Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 12. JÚNÍ 2008 Neytendur DV NEYTANDINN „Auðvitað er algjör skandall hvað við borgum fyrir bensínið og lánin. [ rauninni búum við við rosalega kreppu. En þrátt fyrir kreppuna er ég afskaplega ánægð með leikskólann sem sonur minn er á og fóstrumar þar eru frábærar og gott hvað þau eru mikið úti" segir Þórunn Lárus- dóttir leikkona. Samkvæmt útreikningum DV er ódýrara fyrir fjögurra manna fjölskyldu að vera heima hjá sér og lifa lúxuslífi í eina viku heldur en að fara hringinn í kringum landið með gistingu á hóteli. Það kostar einnig nánast það sama að fara eina viku í ódýrustu pakka- ferð í sólina og að fara hringinn í kringum landið. Vinningshaíar dagsins Eftirfarandi eru vinningshafar 6. júnf 2008 í leiknum DV gefur milljón. Þau hlutu I verðlaun tíu þúsund króna inneign (Bónus. DV óskar þeim innilega til hamingju. Auður Mjöll Friðgeirsdóttir Brynhildur Inga Einarsdóttir Jón Guðmundur Björnsson Magnús Waage Yrsa Örk Þorsteinsdóttir Asols björg jóhannesdóttir bladamadur skrifar: Það kostar næstum jafnmikið að fara hringinn í kringum landið á einni viku og gista á hóteli í ódýrustu gistingu og að fara í pakkaferð til Costa del Sol. DV kannaði verð á nokkrum sum- arferðum. 1 ljós kom að ódýrast er að vera heima hjá sér og lifa lúxuslífi. Þá er meðal annars hægt að fara fínt út að borða tvisvar sinnum, fara í leikhús, bíó, Húsdýragarðinn og Bláa lónið. Auk þess er hægt að gista á fínu hót- eli eina nótt fyrir minni pening en að sitja í bíl í heila viku. f útreikningum er ekki gert ráð fyrir matarkosmaði nema í sérstökum tilfellum. Öll verð- dæmi miðast við fjögurra manna fjöl- skyldu, 2 fullorðna og tvö börn undir 12 ára aldri. FERÐALAG4 Costa del Sol með Plúsferðum Kosturinn við sólarlandaferð er að maður kemst til útlanda fyrir lítinn pening. Gist erá hóteli og fyrirhöfn því engin. Aukakostn- aðurinn sem bætist ofan á þetta verð er matur og afþreying. Matarverð á Spáni er að öllum líkindum lægra en á íslandi og maður borðar minna f hitanum. Verð á mann (pakkaferð með Plúsferðum: 39.900 SAMTALS: 159.600 “F^nibof ■ Lofið fær Brimborg fyrir einstaka þjónustu.Á dögunum kom upp bilun í geislaspilara í Ford-bifreið frá þeim. Blllinn var (ábyrgð og þegar haft var samband við umboðiðvar umsvifalaust brugðist við. Geislaspilarinn reyndist vera ónýtur en nýtt tæki var umsvifalaust sett í staðinn, Brimborgarfólk fær 10 í einkunn. IQF&IAST Lastið fær Elko fyrir slæma þjónustu. — Viðskiptavinur sem keypti þar rakatæki og ryksugu fyrir nokkrum árum ^ er afar óánægður yfir því að 'W hvorki er hægt að fá sigti i " rakatækið né ryksugupoka í ryksuguna. Afar slæmt að selja vöru og viðhaldsbúnaður er ekki til. FERÐALAG1 Leiga á fellihýsi f viku: 74.700 Bensínkostnaður: 31.943* 7 nætur á tjaldstæði: 14.000 SAMTALS: 120.643 *Bíll sem eyðir 14 lítrum á hundraðið og lítrinn kostar 170,40 Keyra hringinn íkringum fsland og gista á Hótel Eddu Kosturinn við að gista á hóteli er sá að fyrirhöfn er engin. Hægt er að hoppa beint upp í uppábúin rúm eftir langa keyrslu. Hvað varðar mat er bæði hægt að velja að koma með nesti eða borða á veitingastað hótelsins. Keyra hringinn í kringum Island og gista í fellihýsi Kosturinn við að vera i fellihýsi er að maður getur bæði upplifað útilegustemn- inguna og verið óhultur gegn veðri og vindum. Ókosturinn er að fellihýsi er dýrt í leigu og rekstri. Mat verður maður sjálfur að útbúa. FERÐALAG2 Hótelgisting í 7 nætur: 101.000 Bensínkostnaður: 27.379* SAMTALS: 128.379 *BÍII sem eyðir 12 lítrum á hundraðið og lítrinn kostar 170,40 krónur. VINSÆLIR ÁFANGASTAÐIR: Reykjavík-Gautaborg: 158.300 Reykjavík-Kaupmannahöfn: 126.600 Reykjavík-Frankfurt: 144.050 Heimsókn til ættingja í útlöndum Kosturinn við að fara í heimsókn til ættingja er sá að maður þarf bara að kaupa flugfargjaldið og að maður fær að hitta ástvini. Hægt er að vera sniðugur og fylgjast með góðum tilboðum. Aukakostnaður fer í lestarferð í litla bæi og borgir eða þar sem viðkomandi býr. Gert er ráð fýrir að flogið sé með lceland Express samkvæmt verðskrá 11.júní2008. Vera heima hjá sér en lifa hátt Kosturinn við að vera heima hjá sér er að maður getur notið afslöppunar á heimilinu í faðmi fjölskyld- unnar. í samanburði við önnurferðalög getur þetta verið besti kosturinn þar sem maður þarf ekki að venjast nýjum stað og ekki ferðast lengi á áfangastað. Það er hægt að veita sér ýmsa lúxusaf- þreyingu og eytt er minni peningum en í hagstæð- ustu ferðalögum. Áhugavert er að sjá að hægt er að geraalltá listanum fyrir neðan fyrir sama pening og að keyra hringinn og gista í fellihýsi. FERÐALAG5 «8» AFÞREYING MIÐAÐ VIÐ TVO FULLORÐNA OG TVÖ BÖRN: Sund 5 x í viku: 4.000 Kaffihús 3x á Te og kaffi með kaffi og kökum: 9.240 Leikhúsferð: 7.500 Út að borða í Perluna miðað við 4 rétta máltíð og drykki: 24.310 Ferð í Húsdýragarðinn og veitingar: 3.480 Út að borða 3 rétta máltíð á Ruby Tuesday: 12.290 Ferð í Bláa lónið (börn yngri en 11 ára fá frítt): 4.800 Ferð í bíó ásamt nasli: 5.800 Keiluhöllin og Pizza Hut: 7.960 Fylling á bílinn sem dugir út vikuna (60 lítra tankur): 10.224 Hvalaskoðun hjá Eldingu: 10.000 Andlisbað hjá Laugar Spa fyrir tvo: 17.600 Börnin í Sprotaland hjá Laugum: 400 SAMTALS 117.604 KR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.