Vestfirska fréttablaðið - 04.12.1980, Blaðsíða 1
FRETTABLASIS
Farþega- og vöruafgreiðsla á ísafjarðarflugvelli: Símar 3000 -
3400 - 3410. Söluskrifstofa í Hafnarstræti: Símar 3457 - 3557.
| Bolli Kjartansson j
i segir upp starfi i
Bolli Kjartansson, bæjar-
stjóri, mun óska eftir því á
bæjarstjórnarfundi í kvöld
(fimmtudag), að láta af
störfum sem bæjarstjóri
samkvæmt nánara sam-
komulagi við bæjarráð. Bolli
ritaði bæjarráði uppsagnar-
bréf sitt 1. des. s.l. og mun
því að öllu óbreyttu hverfa
frá störfum á ísafirði í júní
næsta ár.
í samtali við Vestfirska
fréttablaðið sagði Bolli, að á-
stæðan fyrir uppsögn sinni
væru veikindi í fjölskyldu
hans, sem gerðu það að verk-
um að þau þyrftu að vera í
nánum tengslum við sjúkrahús
á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Bolli réðist sem bæjarstjóri til
ísafjarðar haustið 1972
skömmu eftir sameiningu
sveitarfélaganna hér, en áður
hafði hann starfað í sjö ár sem
bæjarritari í Kópavogi.
Prentstofunni ísrún. Jón Her-
mannsson, hjá Leó Ijós-
myndastofu tók myndina. Það
er ekki hans sök, þótt litirnir
séu ekki 100% réttir. Þetta er
frumraun í litgreiningu og verð-
ur að skoðast sem slík.
—Mjög í anda ályktana Fiskideildanna á Vest-
fjörðum.
Á 39. Fiskiþingi, sem haldið
var í Reykjavík nýlega, voru
lagðar fram tillögur um að
teknir verði upp tímabilskvótar,
sem fylgi hefðbundnum vertíð-
ar- og verðlagstímabilum án
skiptingar milli tegundar fiski-
skipa eða svæða. í samtali við
Vestfirska sagði Jón Páll Hall-
dórsson, einn vestfirsku full-
trúanna á Fiskiþingi, að þessar
tillögur væru mjög f sama anda
og þær sem lagðar voru fram á
þingi fiskideildanna á Flateyri í
október sl. Helsta frávikið er
það, að Fiskiþing gerir ráð fyrir
að meiri afli verði veiddur á
vetrarvertíðinni.
Fiskiþing lagði til, að kvóta-
tímabilin yrðu þrjú, frá l. jan.-3l.
maí, frá l. júní-30. sept. og frá 1.
okt.-31. des. Sjávarútvegsráðherra
gerði í sinni tillögu ráð fyrir, að
árinu yrði skipt í fjögur jafnlöng
veiðitímabil. Samkvæmt tillögum
Fiskiþings er reiknað með, að á
p •mmm—mmmmmmmmm.
næsta ári verði veiddar 400 þús.
lestir af þorski, sem skiptist þann-
ig á veiðitímabilinu: fyrstu fimm
mánuðina verða veiddar 240 þús.
lestir, eða 60% heildaraflans.
Næstu fjóra mánuði verða veidd-
ar 100 þús. lestir, eða 25% heild-
araflans, og 60 þús. lestir síðustu
þrjá mánuði ársins, eða 15%
heildaraflans. Gert er ráð fyrir að
allar veiðitakmarkanir, sem giltu
á þessu ári, muni gilda áfram
næsta ár. Samkvæmt tillögunum
verður þorskveiðibann á togara-
flotann á fyrsta veiðitímabilinu.
Taka verður út þorskveiðibannið
í hverjum mánuði og má ekki
flytja það milli mánaða, en hins-
vegar er það ekki bundið við
ákveðnar dagsetningar.
Reiknað er með að skrapdagar
togaranna á næsta ári verði um
140 talsins. Þá verður leyfilegt
hlutfall þorsks í afla togaranna
nokkuð breytt frá því sem nú er:
20% á fyrsta tímabili, 15% á öðru
og 25% á þriðja tímabilinu.
í samtalinu við blaðið sagði
Jón Páll Halldórsson, að það
væru mjög skiptar skoðanir um
hvort æskilegt væri að skipta
heildarveiðinni milli báta og tog-
ara. f þeim tillögum, sem sjávar-
útvegsráöherra lagði fyrir Fiski-
þing, gerði hann ráð fyrir að bátar
fengju helming aflans og togar-
arnir hinn helminginn. Það var
hinsvegar mat Fiskiþings, að
þetta yrði of erfitt í framkvæmd.
Sagði Jón Páll, að ef t.d. loðnu-
flotinn fengi að stunda þorskveið-
ar í vetur mætti spyrja af hvorum
aðilanum hann ætti að taka kvót-
ann sinn, ef búið væri að skipta
Framhald á bls. 6.
,^ertu stilltur
elsku yinur”
Lögreglan á Fsafirði hefur megna vantrú á kylfum. Hún
féllst þó á að sýna fréttamanni Vestfirska hvernig nota
mætti slíka gripi. Sjá nánar á bls. 4. Leó Ijósmyndastofa
Hversvegna sumarmynd í
desemberbyrjun?. — Jú, þetta
er tilraun. Við sjáum hér fyrstu
myndina, sem er litgreind hjá
Fiskiþing gerir tillðgur
um tímabilskvóta