Vestfirska fréttablaðið - 11.02.1977, Side 1
HVAÐ ER AÐ GERAST Á ÍSAFJARÐARFLUGVELLI ?
FLUGVALLAR STARFSMAÐUR SEGIR UPP STÖRFUM
VEGNA ÓÁNÆGJU MEÐ FRAMKVÆMDIR
OG ÖRYGGISMÁL.
Guðbjörn Charlesson, flugvallarstarfsmaður á Isafjarðarflugvelli, hefur nú
látið af störfum hjá Flugmálastjórn.
Guðbjörn hefur stjórnað flugumferð um (safjarðarflugvöll sl. 714 ár og hefur
manna besta þekkingu á málefnum flugvallarins og flugsamgöngum við
isafjörð. Skyndileg brottför hans úr starfi hefur valdið áhyggjum meðal
bæjarbúa, og vakið spurningar um það, hvort allt sé með felldu um málefni
flugvallarins og um flugsamgöngur við bæinn.
Er þessi árstími ekki mjög óheppilegur til þess aö skipta um mann í
svo ábyrgðarmiklu starfi og fá í stað Guðbjörns, þrautreynds manns, óvönum
manni starfið í hendur?
Auðsætt er að tíminn til að skipta um mann í þessu starfi er hinn
óheppilegasti, og óskiljanlegt er hvers vegna flugmálayfirvöld ekki notuðu sér
að láta Guðbjörn gegna starfinu út uppsagnarfrestinn.
Er brottför Guðbjörns úr starfi að einhverju leyti tengd öryggismálum
flugvallarins?
Varðandi þessa spurningu sneri blaðið sér til Guðbjörns. Guðbjörn taldi sér
ekki fært á þessu stigi að gefa miklar upplýsingar um málið. Hann kvaðst þó í
veigamlklum atriðum vera ósammála flugöryggisyfirvöldum um framkvæmdir
öryggismála og ráðstafanir fjármagns til þeirra.
Málum þessum væri nú þann veg komið hér á fsafirði, að óviðunandi væri.
Hefði hann því til frekari áréttingar kröfum sínum um umbætur f
flugöryggismálum, sagt starfi sfnu lausu í janúar sl. og jafnframt getið þess i
uppsagnarbréfi sínu, að ef það kæmi sér betur fyrir embætti flugmálastjóra að
hann léti af störfum strax, þá væri hann reiðubúínn til þess.
I fjarveru flugmálastjóra, svaraði aðstoðarflugmálastjóri bréfi Guðbjörns á
þann veg að hann teldi „heppilegt" að Guðbjörn léti af störfum 31. janúar, en
uppsagnarfrestur var til 4. apríl.
Þá vaknar sú spurning, hvers vegna embættið taldi „heppilegt" að Guðbjörn
léti af störfum þá þegar, en vítað er að sá sem við starfinu tók, hefur litla
undirbúningsmenntun og starfsreynslu.
Agnar Kofoed Hansen, flugmálastjóri tjáði blaðinu, að Guðbjörn hefði sent
uppsagnarbréf, sem sér hefði borist en afgreitt hefði verið hjá embættinu f
fjarveru sinni. Taldi hann skýringuna á því að hans undirmenn töldu
„heppilegt" að Guðbjörn léti af störfum þegar hinn 31. janúar vera m.a. þá, að
„mönnum kemur misvel saman" (orðrétt).
Kvaðst Agnar hafa átt símtal við Guðbjörn, undir vitni, þar sem hann bað
hann að gegna starfi út uppsagnarfrestinn, en Guðbjörn hafi ekki talið sér fært
að gera það nema eftir skriflegri ósk flugmálastjóra.
„Ég sé mjög eftir Guðbirni, ef hann er farinn úr starfi fyrir fullt og allt" sagði
flugmáiastjóri.
Við spurningu blaðsins um það hvort ekki hefði verið kostur á að fá
menntaðan flugumferðarstjóra í stað Guðbjörns, gaf hann það svar, að að vísu
hefði verið hægt að fá mann að „sunnan" til þess að gegna starfinu, en þvi'
fylgdi mikill aukakostnaður vegna búsetu, og því hefði sú leið ekki verið farin.
„Sigurður Th. Ingvarsson, sem nú gegnir starfinu hefur fengið tvö stutt
námskeið og nokkra þjálfun í starfi. Það er mat minna undirmanna að hann sé
fær til að gegna þessu starfi og ég treysti honum til þess."
„En starfsreynslu þessara tveggja manna legg ég ekki saman. Guðbjörn er
einn af okkar bestu og reyndustu starfsmönnum, og hefur þar að auki að baki
flugreynslu."
Er nú svo komið máli þessu að:
1. ) Guðbjörn Charlesson hefur sagt upp starfi sínu hjá flugmálastjórn, til þess
að leggja áherslu á að öryggismálum ísafjarðarflugvallar verði sinnt sem skyldi.
2. ) Undirmenn flugmálastjóra' notuðu tækifærið meðan flugmálastjóri var
fjarverandi, til þess að láta Guðbjörn hverfa úr starfi, svo til fyrirvaralaust.
Ályktun blaðsins verður því sú, að embætti flugmálastjóra þyki „heppilegt"
að Guðbjörn hverfi úr starfi, vegna þess að hann gerir meiri kröfur til
flugöryggismála og framkvæmda við (safjarðarflugvöll, heldur en embættinu
þykir hæfa.
ÁS
Hlutavelta — Leitaræfing
Telpurnar á myndinni héldu
um daginn hlutaveltu í heima-
húsi einnar þeirra og gáfu
ágóðann, 12,350 - krónur til
styrktar Slysavarnadeildinni í
Hnífsdal. Þær heita talið frá
vinstri: Sigríður Ó. Kristjáns-
dóttir, 9 ára, Anna J. Hinriks-
dóttir, 10 ára, Ásgerður K.
Gylfadóttir, 8 ára, Sigrún J. Hin-
riksdóttir, 12 ára, Jóna L. Karls-
dóttir 9 ára. 'Á myndina vantar
Helgu Héðinsdóttir, 11 ára.
Með stúlkunum á myndinni er
Halldór Magnússon, formaður
Slysavarnadeildarinnar.
Sama dag og hlutaveltan var
haldinn, eða þ. 30. janúar sl.,
fór fram leitaræfing hjá
Björgunarsveitinni Tindum, en
hún heyrir undir Slysa-
varnadeildina. Var maður
falinn í Fremri-Dalnum. Tuttugu
manns tóku þátt í leitinni og
höfðu fjarskiptatæki og vél-
sleða sér til aðstoðar. Fannst
maðurinn eftir þrjá og hálfan
tíma og var þá borinn á sjúkra-
börum að stjórnstöð leitar-
manna, en sú leið er hátt á
fjórða kílómeter. Að sögn Hall-
dórs, tókst leitin mjög vel.
Leitarstjóri var Kristján Frið-
björnsson.
SJS.
lisfórst myndip, sem t\ér$ti ad
inum í Hnífsdal. — ( staðinn
wfd^pT stúlkl
birtum við mynd af Bernhard Russi, úr brun- M
keppninni í Morzina, en þar stöðvaði hann
sigurgöngu Franz Klammer, sem þá hafðjU''''’
sigrað í 10 heimsbikarbrunkeppnum í rjjéf'