Fréttablaðið - 01.04.2016, Page 6

Fréttablaðið - 01.04.2016, Page 6
ReykjavíkuRboRg Fulltrúar skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar ætla að funda með leikskólastjórum í dag vegna fjárhagsstöðu skólanna. Þungt hljóð er í leikskólastjórum vegna hagræðingarkröfu af hálfu borgarinnar í rekstri leikskólanna. Í frétt Stöðvar 2 á þriðjudag kom fram að nýjar reglur gera ráð fyrir að halli á rekstri leikskólanna færist milli ára. Þetta eykur á vandann vegna hagræðingarkröfunnar. Jón- ína Lárusdóttir, leikskólastjóri á Klömbrum, sagði sinn rekstur hafa verið tæpar tvær milljónir í mínus í byrjun árs. Svo sé gert ráð fyrir að hún spari um milljón til viðbótar á þessu ári. Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykja- víkurborgar, segir það hafa skapað vanda að borgar yfirvöld hafi ekki gefið nein svör varðandi útfærslur á hagræðingu í leikskólarekstrinum. „Þegar menn hafa þröngan fjárhag og við erum í því að herða beltið um eitt gat enn, þá er eðlilegt að menn ói við því. Sérstaklega þegar ekki lá skýrt fyrir hvaða leikreglur lágu fyrir varðandi afgang á halla frá ára- mótum,“ segir Helgi. Helgi segir að leikskólastjórar hafi haft miklar áhyggjur af því að hlutir sem þeir réðu ekki við, eins og fjöldi barna á leikskóla með þroska frávik og kostnaður sem fellur til vegna langtímaveikinda starfsmanna, myndu falla á leikskólana. Fyrr- greindir þættir hafi nú verið skil- greindir sem óhagstæð ytri skilyrði og hver leikskóli eigi ekki að bera ábyrgð á slíku. Hið sama eigi við um verðlagsþróun. „Þetta eru leikreglur sem var verið að skerpa á og ákveða hvað ætti við. Við fengum bara svör of seint og það er það sem gerist þegar menn eru stressaðir og fá ekki svör að þeir ýfast upp.“ Helgi býst við að það verði hægt að draga úr áhyggjum leikskólakennara á fundinum í dag. „Já, að einhverju leyti. Það er hins vegar vitað að það er hagræðing.“ Skóla- og frístunda- svið hafi því lagt áherslu á að þegar fjárveitingar til einstakra liða væru lækkaðar þá væri hægt að mæta því með mótvægiskostnaði. jonhakon@ frettabladid.is Þungt hljóð hefur verið í leikskólakenn- urum í Reykjavík. FRéttablaðið/Vilhelm Svörin komu seint en nú liggja reglur fyrir Fundað með leikskólastjórum í dag vegna fjárhagsstöðu leikskólanna. Svör skorti frá borgaryfirvöldum varðandi útfærslu hagræðingaraðgerða. Sviðsstjóri segir leikreglurnar nú liggja fyrir og er bjartsýnn á að það dragi úr áhyggjum. Stór brú hrundi ofan á vegfarendur í indversku borginni Kolkata í gær. Átján létu lífið hið minnsta og enn fleiri særðust. Þá festust margir vegfarendur undir brúnni og stóðu björgunaraðgerðir yfir langt fram eftir degi. Brúin var ókláruð en smíði hennar hófst árið 2009. noRdicphotos/aFp Það er það sem gerist þegar menn eru stressaðir og fá ekki svör að þeir ýfast upp. Helgi Grímsson, skóla- og frístundasviði. Þrotabú Sveinbjörns Sigurðssonar hf. Til sölu eru eignir þrotabús Sveinbjörns Sigurðssonar hf. Eignirnar samanstanda af bifreiðum, vinnuvélum, vinnupöllum, vinnubúðum og ýmsum öðrum búnaði. Eignirnar verða til sýnis næstu daga. Tilboð í eignir skulu berast í síðasta lagi föstudaginn 8. apríl n.k. til undirritaðrar. Nánari upplýsingar um eignir eru veittar samkvæmt beiðnum sem óskast sendar á netfangið hulda@LL3.is Hulda Rós Rúriksdóttir hrl. skiptastjóri þrotabús Sveinbjörns Sigurðssonar hf Vojislav seselj tók í vikunni þátt í mótmælum í serbíu eftir að dómstóllinn í haag hafði dæmt Radovan Karadzic sekan um stríðsglæpi. noRdicphotos/aFp Holland Alþjóðlegi sakadóm- stóllinn í Haag sýknaði í gær Serb- ann Vojislav Seselj af ákærum um stríðsglæpi og glæpi gegn mann- kyni í Balkanskagastyrjöldunum á tíunda áratug síðustu aldar. Seselj var náinn samstarfsmað- ur Slobodans Milosevic, forseta Serbíu, sem sjálfur var sakaður um stríðsglæpi en lést árið 2006 í fangaklefa í Hollandi, aðeins nokkrum mánuðum áður en réttar- höldunum yfir honum átti að ljúka. Seselj var ákærður árið 2003 og gaf sig strax fram. Hann var sak- aður um mörg alvarleg afbrot í stríði Serba við Bosníu-múslima og Króata á tímabilinu frá ágúst 1991 til september 1993. Dómstóllinn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að saksóknurum í málinu hafi ekki tekist að sanna að Serbar hafi stundað víðtækar og kerfisbundnar árásir á aðra íbúa Króatíu og Bosníu. „Sönnunargögnin, sem lögð voru fram og skoðuð, sýna þess í stað fram á að vopnuð átök hafi átt sér stað milli óvinahersveita sem almennir borgarar tóku þátt í,“ segir í úrskurðinum. – gb Seselj var sýknaður af ákæru um stríðsglæpi bjór, þó ekki með leggangabakteríum. noRdicphotos/Getty Pólland Pólska fyrirtækið Order of Yoni ætlar að brugga bjór úr bakt- eríum sem finnast í leggöngum kvenna, nánar tiltekið úr bakt- eríum pólska módelsins Alexöndru Brendlova. Fyrirtækið óskar nú eftir styrkjum til verkefnisins á hópfjár- mögnunarsíðunni Indiegogo. Í kynningu sinni á verkefninu segir forsvarsmaður fyrirtækisins, Wojciech Mann, að notast sé við nýjustu tækni til þess að einangra bakteríur úr leggöngum Brendlova og þær settar í bjórinn. Segir hann að með þessu fáist kjarni kvenleika í bjórinn. Jane Peyton, sem samtök gisti- heimila á Bretlandi útnefndu bjór- speking ársins í fyrra, sagði skapara bjórsins örvæntingarfulla og athygl- issjúka. „Bjórheimurinn er fullur af sorglegum karlmönnum sem halda að bjór tilheyri þeim einum og fara klámfengnar, karlrembulegar leiðir til að markaðssetja bjór,“ sagði Jane í viðtali við fréttastofu Morning Advertiser. - þea Brugga bjór úr bakteríum í leggöngum Stórslys á Indlandi 1 . a P R í l 2 0 1 6 F Ö S T u d a g u R6 F R é T T i R ∙ F R é T T a b l a ð i ð 0 1 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 E C -6 0 D 8 1 8 E C -5 F 9 C 1 8 E C -5 E 6 0 1 8 E C -5 D 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.