Vestfirska fréttablaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 8
Fyrir skíðagöngumenn
og trimmara:
Erum að fá nýjar gerðir af
GÖNGUSKÍÐUM
EINNIG GÖNGUFATNAD, GÖNGUSKÓ
OG ÝMSAN BÚNAÐ FYRIR SKÍÐAGÖNGU.
Bókaverzlun Jónasar Tómassonar
sportvörudeildin
AFLI OG SJÓSÓKN VESTFIRÐINGA
íjanúar1977
Aflinn í hverri verstöð í janúar: 1977: 1976:
Patreksfjörður ...................... 1107 lestir ( 992 lestir)-
Tálknafjörður ......................... 311 lestir ( 448 lestir)
Bíldudalur ............................ 125 lestir ( 0 lestir)
Þingeyri .............................. 339 lestir ( 316 lestir)
Flateyri............................... 500 lestir ( 386 lestir)
Suðureyri.............................. 460 lestir ( 648 lestir)
Bolungarvík............................ 553 lestir ( 945 lestir)
fsafjörður........................... 1206 lestir (2006 lestir)
Súðavfk ............................. 302 lestir ( 420 lestir)
Samtals ............................. 4903 lestir (6161 lestir)
RÆKJUVEIÐARNAR:
Rækjuveiðar voru stundaðar á þrem veiðisvæðum við Vestfirði
í janúar, Arnarfirði, fsafjarðardjúpi og Húnaflóa. Sunduðu nú 63
bátar veiðar, en í fyrra voru 62 bátar að veiðum á sama tíma.
Heildaraflinn í mánuðinum varð 665 lestir, en var 559 lestir í
janúar í fyrra.
Frá Bíldudal réru 8 bátar og öfluðu 39 lestir, en í fyrra var afli 10
báta 48 lestir. Aflahæstu bátarnir voru Vfsir með 8,9 lestir, Pilot
6,2 lestir og Helgi Magnússon 6,1 lest.
Frá verstöðvunum við fsafjarðardjúp réru 42 bátar og öfluðu
þeir 403 lestir, en 1 fyrra var afli 38 báta við ísafjarðardjúp 342
lestir. Aflahæstu bátarnir voru Halldór Sigurðsson með 15,1 lest,
Gullfaxi 14,7 lestir, Engilráð 14,5 lestir, Tjaldur 13,3 lestir og Örn
12,1 lest.
Frá Hólmavík og Drangsnesi réru 13 bátar og öfluðu 223 lestir
en í fyrra var afli 14 báta 169 lestir. Aflahæstu bátarnir voru nú
með röskar 18 lestir, en það voru Vinur, Asbjörg, Gunnhildur og
Guðrún Guðmundsdóttir.
Stöðugur NA-strengur var
útaf Vestfjörðum meginhluta
mánaðarins. Gafst togurunum
því lítið næði til veiða og
aðeins stuttan tíma í einu. Setti
þetta tíðarfar mjög svip sinn á
sjósókn í mánuðinum, bæði
hjá togurunum og línu-
bátunum. Línubátar frá syðri
Vestfjörðunum réru mikið
suður fyrir Bjargið, þar sem
veður var mildara. og í kantinn
norður af Víkurálnum. þegar
gaf út. Fékkst þar yfirleitt
ágætur afli. Línubátar frá Djúpi
og nyrðri fjörðunum voru einnig
að róa þangað suðureftir,
þegar gaf til róðra. Enginn
fiskur virðist hafa gengið upp á
grunnið ennþá, og voru það
þeir fáu róðrar, þegar gaf út á
kantinn, sem gáfu meginhluta
línuaflans 1 mánuðinum.
Heildaraflinn í janúar var
4.903 lestir; en var 6,161 lest á
sama tíma í fyrra. 34 bátar frá
Vestfjörðum stunduðu bolfisk-
veiðar i mánuðinum, réru 25
með línu og 9 með botnvörpu,
en í fyrra réru 26 með línu, 8
með botnvörpu og 1 með net.
Línubátarnir stunduðu allir
dagróðra, nema örvar frá
Patreksfirði, sem var á útilegu
(með beitingarvél). Afli línu-
bátanna var nú 2,592 lestir í
429 róðrum eða 6,04 lestir að
meðaltali í róðri. (fyrra var afli
línubátanna í janúar 3.592
lestirí 498 róðrum eða 7,21 lest
að meðaltali í róðri. Afli
togaranna var 2.311 lestir eða
47% heildaraflans í mánuð-
inum.
Aflahæsti línubáturinn í
mánuðinum var Tungufell frá
Tálknafirði með 172,1 lest í 23
róðrum, en í fyrra var Sólrún frá
Bolungarvík aflahæst í janúar
með 198,0 lestir 1 24 róðrum.
Gyllir frá Flateyri var afla-
hæstur af togurunum með
368,9 lestir, en í fyrra var Bessi
frá Súðavík aflahæstur í janúar
með 419,6 lestir.
Aflinn í einstökum verstöðvum:
PATREKSFJÖRÐUR: L. R.
Jón Þórðarson 160,6 21
Þrymur 160,2 21
Úrvar 156,1 17
Vestri 155,2 20
Garðar 127,1 17
Gylfi 122,1 19
María Júlía 112,7 18
Birgir TÁLKNAFJÖRDUR: 112,619
Tungufell 172,1 23
Tálknfirðingur BlLDUDALUR: 138,7 20
Hafrún ÞINGEYRI: 124,820
Sólbakur tv. 177,2 1
Framnes I tv. 115,7 2
Dæhrfmir FLATEYRI: 45,7 12
Gyllirtv. 368,9 2
Vfsir 78,518
Framhald á 3. síðu.
Philco W-45
þvottavélarnar eru á leiðinni
til okkar á mjög hagstæðu verði.
LITASJÓNVARPAÚRVALIÐ
ER ALLTAF AÐ AUKAST.
Nú eigum við fyrirliggjandi
Normende og Hitachi litasjónvörp
og Philips eru á leiðinni.
ÞEIR TÓKU SIG
SAMAN UMAÐ
STYRKJA SIGURD
þrír menn úr áhöfn Guðbjargar (S-46, komu að máli við ritstjóra
Fréttaréttablaðsins á dögunum og afhentu honum 130.000.-
krónur, sem þeir báðu hann um að koma áleiðis til Sigurðar H.
Jónssonar. Með fylgdi svohljóðandi skjal:
Við undirritaðir , skipverjar á Guðbjörgu (S-46 höfum ákveðið
að styðja Sigurð Jónsson, hinn unga skíðamann frá (safirði til
áframhaldandi skfðaiðkana.
Hrólfur Úlafsson .............................. kr. 10.000.-
Arnar Kristjánsson ............................ kr. 10.000.-
Jóhann Magnússon.............................. kr. 10.000.-
Elvar Bæringsson.............................. kr. 10.000,-
Jón Aðalsteinsson.............................. kr. 10.000.-
Flosi Kristjánsson............................ kr. 10.000.-
Guðbjartur Ásgeirsson......................... kr. 10.000.-
OlafurÁ.Halldórsson........................... kr. 10.000.-
Halldór Ólafsson............................. kr. 10.000.-
Björn Björnsson............................... kr. 10.000.-
Magnús Benediktsson .......................... kr. 10.000.-
Ásgeir Guðbjartsson............................ kr. 10.000.-
Bæring Jónsson ................................ kr. 10.000.-
Fé þessu hefur verið komið áleiðis til Sigurðar. Baö hann
undirritaðan um að koma á framfæri innilegu þakklæti sínu til
þessarra ágætismanna og kvaðst meta mikils þann
stuðning, sem í þessu fælist, fjárhagslega, og ekki síður það
traust og þann hlýhug, sem slíkt framtak ber með sér.
Þá bað Sigurður blaðið einnig að þakka bæjarstjórn (safjarðar
þá viðurkenningu, sem hún hefur veitt honum.
Frá eigin brjósti vil ég segja það, að verði þetta drengskapar-
bragð skipverja á Guðbjörgu ÍS-46 öðrum að fordæmi, þá er vel
og mun ég með ánægju annast að koma slíku áfram til hans.
(ritstj.)
I sfðustu viku keppti Sigurður á FlS-móti af fullum styrk (7,90
penalty punktar, aðeins heimsbikarmót hafa lægri penalty-
punktatölu) í Pravisio á Ítalíu. Meðal keppenda þar var Lichten-
steinbúinn Paul Frommelt.sem hefur tvívegis f vetur hafnað í öðru
sæti f HB., ásamt fleiri toppmönnum. Sigurður hafði því miður
ekki hjá sér heildarúrslit frá mótinu, en Frakkinn Navillod bar
sigur úr býtum, Paul Frommelt varð nr. 2. Norðmaðurinn Odd
Sörli varð í 6. sæti og Sigurður H. Jónsson f 11. sæti. Kvaðst
Sigurður hafa verið 2,7 sek. á eftir Frakkanum, sem sigraði og
hafa hlotið 21 punkt frá mótinu.
Sigurður tjáði okkur að nýir FlS-punktar tækju gildi f þessarri
viku, og kæmi hann þar inn á lista með 16,40 punkta, sem myndu
duga honum til að komast í 3. ráshóp í Heimsbikarkeppni.
Áður var sagt frá þvf hér f blaðinu að Sigurður hefði hafið
keppni í Heimsbikarmótum. Það reyndist ekki rétt og biðjum við
velvirðingar á því.
Sigurður kvað óvíst hvenær hann hæfi þátttöku í HB. Þaó væri
þjálfari hans, Hermann Nogler, sem ákvæði hvenær að því kæmi.
ÁS.
Messað í ísafjarðarkirkju
næstkomandi sunnudag kl. 14.oo
Agnes M. Sigurðardóttir stud. theol. prédikar
Sóknarprestur.