Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 16.APRIL2008 Sport PV N1 DEILD KARLA IBV-Afturelding frestað Haukar-Akureyri 29-27 Valur-HK 22-25 Fram-Stjarnan 33-30 Staðan Lið L U J T M St 1. Haukar 25 19 4 2 741:645 42 2. HK 25 15 2 8 690:630 32 3. Fram 25 15 2 8 718:700 32 4. Valur 25 13 4 8 688:624 30 5. Stjarnan 25 11 4 10 727:687 26 6. Akurey 25 8 4 13 696:698 20 7. UMFA 24 3 3 18 580:650 9 8. (BV 24 3 1 20 623:829 7 * Haukar orðnir meistarar, Afturelding og (BV eru þegarfallin. Rooney framtíttarfyrirliði Landsliðseinvaldur Englendinga spáir því að Wayne Rooney sé framtíöarfyrir- liði Englands en segir hann enn eiga eftir að fullmótast Fyrirliðastaðan hjá enska landsliðinu hefur verið mikið I umræðunni en Capello hefur ekki enn ákveðið hververði leiðtogi liðsins og ætlaraðhalda áffam að gefa nýjum mönnum tækifæri með bandið (æfingarleilgum.„Rooney er ungur en ég hef trú á þvl að hann verði fyririiði Englands einn daginn. Hann er leiðtogi og sýnirgottfordæmi inni á vellinum.Við þurfum að gefa honum aðeins meiri tíma til að fá meiri reynslu og mótast hann hefurgotttækifæri til þess," sagði Capello. Englendingar leika næst gegn Bandaríkjamönnum (maí og segist Capello ekki hafa tekið ákvöröun um hver leiði liðið út á Wembley.„Ég hef ekki ákveðið hver verður fyrirliði (næsta leik en ég trúi þvi að Rooney verði fýririiði (ffamtiðinni. Hann er hæfileika- ríkasti ungi Englendingurinn. Hann er góöur (öllu. Það eina sem hann mætti bæta er að klára færin betur en það mun koma." Robbia Fowiar (bikarúrslitum7 Svo gæti faríð að Robbie Fowler, framherji Cardiff og fýrrum Liverpool- hetja, nái að leika úrslitaleikinn í FA- bikamum gegn Portsmouth, en meiðsli hafa hrjáð kappann að undanfömu. Fowler á enn eftir að leika á árinu og fór nýlega (skurðaðgerð en er byrjaður að æfa að nýju. Dave Jones, ffamkvæmda- stjóri Cardiff, staðfesti að Fowler gæti spilað innan skamms.„Robbie gæti spilað á næstunni og vonandi verður hann með okkur í baráttunni (lok tímabilsins," segir Jones. Ljungberg att braggast Freddie Ljungberg, leikmaður West Ham, er að koma til baka að nýju eftir meiðsli á hásin. Ljungberg hefur ekkert leikið slðan (síðasta mánuði gegn Sunderiand en óttast var að meiðslin væru alvarlegri og aö þessi knái Svfi myndi jafnvel missa af EM (sumar. Ljungberg er hins vegar allur að koma til og hann gæti leikið að nýju með West Ham um helgina þegar að liðið mætir botnliði Derby.„Þessi meiösli voru svoKtið sérstök, sérstaklega þar sem þau voru nokkuð sársaukafull," sagði Ljungberg viðTheTimes en komið hefur (Ijós að hásin er ekki slitin eins og óttast varátímabili. Tyson býttur Gascoigne hjálp Boxarinn MikeTyson hefur boðið fýrrum enska landsliðsmanninum Paul Gascoigne hjálp sína til þess að komast á beinu brautina á ný. Gascoigne ku eiga viö mikinn áfengisvanda að stríðaenfyrir skömmu fékk hann taugaáfall og eyddi tveimur vikum á spítala. „Ég þekki Gazza og ég get hjálpað honum. Toppíþrótta- menn lenda oft í vandræðum ( einkalífinu. Ég lenti I þeim og er tilbúinn að gefa af mér til að hjálpa honum. Fyrir mér er hann enn stórstjama og mig langar að hitta hann," segirTyson sem hitti meðal annars Wayne Rooney fyrir nokkmm ámm til þess að hjálpa kappanum þegar hann var í lægð. Keflavík og ÍR mætast í oddaleik í undanúrslitum Iceland Express-deildarinnar í kvöld. ÍR vann fyrstu tvo leikina en Keflavík svaraði með tveimur sigrum og endurskrifaði þannig söguna. DV tók fyrirliða liðanna tali fyrir stórleikinn í kvöld. „Við höfum ekki mætt til leiks í síð- ustu tveimur leikjum og við höf- um látið vaða yfir okkur á skítugum skónum," sagði Eiríkur Önundarson, fyrirliði ÍR, þegar DV spjallaði við hann um oddaleik ÍR og Keflavíkur sem fram fer í Toyota-Sláturhúsinu í Keflavík í kvöld. „Mér hefur fundist við vera ragir eða hissa að vera í þess- ari stöðu að geta komist í úrslitaserí- una og því ekki verið að sækja sigur heldur frekar haldið að þetta kæmi af sjálfu sér." ÍR vann fyrstu tvo leikina og þurfti því aðeins einn til að koma sér í úrslitarimmuna en hefur nú tapað síðustu tveimur leikj- um stórt. „Við ætlum að mæta öllu sterkari til leiks á morg- un og veita þeim verðuga samkeppni um sætið í úr- slitunum," sagði Eiríkur ákveðinn. „Þetta er alveg skelfilegt," svar- aði Eiríkur þeg- ar blaðamaður minntist á mun- inn á frammi- stöðu ÍR-liðsins í síðustu tveimur leikjum á móti hinum tveimur gegn Keflavík og leikjunum í einvíginu gegn KR. „Fram að þessum leikjum vil ég meina að við höfum spil- að fimm góða leiki og það er alveg hrikalega dapurt að falla niður á svona lágt plan. Við mætum samt kokhraustir á morgun enda höfum við engu að tapa. Ég er mjög brattur fyrir kvöldinu og mannskapurinn hefur fulla trú á að við getum unnið þennan leik þrátt fyrir að hafa leikið illa í síðustu tveim- ur leikjum. Það er eins og við höfum stundum gleymt því að við erum litla liðið í þessu og misst þannig svolítið einbeitinguna. Nú kemur samt ekkert annað til greina en sigur en tap þýð- ir bara að við getum pakkað niður í sumarfrí," sagði Eiríkur að lokum. Myndbönd sýndu hvað við vorum lélegir „Takmarkið er mjög einfalt fyr- ir kvöldið og hefur verið það í all- an vetur. Að vinna og kom- ast í úrslitin," sagði Magnús Þór Gunnarsson, fyrir- liði Keflavíkur, brattur þegarDV spjallaðivið hann í gær en Kefla- vík lenti 2-0 undir í rimmunni. „Við vor- um orðnir kærulausir og héldum að við værum svo rosalega góðir að það gæti enginn unnið okkur. Við fengum þarna gott spark í rassinn og ÍR-ingarn- . ir hjálp- uðu okkur Hlynur Bæringsson Og Snæfelt bíða i úrslitunum. mikið í því," sagði Gunnar kátur. Hinn 19 ára gamli Þröstur Leó Gunnarsson hefur stigið upp í síðustu tveimur leikjum hjá Keflavik „í vetur voru alltaf sömu mennirnir að skora hjá okkur og það er eins og menn hafi gleymt Sigga [Sigurði Þorsteinssyni] og Þresti. Því eru þeir að blómstra núna. Þröstur kom með mikinn bar- áttuanda inn í síðustu leild og reddaði þessu eiginlega fyrir okkur. Eftir fyrstu tvo leikina sýndi net- sjónvarpið Kef TV leikmönnum Keflavíkur myndbönd af frammistöðu sinni sem kveikti í liðinu með þeim hætti að þeir hafa valtað yfir ÍR í síðustu tveimur leikj- um. „Þessi myndbönd sýndu hvað við vor- um virkilega lélegir í fyrstu tveimur leikj- unum og það getur vel verið að við sýn- um þetta á lokahófi KKÍ þegar við höldum á Is- landsmeist- aratidin- Þetta var rosalega vel gert hjá strák- unum sem gerðu þetta og gjörsam- lega kom okkur af stað," sagði Magn- ús að lokum. Alveg sama hvor fer áfram Eftír ótrúlegan sigur Snæfeils gegn Grindavík í Fjárhúsinu á mánudags- kvöld spurði DV Hlyn Bæringsson, miðherja Snæfells, hvaða liði hann vildi mæta í úrslitum. „Ég vil fá Kefla- víkurliðið sem spilaði fyrstu tvo leik- ina gegn ÍR eða ÍR-liðið sem spil- aði seinni tvo leikina gegn Keflavík en það er því miður ekki hægt. Mér finnst Keflavík líklegra til sigurs en í raun er mér alveg sama hvoru lið- inu við mæt- um,“ sagði Hlynur Bærings- son. £8k Einkur Ónundarson Vill komast i úrslit um. Þróttur vann Stjörnuna 3-2 í úrslitum íslandsmóts karla í blaki í gærkvöldi: Þróttur tryggði sér oddaleik Þeir blakunnendur sem lögðu leið sfna í íþróttahús Kennaraháskólans í gær voru hvergi sviknir. Fyrsta hrin- an gaf tóninn því hana unnu Þróttar- ar 30-28 eftír að jaftit hafði verið á öll- um tölum. Þeir höfðu svo undirtökin mestalla aðra hrinuna sem þeir unnu 25-23. Garðbæingar vöknuðu þá til iífsins og unnu næstu tvær hrinur sannfær- andi, 17-25 og 22-25. I hönd fór mögnuð lokahrina þar sem bæði lið sýndu sínar bestu hlið- ar. Þróttarmenn stóðu með pálm- ann í höndunum í stöðunni 14-12 en Stjömumenn tóku leikhlé, end- ursldpulögðu sig og jöfnuðu í 14-14. Liðin fylgdust áffarn að, buðu upp á brjálæðislegar bjarganir ýmist með fótum eða höndum eða úrvals smöss. Þróttur hafði loks sigur í hrinunni 21- 19. Michael Overhage, spilandi þjálf- ari Þróttar, sagði sína menn hafa skort trúna á að þeir gætu unnið Stjömuna til að gera fyrr út um leikinn. Stjaman hefur unnið nær allt sem í boði hefur verið undanfarin fimm ár. „Þetta var mjög góður leikur. í svona spennu er erfiðast fyrir leik- menn að halda einbeitíngunni og vera ákveðnir án þess að fara ffarn úr sér. Við unnum Stjörnuna einu sinni í vemr en það dugði ekki til að við hefð- um fulla trú á að við væmm jafngóðir eða betri en þeir. Liðið hefur nú öðl- ast mikið sjálfstraust og oddaleikur- inn ættí að verða stórkostlegur." Vignir Þröstur Hlöðversson, þjálf- ari Stjömunnar, var vonsvildnn með að Garðbæingum skyldi ekki tak- ast að innbyrða títilinn. „Við vorum á hælunum fyrstu tvær hrinurnar en sýndum okkar rétta andlit seinni þrjár. Ég hélt við værum komnir með leikinn því við vorum skrefinu á und- an í þriðju hrinunni. En þetta var æð- islegur leikur." Liðin mætast í odda- leik í Garðabæ á fimmmdagskvöld. Þrótmr íhugar kæm vegna mistaka starfsmanna í fyrsta leiknum. Kæran hafði ekki borist í gærkvöldi. Hún hef- ur engin áhrif á hvort oddaleikurinn fari fram eða ekki. Þróttur Neskaup- stað tekur á mótí Þróttí Reykjavík í oddaleik í úrslimm kvenna í kvöld klukkan 19.30. Sigurreifir Þróttarartryggðu sér oddaleik með góðum sigri á Stjörnunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.