Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Page 17
HEILSA OG FEGURÐ
Undanfarin 9 ár hefur stofan verið styrktaraðili
keppninnar Ungfrú ísland og séð um nagla-
snyrtingu stúlknanna ásamt því að velja sína
eigin LCN-stúlku. Meðal LCN-stúIkna má nefna
Unni Birnu Vilhjálmsdóttur, Sif Aradóttur og
Jóhönnu Völu Jónsdóttur.
í maí nk. verður stofan flutt íTurninn í
Smáranum í Kópavogi og munu þar starfa
6 naglafræðingar, 7 snyrtifræðingar, 2
nuddarar, förðunarfræðingur, sérfræðingur í
brúnkusprautun og fótaaðgerðafræðingur. Einnig
verður áfram starfræktur LCN-naglaskólinn sem
útskrifar naglafræðinga en skólinn er vel kunnur
fyrir vönduð og fagleg vinnubrögð og hefur
notið mikilla vinsælda.
Áfram verður boðið upp á fyrsta flokks þjónustu
og fyrsta flokks snyrtivörur.
LCN býður áfram upp á hágæða gelneglur
sem innihalda engin skaðleg efni og eru
sérstakega ofnæmisprófaðar. Einnig eru í
boði sérstakar meðferðir fyrir fólk sem nagar
neglurnar.
Auk hinna vinsælu vara frá LCN verða nýjar
og háþróðaðar snyrtivörur frá ísrael, GIGI, á
boðstólum. GIGI-vörurnar eru mjög vandaðar
og innihalda gæðaefni úr Dauðahafinu. Mikið
er um nýjar og byltingakenndar meðferðir sem
snyrtifræðingar okkar bíða spenntir eftir að
kynna fyrir nýjum sem gömlum viðskiptavinum.
Gjafakort frá Heilsu og fegurð eru tilvalin gjöf
fyrir bæði dömur og herra en þau er hægt að
láta útbúa eftir þörfum og smekk hvers og eins.
S: 568-8850