Fréttablaðið - 01.04.2016, Side 20

Fréttablaðið - 01.04.2016, Side 20
„Ég er nýkomin aftur til Kaupmannahafnar eftir að hafa verið á ferðalagi í næstum tvo mán­ uði. Nú er það skrifstofan næstu vikurnar við undirbúning AW16 línunnar. Það eru langir dagar þegar ég er loksins heima,“ segir Sif Jakobsdóttir skartgripahönnuð­ ur. Sif er búsett í Kaupmannahöfn þar sem hún rekur fyrirtækið sitt, Sif Jakobs Jewellery. Hún viður­ kennir að það sé sjaldan lognmolla í kringum hana eftir að hún setti merkið sitt á markað árið 2009 og stóran hluta árs er hún á ferðalög­ um um allan heim. Segja má að skartgripir Sifjar hafi slegið í gegn. Sif Jakobs Jew­ ellery er nú selt í nítján löndum og þeim mun fjölga fljótlega að henn­ ar sögn. Stórstjörnur eins og Miley Cyrus, Mel B, Michelle Dockery og Nathalie Dormer hafa geng­ ið með skartgripi Sifjar og þá á Marie prinsessa marga gripi frá Sif. Smekkfólkið Victoria og David Beckham hafa einnig verslað við Sif. Hún segir þó velgengnina ekki hafa orðið til á einni nóttu. Fékk Børsen Gazelle tvisvar „Það er ofboðslega mikil vinna á bak við þetta. Þegar ég lít til baka sé ég að við höfum náð langt á sjö árum en þó á ég langt í land þangað sem ég stefni,“ segir Sif en tvö ár í röð var Sif Jakobs Jewellery valið mest vaxandi skartgripafyrirtæk­ ið í Danmörku af Børsen og hlaut Børsen Gazelle. „Við erum mjög stolt af því. Dan­ mörk á mörg sterk skartgripamerki sem þekkt eru um allan heim og við erum að keppa við. Í höfuðstöðvun­ um okkar í Kaupmannahöfn vinna í dag 30 manns en við erum líka með sölufólk í þeim löndum sem selja skartgripina okkar. Í heildina erum við 60 manns. Það er alltaf mikið fjör þegar allir koma saman, skemmtileg stemning og mikið hlegið,“ segir Sif. Sjálf heldur hún utan um alla þætti fyrirtækisins og segir hlæj­ andi að það sé Íslendingurinn í sér, hún þurfi að hafa puttana í öllu. „Verksvið mitt er mjög vítt og þar sem ég er stofnandi og eig­ andi er ég inni í flestum hlutum í fyrir tækinu. Ég sit og hanna og fæ stanslausar hugmyndir fyrir mark­ aðsteymið mitt að framkvæma, set upp sýningar víðsvegar um heim­ inn og kynni fyrirtækið. Svo sit ég með sölufólkinu og er jafnvel kom­ inn inn í fjármáladeildina. Það eru engir tveir dagar eins hjá mér og verkefnin eru mjög ólík, spennandi og skemmtileg. Ég heimsæki einnig viðskiptavini okkar í ýmsum lönd­ um til að sýna þeim hver er á bak við merkið. Ég sinni reyndar ekki smíðinni sjálfri, ég hef ekki tíma til þess lengur, en ég teikna grip­ ina, kem teikningunum til verk­ smiðjunnar og fylgi ferlinu eftir. Yfirleitt byrjar dagurinn á fundi og svo er ég á hlaupum milli hæða og nýt þess að vera á skrifstofunni með mínu fólki. Inn á milli næ ég að knúsa litla gullmolann minn sem sefur eða leikur sér á gólf­ inu hjá mér. Áður en ég veit af er komið kvöld og klukkan orðin allt of margt.“ Upphaflega ætlaði Sif sér að verða arkitekt en segist hafa vakn­ að einn morguninn staðráðin í að læra gullsmíði. Hún tók grunnnám í Myndlistaskólanum á Akureyri, sínum heimabæ, og þaðan lá leið­ in til Svíþjóðar í gullsmíðanám. „Mér fannst áríðandi að hafa góðan grunn í teikningu og list áður en ég færi utan í nám.“ Beðin um að lýsa áherslum sínum í hönnun segir Sif skartgripina sína elegant og klass­ íska með smá tvisti. Hún segist oft fá að heyra að skartgripirn­ ir hennar séu auðþekkjanlegir og hún notar mikið af steinum. „Ég vinn undir möntrunni „let your self shine“,“ útskýrir hún. ekki týpísk Fjölskyldumanneskja Sif býr ásamt manni sínum, Søren Dahl, og fimm mánaða syni þeirra, Sixten Jakobs rétt fyrir utan Kaup­ mannahöfn. Hún segist fá hug­ myndir sínar frá náttúrunni, með sjóinn á aðra hönd og skógarþykkni á hina og noti hvert tækifæri sem gefst til göngutúra. Hún er alin upp með norðlensku fjöllin í kringum sig á Akureyri og segist þess vegna formföst að eðlisfari. „Hverfið mitt er yndislegt og ég gæti ekki hugsað mér betri stað að búa á hér í Danmörku. Að geta horft yfir sjóinn um leið og ég vakna minnir mig á Ísland, ég tala nú ekki um þegar blæs mikið. Það er yndislegt að ganga um í skóg­ inum með Sixten. Ég reyni líka að fara eins oft og ég get til Íslands en því miður leyfir vinnan mér ekki að fara eins oft og ég vildi. Fjöl­ skyldan mín heima á Íslandi telst stór á danskan mælikvarða en ég á þrjú systkini. Mér finnst það nú bara eðlileg stærð á fjölskyldu,“ segir hún sposk. „Sjálf hef ég ekki verið þessi mikla „fjölskyldumanneskja“ og var barnlaus þar til fyrir fimm mánuðum, þegar gullklumpurinn okkar, Sixten, kom í heiminn. Ég hef einfaldlega verið mjög upp­ tekin af fyrirtækinu mínu og allt­ af ferðast mikið vegna þess. Mér hefur þótt gott að fá hugmyndir á ferðalögum og notið þess að fá frið og ró til að hanna. Nú tek ég Sixten með mér í ferðalögin og hingað til hefur það gengið vel,“ segir Sif brosandi og bætir við að eftir að drengurinn fæddist séu helgarnar tileinkaðar fjölskyldulífinu. „Laugardagskvöld eru orðin svolítið heilög. Við förum oft út að borða með góðum vinum eða við þrjú erum bara heima og eldum góðan mat, opnum góða flösku af rauðvíni og njótum kvöldsins í friði og ró. Sunnudagskvöld enda reyndar oft framan við tölvuna til að undirbúa komandi viku.“ skíðar í ölpunum Þó að Sif sé önnum kafin og vinnu­ dagarnir langir fer fjölskyldan reglulega í frí. Sif er mikil skíða­ manneskja enda alin upp með skíðabrekkurnar í Hlíðarfjalli í bakgarðinum. „Ég elska skíði. Við förum alltaf í frönsku Alpana yfir páskana og jafnvel til Austur ríkis yfir áramótin,“ segir hún. „Ann­ ars hefur vinnan tekið yfir mörg áhugamál og margt sem ég gæti talið upp sem mig langar að gera en hef ekki tíma til. Um tíma reyndi ég að spila tennis. Ég reyni þó að gefa mér tíma til að ganga eða hlaupa í skóginum, hitta vini og fara út að sigla á sumrin. Það verð­ ur að njóta lífsins.“ Spurð hvort hún eigi sér ein­ hverja uppáhaldshönnuði og jafnvel fyrirmyndir nefnir Sif Karl Lager­ feld. Segir hann elegant og „cool“ týpu sem þori að vera öðruvísi og standa fyrir sínu. Þá séu YSL, Lan­ vin og Victoria Beckham einnig í uppáhaldi. Hún notar gjarnan tím­ ann milli funda á ferðalögum til að versla og fellur fyrir fágaðri hönn­ un með „smá coolness“. deildi BúninGsherBerGi með Chippendales Þegar talið berst að fötum og tísku rifjast upp að Sif gekk sjálf tísku­ pallana á árum áður á Akureyri og hún skellir upp úr þegar hún er minnt á það. „Ég hélt nú að þetta væri allt grafið og gleymt. En þetta var skemmtilegur tími og mikil stemming þegar við vorum að sýna á litlu Akureyri,“ segir hún sposk. „Þegar ég lít til baka hefur sýningarbransinn bara nýst mér vel, til dæmis í framkomu og fleiru í vinnunni en það var aldr­ ei nein alvara í þessu hjá mér. Það kemur margt skondið upp í hug­ ann þegar ég rifja þetta upp. Eitt kvöldið var ekki ólíkt kvikmynd­ inni Magic Mike, en þá áttum við að sýna undir föt á kvennakvöldi í Sjallanum á Akureyri og deild­ um búningsherbergi með þeim sem komu á eftir okkur, nefnilega hinum frægu Chippendales frá USA,“ segir Sif hlæjandi. „Magic Mike er reyndar eina bíómynd­ in sem ég hef gengið út af, segir kannski allt sem segja þarf.“ Hvað er svo fram undan? „Það eru reyndar meiri ferðalög, þó planið hafi verið að vera sem mest í Kaupmannahöfn næstu tvo mán­ uði. Það eru þegar bókaðir fund­ ir á Ítalíu, Spáni, í Eistlandi og í Noregi. Svo er líka fram undan skemmti leg afmælisferð með vinum til Cannes í Frakklandi,“ segir Sif. heida@365.is „Ég elska skíði,“ segir Sif en hún ólst upp með skíðabrekkur Hlíðarfjalls í bakgarðinum. Fjölskyldan skíðar um hverja páska í frönsku Ölpunum og litli Sixten Jakobs skemmtir sér vel. mynd/úr einkaSaFni myndaalBúmið Fjölskyldan í sínu fínasta pússi á áramótunum. Sif býr með manni sínum, Søren dahl, og fimm mánaða syni þeirra, Sixten Jakobs, rétt fyrir utan kaupmannahöfn. Í Hong kong. „mér hefur þótt gott að fá hug- myndir á ferðalögum,“ segir Sif. Líf Sifjar einkennist af ferðalögum um allan heim vegna vinnunnar. „nú tek ég Sixten með mér í ferðalögin og hingað til hefur það gengið vel.“ Skartgripir Sifjar þykja klassískir og elegant. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað og er merkið selt í nítján löndum. 1 . a p r í l 2 0 1 6 F Ö S T U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 0 1 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :0 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 E C -6 5 C 8 1 8 E C -6 4 8 C 1 8 E C -6 3 5 0 1 8 E C -6 2 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 3 1 _ 3 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.