Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. APR[L 2008 Fréttir DV í flokki frjálslyndra geisa mikil innri átök. Þau brutust meðal annars fram á miðstjórnarfundi 4. apríl þegar Valdimar Jóhannesson lagði áleitnar spurningar um Qármál og mannaráðningar fyrir formanninn, Guðjón Arnar, sem sleit fundinum snarlega. Bréf sem DV hefur undir höndum sýnir að Jón Magnússon þingmaður aðstoðaði Valdimar við spurningarnar. FINGRAFOR ÞINGMANNS F NNASTA „Ef þetta kemur sér illa fyrirJón er það vegna þess að aðrir eru með óeðli- leg sjónarmið." GAGNRYNL Jón Magnússon, þingmaður Frjáls- lynda flokksins Segist aldrei senda trúnaðar- upplýsingar i tölvupósti. BRVNJOLFUR POR GUÐMUNDSSON frettcistjóri skrifar: brynjolfu((<"dv.is f bréfi sem DV hefur undir hönd- um sést að Jón Magnússon, einn af fjórum þingmönnum Frjálslynda flokksins, aðstoðaði Valdimar Jó- hannesson við að semja gagnrýn- ar spurningar sem Valdimar sendi Guðjóni Amari Kristjánssyni for- manni í kjölfar miðstjórnarfundar 4. apríl. Þar var meðal annars spurt um tekjur flokksins og ráðstöfun þeirra. Einnig var spurt um hvað réði vali á starfsfólki og um kostn- að vegna starfsmanna flokksins. Jón er eini þingmaður frjálslyndra sem beitti sér gegn lagafrumvarpi um að þingmenn fengju aðstoðarmenn. Ekkert pukur Aðspurður hvers vegna hann hafi ekki spurt Guðjón sjálfur seg- ir Jón. „Það var einfaldlega vegna þess að Valdimar bað mig um að líta yfir þessar spurningar. Ég reyni allt- af að aðstoða fólk ef þess er óskað, sama hver á í hlut," segir Jón og bæt- ir við að hann hafi lagt á það áherslu við Valdimar að aðkoma hans að spurningunum myndi liggja fyrir. „f mínum huga er þetta ekkert pukur, heldur aðeins eðlilegar upplýsingar. Ég lagði til breytingar og bætti að- eins við með það að sjónarmiði að flokksmenn fengju upplýsingar um það sem þarna er spurt um," segir Jón og segist vita að hann sé einn af þeim sem tækju þátt í að svara sum- um þessara fýrirspurna. Hann seg- ist aldrei senda trúnaðarbréf í tölvu- pósti. Það sé ekki öruggt form og því noti hann tölvupóst aldrei undir viðkæmar upplýsingar. Hann segir enn fremur að sú staðreynd að DV hafi bréfið undir höndum sé enn ein staðfestingin á því að trúnaðarupp- lýsingar eigi aldrei að senda á tölvu- tæku formi. „Mér finnst ákveðinn trúnaðarbrestur feiast í því að þetta bréf skuli vera komið í umferð. Mín skoðun er sú að það eigi alltaf að af- greiða svona hluti innan flokksins. Það sjá greinilega einhverjir hag sinn í því að koma þessu á ffam- færi," segir hann. Jón getur spurt sjálfur Guðjón Arnar IGistjánsson, for- maður Frjálslynda flokksins, virtist koma af Qöllum þegar honum var greint ffá aðkomu Jóns Magnús- sonar að þessum spumingum. „Ég vissi ekki að menn þyrftu að fara krókaleiðir til þess að spyrja spurninga. Jón, eins og aðr- ir, eiga að geta spurt sjálfir. Annað hef ég ekki um þetta að segja," segir Guðjón Arn- ar. Hann segist ekki hafa lýst vantrausti á nokkurn einasta mann innan flokksins. „Ég skipti mér hins vegar ekki af því hvaða póstar ganga á milli Jóns Magnússonar og annarra," segir hann. From: Jón Magnússon [mailto:jm@’nu.is] Sent: 10. maí 2008 10:05 To: 'valdS’Centrum.is' Subject: RE: Fyrírspum frá VJ Bréfið sem sent var á flokksmenn í því sést að Jón Magnússon tók þátt í að semja sumar spurningarnar. Mér finnst þetta mjog gott eins og þaö er. Varóandi spumingu 1. þar er 3 gr. sem fjallar um framlög til stjórnmálasamtaka og i 2 spumingu þar á aó visa i 4.gr. framlög til þingflokka. En þú visar i 3 aftur. í 5 spumingu og hvaó greiöir Frjálslyndi flokkurinn (í staöinn fyrir þingflokkurinn) í spurningu 8. aö bæta við eóa setja inn nýja spurnmgu: Hvaöa ákveónum skilgreindum verkefnum sinnir hver starfsmaóur fyrir sig. Bæta siöan vió einni spurningu: Hvaöa þjónustu fá þmgmenn flokksins og þingflokkurinn frá Alþingi. Þessar spurningar á aö senda líka á þingmenn flokksins og biója þá um aó svara þeim fyrir sitt leyti eins og þeir þekkja til málanna. Og bæta viö til þingmanna: Hvaöa þörf hefur þú sem þingmaóur fyrir sérstakan framkvæmdastjóra eöa aöra starfsmenn umfram þaó sem þingið utvegar. Meó hvaóa hætti nýtist starfslió þingflokks Frjálslynda flokksíns þér? Gætir þú sótt þá þjónustu til starfsmanna þingsins ■ i—imr________________ Láðist að fínpússa póstinn Valdimar Jóhannesson, sá sem sendi fýrirspumirnar, viðurkennir að llklega hefði hann átt að eyða sam- skipmm sínum við Jón, áður en hann sendi póstinn á flokksmenn. „Það hefði verið kurteisi gagnvart Jóni að þurrka út samskipti okkar. Ég var að flýta mér svolítið og láðist hreinlega að fínpússa póstinn. Það skiptir hins vegar engu máli. Það stóð aldrei til að samvinna okkar Jóns væri leynd- armál. Ég bað hann einfaldlega að líta yfir þetta, sem hann og gerði eins og hans er von og vísa. Ef þetta kem- ur sér illa fyrir Jón er það vegna þess að aðrir eru með óeðÚleg sjónarmið. Það er ágætt fyrir aUa flokksmenn að fá svörin við þessum spumingum upp á yfirborðið og fá um þau opna umræðu," segir Valdimar og bætir við að um það séu þeir Jón sammála. Jón í formanninn? Á samtölum við flokksmenn Frjálslynda flokksins leynir sér ekki að þar eru átök. í DV í gær kom fram að skiptar skoðanir em um Krist- in H. Gunnarsson. Guðjón Arnar opnaði á sínum tíma leið fyrir Krist- in inn í flokkinn. Eftir kosningar réð Guðjón því að Kristinn varð formað- ur þingflokksins. Sumum þótti þar ffeklega gengið fram hjá Jóni Magn- ússyni. „Það er óeðlilega skipað til valdahlutverka í flokknum. Guðjón hefur stjórnað því að tveir Vestfirð- ingar em annars vegar formaður þingflokksins og hins vegar fram- kvæmdastjóri þingflokksins. Sjálf- ur er hann Vestfirðingur. Þetta em allt menn af sama þrönga hominu. Flokkurinn verður að reyna að höfða til allra landsmanna. Málflumingur flokksins varðar alla þjóðina en ekki bara Vestfirðinga," segir Valdimar. í samtölum við flokksmenn kemur fram að margir telja að Jón Magn- ússon yrði öflugur foringi flokksins, láti Guðjón Arnar af störfum. Valdi- mar tekur undir það. „Fólk mun styðja við bakið á Guðjóni Arnari svo fremi sem hann lætur hagsmuni flokksins alls ráða gjörðum sínum. Ef ekki tel ég að Jón yrði afbragðs formaður, enda er hann afburða þingmaður í dag. Hann er málefna- legur og býr yfir mikilli kunnáttu," segirValdimar. Tilboðsverð frá kr. 79.000,- Stafrœn pfanó Hamraverk meö alvöru áslœtti 8 hljóöfœri • Tengi fyrir 2 heyrnartól Fullkomiö hátalarakerfi Nótnaborð f fullri stœrö Frábœrt fyrir byrjendur og lengra komna hnaehf. Rangárseli 6-109 Rvk. við Seljakirkju • Símar 553-2845 ■ 663 2845 • hl.palmars@internet.is • www.leit.is/piano

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.