtækjanna hefði get- að gert illt verra og mildi hreinlega að ekki fór verr því þegar heim var kom- ið komu ýmsir alvarlegir aukakvillar í ljós við skoðun eftir hið gífurlega erfiða ferðalag. Heilbrigður maður er búinn á því eftir 2 millilendingar, hvað þá alvarlega hjartveikur mað- ur í hjólastól sem átti auðvitað aldrei að fara þessa leið. Sparnaðurinn var hreinlega lífshættulegur." (S tw1'. - m Lífshætta Haukur var í golfferð á Spáni með félögum sínum þegar ógæfan dundi yfir. Hann fékk alvarlegt hjartaáfall og ökklabrotnaði er hann hneig niður. mínum málum. Þjónustan er engin og svo mikið plat, mér verður flök- urt þegar ég sé auglýsingarnar frá þessum fyrirtækjum nánast á hverju kvöldi. Ég fékk enga hjálp og viðmót- ið í minn garð, sjúklingsins, var for- kastanlegt. Eftir að hafa komið mér heim beið ég alltaf eftir því að fé- lögin hérna heima myndu tékka á mér og sjá hvernig ég hefði það. Ég hefði í raun getað verið dauður ein- hvers staðar á leiðinni án þess að þau kærðu sig nokkuð um það því ég var ekki einu sinni í tölvukerfinu hjá þeim sem sjúklingur," segir Anton. Harma tilvikin Bæði Anton og Ásta furða sig á þeirri staðreynd að sjúklingar, eða rmm . SOS INTERNATIONAL VIÐLAGAÞJONUSTA OG NEYÐARHJALP Pjonusta SOS INTERNATIONAL vegna slyss eöa sjukdoms erlendis greiöist af VISA ferðatryggingu korthafa hjá Vátryggingafélagi Islands hf„ að því tilskildu að greiðsla ferðakostnaðar með VISA-korti hafi verið skv. skilmálum. Innheimt er fyrir aðra þjónustu sem SOS INTERNATIONAL veitir á kostnaðarverði, en öll ráðgjöf er veitt ókeypis. Þegar leitað er upplýsinga eða aðstoðar SOS INTER- NATIONAL er nauðsynlegt að gefa upp kortnúmer, nafn, kennitölu og heimilis- fang korthafa og taka fram að hann sé tryggður af VISA Islandi. Reyndir starfsmenn annast eftirfarandi: að veita ráðgjöf og gefa upp nöfn, heimilisföng og símanúmer viðurkenndra lækna, læknastofa eða sjúkrahúsa og tannlækna um heim allan. að samband verði haft við sjúkrahús og ábyrgð sett fyrir kostnaði, ef þörf krefur. að ræða við lækna og starfsmenn sjúkrahúss á yfir 30 tungumálum. heimflutning og besta ferðamáta í samræmi við ástand sjúklings. að ætíð þegar þess er þörf verði hjúkrunarfólk látið fylgja sjúklingi. að aðstoða við og skipuleggja heimferð ættingja hins sjúka eða slasaða. að skipuleggja og aðstoða við heimferð barna hins sjúka eða slasaða i öruggri fylgd fullorðins, sé þess þörf. að veita aðstoð vegna almennra tryggingarmála, meðhöndlun slysa og hættuástands. Engin hjálp Anton Bjarnason, lektor í íþrótta- fræðum, segir farir sínar síður en svo sléttar í samskiptum sínum við Tryggingamiðstöðina og Valitor. „Mér leið eins og týndri ferðatösku sem væri til vandræða og fýrirtækin hér heima vildu ekki láta trufla sig," segir hann. Anton slasaðist illa í skíðaferð á Italíu og er vonsvikinn vegna fram- komu tryggingafélagsins og Valitors í hans garð. „Fyrirtækin brugðust mér algjörlega og ég þurftí sjálfur, stór- slasaður og margbrotinn, að vinna í aðstandendur þeirra, þurfi sjálfir að sýsla með aðstoð og að ekki sé sér- stakur erindreki á vegum hinna ís- iensku fyrirtækja sem sjái um ferl- ið frá A til Ö. Aðspurð segist Ásta vilja vekja athygli á upplifun sinni þar sem hún telji fjölda fólks lenda í svipuðum aðstæðum. „Það er með hreinum ólfldndum að þurfa, sem aðstandandi alvarlega veiks manns, sjálfur að standa í samskiptum við erlent fyrirtæki þegar maður sjálfur er dofinn af áhyggjum. Ég var eðli- lega í algjöru áfalli," segir Ásta. Pétur B. Jónsson, þjónustustu- stjóri hjá Valitor, bendir á að í raun séu það hvorki tryggingafélögin né Valitor sem sjái um ferlið heldur al- þjóðlega þjónustufýrirtækið SOS sem sérhæfir sig í umsýslu með slas- aða ferðamenn. Hann harmar tilvik- in sem upp hafa komið og segir þau til skoðunar. Aðspurður segir hann ekki tímabært að skera úr um hvort skipt verði um þjónustuaðila en tel- ur sjálfsagt að skoðað verði hvort íslenskum tengilið verði komið á í samskiptum við erlenda þjónustu- aðila. „Þessar frásagnir rengjum við ekki og hörmum að sjálfsögðu þessi tílvik. Þar til nýverið hefur reynsla okkar af SOS verið góð. Eftir þessi alvarlegu mál sem upp hafa komið skoðum við hvert einasta mál til þess að sjá hvort eitthvað hafi verið í ólagi. Að sjálfsögðu á ekkert svona lagað að geta gerst og við lítum þetta grafal- varlegum augum. Þessi þjónusta á að vera í lagi og eitt tilvik er of mikið í mínum huga," segir Pétur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.