Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 16. APRlL 2008
Sport DV
ÍÞRÓTTAMOLAR
ARNÓR AÐ STANDA SIG
Arnór Smárason, leikmaður Heerenveen
I Hollandi, skoraði enn einu sinni fyrir
varalið félagsins gegn AZ Alkmaar.
Leikurinn var
spilaður á aöalvelli
liðsins og mætti
töluverðurfjöldiá
völlinn. Heeren-
veen vann leikinn
3-1 og skoraði
, Arnórfýrstamark
liðsins. Hann átti
síðan sinn þátt í
báðum hinum
mörkunum. Landsliðsmaðurinn Aron
Einar Gunnarsson var fyrirliði AZI
leiknum.
ERNIR SAMDIVIÐ VAL TIL 2011
Það virðist (tlsku hjá handboltamönnum
að skrifa undir langa samninga þessa
dagana. Rúnar Kárason gerði langan
samning við Fram ekki alls fyrir löngu og
nú hefur Emir Hrafn Amarson gert
langan samning við Val. Ernir er
örvhentur og kom frá Aftureldingu fyrir
tlmabilið I fyrra og varð (slandsmeistari
með liðinu á sínu fyrsta ári. Ernir hefur átt
við meiðsli að stríða frá þvl f byrjun
tímabilsins þegar hann fékk þungt högg
gegn slnum gömlu félögum.
BIRGIRKOMINNÍPÁSU
Okkarfremsti kylfingur Birgir Leifur
Hafþórsson mun ekki spila á Evrópu-
mótaröðinni fyrr en (maí. Birgir komst
ekki inn á næsta mót sem fram fer á
Eaj Evrópumótaröð-
\ ' inni I golfi en það
----hefst í Kína á
fimmtudag. Birgir
var á biðlista ásamt
fleiri kylfingum
sem eru I hópi
þeirra sem komust
í gegnum
lokaúrtökumót
Evrópumótaraðar-
innar. Birgir hefur leikið á 6 mótum á
þessu tímabili á Evrópumótaröðinni og
hefur hann náð (gegnum niðurskurðinn
á þremur þeirra. Hann er í 240. sæti
peningalistans á Evrópumótaröðinni en
115 efstu (lok keppnistfmabilsins á þeim
lista halda keppnisrétti slnum.
BRYNJAR SPILAÐI f GÆR
Brynjar Björn Gunnarsson, landsliðsmað-
ur og leikmaður Reading, spilaði í gær
sinn fyrsta leik slðan um miðjan janúar.
Brynjar hóf æfingar I slðustu viku eftir
aðgerð sem hann gekkst undir á nára.
Næsti leikur Reading er á Ashburton
Grove þar sem Arsenal hýsir Emirates-
völlinn og vona Reading-menn að
Brynjar verði orðinn klár I slaginn fyrir
þann leik.
, HANNESTIL BURGDORF
Hannes Jón Jónsson handknattleiks-
maður hefur gert tveggja ára samning
við Hannover Burgdorf f þýsku annarri
deildinni. Liðið er þar I sjötta sæti í
norðurdeild.
Hannes Jón, sem er
28ára,hefurleikið
slðastliðin þrjú ár
með Ajax í
Kaupmannahöfn,
Elverum I Noregi
og Fredericia f
Danmörku. Hann
er uppalinn fVal
þaðan sem hann
fór til IR. Fyrir í liði Burgdorfs eru Heiömar
Felixson, fyrrverandi KA-maður, og
Litháinn Robertas Pauzuolis, sem var
Islandsmeistari með Haukum árin 2003
og 2004. Þá hefur Burgdorf einnig tryggt
sér Litháann Andrius Stolmokas, sem
gerði garðinn frægan með KA á árunum
2000-2004.
FL0KKI
GAMLA FRÉTTIN
Gamla fréttin að þessu sinni birtist árið 1989. Stjarnan
varð þá íslandsmeistari í öðrum flokki í handbolta.
Liðið vann ÍR18-17 í miklum spennuleik. Alþing-
ismaðurinn Bjarni Benediktsson spilaði þennan leik
og skoraði fjögur mörk. Þetta var síðasti titill Bjarna
BENEDIKT BÚAS HINRIKSSON
bladamadurskrifcu: bei)ni@dv.is 1
Bjarni Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, var mikill
íþróttakappi þegar hann var yngri.
Á sumrin sparkaði hann tuðru
með Stjörnunni og á veturna var
harpixið komið á hendurnar þar
sem handboltinn réð ríkjum. Bjarni
var hluti af sigursælum flokki
Stjörnunnar í handboltanum sem
vann marga íslandsmeistaratitla.
Árið 1989 kom sá síðasti. Þá var
Bjarni í öðrum flokki ásamt Valdimar
Kristóferssyni, Patreki Jóhannessyni
og Sigurði Bjarnasyni, svo einhverjir
séu nefndir. Liðið lék við ÍR og hafði
nauman sigur, 18-17.
„Leikurinn var spilaður í Vals-
heimilinu að mig minnir og þetta
var alveg rosalegur leikur," sagði
Bjarni hress og kátur þegar hann
rifjaði upp leikinn. Bjarni skor-
aði fjögur mörk í leiknum eins og
Magnús Eggertsson en Valdimar var
markahæstur með sex mörk. „Þetta
var rosalega eftirminnilegur leikur.
Hann endaði með því að við fengum
hraðaupphlaup undir lokin, einu
marki yfir, en klikkuðum úr færinu.
Markvörður þeirra kastar yfir allan
völlinn, þar átti ég auðveldlega að
grípa þann bolta og var farinn að
huga að því hvað ég ætlaði að gera
næst þessar síðustu sekúndur sem
eftir voru af leiknum. En vegna þess
hvað ég var mikið að hugsa um hvað
ég ætlaði að gera við boltann eftir að
ég væri búinn að grípa hann en ekki
hvernig ég ætlaði að grípa hann, þá
missti ég hann í gegnum hendurn-
ar á mér, beint á leikmann ÍR, Jó
hann Ásgeirsson, hann stökk inn
úr horninu en náði ekki að skora
sem betur fer. Þannig að þetta
var æsispennandi alveg fram á
síðustu stundu."
Alltaf gaman að vinna titla
Bjarni og félagar náðu
þeim merka áfanga að vinna
alla yngri flokkana. Eftir það
fór árgangurinn að þynn-
ast, Bjarni og Valdimar fóru
í fótboltann en þó komu
tveir landsliðsmenn upp,
Patrekur og Sigurður sem
gerðu garðinn frægan í at-
vinnumennsku og með ís-
lenska landsliðinu.
„Ég varð fyrst Islands-
meistari í fimmta flokki
þegar við unnum Þrótt, svo
unnum við Víking í fjórða
flokki, á yngra árinu í þriðja
flokki unnum við Selfoss í
mjög efirminnilegum leik
en við klúðruðum leiknum
á eldra ári. Þannig að það var
mjög sætt að vinna þetta í öðr-
um flokki því við höfðum unnið
alla yngri flokkana.
Þetta var síðasti titillinn sem
ég vann í handboltanum því eftir
þetta fór ég í fótboltann. Sneri mér
alfarið að honum," sagði Bjarni
sem hefur verið viðloðandi
Stjörnuna eftir að skórnir
fóru upp í hillu, þó minna
sé af því upp á síðkastið
enda tímafrekt að vera
alþingismaður.
sem sneri sérað fótboltanum eftir tímabilið 1989.
Magnús Teltuon atýrðl handknoltlelkallOI Stjörnunmir úr Garúabw t> aloura á lalandamódnu I 2 Hokki. ajarnan
bar slgurorð al ÍH I talaýraim lelk. Lyktlr urOu 1B-17 Garfibmlnaum I vB. DV-mynd BS
Handbolh - 2. Gokkun
Stjaman vann
IÞROTTAGALLINN FARINN OG
JAKKAFÖTIN KOMIN f ÞEIRRA STAÐ
Bjarni Benediktsson var góður í
Stjaman tr>ggði sér íslandsmeist-
arotitilinn í 2. flokki karla 1 gær-
kvuldi, eftir sigur á ÍR, 17-lfl. Leíkur*
inn var jafn or spennandi. ÍR-ingar
byrjuöu af miklum krafti cg ldddu
framan af cn um miöjan íyrri hálf-
leik tók Stjarnan á það ráð aö taka
tvo leikmenn ÍK úr umfcrö. Viö þctta
riölaöist leikur ÍR-inca ofi Stjomunni
tókst aö jafna leikinn Ofi komast yftr.
Staðan í hálílcik var, 11-9, Stjöm-
unni i vil.
Stjaman hólt uppteknum hœtti í
síöari hálfleik. En IR hafði ekki sact
sitt siðasta orö og jafnaði lcikinn.
Eftir það var jafnt á öllum tölum en
Stjaman hafði þó frnmkvæðið. í liði
Stjuniunnar v-ar Valdúnar Kristó*
fersjon markahæstur meö C mörk
en BJami Benediksson og Mafinús
Eggertsspn skoruðu 4 mörk hvor.
1 liói ÍR var dóhann Asgeirsson
markahæstur meö 6 mörk cn Jón l*.
Eyjólfsson skoraöi S mork. BSfllR
Guðmundur Stephensen og samherjar í Eslov urðu sænskir meistarar á mánudag:
GUÐMUNDUR MEISTARI í SVÍÞJÓÐ
Borðtennismaðurinn Guðmund-
ur Stephensen varð sænskur
meistari með liði sínu Eslov eftir
sigur á Halmstad í úrslitaleik um
sænska borðtennismeistaratitili
nn. Úrslitin réðust í þriðja einvígi
liðanna en Eslow vann leikinn 5-2
og 3-0 í einvígum samtals.
„Þetta var ekkert sérstaklega
auðveldur leikur en við unnum
einvígið 3-0 og það var mjög sterkt.
Við fengum mikinn stuðning og í
kringum eitt þúsund manns komu
á hvern leik og studdu okkur. Ég er
orðinn nokkuð vanur því að spila
fyrir áhorfendur hérna úti þótt
það sé lítið um það heima. Flestir
bjuggust við því að við myndum ná
að vinna meistaratitilinn fyrirfram
þar sem við erum með mjög gott
lið." segir Guðmundur.
Borðtennis er mjög stór í Eslov
líkt og í flestum smábæjum í Sví-
þjóð. Guðmundur er ekki viss um
það hvort hann verði áfram hjá lið-
inu þar sem fleiri lið hafa borið ví-
urnar í kappann. „Ég er ekki viss
um að ég verði áfram. Lið á Spáni,
Frakklandi og í Þýskalandi vilja fá
mig til sín og ég þarf að skoða mín
mál vel áður en ég tek ákvörðun.
Næst á dagskrá hjá Guðmundi
er að fara til Nantes í Frakklandi
þar sem seinasta undankeppni
ólympíuleikanna fer fram. „Þetta
er síðasta tækifæri mitt til þess að
komast á ólympíuleikana í Peking
og vonandi nær maður að standa
sig," segir Guðmundur en til þess að
komast áfram þarf Guðmundur að
sigra riðil sinn auk leikja í umspili
um sæti á Ólympíuleikunum.
„Vissulega verður þetta erfitt en ég
á möguleika og að sjálfsögðu ætlar
maður að reyna," segir Guðmundur.
vidar@dv.is