Vestfirska fréttablaðið - 26.03.1980, Side 7
vestíirska
rRETTABLADIÐ
Sólrisuhátíð 1980
Hin árlega Sólrisuhátíð nem-
enda M.í. var haldin í síðustu
viku. Þetta mun vera sjöunda
Sólrisuhátíðin en til hennar var
upphaflega stofnað til þess að
fagna hækkandi sól með viku
hátíðarhöldum þar sem á
hverju kvöldi værri eitthvað til
skemmtunar á hinum ýmsu
sviðum lista. Heldur finnst
undirritaðri sólrisuhátíðin ris-
lægri en ætlunin var í upphafi -
en hvað um það.
Fyrsta atriði hátíðrinnar var að
nemendur 3. bekkjar Leiklistar-
skóla íslands sýndu barnaleikrit í
leikfimissalnum. tvær sýningar
sunnudaginn 16. mars. Leikritið
hét Trúðaskólinn og vakti mikla
kátínu áhorfenda sem voru um
260 á báðum sýningum. Leikfim-
issalurinn er prýðis leikhús þegar
leikið er á gólfinu eins og í þessu
tilviki. Á mánudaginn var kvik-
myndin Lofthræðsla sýnd í Al-
þýðuhúsinu og á þriðjudaginn
danska myndin Skytten. Mið-
vikudagskvöldið var í höndum
nemenda sjálfra og var aðsókn
allgóð. Setið var við borð í Al-
þýðuhúsinu og kaffi og vöfflur
seldar í hléi. Dagskráin .var fjöl-
breytt. en ekki nógu vönduð.
Fyrst lásu nemendur nokkra kafla
úr leikriti Jökuls Jakobssonar.
Kertalogi. Er það í mikið ráðist
með ekki meiri undirbúningi og
var aðeins einn nemandi. Edda
Pétursdóttir. sem skilaði lestri sín-
um eins og Jökli sæmir. Næst lásu
nokkrir nemendur Ijóð eftir nem-
endur M.f. fyrr og síðar og fórst
það vel úr hendi. einnig sýndu
þeir ballett í léttum dúr við kafla
úr sögu eftir ingibjörgu Sigurðar-
dóttur við mikla kátínu áhorf-
enda. Eftir hlé var lesið Ijóðið
Hvatabjörninn eftir Davíð Stef-
ánsson og fluttur Ijóðaleikur við
Ijóð Davíðs. Vér skipuleggjum.
Að lokum léku nemendur ein-
þáttunginn Partý eftir Odd
Björnsson undir leikstjórn Aðal-
steins Eyþórssonar. Leikendur
skiluðu hlutverkum sínum flest
ágætlega en förðunin stakk mjög í
augu og truflaði. Leikstjóri skilaði
sínu verki ágætlega. Á fimmtudag
var kvikmyndin Ljótur leikur
sýnd í Alþýðuhúsinu og á föstu-
dag var skáldavaka. lesið úr verk-
um Böðvars Guðmundssonar.
Aðsókn var mjög dræm en kvöld-
ið var ánægjulegt fyrir þá sem
mættu. Lesin var smásaga eftir
Böðvar og fjögur Ijóð. Síðan söng
hann og Þorvaldur Örn Árnason
nokkur lög og ljóð eftir skáldið og
að lokum las hann áður óbirta
sögu eftir sig. Á laugardagskvöld
var dansleikur í Félagsheimilinu í
Hnífsdal og á sunnudaginn
músikkvöld með gömlum og góð-
um músikköntum héðan úr hér-
aði.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
minningarathöfn
Ólafs Siguroar Össurarsonar
Hjördís Óskarsdóttir
Jón Rósmann - Magnea
Hafsteinn Ómar - Anna
Margrét
og barnabörn
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við
minningarathöfn
Valdimars Þórarins Össurarsonar
Ásdís Guðmundsdóttir
Össur Pétur - Guðmundur
Jón Smári - Auöunn Bragi
VEISLUMATUR
SELJUM ÚT HEITA OG KALDA
VEISLURÉTTI
FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI
Nánari upplýsingar veitir
Haildór Guðmundsson
í síma 3645 eða 3633
Félagsheimilið Hnífsdal
Til sölu
SKODA 120L árgerð 1979.
Ekinn 5.000 km., sparneytinn bíll.
Vetrar- og sumardekk Góðir greiðsiuskilmálar
BALDUR ÓLAFSSON SÍMI 3710
7
Hefur gert fast
tilboð í slitlagslögn
Eins og skýrt var frá í Vest-
firska 1. feb. sl. hafa viðræður
farið fram milli forsvarsmanna
Vegagerðarinnar og Jóns
Þórðarsonar, aðaleiganda
Vesttaks h.f. á ísafirði um
steypt slitiag á stofnbrautina.
Jón hefur nú gert Vegagerðinni
fast tilboð í steypuna, kr. 8.600
per fermeter, og felur það til-
boð í sér alla þætti verksins.
Að undanförnu hefur Verk-
fræðistofa Gunnars Torfasonar
í Reykjavík unnið að rannsókn
og samanburði á kostnaði við
lagningu stofnbrautarinnar
með steinsteypu eða olíumöl. í
samtali við Vestfirska sagði
Jón Þórðarson, sem kostaði
þessar rannsóknir, að í niöur-
i —
stöðum þeirra kæmi glöggt
fram að þegar litið væri til
lengri tíma, væri enginn vafi á
því að steinsteypan væri ódýr-
ari lausn.
Jón Þórðarson sagði m.a.:
—Það kemur fram í niðurstöð-
unum. að steypan dugir í minnst
30 ár og gæti dugað lengur miðað
við bílafjölda hér á ísafirði. en á
sama tíma þyrfti að malbika
a.m.k. þrisvar sinnum. Þetta staf-
ar af því að hér eru bílar á
keðjum tveimur mánuðum lengur
á ári en annarsstaðar vegna
Breiðadalsheiðarinnar. Jafnvel er
talið að malbikslagið myndi ekki
endast lengur en 3-5 ár.
Ódýr steinefni ekki til staðar
Þá sagði Jón:
—Fyrir nokkrum árum gaf
Leifur Benediktsson. verkfræð-
ingur. úl bækling. sem öll sveitar-
félög fengu. og fjallaði hann um
notkun steinsteypu í slitlag á inn-
anbæjargötum. í lokaorðum
greinargerðar sinnar fullyrðir
hann. að olíumöl eigi ekki rétt á
sér nema þar sem ódýr steinefni
eru fyrir hendi. Þetta er að mínu
viti kjarni málsins. Hér a ísafirði
eru ekki til ódýr steinefni. Væru
þau fyrir hendi. væri hiklaust rétt
að nota olíumöl til þess að leggja
á nógu marga fermetra. eins og
gert er sumsstaðar á Norðurlandi.
Einn höfuðkosturinn við steyp-
una er sá. að bæjarfélag getur
hætt og byrjað lagningu með
mjög stuttum fyrirvara. Steypan
er ekki háð neinum sérstökum
vélarútbúnaði. Ég er sannfærður
um að bæjarbúar vilja heldur
steypu þó ekki væri nema vegna
þeirra mörgu og misheppnuðu
olíumalartilrauna. sem hér hafa
verið gerðar á undanförnum ár-
um. Ég tel persónulega. að bæjar-
félagið hafi ekki efni á því að
bjóða okkur meira af slíku. a.m.k.
ekki meðan þessi mál hafa ekki
verið könnuð betur. Ég geri sjálf-
ur ekki ráð fyrir. að þær athugan-
ir sem ég hef beitt mér fyrir. dugi
gegn þeim gegndarlausa áróðri
með olíumölinni. sem haldið hef-
ur verið uppi á undanförnuni ár-
um. en ég er staðráðinn í að ljúka
við að kynna fólki þessi mál til
hlftar. þannig að fullar upplýsing-
ar um báða þessa kosti liggi fyrir.
/Etlunin er að Gunnar Torfason.
verkfræðingur og Óttar P. Hall-
dórsson. tæknilegur ráðunautur
minn í þessum efnum. komi hing-
að undir mánaðarmótin og kynni
sveitarfélögunum hér í kring
greinargerðina. sem við höfum
látið taka saman um þessi mál.
Þessi fundur með fulltrúum sveit-
arfélaganna verður haldinn hér á
ísafirði 29. mars n.k.. sagði Jón
Þórðarson að lokjum. etj.-
Páska-
áætlun
Að venju munu Flugleiðir
halda uppi sérstöku páskaá-
ætlunarflugi til ísafjarðar og
hefst sú áætlun nú á föstudag,
28. mars. Reynir Adóflsson,
umdæmisstjóri, tjáði blaðinu,
að frá og með þeim degi mundi
flugferðum fjölga jafnt og þétt
allt fram til föstudagsins langa,
en allt flug legst niður þann
dag og á páskadag. Nú sem
stendur er flogið tvisvar á dag
til Isafjarðar, en dagana fyrir
páska verður flogið 5-6 sinnum
daglega og á mánudag og
þriðjudag eftir páska verða 7-8
ferðir, hvorn daginn.
Reynir sagði. að á undanförn-
um árum hefði um 600 manns
heimsótt ísafjörð yfir páskana og
er talið líklegt að svipaður fjöldi
komi hingað núna. Tólf
hundruð manns munu því ferðast
milli ísafjarðar og Reykjavíkur á
10-12 daga tímabili.
Eins og fyrr sagði eru farnir
tvær áætlunarferðir daglega milli
fsafjarðar og Rvíkur nú sem
stendur og hefur morgunáætiun
flugleiða verið flýtt um því sem
næst eina og hálfa klukkustund.
Lenda vélarnar hér núna kl. 9.45
á morgnana. Að flýta flugi á
morgnana hefur verið fyrirhugað
síðan á síðasta ári. að sögn Reyn-
is. en þá voru seinni ferðirnar dag
hvern færðar aftur. en ekki
reyndist unnt þá að flýta ferðun-
um af sérstökum ástæðum í á-
ætluninni. þetta nýja fyrirkomu-
lag gekk í gildi 4. mars s.l. og er í
gildi frá þriðjudaögum til föstu-
daga. að báðum dögunum með-
töldum.
Sumaráætlun Flugleiða gengur
í garð 1. maí næstkomandi. eins
og verið hefur undanfarin ár.
Seglbátur
Til sölu seglbátur
enskur af geröinni FOX CUP.
Lengd 5,55 m. Breidd 1,95 m.
Segl: stór segl, genoa, fokka stormfokka, og beigsegl.
í káetu eru leöurklædd sæti, borö og W.C. Lyftikjölur: hægt er
aö lyfta upp kjölnum þannig aö auövelt er aö flytja bátinn á
trailer.
Allar upplýsingar veitir Gfslí
Gunnlaugsson í síma 3902 og 3205
Ferðafélag ísafjarðar auglýsir
Gönguferð á Kubba.
Sunnudaginn 30 mars.
Lagt verður af stað frá Landsbankanum
klukkan 1, stoppað við vegamót Miðtúns
og Seljalandsvegar, einnig við vegamót
Djúpvegar og Vestfjarðavegar.
Verð kr. 2.500.
Þátttaka tilkynnist fyrir föstudagskvöld
til:
Hlíffar Guðmundsd. s. 3250
Laufeyjar Waage s. 3998.
Snorra Grímssonar s. 3523.