Fréttablaðið - 01.04.2016, Side 2

Fréttablaðið - 01.04.2016, Side 2
„Það er búið að vera alveg vitlaust að gera í allan dag. Við höfðum ekki undan að smyrja og afgreiða viðskiptavini,“ sagði Stefán Þormar Guðmunds- son sem stóð vaktina í síðasta sinn á Litlu kaffistofunni í gær. Stefán hefur rekið staðinn frá árinu 1992. „Við höfum verið að taka á móti góðum kveðjum, blómum og öllu sem tilheyrir svona degi,“ sagði Stefán. Á morgun taka nýir aðilar við rekstrinum en Olís á staðinn. Fréttablaðið/Vilhelm Veður Nokkuð hvöss austanátt í dag, en lægir talsvert sunnan- og suðvestan- lands seinni partinn. Rigning, einkum á Austfjörðum og Suðausturlandi, en slydda eða snjókoma norðaustan- lands. Hiti 0 til 8 stig, kaldast norð- austan til. sjá síðu 30 VORIÐ NÁLGAST Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 Opið kl. 11 - 18 virka daga Opið kl. 11 - 16 laugardaga VELDU GRILL SEM EN DAST OG ÞÚ SPARA R • 3 brennarar úr ryðfríu stáli • Postulínsemalerað eldhólf • Grillgrindur úr pottjárni • PTS hitajöfnunarkerfi • Kveiking í öllum tökkum • Niðurfellanleg hliðarborð • Tvöfalt einangrandi lok • Postulínsemaleruð efri grind • Hitamælir • Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu undir öllu grillinu • Einnig til 2ja brennara svart, 4ra brennara svart og rautt Er frá Þýskalandi Niðurfellanleg hliðarborð Einnig til svart hvítt og grátt Landmann gasgrill Triton 3ja brennara 10,5 KW 98.900 Skoðið úrvalið á www.grillbudin.is viðskipti Líkamsræktarstöðin Hress segir að vegna óðaverðbólgu í kjölfar hrunsins og vanefnda Hafnarfjarðar­ bæjar leggi fyrirtækið til riftun á samningi við bæinn vegna leigu á aðstöðu við Ásvallalaug. „Við erum leið yfir því að tillaga okkar að uppgjöri við bæinn sem send var í trúnaði á Sigríði Krist­ insdóttur bæjarlögmann og Geir Bjarnason íþróttafulltrúa hafi verið send til bæjarráðs og birt í heild sinni á vef Hafnarfjarðarbæjar,“ segir Linda Hilmarsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Hress, sem vill ekki tjá sig frekar um málið að svo stöddu. Hress hefur starfað í Hafnarfirði frá árinu 1987. Rakið er í bréfi lög­ manns Hress til Hafnarfjarðarbæjar að líkamsræktarstöðin samdi til tíu ára um leigu á aðstöðu við Ásvalla­ laug í febrúar 2008. Umsamin mán­ aðarleiga hafi verið 600 þúsund krónur. Upphæðin væri bundin við neysluverðsvísitölu sem síðar hafi valdi forsendubresti ásamt skorti á uppbyggingu íbúðahverfisins í kring. „Rétt eftir að skrifað var undir samninginn skall á efnahagskreppa með tilheyrandi gengishruni og óðaverðbólgu og sem óþarfi er að fara mörgum orðum um,“ skrifar lögmaður Hress sem kveður fyrir­ tækið hafa greitt uppsetta leigu fram að nóvember í fyrra. Viðræður um breytingar hafi þá staðið frá í apríl 2015. Þær hafi bæði snúist um leigu­ upphæðina sem hafi verið komin í yfir 900 þúsund krónur á mánuði og um vanefndir bæjarins á að uppfylla samninginn. „Þrátt fyrir ítrekaðar og árlegar fyrirspurnir þess efnis hefur bærinn ekki orðið við beiðnum um lagfær­ Hress vill leigu til baka og telur trúnað brotinn Félagið um líkamsræktarstöðina Hress við Ásvallalaug segir Hafnarfjarðarbæ vanefna samninga og leggur til riftun og 5,5 milljóna króna endurgreiðslu á leigu auk þess sem ógreidd leiga verði felld niður. Sakar bæinn um trúnaðarbrot. líkamsræktarstöðin hress hefur verið með samning um aðstöðu við Ásvallalaug frá febrúar 2008 en segir forsendur brostnar og vill nú losna. Fréttablaðið/Pjetur Hafnarfjörður Minnihlutinn í bæjarráði Hafnarfjarðar vill að bæjar­ yfirvöld hefji viðræður við ASÍ um aðkomu þess að uppbyggingu félags­ legra íbúða í Hafnarfirði. Í bókun minnihlutans í bæjarráði um málið segir að 240 félagslegar íbúðir séu í Hafnarfirði og þörf sé á því að fjölga félagslegum íbúðum í bænum. Leggja þau til að bæjarstjóra verði falið að óska eftir viðræðum við ASÍ um aðkomu og samstarf. „Það er ekki hlutverk sveitarfélaga að kynda bálið á fasteignamarkaði með því að selja lóðir á verði sem er langt umfram þann kostnað sem þau hafa af þeim, en það er svo sannarlega hlutverk sveitarfélaga að tryggja nægt framboð félagslegs húsnæðis,“ segir Gunnar Axel Axelsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar. Afgreiðslu málsins var frestað þar til á næsta fundi bæjarráðs. – sa Vilja fjölga félagslegum íbúðum sveitarstjórnarmál  Á árinu 2015 var hafin smíði á 926 nýjum íbúðum. Frá árinu 1972 er síðasta ár í fjórða sæti hvað varðar fjölda íbúða sem hafin hefur verið bygg­ ing á á árinu. Einungis voru fleiri íbúðir í byggingu árin 2005, 1986 og 1973. Þetta er meðal þess sem lesa má úr nýútkominni ársskýrslu byggingarfulltrúans í Reykjavík fyrir árið 2015. Í fermetrum talið var samþykkt bygging á ellefu sinnum meira magni íbúðarhúsnæðis en hótel­ bygginga í Reykjavík á síðasta ári, og eru hótel og veitingahús tæp sex prósent af samþykktu byggingar­ magni síðasta árs í Reykjavík. Að sögn byggingarfulltrúa er á síðasta ári um að ræða töluverða aukningu í byggingu nýrra íbúða frá síðastliðnum árum. „Sam­ þykkt byggingarmagn í byggingar­ áformum í Reykjavík á árinu 2015 var fyrir um 235 þúsund fermetra og 912 þúsund rúmmetra fyrir allt húsnæði.“ Fram kemur að áform um bygg­ ingu íbúðarhúsnæðis hafi verið um 64 prósent alls byggingarmagns. „Til samanburðar var samþykkt byggingarmagn árið 2014 fyrir um 136 þúsund fermetra og 531 þús­ und rúmmetra fyrir allt húsnæði. Aukning á samþykktu byggingar­ magni á milli ára var um 73 prósent eða nærri tvöföld aukning og marg­ föld ef miðað er við árið 2010 þegar einungis um 18 þúsund fermetrar og 68 þúsund rúmmetrar voru sam­ þykktir.“ – óká Ekki fleiri nýbyggingar í borginni í tíu ár ingar á húsinu í samræmi við samn­ ing aðila,“ skrifar lögmaðurinn sem kveður meðal annars ekkert bóla á lofaðri útilaug með klefum þótt átta ár séu liðin af samningstímanum. Lögmaðurinn segir Hress vilja endurgreiðslu á leigu fyrir mán­ uðina maí til október í fyrra, samtals tæpar 5,5 milljónir króna. Þess utan að fyrirtækið sleppi undan þeirri leigu sem það hafi ekki greitt frá því í nóvember og verði laust undan samningnum. Bæjaryfirvöld hafa fyrir sitt leyti lagt til óformlegt samkomulag sem meðal annars fæli í sér 24 prósent afslátt af núverandi leiguverði, „10 prósent vegna forsendubrests og 14 prósent vegna slælegs aðbúnaðar/ hönnunar“, segir í tillögu bæjarins sem Hress hafnaði. Þess má geta að Gymheilsa sem rekur líkamsræktarstöðvar við Suður bæjarlaug í Hafnarfirði og við tvær sundlaugar Kópavogsbæjar sagði í bréfi til Hafnarfjarðarbæjar í janúar að fyrirtækinu hefði borist til eyrna að rekstur Hress í Ásvallalaug væri þungur og óvissa um framhald­ ið. Lýsti Gymheilsa sig reiðubúna að hefja heilsurækt í Ásvallalaug ef möguleiki opnaðist til þess. Bæjarráð Hafnarfjarðar tók kröfu Hress fyrir á miðvikudag og fól þá bæjarlögmanni að vinna að málinu. gar@frettabladid.is 926 íbúðir fóru í byggingu árið 2015 Við erum leið. Linda Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Hress  Annasamur síðasti dagur 1 . a p r í l 2 0 1 6 f ö s t u D a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 0 1 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 E C -3 9 5 8 1 8 E C -3 8 1 C 1 8 E C -3 6 E 0 1 8 E C -3 5 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.