Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Page 7
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 7 Reikna má með um viku til tíu daga biðtíma eftir almennum tíma hjá lækni á heilsugæslustöðinni í Grafar- vogi. Á síðdegisvakt heilsugæslustöðvarinnar síðasta þriðjudag voru 20 manns komnir á biðlista áður en lækn- ar tóku á móti sjúklingum klukkan fjögur. Veikindi lækna setja strik í reikninginn. VIKUBIÐ EFTIRLÆKNI RÓBERT HLYNUR BALDURSSON blaðamaður skrifar: robenhb^civ.is Sá sem óskar viðtals við lækni á heilsugæslustöðinni í Grafarvogi má reikna með því að bíða í yfir viku eftir að fá tíma á stofu. Á þriðjudag í síð- ustu viku voru 20 manns komnir á biðlista fyrir klukkan 4 á síðdegisvakt heilsugæslunnar, en þar eru allajafna tveir læknar að störhim. Hágrátandi börn með eyrnabólgu þurftu að bíða í langan tíma eftir lækni. Tekið var á móti um 40 manns á síðdegisvakt- inni þennan daginn. Tekiðá móti 160 manns daglega Níu til tíu læknar eru vanalega í móttöku heilsugæslunnar og tekur heilsugæslan að jafnaði við um 130 tíl 160 manns yfir daginn. Þar af tek- ur síðdegisvaktin við um 30 sjúkling- um að meðaltali. Að sögn Atla Árna- sonar, yfirlæknis heilsugæslunnar í Grafarvogi, veiktust tveir læknar heilsugæslunnar fyrir um hálfum mánuði, en auk þess hefur verið sér- staklega mikið álag á læknum allt frá áramótum vegna ýmissa veikinda fólks. „Auðvitað finnst okkur ekki gott að fólk bíði eftir læknum, en við höfum ekki fengið neinn lækni til af- leysinga í bili. Ég geri ráð fyrir því að fá inn lækni tíl afleysinga 13. maí," segir Atli. Atli segir síðustu vikurnar í mars og fyrstu vikuna í apríl hafa verið mjög erfiðar fyrir heilsugæsluna og að mest hafi síðdegisvakt heilsugæsl- unnar tekið á móti um 50 manns yfir daginn. Þetta má leggja út sem svo að læknir hafi tekið á móti um fimm til sex sjúklingum á hverri klukku- smnd. Um 19 þúsund manns eru búsett- ir í Grafarvoginum og er mikið skarð höggvið í heilsugæsluna þegar hún missir um 25 prósent af starfskröft- um sínum. Frí heilsugæsla barna Talað hefur verið um að sú stefna að veita börnum fría heilsugæslu nú um áramótin hafi aukið álag á heilsugæslulæknum til muna og þar með biðtíma eftir lækni. Atli segir mælingar ekki benda til þess að hlut- fall barna meðal þeirra sem sækja til heilsugæslunnar hafi aukist frá ára- mótum með nýrri greiðslustefnu. „Það hefur verið umtalað að hlutfall barna hafi aukist, en það er ekkert sem bendir til þess að þessi stefna hafi áhrif á ákvörðun foreldra um að leita til læknis frekar en áður á höf- Þjónar nítján þúsund manns Heilsugæslan í Grafarvogi hefur orðið af tveimur læknum á hálfum mánuði vegna langvarandi veikinda þeirra. Heilsugæslan þjónar um nltján þúsund manns og hefur misst um 25 prósent af starfskröftum sínum. Ekki er gert ráð fyrir að fá afleysingamann til starfa fyrr en um miðjan maí. Skortur á heimilislæknum Svanhvlt Jakobsdóttir segir vöntun á læknum hjá mörgum heilsugæslustöðvum höfuðborgar- svæðisins. Hún segir (skoðun hvernig auka megi þjónustuna. DVMyndir/Sigurður „Auðvitað fínnst okk- ur ekki gott að fólk bíði eftir læknum, en við höfum ekki fengið neinn lækni til afleys- inga í bili." uðborgarsvæðinu. Biðtíminn eftir lækni á síðdegisvaktínni getur verið mjög misjafn, allt frá 5 tíl 10 mínút- um, en svo vonast ég eftir því að eng- inn þurfi að bíða lengur en í klukku- tíma," segir Atli. Skorturá læknum Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðis- ins, segir álagið vissulega hafa ver- ið mikið hjá heilsugæslustöðvum á höfúðborgarsvæðinu að undan- förnu, einkum vegna flensu sem sé að ganga. Hún segir flest benda til þess að flensutoppamir séu í rénun og álagið sé að minnka. Svanhvít segir skort á heilsu- gæslulæknum á landinu og verða því læknar að bæta við sig verkefnum á áiagstímum sem þessu. „Vandinn er að það útskrifast ekki nógu margir heimilislæknar á hverju ári. Það er ekki hlaupið að því að fá heimilis- lækna eins og staðan er í dag," segir Svanhvít. Svanhvít segir vissulega geta ver- ið slæmt þegar svo lítið þurfi að bera út af, líkt og í Grafarvogi, til að hafa áhrif á starfsemi heilsugæslustöðv- arinnar. „Á flestum heilsugæslu- stöðvum á höfuðborgarsvæðinu er full þörf fyrir þá lækna sem þar em og er vöntun á þeim miðað við fjölda skráðra sjúklinga á hverja stöð. Við skoðum nú innanhúss hvort hægt sé að auka afköst heilsugæslustöðv- anna og skipulag þeirra tíl að bregð- ast við þessu. En almennt er ekki nægilega mikið af fagfólki útskrifað á hverju ári," segir Svanhvít. Ekki fengust svör frá heilbrigðis- ráðuneytinu þegar eftir því var leit- að í gær. A Vinnuföt - Hlífðarföt ALLT A AÐ SELJ Arctic Wear vinnufatnaður Vesturvör 7 • 200 Kópavogur • Sími: 534-2900 www.aw.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.