Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 12. JÚN(2008
Síðast en ekkisist DV.
BÓKSTAFLega
SAVDKORX
■ Viðtal við Asdísi Rán birtíst á
vefsíðu Sawy.com í gær. Þar fá
aðdáendur skutlunnar að bera
hana aug-
um í hinum
ýmsu undir-
fötum á milli
þess sem hún
segir mynda-
vélinniaf
hverju hún
er hin full-
komna millj-
ón dollara kona. Ásdís er dugleg
að plögga sjálfri sér á heimasíðu
Sawy, en hún er líka dugleg að
plögga samlanda sinn Brynjar
Má, útvarpsmann og söngvara,
en lagið hans Forget about Me
hljómar í þessar tvær mínútur
sem myndbandið stendur yfir.
Það er svoh'tíð kaldhæðnislegt
að kynna sjáfan sig með lagi sem
heitir gleymdu mér.
■ Dr. Gunni sem ber hag neyt-
enda ávallt fyrir brjósti hefur
nú rofið þögnina og tjáð sig um
Melabúðina sem hingað til hef-
ur verið hrósað í hástert af Vest-
urbæing-
um. Á bloggi
doktorsins
kemur fram
að hann
hafi nú tekið
ákvörðun
um að hætta
að versla
við téða
verslun þar sem verðlagið sé
hátt og lítið sé verðmerkt. Hann
segist þá jafnframt sleppa við
það að nuddast utan í viðskipta-
vini á þröngum göngunum en
þar versli Vesturbæjaraðall-
inn eins og hann orðar það og
tekur dæmi um leirkerlingar,
fiðluleikara úr sinfóníunni og
vælandi bæjarstjóra sem allir
snobbi fyrir Melabúðinni með
buxurnar á hælunum.
■ Það mátti sjá hið ótrúlegasta
fólk í á Whitesnake-tónleikun-
um í fyrradag. Allt frá mótór-
hjólatöffurum til ungra krakka.
Stefán Hilmarsson skemmti
sér vel og hélt sig frekar nálægt
sviðinu til
að byrja
með - eða
þangað til
það varð
of heitt.
Fjölnir tattú
var hæst-
ánægður
og stóð upp
fyrir greddurokkurunum í lok
tónleikanna og klappaði hátt.
Ofurskutlurnar Anna Rakel
og Addú létu sér ekki leiðast á
tónleikunum og voru komnar
á háhest undir lokin er sveit-
in tók Here I go again. Gömlu
refunum á sviðinu hefur ekki
leiðst það.
„Það er eng-
in ástæða
til að láta
þetta
verða að
einhverju
bitbeini, en
menn geta auðveldlega
gert það með því að tala
óvarlega."
■ Bjarni Benediktsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, um Baugsmálið
og viðbrögð stjórnmálamanna við
dómi Hæstaréttar. - DV.
„Konan mín segir að þeg-
ar ég sé ekki að skrifa sé
ég ekki mjög viðkunnan-
^^^Jegur, þannig
að það er
ljóst að
M skrifgera
JHÍ mér mjög
gott, bæði
tilfinninga-
lega og vitsmunalega.
Og þau gera hjónabandi
mínu raunar líka gott."
■ Matt Rees spennusagnahöfundur í
DV.
„Ég fer með nokkrum
stelpum en ég hef ekki
farið til Los Angeles síð-
an ég bjó þar fyrir fimm-
tán árum og núna er ég
svo spennt að ég bara
trúi þessu ekki."
■ Elfn Reynisdóttir sminka sem er á
leið á förðunarsýningu í LA. - Vísir.
„Égverð
líka orð-
inn góð- \
ur í golfi
begarég
kem út. Við
erum með
fínan níu holu golívöll
hérna."
■ Kalli Bjarni nýtur lífsins f golfi á
Kvíabryggju. - Séð og heyrt.
„Þetta var
yndislegur
dagur og
það sem
snerti okk-
ur dýpst
var hvað við
eigum góðar
ldur og vini."
■ Hrafnhildur Hafsteins, nýbökuð
eiginkona Bubba Morthens, var
ánægð með brúðkaupsdaginn. - Séð
og heyrt.
Hvaða manneskju í mannkyns-
sögunni myndir þú helst vilja
verja kvöldstund með?
„Arkímedes. Hann er einn besti
stærðfræðingur allra tíma."
Hver er maðurinn?
„Vinalegur og sniðugur stærðfræð-
ingur."
Hvað drífur þig áfram?
„Honey Nut Cheerios á morgnana."
Hvar ert þú alinn upp?
„í Reykjavík og Gautaborg. Pabbi var
í námi í Gautaborg og bjuggum við
þar í fjögur ár. Mér leið mjög vel þar,
en það er erfitt að bera borgina sam-
an við Reykjavík þar sem ég var sex
ára þegar við fluttum aftur heim."
Hver er uppáhaldsbókin þín?
„Ég held ég verði að segja Ástríks-
bækurnar."
Hver er uppáhalds-bíómyndin
þín?
„Happy Gilmore."
Hvers vegna stærðfræði?
„Vegna þess að þetta er langskemmti-
legasta fagið, og eina fagið sem veitir
manni fullnægju."
Hvernig fer maður að því að fá
10 í næstum því öllum fögum?
„Þetta er bara heppni."
Þú fékkst eina 9 - hvað klikkaði?
„Smá óheppni."
Átt þú þér líf utan skólans?
„Já, já, ég spila til dæmis fótbolta
með Fótbolta- og fjárfestingarfélag-
inu Söllenbergers en uppistaðan í
því er strákar úr eðlisfræðibekkjun-
um tveimur í MR. Við tókum einu
sinni þátt í Carlsberg-utandeildinni,
en núna hittumst við bara einu sinni
til tvisvar í viku og leikum okkur."
Hefur þú einhvern tímann fallið
á prófi?
„Ég held ekki, nei."
Hvað er fram undan?
„Doktorsnám í stærðfræði við MIT-
háskólann sem ég byrja í í haust. í
sumar er ég að vinna í áhættustýr-
ingunni hjá Kaupþingi."
Blindur grænlenskur piltur teflir á Djúpuvík:
Ósmeykur við ísbirni og drottningar
Mikið úrval
Hagstætt verð
Húvnnig
Klettháls: Opið
virka daga kl.8-18,
laugardaga 9-16
Suðurnes: Opið
virka daga kl.8-18,
laugardaga 9-14
MURBUÐIN
- Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi 7 Rvk - Fuglavík 18 Reykjanesbæ
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Skákfélagið Hrókurinn heldur
Minningarmót Páls Gunnarssonar á
Djúpuvík 20.-21. júní en Páll var einn
af stofnendum Hróksins og virkur
liðsmaður alla tíð.
Einn þeirra sem mæta til leiks
er Paulus Napatoq, sextán ára
gamall grænlenskur piltur sem
hefur verið blindur fá fæðingu.
Paulus kemur alla leið frá þorp-
inu Ittoqqortoormiit, nyrstu byggð
á austurströnd Grænlands. Þang-
að hafa liðsmenn Hróksins farið
síðustu 2 árin, og það var í fýrra
sem Paulus lærði manngang-
inn á undraskömmum tíma. Við
það tækifæri var Paulus gerður að
heiðursfélaga í Hróknum.
„Paulus er heiðursgestur okkar á
mótinu og gaman að fá tækifæri til
að bjóða þessum einstaka afrekspilti,
ekki bara til íslands, heldur alla leið á
Strandir norðurþar sem skemmdleg
Sigursæll Paulus lærði mannganginn
fyrir tveimur árum og sigraði á 70 manna
skákmóti (Ittoqqortoormiit um páskana.
veisla fer í hönd," segir Hrafn Jökuls-
son, forseti Hróksins.
Þegar Hróksmenn voru aftur á
ferð í Ittoqqortoormiit um páskana
sigraði Paulus á skákmóti, þar sem
keppendur voru 70. Skákhæfileik-
ar drengsins eru ótvíræðir en hann
þreifar á taflmönnunum og teflir
svo eins og alsjáandi. Paulus hefur
lfica alist upp við að bjarga sér sjálfur
við erfiðar aðstæður og hann fer til
dæmis allra sinna ferða um þorpið á
hundasleða. Þá hefur Paulus komist
í hann krappan á ísbjarnaslóðum og
hefur þurft að munda riffilinn sinn
þegar hann var einn á ferð og mætti
bangsa í ham fjarri mannabyggð. í
þeirri viðureign lét piltur sjónleys-
ið ekki hindra sig frekar en við skák-
borðið.
Paulus verður í góðum félags-
skap á Djúpuvík en á meðal þeirra
sem heiðra munu minningu Páls
Gunnarssonar með nærveru sinni
eru meistaramir Björn Þorfinnsson,
Róbert Harðarson, Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir og stórmeistaramir
Helgi Ólafsson og Henrik Danielsen.
Höskuldur Pétur Halldórsson
útskrifast með BS-próf í stærðfræði frá
Háskóla íslands á laugardaginn. Hann fékk
10 í einkunn í öllum fögum nema einu á
þeim þremur árum sem námið tók.
BARAHEPPNI
i
:
: