Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Blaðsíða 15
Tesla Er nýr og
betrumbættur.
Endurbætt útgáfa rafdrifna sportbfls-
ins Tesla er enn aflmeiri og sneggri
en sú fyrsta. En þrátt fyrir meira afl
skila endurbæturnar, þeirra á með-
al nýr drifbúnaður, því að bfllinn kemst nú
lengra áhverri rafhleðslu en áður.
Tesla er einn athyglisverðasti rafbíll sem
fram hefur komið til þessa. Sjálfur bfllinn er
í raun Lotus Exige en í stað bensínmótors er
rafmótor og líþíum-jónarafhlöður sem sjá
mótornum fyrir orku.
Rafmótorinn er með nánast algerlega
flata togkúrlu sem þýðir það að rafmótorinn
gefur fulla vinnslu nánast um leið og hann
byrjar að snúast en hámarksvinnslan er við
14 þúsund snúninga. Ekkierþvíþörfá flókn-
um gírkassa heldur dugar einungis einn gír.
í nýju útgáfunni hefur gfrhlutfalli þessa
eina gírs verið breytt úr 7,4:1 í 8,27:1 auk
þess sem þyngd gírkassans hefur verið
minnkuð um sjö kfló og er sá nýi 45 kfló en
sá eldri var 52 kfló. Þrátt fyrir það er hann
sagður sterkari en eldri kassinn var og þoli
það 400 Newtonmetra átak sem rafmótor-
inn gefur við 14 þúsund snúninga á mín-
útu.
Ennfremur hefur sjálfum mótornum
verið breytt. Breytingarnar felast fyrst og
fremst í því að í vafningum mótorsins og
háspennuköplum er nú hreinn koparvír í
stað víra úr kopar-álblöndu. Það þýðir að
leiðni víranna er betri en áður, minni hiti
myndast í mótornum og vinnslan eykst um
33 prósent.
Afl nýju útgáfunnar hefúr ekki verið gefið
upp en séu þessar upplýsingar bornar sam-
an við hestaflatölu eldri gerðarinnar, sem
var 248 hestöfl og 286 Nm nánast við gang-
setningu, má gera ráð fyrir að nýja gerðin
sé um 300 hestöfl. Þyngd Tesla er um 1,2
tonn þannig að hlutfall afls og þyngdar er
einungis 4 kíló á hestafl. Bfllinn kemst hátt í
400 kflómetra á rafhleðslunni.
Á næsta ári er ætlunin að markaðssetja
Tesla-sportbílinn í Evrópu og er gert ráð fyr-
ir að verðmiðinn fyrir utan skatta og gjöld
verði í kringum 10 milljónir íslenskra króna.
Þegarliggja fyrirpantanirá rúmlegaþúsund
bílum þannig að eftirspurn virðist vissulega
vera til staðar.
Ennþá er tæpast hægt að tala um fram-
leiðslu á þessum merkilega sportbfl og enn
síður fjöldaframleiðslu, því að hann er, eins
og svo margir dýrir sportbflar, handbyggð-
ur. Alls hafa um 40 bflar verið seldir fram að
þessu og alveg nýlega opnaði Tesla sölustað
í Los Angeles. En eftirspurnin er greinilega
til staðar og hún gerir sjálfsagt ekki annað
en að aukast með hækkandi olíuverði.
-SÁ