Vestfirska fréttablaðið - 11.01.1978, Qupperneq 7
tJumflbuwió
Járniðnaðarmaður
Óskum að ráða vélvirkja,
eða mann vanan rafsuðu
og logsuðu.
Gott kaup fyrir réttan mann.
Bókhald
Maður óskast til að
færa og sjá um bókhald.
VÉLVIRKINN SF.
Bolungarvík, sími 7348
og á kvöldin 7272.
Enn sem fyrr 1
| með úrvalið |
Ný sending Tékk-kristail í
Skáiar - Glös - Bakkar - Vasar
LITAÐUR KRISTALL - Falleg gjafavara f
| ogs,0 þroskaleikföngin I
£ :S
| Play - Nombile - Lego |
| Eðlisfræðikassarnir nr. 1, 2, 3,4, 5.
| Brúður sem tala og gráta o.fl. §
| Neisti hf ísafirði, sími 3416
Staða
framkvæmdastjóra
Orkubús Vestfjarða
Stjórn Orkubús Vestfjarða auglýsir eftir
framkvæmdastjóra fyrir Orkubú Vestfjarða.
Lögð er áhersla á haldgóða menntun og
starfsreynslu á sviði stjórnunar og fjármála.
Umsóknarfrestur til 15. febr. 1978.
Með umsókn skulu fylgja upplýsingar um
menntun og fyrri störf.
Umsóknir skulu stílaðar tii stjórnar Orku-
bús Vestfjarða og sendar formanni stjórnar
Guðmundi H. Ingólfssyni, Holti, Hnífsdal, ísa-
firði, sem jafnframt gefur frekari upplýsingar.
ísafirði, 4. jan. 1978.
Stjórn Orkubús Vestfjarða.
-
.7
— Heiðrún ís-4 afhent
kaupendum
Framhaldaf 1. síðu
fari er botnvörpu og
flotvörpubúnaöur skipsins,
auk þess, sem þar er komið
fyrir nótaveiöibúnaöi og
færavindu fyrir línuveiöi.
Einar Hálfdánsson
skipstjóri
□ Vélbúnaður
Aöalvél skipsins er Alpha
Diesel, gerö 10V23L-VO
1450 hö. 800 sn./mín., fjór-
gengisvél tengd gír meö
kúplingu og niðurfærslu er
gefur skrúfuhraða 345 sn.
pr. mín. Skrúfa skipsins er
4ra blaða skiptiskrúfa og ut-
an um hana er skrúfuhring-
ur. Framan viö aðalvél er
deiligír frá Frank Mohn, gerö
A4. með úttaki fyrir 2 vökva-
dælur og 2 rafala. Aöalvélin
er gerö fyrir brennslu á
svartolíu. Hjálparvél er ein
Bauduuin Gerö GP6 SR-B
323 ha/1500 sn. 6 strokka
fjórgengisvél. Vélin knýr 250
Kw rafal 3 x 380 v. 50 Hz.
einnig 50 Kw vararafal fyrir
togvindu og eina vökvadælu
65 ha fyrir vökvakerfi. Stýris-
vélin er Tenfjord, rafstýrö,
gerð L-155 2ESG.
— Græna
lyftan á ný
Framhald af 1. síðu
ritinu Rauðhettu eftir Evgeny
Swarzt. Leikstjóri er Reynir
Ingason og starfa 30 manns
aó uppsetningunni. Búast
má viö aö æfingar taki um 2
mánuöi og eru því sýningar
áformaðar um miöjan mars.
Sala aðgöngumiða á
Grænu Lyftuna verður í Al-
þýöuhúsinu á miðvikudag
og föstudag frá kl. 5 - 6 og
við innganginn.
□ íbúðir
fbúöir eru fyrir 16 menn í
1. og 2ja. manna klefum. 2
snyrtiklefar eru og stakka-
geymsla. í hverjum íbúðar-
klefa er handlaug og hátalari
frá útvarpi í borðsal. Á gangi
og í klefum vélstjóra, stýri-
manns og í borðsal er kall-
kerfi. Útveggir og loft er
klætt plasthúöuðum plötum.
í borðsal er litasjónvarp, út-
varp og kasettu tæki.
□ Fiskilestar
Fiskilestar eru 340 rúm-
metrar að stærö. Báöar fyrir
kassa og uppstillingu fyrir
loðnu. Lestirnar eru klæddar
innan með stáli og einangr-
aöar meö urhentan-plasti.
Þær eru kældar niður í 0
gráöur C miðað viö 18 gráð-
u lofthita og +15 gráöur C
sjávarhita.
□ Vindubúnaður
Togvinda skipsins er raf-
drifin frá Bruselle, gerð fyrir
1100 faöma og S'A tommu
vír hvor tromla, aukavindur
á togvindu eru fyrir grand-
ara. 300 ha. rafmótor knýr
togvinduna. Stjórna má
vindunnifrá’ stýrishúsi aö
framan og aftan, einnig úr
stjórnklefa á efra þilfari. Gil-
son vindur eru tvær, hvor 5t.
frá Bruselle, staðsettar á
bataþilfari. Þeim er stjórnaö
frá stýrishúsi og stjórnklefa,
þær eru knúöar vökva frá
aðalvél. Flottrollsvinda er
vökvadrifin frá aöalvél og
stjórnaö frá stýrishúsi og við
Jón Eggert Slgurgeirsson
skipstjóri
vinduna sjálfa. Pokavinda
frá Bruselle, drifin af aðalvél
um vökvadælur, stjórnklefi
er á vindunni sjálfri. Netsjá-
vinda er af gerðinni Bratt-
vag-Simrad, hún er raf-
vökvadrifin og stjórnað meö
lofti.
□ Rafeindatæki
Ratsja: Decca RM 926
Miöunarstöð: Taiyo TD-A
130
Loran: Simrad Loran C.
Þakáttaviti: L&C meö spegil i
sýrishúsi
Gíróáttaviti og sjálfstýring:
Anschutz Standard 6
V i ndhraöamæ I i r: og
vindstefnumælir: T. Walker
Sjóhitamælir meö skrifara.
Talstöð: Sailor SSB, gerö T
122
Örbylgustöð, gerö Sailor RT
143
Örbylgjuleitari.
Neyöartalstöö: Call Boy
Nyeðarsendir: Simrad CSIB
Fjölbylgjutæki, Tryllir og
vöröur
Hljóðvarpsviðtæki og lita-
sjónvarp
Sjónvarp milli aögerðarrýmis
og stýrishúss. Gerö Grundig
Simrad Dýptarmælir: EQ 38,
og tveir EQ50
Fisksjá: Simrad Cl
Höfuðlínumælir: Simrald
gerö FB
Botnþreifari: gerö Simrad Fll
Hafsonar: Simrad Su.
R af ei ndakastar i meö
innrauðum geisla,: gerð Otto
Sch./Grundig.
Ljóskastarar, einn 2000 wött
við 220 volt og annað 450
vött við 24 volt. Gerö Otto
Sch.
□ Ávarp Guðmundar
Þegar gestir höföu skoö-
aö skipið ávarpaði Guö-
mundur Marsellíusson gesti.
Gerði hann stuttlega grein
fyrir smíði skipsins, sem er
fimmtugasta skipiö, sem
skipasmíöastöö Marsellíusar
Bernharössonar smíöar. (
ræöu sinni sagöi Guðmund-
ur meðal annars:
„Samningar um smíði
þessa skips voru undirritaðir
1974, en smíði skipsins
hófst í byrjun ársins 1975.
Upphaflega var samið um
smíði línuskips allnokkru frá-
brugðnu því skipi sem þið nú
sjáiö, og var samningsverð
skipsins þá kr. 190 milljónir
tæpar. Á árinu 1976 var á-
kveðið að breyta samningi
skipsins og var þá samið um
breytingar fyrir um 124 millj.
króna. Síðar á árinu varenn
ákveðið að breyta skipinu,
og þá með tilliti til flotvörpu-
og botnvörpuveiða og hríng-
nótaveiðabúnaðar. Samn-
ingar þessir voru alls uppá
kr. 70 milj. Heildarsamnings-
verð skipsins var því tæpar
390 milj. króna, því hefði
skipinu verið breytt fyrir rúm-
ar 2200 milj. umfram upphaf-
legt samningsverð, sem var
eins og áður sagði um 190
milj. kr.
Smíði skipsins hefur
nokkuð dregist vegna þess-
ara breytinga, en ég trúi því
fastlega að kaupendur
skipsins fái nú fullkomnasta
fiskiskip landsins, og gæöi
þess dreg ég ekki í efa. Hver
og einn einasti starfsmaður
fyrirtækisins hefur lagt sig
fram við að skila gallalausu
verki.
Heildarverð skipsins að
frádregnum tollum og vöxt-
um er rúmar 611 milj. króna.