Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 12.JÚNI2008 Fókus DV #.r BIODOMUR Hvað heitirlagið? „MEÐ ÞÍNA SMÁMUNASÖMU BASTARÐA í ÞÍNUM FANSÍ KJÓL" Krakkar kynn- ast Kjarval í sumar gengst Listasafn Reykjavík- ur fyrir tveimur skapandi og inni- haldsríkum námskeiðum fyrir börn í Ásmundarsafni og á Kjarvalsstöð- um. Nú þegar er fullbókað á nám- skeiðið í Ásmundarsafni en nokkur sæti eru laus á Kjarvalsnámskeiðið sem stendur yfir dagana 23. júní til 4. júlí. Á námskeiðinu á Kjarvals- stöðum er lögð áhersla á að börnin kynnist Kjarval og Kjarvalsstöðum í gegnum leik, sköpun og ferðalög. Málverk Kjarvals verða skoðuð og unnin verícefni út frá þeim. Farið verður í göngutúra um nærliggjandi umhverfi og rútuferðir til fjarlægari staða eins og Gálgahrauns á Álfta- nesi og Þingvalla, en á báðum þess- um stöðum málaði Kjarval undir berum himni. DÚNDRANDIKRAFTUR Á GÖMLUM BELGJUM Rice á NASA fr;’ • askáldið Damien Rice ■ika á NASA 24. júlí. r ið greint frá því að .. Aoma fram á tónlistar- . iiTinni Bræðslunni á Borgarfirði eystri í júlílok, en hann er íslend- ingum að góðu kunnur, enda komið hingað þrisvar áður. Rice hefur nú ákveðið að gefa þeim, sem ekki eiga heimangengt á þau annnes sem Borgarfjöröur eystri er staðsettur á, færi á að heyra ljúfa tóna sína með berum eyrum. Forsala á NASA-tón- leikana hefst 19. júní klukkan 10 á midi.is og útsölustöðum mida.is. Ég held að erlendar hljómsveitir sem koma hingað til að halda tón- leika megi fara að vara sig á einu. Hiti Sign upp er allt eins líklegt að sú hljómsveit steli senunni. Eftir að hafa séð Sign tvisvar á tónleikum get ég fullyrt eitt. Aðalnúmerið má vara sig ef það ætlar ekki að verða undir í samanburðinum. Þegar Sign hitaði upp fyrir Skid Row tókst þeim svo gott sem að spila aðalnúmerið út af sviðinu. Eftir frammistöðu sína í Laugardalshöllinni í fyrrakvöld, þegar Sign hitaði upp íyrir White- snake, var ljóst að David Coverdale og félagar yrðu að hafa sig alla við ef þeir ætluðu að toppa Sign. Sign byrjuðu sinn hluta tónleik- anna afar vel og það var auðheyrt á fólki í kring að það kunni að meta piltana, hvort sem fólk kannaðist við þá fyrir eða var að heyra í þeim í fyrsta skipti. Sign eru topp tónleika- sveit, þéttir og með haug af góðum lögum. En eins vel og Sign byrjaði var það ekki fyrr en nokkur lög inn í þeirra dagskrá sem strákarnir riáðu hámarki. Eftir að þeir tóku Thank God For Silence, hugsanlega þeirra sterkasta lag, var frammistaða þeirra nær lýtalaus. Það mætti helst setja út á að Zolberg valdi að kynna Misguided, næsta lag, í stað þess að láta þau renna saman sem eina heild. Þegar þarna var komið fylgdi hvert dúndurlagið á fætur öðru og tónleikagestir orðnir vel heitir fyrir Whitesnake. En eins og Sign tók sitt sett af krafti virtust vonbrigðin ein ætla að taka við þegar Whitesnake byrjaði sína tónleika. Hljóðið var stórund- arlegt til að byrja með og á tíma- bili stóðum við, ég og tveir félag- ar mínir, okkur að því að velta því fyrir okkur hvort David Coverdale væri að mæma. Þetta lagaðist en upphafið hjá Coverdale og félögum leið fyrir annars vegar hljóðið og hins vegar kannski að hann valdi að byrja mikið til á nýjum og minna þekktum lögum. Lagavalið í upphafi bar með sér annað hvort mikinn kjark eða fífldirfsku. Hvítu snákarnir veðj- uðu á að þeim tækist að heilla fólk með nýjum lögum, fólk sem var að stórum hluta komið til að hlusta á gömlu lögin - mikið til lögin sem urðu fræg á 1987 plötunni. Og það merkilega er að þetta gekk upp. Af fyrstu fjórum eða fimm lögun- um var það bara þriðja lagið, The Deeper the Love sem allir þekktu og viðbrögðin eftir því. Önnur lög í fyrstu, eins og The Best Years, voru þétt lög og góð en kannski ekki al- veg það sem fólk á að venjast af Whitesnake. Almennt má segja um nýju lögin að þau séu Whitesnake fært til upphafsára 21. aldarinn- ar, þyngri og kraftmeiri en mörg gömlu lögin. Það voru samt gömlu slagararn- ir sem gerðu allt vitlaust í höllinni. Kannski risu tónleikarnir hæst með Ain't No Love in the Heart of the City og Give me all Your Love. Um fyrra lagið sagði Coverdale auðvit- að á sínum tíma að hann vogaði sér ekki að sleppa því af tónleikadag- skránni, þá mætti hann eiga von á hverju sem er frá aðdáendum sín- um. Þegar Whitesnake lauk sinni skyldu, fyrir utan hefðbundið upp- klapp, var ljóst að fólk vildi meira, jafnvel mildu meira. Hljómsveit- in kom út og tók Still of the Night af miklum krafti. Einn af hápunkt- um tónleikanna var eftir upp- klappið þegar Coverdale tók Sold- ier of Fortune, einn og óstuddur af hljómsveitinni. Það hefði verið frá- bær endir á góðum tónleikum hefði hann einfaldlega horfið af sviðinu eftir það lag og látið staðar numið. Svo var þó ekki og sveitin kom fram og tók eitt lag enn, nokkuð sem dró aðeins úr áhrifamættinum. En það var ljóst að fólk vildi meira og klappaði og kallaði eftir aukalög- um, svo virtist sem það ætlaði að skila árangri en að lokum hvarf sveitin á brott, sennilega í síðasta skiptiáíslandi. David Coverdale má eiga það að hann er frábær á tónleikum, kann algjörlega að stjórna salnum og ná upp stemningu. Hann virð- ist líka hafa húmor fyrir sjálfum sér og aldri sínum og gerði grín að því að hann hefði verið hérna fyrir átj- án árum. En hvað var þetta með að sleikja puttann ótt og títt? Það var ljóst eftir að Sign spil- aði að Whitesnake þyrfti að gera verulega góða hluti til að falla ekki í skuggann af ungliðunum. Hljóm- sveitin stóð að mestu undir því, var jafnvel þéttari og betri en maður þorði að vona. Segjum fimm stjörn- ur fyrir Sign og fjórar feitar fýrir Whitesnake, svo meðaltalið er fjór- ar og hálf stjarna. Brynjóljur Þór Guðmundsson það allra metnaðarlausasta helvíti sem skolað hefur á strendur Islands í lengri tíma. Dóri dna LEIKSTJÓRN: Dennis Dugan AÐALHLUTVERK: Adam Sandler, John Turturro, Emmanuelle Chriqui, Nick Swardson. YOUDON'TMESS 4 WITHTHEZOHAN WHITESNAKE, irkirki SIGN Laugardalshöll, þriðjudaginn lO.júní TONLEIKAR OGEÐSLEGA OFYNDIÐ Grínistinn Adam Sandler hefur á undanförnum þrettán árum fært manni óborganlegar gamanmynd- ir. Billy Madison, Happy Gilmore, The Waterboy, allt stórskemmtileg- ar kvikmyndir með ógleymanlegri þvælu. Kvikmyndin Don’t Mess with the Zohan er hans nýjasta afsprengi. Myndin fjallar um Mossad-sérsveit- armanninn Zohan sem grípurbyssu- kúlur með nefinu og óttast ekkert. Hann er þó kominn með leiða á því að vera sífellt að berjast og dreym- ir um að verða hárgreiðslumaður í New York. Loks sviðsetur hann eigin dauða og leitar uppi drauminn. Afgangur myndarinnar er hrotta- lega fyrirsjáanlegur, svo það sé á hreinu. Auðvitað eru nokkur atriði sem hægt er að brosa að í Zohan, en samt sem áður er um að ræða eitt metnaðarlausasta verkefni síð- ari ára. Handrit myndarinnar hefur líklega verið skrifað aftan á happa- þrennu. Grínið sjálft er barnalegt og óskaplega illa skrifað. í raun er myndin ekkert nema hundrað og þrettán mínútur af þreyttum gam- anleikurum, sprangandi um í asna- legum búningum og talandi með enn asnalegri hreim. Hinar ýmsu stjörnur mæta í gestahlutverkum og keppast um hver geti skilað af sér sem verstri frammistöðu. Chris Rock hirðir fyrsta sætið og Mariah Carey er rétt á eftir. Persónur mynd- arinnar eru jafnvel svo fýrirsjáanleg- ar, klisjukenndar og asnalegar, að gamla brýninu John Turturro tekst ekki einu sinni að peppa þetta upp. Ofan á allt gerir myndin mjög lítið úr deilum ísraelsmanna og Palestínu- manna, á þann hátt að mann langar helst til að skrifa lesendabréf í Morg- unblaðið eftir á. Sandlerinn er í tilvistarkreppu. Hann vill slíta sig frá þessari gerð grínmynda, en veskið er eflaust ekki sammála. Click, Chuck & Larry og þessi, skítamyndir, á meðan Spangl- ish, Reign Over Me eru skref í rétta átt. Sandlerinn er toppleikari, það sannaði hann í hinni stórkostlegu Punch-Drunk-Love eftir Paul Thom- as Anderson. En The Zohan má fara í rassgat fýrir mér, því þó vitleysa geti verið margs konar er þessi vitleysa AIM Festival AIM Festival, alþjóðlega tón- listarhátíðin á Ákureyri, hefst í dag. Opnunaratriðið verður með dirfskulegra móti þar sem Arn- grímur Jóhannsson flugkappi ætlar að „dansa" á svifflugvél sinni yfir miðbæ Akureyrar við undirspil vals sem sérstaklega var saminn fyrir tónlistarhátíðina. Valsinum verður útvarpað beint í Síðdegisútvarpi Rásar 2 klukkan 16.30 svo áhorfendur geta hlust- að á lagið og fylgst méð svifflugi Arngríms á meðan. AIM Festival er nú haldin í þriðja sinn en á hátíðinni er boðið upp á breitt úrval tónlistar. í fýrra komu 90 tónlistarmenn frá fjórtán löndum og að sögn skipuleggjenda verður hátíðin ekki síður glæsileg í ár. Skoða má dagskrána á aimfesti- \ val.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.