Vestfirska fréttablaðið - 19.07.1978, Page 10
10
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
í Gardínus margar gerðir í Ass< s stormjár EYRNAH OG ÖRY VERKFÆRI ÁVAL FYRIR TRÉOG FY ■ ■ ■ ■ tangir ■ ■i ■ ■ ■ ■ m ■ ■i aflex nin £ ■' LÍFAR GGISHJÁLMAR ■ ■ LT í ÚRVALi RIR JÁRN
| TÍMBURVERS fSAFTRFlT — LDNIN BJftBK
StMAR 3063 og 3293 illlllllllllllllllllllllllllllllllll — PÓSTHÓLF 66 IIIIIIIIIIIIINIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Reykjavík — ísafjörður
Óskum eftir íbúð á ieigu í Reykjavík frá
1. sept.—1. júní.
Skipti á íbúð á ísafirði koma til greina.
Uppl. í síma 94-3421
Kirkjugarðurinn
á Eyri í Seyðisfirði
Vegna fyrirhugaðrar sléttunar leiða í
kirkjugarðinum á Eyri í Seyðisfirði N-
ísaf.s. auglýsist hér með eftir merk-
ingum á leiðum í garðinum. Þeir, sem
hug hafa á að merkja leiði þar hafi
vinsamlegast samband við sóknar-
nefnd Eyrarsóknar fyrir 10. ágúst nk.
Fh. sóknarnefndarinnar
Halldóra Ottósdóttir, form.
sími 6940
Hópferðir Fagraness
norður vel sóttar
í júní og júlí í sumar
hefur m.s. Fagranes farið
fimm skemmti og ksoðun-
arferðir með ferðafólk frá
ísafirði, í Grunnavík, Aðal-
vík, Hornvík og Furur-
fjörð.
Farþegar í þessum ferð-
um hafa jafnt verið hópar
á vegum Ferðafélag ís-
lands og Útivistar, sem
hafa gjarnan komið með
flugvélum til Isafjarðar,
gagngert til þáttöku í
þeim, og einstaklingar og
hópar frá Isafirði og annar-
staðar að af Vestfjörðum.
Hafa ferðir þessar verið vel
sóttar, og tvær síðustu
helgar hafa dvalið nyðra
300 til 400 manns.
Fararstjórar á vegum
Ferðafélags íslands og Úti-
vistar hafa verið með í
ferðunum og eru skipu-
lagðar skoðunar-
gönguöferðir á stöðunum.
Bæði er hægt að fara eins
og tveggja daga ferðir og
svo sex og sjö daga ferðir á
þennan hátt. Enn eru eftir
tvær eða þrjár ferðir, og er
laust pláss í þær allar.
Nú á laugardaginn fer
Fagranesið í Bæi í tengsl-
um við sumarskemmtun,
sem B.G. flokkurinn stend-
ur að í Dalbæ. Um Versl-
unarmannahelgina verður
einnig hópferð þangað, en
þá verður þar sumarhátíð
á vegum Átthagafélágs
Snæfjallahrepps.
Fagranesið hefur í sum-
ar, eins og áður flutt bíla í
áætlunarferðum í Ögur og
í Bæi. Töluvert dró úr
þessum flutningum við
opnun Djúpvegarins, en
undanfarin þrjú ár hafa
þeir verið nokkuð stöðugir,
um 120 bílar á ári.
Rólegt hjá ísafjarðar-
lögreglunni —
Lélegur bílakostur
Undanfarið hefur verið ró-
legt hjá Isafjarðarlögreglunni.
Dansleikir voru um helgina í
I.O.G.T. húsinu á föstudags-
kvöld og í Félagsheimilinu í
Hnífsdal á laugardagskvöld.
Ekki bar á ölvun eftir þá dans-
leiki, svo teljandi sé. Helst var
það til tíðinda hjá lögregl-
unni, að maður nokkur hugð-
ist taka á móti sjórallsbátun-
um með blómum. Fór hann
inn í húsagarð annars manns
til að afla þeirra, en það var
lögreglan, sem tók við blóm-
unum, sem ætluð voru Láru,
á rallbátnum 03, Láru.
Fyrir nokkrum vikum
fékk lögreglan á ísafirði til
sinna afnota bíl af gerðinni
Ford Escort. Var með hon-
um ætlað að bæta úr bíla-
skorti, sem hrjáð hefur ísa-
fjarðarlögregluna um
tíma. Bílinn hefur þó ekki
komið að tilætluðum not-
um, því hann er of lítill og
þröngur og raunar mjög
óhentugur við þær aðstæð-
ur, sem hér eru.
Þykir lögreglumönnum,
sem hér sé um að ræða
vafasaman sparnað, að
kaupa svo lítinn bíl. Auk
þess að vera óhentugur til
notkunar, þá kemur fljótt
drjúgur viðhaldskostnaður
á hann í svo mikilli notk-
un. Gætir óánægju hjá lög-
regluþjónum með það að
ekki skuli tekið til greina
þeirra álit, þegar valdir
eru bílar til notkunar við
starfið.
Aðalfarartæki lögregl-
unnar nú, er bíll af gerð-
inni Chevrolet Suburban
af árgerð 1975. Hann er á
verkstæði í Reykjavík til
gagngerðar viðgerðar. Sú
bifreið hefur að sögn lög-
regluþjóna reynst nokkuð
vel, en við hina miklu
notkun er þó ýmislegt, sem
verður undan að láta.
Eftirlitssvæði ísafjarðar-
lögreglunnar er báðar ísa-
fjarðarsýslurnar, ásamt
ísafjarðarkaupstað, að
undanskilinni þó Bolung-
arvík. Auk sex fastráðinna
lögregluþjóna á ísafirði eru
starfandi héraðslögreglu-
menn á Flateyri og Suður-
eyri.
Hurðir og
fataskápar
frá Sigurði
Elíassyni hf.
FUNA
OFNAR
Ofnasmiðja ,
Suöurlands
Hveragerói
VIKURELDHUS
Thoro gólfefni í ýmsum litum
Thoro hraunefni og
pússningarefni utanhúss
GERUM TILBOÐ YÐUR AÐ KOSTNAÐARLAUSU
MAGNÚS R. SIGURDSSON
SÍMI3460 OG 3001.