Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.2008, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 16. APR(L 2008
Slðast en ekki slst DV
BÓKSTAFLega
„Er ekki betra að vera
fátækur músík-
ant heldur en
ríkur skrif-
stofukall?"
■ SigurðurÞór
Óskarsson,
sigurvegari
söngkeppni framhaldsskólanna, (DV.
Sigurður útskrifast úr Versló í vor og
stefnir beint í Listaháskólann.
„Rúsínan í
pylsuendan-
um var svo
leikur hjá
Rögnu og
Söru (Jóns-
dóttur) í lokin. Þær
hafa ekki spilað saman
tvíliðaleik í mörg ár en
unnu sannfærandi og án
mistaka gegn sterkum
andstæðingum. Hreinlega
rúlluðu Finnunum upp."
■ Árni Þór Hallgrímsson,
landsliðsþjálfari í badminton, um besta
árangurlslandsfrá upphafi.
„Framararnir
eru tilbúnir
að láta mig
fara og ég
samdi við
Fram á sínum
tíma til þriggja ára. Þá
sagði ég þeim að ég myndi
líldega fara út eftir tvö ár
og nú bendir margt til þess
að sú verði raunin."
■ Björgvin Páll Gústavsson, markvörður
Fram, sem er á leið í atvinnumennsku.
„Þetta er rosalega
svekkjandi."
■ Þorleifur Ólafsson sem hitti ekki úr
lokaskoti Grindavíkur gegn Snæfelli.
„Þetta liljómar ótrúlega
vel."
Sigurður
Guðmundsson
tónlistarmaður í DV.
Sigurður gefur út
plötu í maf, sem er
tekin upp á
segulband og aðeins
einn hljóðnema.
A v
„Ég tapaði mér í Karen
Millen: keypti
mér rándýra
kánu, pils,
hol ogþrjú
hlöð afskóm.
Mistökin mín
voru að fá mér
Visa-kort."
■ Kata, 18 ára stúlka í DV, sem fækkar
fötum gegn greiðslu í vefmyndavél til
þess að borga niður skuldi sínar.
„Loks er ég
sammála
Ólafi F. um
eitthvað."
■ Egill Helgason á
bloggi sfnu. En Egill
er sammála Ólafi F.
um að kaup á
Fríkirkjuvegi 11 eigi að ganga til baka.
„Við þessu er bara eitt að
segja: fokk jú og þitt boost."
■ Neytendafrömuðurinn Dr. Gunni á
bloggi sínu. Doktorinn er
ósáttur við að Boozt-
barinn hafi hækkað
verð um 100 krónur.
SANDKORX
■ Glitnir fjárfestingarbanki
hefur minnkað við sig umsvifin
upp á síðkastið. Fyrst var rekstri
bankans hag-
rætt á Norð-
urlöndum og
seinna var
atburðadeild
bankans hér
á landi leyst
upp. Þá hafa
meðlim-
ir í stjórn
og forstjóri skorið niður eigin
laun sem er afar sjaldgjæft. Það
nýjasta í málinu eru tvær upp-
sagnir hjá Glitni á ísafirði. En á
meðan í harðbakkann slær þar
fagnar Sparisjóður Bolungarvík-
ur 100 ára afinæli utar í djúpinu.
■ Löngum hefur verið vitað að
Páli Ásgeiri Ásgeirssyni sé
margt til lista lagt. Hann hefur
lengi starfað
við fjölmiðla
og var meðal
annars um-
sjónarmað-
ur helgar-
blaðs DV
fyrir nokkr-
um árum.
Frægastur
er Páll líklega fyrir störf sín sem
dómari Gettu betur spurninga-
keppninnar nú í vetur þar sem
hann fór aðeins fram úr sér í
einni eða tveimur spurningum
og var snupraður fyrir. Færri vita
líklega að hann er kynningar-
fulltrúi karlakórsins Fóstbræðra.
Og reyndar ekki bara það held-
ur, eins og kemur fram í frétta-
tilkynningu sem Páll sendi fjöl-
miðlum á dögtmum í tengslum
við tónleika kórsins, „yfirmaður
kynningardeildar Fóstbræðra".
■ Egill Helgason er ekki sáttur
við að borgarstjórn hafi ákveðið
að selja Björgólfi Thor Björg-
ólfssyni Frí-
kirkjuveg 11.
Agli h'st ekki
á hugmynd-
ina um að
„leggja bíla-
vegígegn-
um þennan
fallega garð
og loka
honum af til að fínt fólk þurfi
ekki að deila kjörum með þeim
sem labba upp í húsið neðan af
Fríkjuvegi". Egill veltir því upp
hvort þetta sé tilfinningamál
fyrir Björgólf en setur þó spurn-
ingamerki við það þar sem
langafi hans Thor jensen hafi
dáið tveimur áratugum áður en
hann fæddist. Bendir Egill þá á
að hann hafi eytt mörgum góð-
um stundum með syni sínum
í garðinum og því hafi garður-
inn líka tilfinningagildi fyrir þá
feðga.
Hátíð íslenskra heimildarmynda verður haldin i annað sinn um hvítasunnuhelgina:
É6VARAÐBÚATIL
TEKNÓ í GÆRKVÖLDI
Sigurður Guðmundsson
er að gefa út geisladisk þessa dagana ásamt
Guðmundi Kristni Jónssyni en báðir eru þeir
einnig liðsmenn reggísveitarinnar Hjálma.
Það sérstaka við disk þeirra félaga er það að
hann er tekinn upp með segulbandi en ekki
með aðstoð nýjustu tækni og vísinda sem
iðulega er kallað stafræn tækni.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn?
„Ég verð að segja grillaðaður skötu-
selur."
Hver er uppáhaldsbókin þfn?
„Það er tvímælalaust Barn náttúr-
unnar eftir Halldór Laxness. Hún er
Erfortföin heillandi?
„Tja, hún er nokkuð sem maður
hefur lært af, en vill elcki fara þang-
að aftur."
Ert þú kominn með leið á
stafrænum nútfma?
„Nei, nei, þetta var bara ein blað-
Hvaö ætlar þú að gera næst?
„Akkúrat núna er ég að taka upp
tónlist fyrir þáttinn Svalbarða. Ann-
ars er ég ekki búinn að ákveða fram-
haldið."
Eítthvað að lokum?
„Gleðilegt sumar!"
Hver ertu?
„Ég er nýlega þrítugur karlmaður og
tónlistarmaður."
Hvað drffur þig áfram?
„Það er grillmatur og sólskin, svo í
kjölfarið af steikinni kemur tónlist-
in."
yndisleg frá a til ö."
Hver er upáhaldsbíómyndin?
„Big Lebowski, The Dude heillar."
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
„Ég ætla að skjóta núna á Ruby's
Arms með Tom Waits."
síða af mörgum í tónlistarbókinni.
Ég var til að mynda að búa til teknó-
tónlist í gærkvöldi."
Skjaldborg íannaðsinn
Albert Maysles við tökur á Gimme Shelter ásamt meðlimum Rolling Stones
Maysles er heiðursgestur Skjaldborgarhátíðarinnar í ár.
Um hvítasunnuhelgina, dagana
9. til 12. maí verður Skjaldborgar-
hátíðin haldin í annað sinn á
Patreksfirði. Skjaldborg er hátíð
íslenskra heimildarmynda og segir
kynningarfulltrúi hátíðarinnar,
Gunnar Eggertsson, að hátíðin
sé fyrst og fremst vettvangur fýrir
kvikmyndagerðarfólk, sem gerir
heimildarmyndir, að fá að sýna
myndirnar sínar. „Það er mikið
kvartað yfir því að það sé erfitt að
koma heimildarmyndum í sýningar
á fslandi svo Skjaldborgarhátíðin
er skemmtilegt tækifæri jafnt fyrir
áhorfendur að sjá myndirnar því það
er svo mikil gróska í gangi og fyrir
kvikmyndagerðarmennina að sýna
myndirnar sínar," segir Gunnar.
„Á Skjaldborg í fyrra voru
frumsýndar tæplega tuttugu
íslenskar heimildarmyndir og má
búast við fleiri myndum í ár því
viðtökurnar voru svo frábærar í fýrra.
Myndirnar eru af öllum stærðum og
gerðum. Það eru sumir sem senda
inn nokkurra ára gamlar myndir
sem enn hafa ekki verið sýndar. Svo
eru aðrir sem eru bara rétt að klára
myndina sína fyrir hátíðina. Auk þess
koma líka kvikmyndagerðarmenn
sem eru með myndir í vinnslu
og sýna brot úr myndunum og fá
viðbrögð við þeim."
Sérstakur heiðursgestur hátíðar-
innar í ár er kvikmyndagerðarmað-
urinn Albert Maysles. „Maysles
er gamall jálkur frá Ameríku sem
kemur til með að sýna myndir eftir
sig, jafnt nýjar sem gamlar. En hann
gerði meðal annars mjög fræga
mynd um Rolling Stones árið 1970
sem heitir Gimme Shelter og kom
líka eitthvað að vinnslu nýju Stones-
myndarinnar."
Allar nánari upplýsingar um há-
tíðina er að finna á heimasíðunni
skjaldborgfilmfest.com. Frítt er inn
á alla hátíðina og mikið líf í bænum
meðan hátíðin stendur yfir svo það
má segja að Skjaldborg sé sannköll-
uð fjölskylduhátíð. krista@dv.is