Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. APRfL 2008
Fréttír DV
ítalska þjóðin virðist hafa
tekið Silvio Berlusconi í
sátt og vonast sennilega til
að hann færi þeim ríki-
dæmi á við hans eigið.
Hann hefur nú töglin og
hagldirnar í ítölskum
stjórnmálum í þriðja sinn
en hans bíður mikil vinna.
Hann er ekki þekktur fyrir
að fara troðnar slóðir og
hefur oft sætt gagnrýni
auk þess sem honum hafa
fylgt grunsemdir um spill-
ingu og vafasama við-
skiptahætti.
Þar má nefna leynimakk með mafíunni,
skattsvik, spillingu og mútugreiðslur til
lögregluforingja og dómara.
MYNDIR GETTY
Vísindamenn telja öflugan skjálfta óumflýjanlegan:
Jarðskjálfti innan þrjátíu ára
Átta ára sækir
um skilnað
Eftir tveggja mánaða hjúskap
með þrítugum karlmanni hefnr
átta ára stúlka í Jemen sótt um
skilnað. Hún hefur leitað til dóm-
stóla í Sana, höfuðborg landsins, í
von um hjálp til að losna úr nauð-
ungarhjúskap sem faðir hennar
stóð fyrir. Hún hefur einnig lagt
ffarn kæru á hendur föður sínum.
Stúlkan hefur tjáð yfirvöldum
um þá misnotkun sem hún lifði
við af hálfu eiginmanns síns og
voru bæði eiginmaður hennar og
faðir handteknir vegna málsins.
Föðumum var síðar sleppt úr
varðhaldi sökum bágs heilsufars.
Að mati vísindamanna er næstum
óumflýjanlegt að Kalifornía verði fyr-
ir barðinu á öflugum jarðskjálfta ein-
hvern tímann á næstu þrjátíu árum.
Að sögn vísindamanna eru meira en
níutíu og níu prósenta líkur á að jarð-
skjálfti sem er 6,7 á Richter ríði yfir
Kaliforníu og næstum fimmtíu pró-
senta iíkur á að skjálftinn verði 7,5 á
Richter. Svo öflugur skjálfti hefði í för
með sér gríðarlegar hamfarir ef upp-
tök hans yrðu undir stórborg á borð
við Los Angeles eða San Francisco.
„Við megum búast við því að upp-
lifa öflugan jarðskjálfta og eins gott að
við undirbúum okkur," sagði Thomas
Jordan hjá Jarðskjálftamiðstöðinni
við háskóla Suður-Kaliforníu.
Skjálftinn 1906
Talið er að jarðskjálftinn sem lagði
stóran hluta San Francisco í rúst árið
1906 hafi verið 7,8 á Richter, og jafnvel
öflugri. Síðasti skjálfti af þeirri stærð-
argráðu í Suður-Kalifomíu var árið
1857 og San Andreas-misgengið hefur
að mestu leyti verið til friðs síðan 1860.
Thomas Jordan sagði að síðan þá hafi
byggst upp mikill þrýstingur sem auki
líkumar á öflugum jarðskjálfta.
Northridge-jarðskjálftinn í Los
Angeles árið 1994 var 6,7 á Richter og
varð sjötíu og tveimur að bana og olli
hundruða milljarða tjóni. Styrkleiki
þess jarðskjálfta var sá sami og nú
er spáð að muni að öllum líkindum
ríða yfir innan þrjátíu ára. Þessi nýja
jarðskjálftaspá er sú ítarlegasta sem
nokkum tímann hefur verið gerð fyrir
Kalifomíu og niðurstöður hennar
verða nýttar til að meta til hvaða
aðgerða skuli grípa til vamar.
Thomas Jordan Spáir
öfiugum jarðskjálfta.