Fréttablaðið - 01.04.2016, Blaðsíða 4
Málþing um skólamál einhverfra
Laugardaginn 2. apríl klukkan 14 til 16.
Hvernig mætir skólinn þörfum barna
og ungmenna á einhverfurófi?
Fundarstaður: Fyrirlestrasalur Íslenskrar erfðagreiningar,
Sturlugötu 8, Reykjavík.
Nánari dagskrá á síðunni www.einhverfa.is
Fundurinn er öllum opinn.
Stjórn Einhverfusamtakanna.
Viðskipti Samlokustaðurinn Joe and
the Juice verður opnaður í Alþingis-
húsinu.
Framkvæmdir við opnun staðarins
standa yfir en gert er ráð fyrir að hann
verði formlega opnaður þegar þingið
kemur aftur saman á mánudag eftir
páskafrí.
Einar K. Guðfinnsson, forseti
Alþingis, staðfestir þetta í samtali við
Fréttablaðið.
„Starfsfólk þingsins og þingmenn
höfðu verið að kalla eftir meiri fjöl-
breytileika og hollari kosti og með
þessu er verið að koma til móts við
það,“ segir Einar.
„Kannski erum við með þessu að
fylgja eftir einhverjum svokölluðum
tíðaranda og fyrir gamlan íhaldsfausk
eins og mig er það ekkert endilega
eftirsóknarvert, en stundum lætur
maður undan tískusveiflum, þó það
gerist ekki mjög oft,“ bætir forseti
Alþingis við.
Máltíðir í Alþingishúsinu kosta 550
krónur en samlokurnar verða dýrari
þótt þær verði niðurgreiddar eins
og mötuneytismaturinn. Samloka
og lítill safi mun kosta samtals 1.500
krónur. Þessi sama máltíð fyrir hinn
almenna borgara kostar 2.100 krónur.
Daníel Kári Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Joe and the Juice, var
í Alþingishúsinu í gær og kvaðst
spenntur fyrir að opna á nýjum stað.
– sks
Þingmenn fá niðurgreiddar samlokur
„Þetta ætti að verða klárt eftir helgi,“ sagði Daníel Kári, framkvæmdastjóri Joe and
the Juice, sem vann að uppsetningu í Alþingishúsinu í gær. FréttAblAðið/Vilhelm
Viðskipti Sala Landsbankans á 31,2
prósenta hlut í Borgun í nóvember
var ekki að öllu leyti í samræmi við
lög um eðlilega og heilbrigða við-
skiptahætti fjármálafyrirtækja að
mati Fjármálaeftirlitsins (FME).
Landsbankinn seldi hlutinn til
hóps fjárfesta og lykilstjórnenda
Borgunar. Borgun er í dag talin allt
að fjórfalt verðmætari en fyrirtækið
var metið á þegar Landsbankinn
seldi sinn hlut.
Verklag Landsbankans við söl-
una var ekki til þess fallið að skila
bestri niðurstöðu fyrir bankann
að mati FME. Í tilkynningu sem
stofnunin sendi frá sér í gær kom
fram að bankinn hefði átt að leggja
mat á hvaða álitshnekki hann gæti
beðið með því að selja hlutinn í
lokuðu söluferli og kanna hvort
sérfræði aðstoð eða áreiðanleika-
könnun hefði verið til þess fallin að
veita bankanum aukinn aðgang að
gögnum og upplýsingum um félagið
í söluferlinu.
Landsbankinn tilkynnti einnig í
gær um að hann hefði komið á fót
aðgerðaáætlun til að efla stjórnar-
hætti bankans varðandi sölu eigna
til að koma í veg fyrir að sambærileg
álitamál komi upp og við söluna á
eignarhlutnum í Borgun. Þar kemur
meðal annars fram að meginreglan
sé að söluferli sé opið. Frávik frá
þeirri meginreglu verði að vera
rökstutt, skráð og háð samþykki
bankaráðs.
Lárus Blöndal, stjórnarformaður
Bankasýslu ríkisins, segir að við-
brögð Landsbankans verði rædd
á stjórnarfundi Bankasýslunnar á
morgun. Hugsanlega verði einnig
óskað eftir kynningu frá Lands-
bankanum á áformum bankans.
Bankasýslan gaf út á fundi
með fjárlaganefnd Alþingis þann
14. mars að sala Landsbankans á
hlut í Borgun hefði orðið að álits-
hnekki fyrir bankann og hann hefði
frest til mánaðamóta til að bregðast
við athugasemdum Bankasýslunnar.
Síðan þá hefur Landsbankinn
hafið undirbúning að málsókn
vegna Borgunarsölunnar. Auk þess
hafa fimm af sjö bankaráðsmönn-
um Landsbankans tilkynnt að þeir
muni ekki sækjast eftir endurkjöri
á aðalfundi bankans þann 14. apríl.
– ih
Salan á Borgun ekki í samræmi við lög að mati Fjármálaeftirlitsins
Neðri-Þjórsá öll í nýtingarflokk
l Í skýrslunni er gerð tillaga um flokkun 25 virkjunarkosta og svæða:
l Í nýtingarflokk: Skrokkölduvirkjun, Holtavirkjun, Urriðafossvirkjun, Austur
engjar, Hverahlíð II, Þverárdalur og Blöndulundur.
l Í verndarflokk fari fjögur svæði: Héraðsvötn (Villinganesvirkjun, Skata
staðavirkjanir C og D), Skjálfandafljót (Fljótshnúksvirkjun og Hrafna
bjargavirkjanir A, B og C), Skaftá (Búlandsvirkjun) og Þjórsá vestur (Kjal
ölduveita).
l Í biðflokk: Hólmsá (við Atley og án miðlunar), Búðartunguvirkjun, Haga
vatnsvirkjun, StóraLaxá, Trölladyngja, Innstidalur, Hágönguvirkjun,
Fremrinámar, Búrfellslundur og Austurgilsvirkjun.
Steinþór Pálsson banka-
stjóri Landsbank-
ans hefur gefið
út að hann
hyggist starfa
áfram hjá
bankanum.
umhVerfismál Vatnasvið Skjálfanda-
fljóts, Skaftár og Héraðsvatna og þar
með stóru Jökulsánna í Skagafirði
falla í verndarflokk rammaáætlunar
að óbreyttu. Sjö nýir virkjunarkostir
falla í nýtingarflokk til viðbótar við
þá níu sem fyrir voru, og þar á meðal
tveir mjög svo umdeildir í neðri hluta
Þjórsár – Holtavirkjun og Urriðafoss-
virkjun.
Þetta kemur fram í drögum að loka-
skýrslu verkefnisstjórnar ramma-
áætlunar sem lögð var fram í gær. Í
skýrslunni er gerð tillaga um flokkun
25 virkjunarkosta og svæða, sem
Stefán Gíslason, formaður verkefnis-
stjórnarinnar, gerði grein fyrir á kynn-
ingarfundi í Hörpu í gær.
Upphaflega voru gögn vegna 81
virkjunarkosts á borði verkefna-
stjórnarinnar þegar allt er talið. Þar
af eru 47 virkjunarkostir í vatnsafli
og 33 í jarðvarma. Verkefnisstjórn
ákvað snemma árs 2015 að vísa aðeins
rúmum fjórðungi til faglegrar umfjöll-
unar hjá faghópum.
Í hnotskurn má segja að fyrstu við-
brögð viðmælenda Fréttablaðsins við
niðurstöðum verkefnisstjórnarinnar
séu blendin en þó í stórum dráttum
jákvæð – og hvort sem horft er til tals-
manna náttúruverndar eða þeirra
sem vilja ganga lengra í nýtingu. Stóra
þrætueplinu á undanförnum árum,
virkjunum í neðri hluta Þjórsár, hefur
nú að nýju verið skipað í nýtingar-
flokk. Þó er stórum spurningum vegna
stofna laxfiska í ánni enn ósvarað, en
óvissan um afdrif stofnanna urðu til
þess að Hvammsvirkjun, Holtavirkj-
un og Urriðafossvirkjun voru færðar
tímabundið í biðflokk. Verkefnis-
stjórnin komst hins vegar að þeirri
niðurstöðu að hún gæti ekki gengið
lengra við að velta þessum einstaka
þætti fyrir sér og vísar málinu áfram.
Um þetta verður deilt á næstu mán-
uðum og árum – það liggur fyrir.
Þeir sjö virkjunarkostir sem bætast
við þá níu sem fyrir voru í nýtingar-
flokki gefa rúmlega 600 megavött
(MW) ef svo fer að þeir verði allir
nýttir, en það er með öllu óvíst í dag.
Þá eru innan nýtingarflokks 17 virkj-
unarkostir og möguleiki á 1.376 MW
viðbót við orkuöflun hérlendis til
næstu ára og áratuga.
Með því að flokka vatnasvið stór-
ánna Skjálfandafljóts, Skaftár og
Héraðsvatna í verndarflokk hefur
hins vegar verið stigið risaskref í nátt-
úruvernd – um það er einhugur og
varðar það ekki síst hugmyndir nátt-
úruverndarsamtaka og ferðaþjón-
ustunnar um hálendisþjóðgarð sem
kynntar voru fyrir skemmstu.
Umsagnarferli um tillögur verk-
efnisstjórnarinnar um flokkun virkj-
unarkosta hefst 11. maí. Það stendur
til og með 3. ágúst. Þá mun verkefnis-
stjórnin ganga frá tillögum sínum til
ráðherra og afhenda þær 1. september.
Ráðherra gengur í framhaldi af því frá
tillögu til Alþingis um þingsályktun
um verndar- og orkunýtingaráætlun
– eða nýja rammaáætlun. svavar@
frettabladid.is
Þrjár stórár í vernd en Þjórsá virkjuð
Allir virkjunarkostirnir í neðri hluta Þjórsár verða í nýtingarflokki að óbreyttum tillögum verkefnastjórnar rammaáætlunar. Stórárnar
Skjálfandafljót, Héraðsvötn og Skaftá verða verndaðar. Fyrstu viðbrögð verndunar- og virkjunarsinna eru heilt yfir jákvæð.
Stóra-laxá í hreppum er ein af ellefu nýjum virkjunarkostum í biðflokki rammans að óbreyttu. FréttAblAðið/bh
1 . a p r í l 2 0 1 6 f Ö s t u D a G u r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
1
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:0
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
E
C
-4
D
1
8
1
8
E
C
-4
B
D
C
1
8
E
C
-4
A
A
0
1
8
E
C
-4
9
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
3
1
_
3
_
2
0
1
6
C
M
Y
K