Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2008, Page 15
Tesla Er nýr og betrumbættur. Endurbætt útgáfa rafdrifna sportbfls- ins Tesla er enn aflmeiri og sneggri en sú fyrsta. En þrátt fyrir meira afl skila endurbæturnar, þeirra á með- al nýr drifbúnaður, því að bfllinn kemst nú lengra áhverri rafhleðslu en áður. Tesla er einn athyglisverðasti rafbíll sem fram hefur komið til þessa. Sjálfur bfllinn er í raun Lotus Exige en í stað bensínmótors er rafmótor og líþíum-jónarafhlöður sem sjá mótornum fyrir orku. Rafmótorinn er með nánast algerlega flata togkúrlu sem þýðir það að rafmótorinn gefur fulla vinnslu nánast um leið og hann byrjar að snúast en hámarksvinnslan er við 14 þúsund snúninga. Ekkierþvíþörfá flókn- um gírkassa heldur dugar einungis einn gír. í nýju útgáfunni hefur gfrhlutfalli þessa eina gírs verið breytt úr 7,4:1 í 8,27:1 auk þess sem þyngd gírkassans hefur verið minnkuð um sjö kfló og er sá nýi 45 kfló en sá eldri var 52 kfló. Þrátt fyrir það er hann sagður sterkari en eldri kassinn var og þoli það 400 Newtonmetra átak sem rafmótor- inn gefur við 14 þúsund snúninga á mín- útu. Ennfremur hefur sjálfum mótornum verið breytt. Breytingarnar felast fyrst og fremst í því að í vafningum mótorsins og háspennuköplum er nú hreinn koparvír í stað víra úr kopar-álblöndu. Það þýðir að leiðni víranna er betri en áður, minni hiti myndast í mótornum og vinnslan eykst um 33 prósent. Afl nýju útgáfunnar hefúr ekki verið gefið upp en séu þessar upplýsingar bornar sam- an við hestaflatölu eldri gerðarinnar, sem var 248 hestöfl og 286 Nm nánast við gang- setningu, má gera ráð fyrir að nýja gerðin sé um 300 hestöfl. Þyngd Tesla er um 1,2 tonn þannig að hlutfall afls og þyngdar er einungis 4 kíló á hestafl. Bfllinn kemst hátt í 400 kflómetra á rafhleðslunni. Á næsta ári er ætlunin að markaðssetja Tesla-sportbílinn í Evrópu og er gert ráð fyr- ir að verðmiðinn fyrir utan skatta og gjöld verði í kringum 10 milljónir íslenskra króna. Þegarliggja fyrirpantanirá rúmlegaþúsund bílum þannig að eftirspurn virðist vissulega vera til staðar. Ennþá er tæpast hægt að tala um fram- leiðslu á þessum merkilega sportbfl og enn síður fjöldaframleiðslu, því að hann er, eins og svo margir dýrir sportbflar, handbyggð- ur. Alls hafa um 40 bflar verið seldir fram að þessu og alveg nýlega opnaði Tesla sölustað í Los Angeles. En eftirspurnin er greinilega til staðar og hún gerir sjálfsagt ekki annað en að aukast með hækkandi olíuverði. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.