Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Page 11
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 16. APRlL 2008 11
r
i
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blndamadur skrifar:
Silvio Berlusconi
Lætur ekki deigan
síga þrátt fyrir háan
aldurog gagnrýni
andstæðinga sinna.
Silvio Berlusconi er auðugasti
maður ftalíu og er metinn á rúman
billjarð króna hjá viðskiptatímarit-
inu Forbes. Það er mat þeirra sem
til hans þekkja að hann yrði einnig
ofarlega á lista ef mæld væru um-
deilanleiki og íburður. Eftir sigur í
nýafstöðnum kosningum gengur
hann inn í sitt þriðja tímabil sem
forsætisráðherra landsins. Auð-
legð Berlusconis vekur blendn-
ar tilfinningar meðal landa hans.
Gagnrýnendur hans eru ómyrkir í
máli og sú staðreynd að vart fyrir-
finnist sá þáttur ítalsks samfélags
sem hann er ekki með puttana
í hefur reitt þá til reiði og vakið
gremju á meðal keppinauta hans.
Aðrir líta ríkidæmi Berlusconis
öðrum augum og segja þau bera
vott um færni hans í fjármálum og
því sé hann rétti maðurinn til að
stjórna landinu.
f viðskiptaveldi Berlusconis er
að finna fjölmiðlafyrirtæki, aug-
lýsingafyrirtæki, og matvæla- og
byggingafyrirtæki. Auk þess er
hann eigandi eins stærsta og far-
sælasta knattspyrnufélags lands-
ins AC Milan. Á meðal fjölmiðla-
fyrirtækja hans eru þrjár stærstu
sjónvarpsstöðvar landsins í einka-
eign.
Áhöld um viðskiptaheilindi
Silvio Berlusconi hefur sex
sinnum verið ákærður fyrir
spillingu. Hann hefur ávallt neitað
sökogaldreiveriðsakfelldur. Kærur
á hendur honum og fýrirtækjum
hans hafa verið af ýmsum toga.
Þar má nefna leynimakk með
mafíunni, skattsvik, spillingu og
mútugreiðslur til lögregluforingja
og dómara.
Sumir af samverkamönnum,
vinum og framkvæmdastjórum
Berlusconis hafa hlotið dóm fyrir
glæpi af svipuðum toga, þeirra á
meðal Paolo, bróðir hans.
Árið 2006 fékk Berlusconi slag
og fékk gangráð. Á þeim tíma
sagði hann að kominn væri tími
til að taka því rólega. Þrátt fyrir
þau ummæli er hann nú, sjötíu
og eins árs að aldri, að hefja sitt
þriðja kjörtímabil sem forsætis-
ráðherra landsins. Þótt aldurinn
sé að færast yfir lítur hann betur
út en árin segja til um, því hann
hefur fengið hárígræðslu og einn-
ig gengist undir aðgerð til að fjar-
lægja hrukkur í kringum augun.
Auk þess er hann alltaf brúnn og
sællegur.
Ómissandi
Þrátt fýrir að hann hafi haft enn
einn sigurinn í stjórnmálum ít-
alíu má túlka ýmis ummæli hans
á þann veg að ekki fari lengur
saman metnaður og aldur. „Þeir
sem telja að ég sé of gamall til að
stjórna landi nútímans kunna að
hafa rétt fyrir sér," sagði hann á
meðan á kosningaslagnum stóð.
Hann sagði að flokkur hans hefði
lagt að honum að bjóða sig fram.
Silvio Berlusconi tapaði naum-
lega fyrir Romano Prodi árið 2006
og hafði nú sigur gegn helsta and-
stæðingi sínum, vinstrimannin-
um Walter Veltroni. Ríkisstjórn
Romanos Prodi missti meirihluta
í janúar og landið er í viðjum afar
bágborins efnahags. Berlusconi
hefur nú þegar varað við því að
fram undan séu erfiðir tímar. En,
líkt og fyrri daginn, gætir lítillar
hógværðar hjá þessum umdeilda
stjórnmálamanni, fjölmiðlakon-
ungi og forsætisráðherra: „Fyr-
ir mig er stjórn kross að bera, en
hægrimenn hafa komist að þeirri
niðurstöðu, eins og málum er
háttað, að enginn gæti tekið við
stöðu minni. Þeir telja mig ómiss-
andi."
SILVI0 BERLUSC0NI
- KLIPPT 0G SK0RIÐ
■ Á samkomu í kosningabaráttu
árið 2006:
„Lesið hina Svörtu bók kommúnlsm-
ans og þið munið uppgötva að I Kína
Maós borðuðu þeir ekki börn, heldur
suðu þau og notuðu sem áburð á
akrana."
■ Um vinstrisinnaða kjósendur á
ráðstefnu smásala í kosningabarátt-
unni 2006:
„Ég ber meira traust til gáfna Itala
ensvoaðég telji aðþaðsé hér fjöldi
bjána sem myndi kjósa gegn eigin
hágsmunum."
■ Við upphaf kosningabaráttunn-
ar 2006:
„Ég erJesús Kristur stjórnmálanna. Ég
er þolinmótt fórnarlamb, ég umber
alla, ég fórna mér fyrir alla."
■ Þegar hann lofaði að setja fjöl-
skyldugildi í hásæti (baráttu sinni:
„Ég mun reyna að koma til móts við
væntingarykkar, og ég lofa héðan I
frá tveggja og hálfs mánaðar algjöru
kynsvelti, þangað til [á kosningadagj
9. apríl."
■ Við Martin Schulz, þýskan Evr-
ópuþingmann, árið 2003:
„Ég veit um mann á Itallu sem er að
framleiða mynd um útrýmingarbúðir
nasista - ég skal mæla meö þér I hlut-
verk Kapo (vörður sem valinn er úr
hópi fanga) - þú yrðir fullkominn."
■ Vegna mótmæla ofannefndra
ummæla:
„Ég skal reyna að draga úr þeim og
verða leiðinlegur, jafnvel mjög leið-
inlegur, en ég er ekki viss um að ég
geti það.“
■ (viðtali við þýskt dagblaö vegna
sömu ummæla:
„Á Itallu er ég nánast álitinn þýskur
vegna vinnusemi minnar. Ég kem auk
þess frá Mllanó, borginni þar sem fólk
vinnur hvað mest. Vinna, vinna, vinna
- ég er nánast þýskur."
■ Á ráðstefnu (Brussel við lok for-
ystu (talíu I þingmannanefnd ESB (
desember 2003:
„Spjöllum um knattspyrnu og konur."
(Og sneri sér að Gerhard Schröd-
er, kanslara Þýskalands, sem hefur
kvænst fjórum sinnum.) „Gerhard, af
hverju byrjarþú ekki?"
■ Um ftalska einkaritara (sagt í
Kauphöllinni (NewYork):
„Italía ernú frábært land til að fjár-
festa I... viðhöfum nú færrikomm-
únista og þeir sem enn eru til staðar
afneita þvt. önnur ástæða til að fjár-
festa á Italíu er að við eigum fallega
einkaritara... frábærarstúlkur."
■ Vegna hryðjuverkaárásanna (
Bandaríkjunum:
„Við verðum að vera meðvituð um
yfirburði menningar okkar, kerfis sem
hefur tryggt velferð okkar, viröingu
fyrir mannréttindum og -öfugt
við Islamskar þjóðir - virðingu fyrir
trúarlegum og pólitlskum réttindum,
kerfi sem metur mikils skilning á
fjölbreytni og umburðarlyndi...
Vesturlönd munu áfram sigra þjóðir,
jafnvel þótt það krefjist átaka við aðra
menningu, Islam, sem erenn rækilega
rótföst þar sem hún var fyrir fjórtán
hundruð árum."
■ UmMússólini:
„Mússólini drap aldrei nokkurn mann.
Mússólini sendi fólk I leyfi I útlegð
innanlands."
■ Svar hans við alþjóðlegri fordæm-
ingu vegna orðanna að ofan:
„Þeir hafa reyntað klekkja á mér
vegna eins einangraðs orðs, sem rifið
varúr samhengi ræðu minnar.
Ég mælti aldrei gegn íslamskri menn-
ingu...þaðer verk einhverra vinstri-
sinnaðra fjölmiðlamanna sem vildu
setja blett á ímynd mlna og eyði-
leggja langvarandi samband mitt viö
araba og músllma."
■ Um (talskt réttlæti:
„Attatlu og fimm prósent Italskra fjöl-
miðla eru vinstrisinnuð og ástandið
meðal dómara erjafnvel verra."
■ Um dómara sem herjuðu á fýrr-
verandi forsætisráðherra, Giulio
Andreotti, vegna málefna sem
tengdust mafíunni:
„Þessir dómarar eru vitfirrtir að
tvennu leyti! I fyrsta lagi eru þeir
pólitlskt vitfirrtir og I öðru lagi eru
þeireinfaldlega vitfirrtir. Efþeirgera
þetta erþað vegna þess að þeir
eru aföðrum uppruna en restin af
mannkyninu."
■ Um sjálfan sig:
„Besti stjórnmálaleiðtogi I Evrópu og
heiminum."
„Það erenginn á leiksviði heimsins
sem getur keppt við mig."
„Vegna ástar minnar til Itallu fannst
mér að ég þyrfti að bjarga henni frá
vinstrisinnum."
„Rétti maöurinn I rétta starfinu.“
„Ég þarfnast ekki embættis valdsins
vegna. Ég á hús um allarjarðir, stór-
fenglega báta... fallegar flugvélar,
fagra eiginkonu, fallega fjölskyldu...
Ég er að færa fórn."
■ Brandari sem Berlusconi sagöi
um eyðnisjúkling:
„Eyönisjúklingur spyr lækni sinn hvort
sandmeðferðin sem honum varráð-
lagt að fara I gerði honum eitthvað
gott. Nei, svarar læknirinn, en þú
venst þvldvelja neðanjarðar."
■ Svartil þeirra sem gagnrýndu
brandarann:
„Þeir hafa tapað glórunnl; þeir eru
raunverulega komnir á endastöð, og
jafnvel enn lengra. Ég myndi einnig
ráðleggja þeim að fara (sandmeð-
ferð."
örnu ferðafrelsi
www.ferdaval.is
FERÐAVAL Lund
i við Vesturlan