Fréttablaðið - 01.04.2016, Page 15

Fréttablaðið - 01.04.2016, Page 15
Ég held að allir sem hlaupa maraþon séu á flótta. Ég er ekki að segja að það sé algengt að fólk fremji glæp við rásmarkið og sé þess vegna hlaupandi næstu fjórar klukku- stundirnar (þó að það hafi eflaust gerst einhverntímann). Ég held að þetta sé bara stóri flóttinn – ekkert hræðilegur þannig séð – eirðarleysið og þráin eftir að vera á hreyfingu og ferðast milli staða. Þó að ég sé heimakær finnst mér gott að geta ferðast. Íslendingar eru vanir ferðafrelsi. Við erum ekki útilokuð neins staðar. Við tilheyrum forréttindahópi. Aðeins smærri hluti heimsbyggðar nýtur þessara gæða. Það er því bara ein- hver rómantík sem fær mig sífellt til að hugsa hvert ég myndi flýja ef ég yrði ríkisfangslaus. Maður veit aldrei ævi sína fyrr en öll er. Kannski verður Davíð Oddsson kjörinn forseti og þá er nú alveg líklegra en ekki að maður leysi vegabréfið sitt upp í sýru, pakki helstu nauðsynjum ofan í sjópoka og sæki um pólitískt hæli einhver- staðar. Hvert ætti maður að fara? Sniglaveisla við Signubakka Frakkland hefur orðspor sem griðastaður. Þar hafa ýmsir flótta- menn dvalið, meðal annars Lenín og Roman Polanski. Kannski ætti maður að forðast að flýja þangað því það gæti túlkast sem yfir- lýsing um óhreint mjöl. Það sama á við um Brasilíu og fleiri lönd í Suður-Ameríku þar sem nasistar földu sig í þykkninu – sem er synd því það er lokkandi tilhugsun að pólitískt flóttamannanef manns verði glansandi og póstkassarautt síðustu æviárin. Ef maður hugsar þetta eingöngu út frá landafræði þá væru Banda- ríkin besti kosturinn. Þar er allt sem hugurinn girnist veðurlega séð: sólarstrendur, frískt fjallaloft, bleikir akrar og slegin tún en líka himinháir skýjakljúfar, afstæðis- kenningar, djass og fokk. Það fylgir því samt uppgjöf að vera flóttamaður í Bandaríkjunum. Amerískir ríkisborgarar þurfa að heilsa flagginu og hata kommún- isma, sem enginn góður og gegn intellektúal getur samþykkt. Rússland er hins vegar álitlegt land fyrir gáfumenni. Þar gera menn vel við pólitíska flóttamenn frá Vesturlöndum. Koma þeim fyrir í panilklæddum hótelher- bergjum og dusta af þeim rykið með fjaðurbursta. Þar dvelur nú Edward Snowden og er hægt og rólega að aflíkamnast og breytast í hugmyndafræðilega Skype-vél sem útvarpað er á ráðstefnur sið- fræðinga um víða veröld. Þessi neó-kaldastríðsismi er eitt af því rosalegasta sem er í gangi í heim- inum í dag en ég held að maður yrði fljótt brjálaður ef maður væri flóttamaður í Rússlandi. Að vísu held ég að hið rússneska brjálæði sé fegurst allra brjálæða og eru Mæjakofskí, Tsvetæfa, Jesenín og allt inntekið stryknín þeirrar álfu vitnisburður þess. Julian Assange í kassa Svo er það Bretland sem er líka sæmilega innréttað land fyrir gáfumenn. Þar getur maður hangið með spennandi flótta- mönnum eins og Julian Assange, sem lítur út eins og hann sé úr postulíni. Enda er hann geymdur í stofufangelsi í sendiráði Ekvador í London og líklega settur ofan í kassa með frauðplastkúlum á nóttunni með Sony Vaio-far- tölvuna í kassa við hliðina. Stofu- fangelsi er kannski eina raunhæfa útlegðin ef maður er í Bretlandi. Ekki er veðrið til þess fallið að eyða tíma utandyra. En ekki fer maður að kvarta yfir veðri verandi frá Íslandi? Jú, auðvitað kvartar maður. Í því er frelsið fólgið. Það hlýtur að vera hægt að finna land sem hefur þetta allt: gott veður, aðgengi að sjó, hátt gáfnastig, dýpt, sögu, menningu og pólitískt hlutleysi í köldum imperíalisma heimsins. Það er til. Það heitir Grikkland. Hið eilífa dvalarheimili deka- dentista. Þar sem Byron lávarður dó úr hitasótt saddur lífdaga (reyndar bara 36 ára, en samt svimandi saddur) eftir að hafa hrakist frá Englandi til Frakklands og þaðan til Ítalíu í leit að frjálsari ástríðum og nautnum. En Grikkir eiga reyndar fullt í fangi. Það er talið að 70.000 hælisleitendur séu fastir á Grikklandi núna. Ekki endilega vegna þess að Grikk- land sé fyrirheitna landið heldur vegna þess að til Evrópu streyma fleiri flóttamenn en áður hefur þekkst og Grikkland, með sínum mörgu eyjum, er fyrsta strand- höggið. Kannski er það kald- hæðnislegt að í þessu sama landi mætist forréttindapésar, siðfallnir úr efsta freyðilagi samfélagsins og stríðskúgaðir borgararnir í hundraðþúsundavís. Maður spyr sig hvort þar sé pláss fyrir einn í viðbót: lítinn Einar Áskel sem hrasaði á þykkri stofumottunni á folkehjemmetinu og hruflaði á sér hnéð og heimtar nú superman- plástur og dýpri vitsmunalegar áskoranir. Aðeins ein jörð Ég lagði af stað í mitt maraþon- hlaup fyrir löngu síðan og mér líður eins og ef ég stoppa þá muni þeir koma og taka mig. En ef þeir segja að ég sé brjálaður hef ég svar við því. Ég er bara að leita að hæli. Það er bara svo miklu betra að leita heldur en að finna. Svona er þessi þversagnarkennda frjálsa hugsun. Þetta er allt „Ein- staklingsbundin upplifun“ – sem hljómar eins og eitthvað sem gæti verið yfirtitill markaðsráðstefnu í Háskólabíói þangað sem jafnvel Biskupsstofa sendir fulltrúa. Við erum nefnilega öll að reyna að fanga frelsið og það er kannski sorglegt að hugsa til þess að frelsið felst ýmist í því að kasta frá sér því sem manni er gefið eða að leita þess sem maður fékk ekki. Sólin skín og við sjóndeildar- hringinn glittir í jökulrönd. Og það er svo undursamlegt að hugsa til þess að við eigum þrátt fyrir allt bara þessa einu jörð, öndum öll að okkur sama súrefninu og það eina sem við þurfum er nesti og nýir Nike Air Monarch IV. Flótti og frelsi Í dag Bergur Ebbi Ögmundur Jónasson alþingismaður Fyrir stuttu skrifaði ég grein í Fréttablaðið undir fyrirsögn-inni „Það þarf að byrja upp á nýtt!“ Frá því greinin birtist hafa margir tekið undir þetta í mín eyru og sagt að nákvæmlega þessa væri þörf. Félagshyggjufólk þyrfti að endurmeta gildi sín og alla nálgun að stjórnmálum. Staðreyndin væri sú að vinstrimenn hefðu glatað tiltrú vegna þess að sjálfir hefðu þeir misst trú á eigin lausnum. Ný-ung Einhverjir skildu skrif mín svo að ég væri að segja Vinstrihreyf- ingunni – grænu framboði sér- staklega til syndanna, vildi stofna nýjan flokk og molaskrifari Frétta- blaðsins gantaðist með að í slíkum flokki kæmi ungliðahreyfingin án efa til með að heita Ný-ung. Það er prýðisnafn. Hitt er annað mál að fyrir mér vakir ekki að skammast út í fólk eða flokka. Ég er einfald- lega að hvetja vinstrimenn til að ganga í endurnýjun lífdaganna með hugsjónir sínar og stefnumál. Ég er þar með að höfða almennt til allra þeirra sem vilja byggja samfélagið á samstarfi og samvinnu en ekki samkeppni og peningahyggju. Nóg komið af flokkum með „alls konar“ Jafnaðarstefna sem þorir að gang- ast við sjálfri sér á nefnilega erindi við samtímann og við framtíðina. Sanni menn til. Þegar við sýnum fram á að við ætlum að stofna sam- félagsbanka, hætta öllu daðri við hugmyndir um að selja orkufyrir- tæki, vatnsveitur, hættum að rukka sjúklinga, ræðum það í alvöru hvort miðstýrt regluverk Hins evrópska efnahagssvæðis standist kröfur okkar um fullveldi og lýð- ræði; þegar við sýnum og sönnum með gerðum okkar að við munum framfylgja félagslega ábyrgri stefnu og aldrei láta glepjast af tálsýnum peningahyggjunnar, þá munum við endurheimta traust og tiltrú. Þá mun fólk sem nú segist ætla að styðja Pírata vegna þess að þeim sé svo umhugað um tölvur og int- ernet og „alls konar“ svo vitnað sé í aðra stjórnmálahreyfingu sem naut skyndikynna við þjóðina; þá verður að nýju horft til stjórnmála- hreyfinga sem eru með raunveru- legar lausnir til úrbóta fyrir hina daglegu lífsbaráttu og sem meira er, þora að standa og falla með þeim. Við búum við ofríki efnahags- og stjórnmálaafla sem eina ferðina enn er að takast að koma samfé- laginu undir hæl sinn. Það má ekki gerast og það mun ekki gerast ef við erum staðráðin í að fara aldrei sjálf að nýju undir þann hæl. Úr ræningjahöndum Fyrir næstu kosningar mætti hugsa sér að félagslega sinnað fólk samein- aðist um hundrað daga áætlun eins og Svarti hópurinn svonefndi innan Verkamannasambandsins talaði fyrir í aðdraganda Þjóðarsáttarinnar árið 1989. Þarna voru Pétur Sigurðs- son, Vestfjarðagoði og Guðmundur Jaki í forystu. BSRB var á svipaðri slóð og reið reyndar á vaðið í jafn- launasamningum þessa vordaga. Í ársbyrjun 1990 kom Þjóðarsáttin. Hún kvað niður þrjátíu prósenta verðbólgu og lækkaði fjármagns- kostnað heimila og fyrirtækja. En sáttin varði stutt enda þá komin til valda ríkisstjórn sem vildi rukka á sjúkrahúsum og einkavæða innviðina. Þá þurfti að nýju að leggjast í vík- ing. Einmitt það þarf að gera núna. Ekki með nýrri þjóðarsátt eins og þeirri gömlu. Heldur með baráttu. Alvöru baráttu fyrir alvöru jöfnuði, alvöru yfirráðum almennings yfir samfélagi sínu. Verkefnið er ekki smátt. Það snýst um að frelsa sam- félagið úr ræningjahöndum og innleiða pólitík sem þjónar samfé- laginu í anda réttlætis. Vinstri stefna í endurnýjun lífdaganna Kannski verður Davíð Odds- son kjörinn forseti og þá er nú alveg líklegra en ekki að maður leysi vegabréfið sitt upp í sýru, pakki helstu nauðsynjum ofan í sjópoka og sæki um pólitískt hæli einhverstaðar. Hvert ætti maður að fara? Verkefnið er ekki smátt. Það snýst um að frelsa samfé- lagið úr ræningjahöndum og innleiða pólitík sem þjónar samfélaginu í anda réttlætis. s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 15F Ö s T u d a g u R 1 . a p R Í L 2 0 1 6 0 1 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 E C -5 2 0 8 1 8 E C -5 0 C C 1 8 E C -4 F 9 0 1 8 E C -4 E 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.