Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 16. APR(L 2008 Neytendur PV neytendur@dv.is Umsjón: Ásdís Björg Jóhannesdóttir Konureiga aðseljatæki „Ég er á þeirri skoðun að konur eigi að selja raftækisegir Jón Jósep Snæbjörnsson söngvari.„Ég hef verið að leita mér að sjónvarpi núna í fjögur ár. Búinn að labba búð úr búð og ekki fundið neitt. Svo tekst Sif, verslunar- stjóra (Bræðrunum Ormsson (Kringlunni, að selja mér eitt á stuttum tíma. Ég held að karlar trúi betur konum þegar þær selja eitthvað sem maður býst ekki við að þær viti um. Raftæki eru yfirleitt strákatól. Fannst þetta alveg sérstakt og alsæll með nýja sjónvarpið mitt." VERDKONNUIV JóiFeldýrastur Vínarbrauðslengja er vinsæll sælkerabiti með kaffinu. Lengj- umar em ekki ódýrar og er rúmlega hundrað króna mun- ur á dýmstu og ódýmstu lengj- unni. VINBRAUÐSLENGJA Kornið 490 Sandholt bakari 490 Okkar bakarí 490 Bakarinn á hjólinu 510 Mosfellsbakarí 520 Bakarameistarinn 555 HjáJóaFel 595 1 [ Ál/heimm 145,60 BUNSlN 156,50 lllNBI. Pjjjj] mo/ða 145,90 lll'NSlN 156,90 . , DlSR.I. i Smdranum 149,60 llliNSIN 159,50 lllNSI. DOistorgl 144,50 HBNSlN 155,80 lliNI'l. Q3 Barðastððum 144,60 UBNSÍN 155,90 lllNEI. VatnagorOum 145,90 UBNSlN 157,00 uInri. r-.-'i StárogtrOi 149,70 UKNSlN 159,60 UlNIX Hægt er að spara sér mörg hundmð þúsund á ári með því að hætta að reykja. Það sést þegar kostnaðurinn er tekinn saman. Þótt mörgum finn- ist ekki muna um 500 til 1000 krónur á dag þá safnast þegar saman kem- ur. Tíminn sem fer í það að reykja sígarettur er líka töluverður. Sá sem vakir ( 16 klukkustundir á dag og reykir einn og hálfan pakka kveikir sér í sígarettu á hálftíma fresti. 50 þúsund á mánuði Hjón sem reykja einn og hálfan pakka á dag hvort um sig eyða 1.830 krónum á dag í sígarettur miðað við að pakldnn kosti 610 krónur. Það em 12.810 krónur á viku og rúmlega 50 þúsund krónur á mánuði. Ef hjón- in hafa 200 þúsund í ráðstöfunar- tekjur á mánuði eyða þau fjórðungi þess fjár í tóbak. Fyrir sömu ráðstöf- unartekjur þarf að greiða lán, kaupa í matinn og setja bensín á bílinn. Ef þau hins vegar ákveða að hætta að reykja og leggja peningana til hliðar gætu þau keypt sér eitthvað sem þau hefur dreymt um. Miðað við gengið HVAÐ ER MEÐAL ANNARS I SIGARETTUM? TJARA - KKstraö brúnt efni sem litar fingur og tennur. Veldur krabbameini. KOLSÝRUNGUR - Eitruð lofttegund sem er Kfshættuleg I stórum skömmtum, sérstaklega á meðgöngu. NIKÓTlN - Ávanabindandi efni sem eykur hjartslátt, hækkar blóöþrýsting og önnurefnaskipti. ACETON - Almennt notað sem leysir. Til dæmis til að ná naglalakki af nöglum. AMMÓNÍAK - Eitrað viö innöndun. Ætandi. ARSENIK - Eitrað við inntöku og innöndun. BENZEN - Notað sem leysir (bensín og vlð efnaframleiðslu. KADMfUM - Mjög eitraður málmur. Notaður meðal annars (rafhlöður og málningu. FORMALDEHÝO - Eitrað við snertingu við húð og við innöndun og inntöku. Notaö viö varöveislu llkamsleifa. HÝDRAZfN - Getur valdið krabbamelni. Er eitrað og ætandi. í dag hafa innlánsvextir hækkað og því hagstæður tími til þess að leggja fyrir. ■ Hjónin eyða rúmlega 670 þús- und krónum í reykingar á ári. Til að standa straum af því að reykja einn og hálfan pakka á dag í heilt ár þurfa þessi hjón að vinna sér inn rúma eina og milljón króna. Ef ann- að þeirra er með 270 þúsund í laun fyrir skatt er sá aðili tæpa tvo mán- uði að vinna fyrir sinni eigin tóbaks- notkun. Hann þarf að vinna fimm mánuði til að geta keypt sígarettur fyrir þau bæði. Tíminn sem fer í það að reykja er einnig töluverður. Sá sem vakn- ar klukkan átta á morgnana og fer að sofa klukka tólf á miðnætti eyð- ir tveimur klukkustundum í það eitt að reykja. Það eru fjórtán klukku- stundir á viku. Ávinningur aö hætta Heilsufarslegur ávinningur er „Á hverjum degi deyr einn íslendingur af völdum reykinga mikill af því að hætta að reykja. Lík- umar á lengra og heilbrigðara lífi aukast. Eftir 15 ár í reykleysi eru lík- umar á að fá lungnakrabbamein orðnar álíka miklar og hjá þeim sem hafa aldrei reykt. Fyrir hjón sem reykja og eiga börn minnka líkurn- ar á því að þau geti deilt ævikvöldinu með þeim. Heilsufarsleg vandamál verða algengari og fé milli handanna verður minna því stöðugt þarf að kaupa tóbak. Til dæmis átta marg- ir sig ekki á því að sá langvinni hósti sem þeir em með sé af völdum reyk- inga því lungun fá ekki það súrefni sem þau þurfa. Það em því margar góðar ástæður til að gefa tóbaksdjöf- ulinn upp á bátinn og nýta tíma og peninga í eitthvað annað. HVAÐ SPARAST VIÐ AÐ HÆTTA AÐ REYKJA? 1,5 pakkiádag Einstaklingur Hjón Ádag 915 1.830 Áviku 6.405 12.810 Á mánuói 25.620 51.240 Áeinuári 333.975 667.950 Átak gegn röngum verðmerkingum: OSKA EFTIR SJALFBOÐALIÐUM ■ Lofið fær Saltfélagið á «1 ~ t Grandagarði. Þarer rekin glæsileg ;* ESÍ verslun í gamla Ellingsen-húsinu. Hægt er að fá sér rjúkandi kaffi áTe og kaffi í fallegu umhverfi og þjónustan öll til fyrlrmyndar. Staður sem mann langar að koma aftur á. lof&last « Lastið fær hárgreiðslustofan Krista. Dyggur *vnfiL viðskiptavinurfór í klippingu fyrir stuttu og blöskraði þegar kom að þvi að borga. Herraklippingin hafði hækkað um heilar þúsund krónur síðan hann kom siðast eða fyrir tveimur manuðum. Klippingin kostar nú 3.700 krónur. Neytendasamtökin hafa boðað til átaks gegn röngum verðmerldngum. Átakið fer ffam milli þrjú og sex í dag í verslunum landsins og hvetja samtök- in alla til að taka þátt. Markmiðið með átakinu er að fá verslanir til að sinna stnum verðmerkingum betur. Samkvæmt lögum eiga allar vörur. að vera verðmerktar. Það er því miður of algengt að annaðhvort vanti verð- merkingu eða verðmerkingin sam- ræmist ekki kassaverði. Einnig eru dæmi um að hlutur sem auglýstur er á tilboði er ekki á tilboði þegar kom- ið er á kassa. Lélegar verðmerking- ar eru ekki nýtt fyrirbæri og margir viðsldptavinir eflaust látið sér nægja að borga nokkurra króna mismun á kassa. Neytendasamtökin hafa lengi gagnrýnt það. Þau telja að nú sé tími aðgerða runninn upp. Með sam- ræmdu átaki er hægt að hafa áhrif og gera verslunareigendum ljóst að al- menningur sætti sig ekki við ófull- nægjandi, rangar eða engar verðupp- lýsingar. Kaupa inn á venjulegan hátt en athuga verð gaumgæfilega og skrá hjá sér. Þeir sem hafa áhuga á því að leggja þessu góða málefni lið eru beðnir um að hafa samband við Neytendasam- tökin ísíma 545 1200 eða senda tölvu- póst á netfangið ns@ns.is. Nánari upplýsingar um þátttökuna fást þar. I Kaííi .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.