Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Qupperneq 23
PV Sport Islandsmeistari á þingi Aiit undir í Siáturhúsinu -j i x _____ l;AUPÞ|fsjB WJ ■■■ 1 I W 8 É H0 ■ 1 -JMm tl £3 1 1 m P ~~ M jK- ' l . /y; jr IV FRAMARAR UNNU GÓÐAN SIGUR í BARÁTTUNNI UIVI ANNAÐ SÆTIÐ í N1-DEILD KARLA í HANDKNATTLEIK. HÁSPENNA RÍKIR FYRIR ODDALEIK KEFLAVÍKUR OG ÍR í ÚRSLITAKEPPNINNI í KÖRFUKNATTLEIK. BLS. 24-25. Þórir Ólafsson veit af áhuga Fram þótt hugur hans stefni ekki til íslands. Félög hafa spurst fyrir um hann: VILLVERA ÁFRAM í ATVINNUMENNSKU „Mig langar að vera áfram í atvinnumennsku. Okkur fjölskyld- unni líður vel í Þýskalandi og stefnan er að vera úti í 2-3 ár til viðbótar allavega," sagði Þórir Ólafsson við DV í gær en háværar raddir hafa verið um að hornamaðurinn knái sé á teikniborði Viggós Sigurðssonar hjá Fram og heimildir DV herma að Viggó hafi haft samband við Þóri. „Ég veit hvemig deildin er heima og að hverju maður gengur. Það er auðvitað frábært að vera undir stjórn Viggós enda frábær þjálfari," sagði Þórir en ítrekaði að hann langaði að vera áfram erlendis. Þórir leikur með liði Tus Lubecke í Þýskalandi og vegna mikillar fall- baráttu skýrast mál hans ekki strax. „Það er svipað í gangi hjá stjórninni og var í fyrra. Við vitum ekki enn hvort okkar bíður úrvalsdeild eða 1. deildin þannig að mín mál eru í bið- stöðu. Samningur minn rennur út eftir tímabilið," segir Þórir. „Það hafa verið einhverjar fýrirspumir um mig frá öðmm liðum en umboðsmaður minn hefur sagt að málin skýrist eftir svona 2-3 vikur. Þá verðum við að taka ákvörðun um hvar ég verð á næsta ári. Við stjómin höfum ekki talað mikið saman en ef samningar nást stendur ekkert á mér að leika í 1. deildinni í Þýskalandi. Við emm núna búnir að vera í fallbaráttu tvö ár í röð þannig að ég get alveg eins verið í toppbaráttu í 1. deildinni," segir Þórir sem býst við erfiðum lokaumferðum hjá sínum mönnum. „Við vomm í svipuðum málum í fýrra þar sem við þurftum að vinna mikilvæga leiki undir lokin og það heppnaðist þá. Ég sé þetta ekki ráð- ast fýrr en í lokaumferðinni en ég er nokkuð bjartsýnn," sagði Þórir Ólafs- son að lokum. tomas@dv.is Þórir Ólafsson Lfkar veran f Þýskalandi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.